Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 43

Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 43
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 43 og gleði og ekki breyttist það þegar hann Valdi kom til sögunnar. Ástvaldur Magnússon, eiginmað- ur hennar og lífsförunautur, var einn af hinum landsþekktu Leik- bræðrum. Það var ekki leiðinlegt á skemmt- unum í sveitinni og héraðsmótunum á Laugum, þegar „Andrews“-systur sveitarinnar (Nenný, Sigga systir hennar og frænka þeirra Hulda á Hóli) eða Leikbræður skemmtu – oft að lokinni frækilegri íþrótta- keppni helstu kappa þar sem mikill rígur ríkti á milli ungmennafélaga. Brúðkaupsdagurinn þeirra Nen- nýjar og Valda er ógleymanlegur. Og svo komu börnin þeirra elskuleg eitt af öðru og alltaf var haldið vest- ur að vori. Bústaðurinn í Brekku var byggð- ur í túnfætinum utan við Gilið og smám saman varð þarna mikill sælureitur, þar sem handlagni hús- bóndans og natni húsmóðurinnar fékk notið sín til fulls. Fallegur gróður prýðir í dag landspilduna þeirra og Valdi lét sig ekki muna um að hanna og byggja af mikilli útsjónarsemi litla og umhverfis- væna rafstöð til nota fyrir bústað- inn svo þar er alltaf bæði hlýtt og bjart. Í borginni áttu þau falleg heimili allt frá litlu risíbúðinni á Langholts- veginum til hússins í Breiðagerðinu. Og það var sama hvort húskynnin voru þröng eða rúm, alltaf var sungið og spilað alveg fram á þenn- an dag. Það var ekki asi á henni frænku minni þegar hún gekk til verka, en engu að síður vannst henni betur en mörgum öðrum. Í berjabrekkunum fyllti hún heilu stampana á meðan ég skrölti um með ömurlega botn- fylli í minni dós. Samt hafði hún alltaf tíma til að segja skemmtilega frá og það gladdi mig ósegjanlega, þegar Dóra Steinunnn dóttir henn- ar sagði mér að hún hefði skráð nið- ur frásagnir eftir mömmu sinni, því að Nenný hafði óbrigðult stálminni og einkar skemmtilegan frásagnar- máta. Það eru alltaf viss kaflaskil í ævi manns þegar svo nákominn ættingi hverfur á braut. En minningarnar lifa og það er dýrmætur fjársjóður fólginn í svo löngu og fallegu ævi- hlaupi sem hennar. Við Sveinn og fjölskylda okkar vottum eftirlifend- um dýpstu samúð. Auður Eydal. Kynni mín af Guðbjörgu Helgu Þórðardóttur hófust fyrir tæpum 50 árum er ég giftist bróður hennar, Sturlu Þórðarsyni. Hún var frá bernsku alltaf kölluð Nenný og margir þekktu hana bara með því nafni. Nenný átti æskuheimili sitt á Breiðabólsstað á Fellsströnd og það einkenndi hana eins og marga Dala- menn að hún var tengd heimaslóð- um órjúfandi böndum. Á Breiða- bólsstað ólst hún upp og naut þar góðs uppeldis og fræðslu. Öll systk- inin frá Breiðabólsstað eru einstak- lega vel máli farin og má það ef- laust þakka móður þeirra, Steinunni, sem var virtur kennari þar í sveitinni. Nenný var stálminn- ug og mundi alla afmælisdaga í fjöl- skyldunni og gott var að geta leitað til hennar þegar þess þurfti með. Nenný fór ung í Húsmæðraskólann á Staðarfelli og einnig lærði hún á orgel hjá Páli Ísólfssyni. Hún var um skeið organisti í Staðarfells- kirkju og kenndi í tvö ár söng í hús- mæðraskólanum á Staðarfelli. Nenný lék jafnan undir söng þegar fjölskyldan tók lagið og þegar gest- ir komu að Breiða settist hún gjarn- an við orgelið og svo var sungið og sungið. Nenný giftist Ástvaldi Magnús- syni frá Fremri-Brekku í Saurbæ árið 1945 og hefur sambúð þeirra verið einstaklega farsæl. Þau sett- ust að í Reykjavík fyrst í leiguíbúð en fljótlega eignuðust þau sitt eigið húsnæði. Ástvaldur er ákaflegar hagur smiður og vann mikið sjálfur að því húsnæði sem þau áttu hverju sinni. Hann er mjög góður söng- maður og söng í kvartettinum Leik- bræðrum og síðar í Karlakór Reykjavíkur. Þau hjón voru því bæði mjög tónelsk og skiluðu þeim arfi til barna sinna og afkomenda, sem margir eru frábært tónlistar- fólk. Nenný og Valdi byggðu sér fyrir mörgum árum sumarbústað í brekku við gilið rétt ofan við túnið á Breiða og nefndu hann Brekku. Þar á Valdi ótal handtökin og m.a. byggði hann litla vatnsaflsstöð sem sér Brekku fyrir ljósi og hita. Í Brekku átti fjölskyldan sinn sælu- reit hvert sumar við leik og störf. Hjá Nenný var fjölskyldan í fyrsta sæti, en fólkið í sveitinni heima átti einnig ríkan sess í hjarta hennar og fylgdist hún vel með lífi þess og starfi. Hún var einstaklega ljúf og hlýleg í fasi og þess nutu ekki síst gamalmenni og einstæð- ingar. Hún var mikill dýravinur og til marks um það tók virðulegur kisi úr nágrenninu sig til og settist upp hjá hjónunum í Breiðagerðinu og dvaldi þar löngum meira en heima hjá sér. Söngur og tónlist hafa alltaf fylgt fjölskyldu Nennýar og í Reykjavík söng hún lengi í kirkjukór Háteigs- kirkju. Í fjölskylduboðum stórfjöl- skyldunnar frá Breiðabólsstað kom það oftast í hennar hlut að leika undir söng. Alltaf var gaman að heimsækja Nenný og Valda og ætíð tekið á móti gestum af gestrisni og hlýju og tími tekinn til að spjalla við gest- ina. Nenný sá oft spaugilegar hliðar lífsins og sagði skemmtilega frá. Margs er að minnast og sakna en minningarnar um elskulega og góða konu lifa um ókomna tíð. Ég og fjölskylda mín þökkum Nenný vin- áttu og samferð gegnum árin og vottum Ástvaldi, börnum hans og fjölskyldum þeirra innilega samúð. Guð blessi minningu Guðbjargar Helgu Þórðardóttur. Þrúður Kristjánsdóttir. Mig langaði til að minnast föð- ursystur minnar, Guðbjargar Helgu eða Nennýjar eins og hún var alltaf kölluð. Á hverju sumri komu þau hjónin vestur í sveitina okkar, í sumarbú- staðinn og sælureitinn sinn Brekku í túnfætinum á Breiðabólstað. Ein af mínum fyrstu minningum um Nennu frænku er þegar hún var að þvo þvott niðri í þvottahúsi eða „gamla eldhúsi“, við frændsystkinin sátum í óhreinatauskassanum uppi á borði og hún hafði ofan af fyrir okkur með sögunum af Kolrössu krókríðandi, Velvakanda og bræðr- um hans og mörgum fleiri ævintýr- um. Nenný var afbragðs sögumaður og við hölluðum okkur fram á kassabrúnina til að missa ekki af neinu, og hrundum auðvitað beint niður á steingólfið. Sjálfsagt höfum við skrámast eitthvað en það sem lifir í minningunni er þessi ævin- týraheimur sem hún skapaði okkur þarna við stórþvottinn. Seinna, þegar ég var farin að geta lesið sjálf, rölti ég oft út í Brekku þar sem Nenna tók mér alltaf opnum örmum, færði mér kakó og kex og svo mátti ég sitja þar og lesa eins lengi og ég vildi. Önnur minning er mér líka dýr- mæt. Það var þegar ég, smástelpan, fékk pakka með mjólkurbílnum, stærðar kassi merktur bara mér og sendur alla leið frá Reykjavík. Það var afmælisgjöf til mín frá Nennu og Valda, forláta dúkkuvagn, inni- haldið var þó aukaatriði því hlýjan sem að baki fyrirhöfninni bjó gladdi barnshjartað svo mikið. Nenna tók alltaf þátt í sumar- verkunum í sveitinni, hún var ekki stór kona en það munaði um hand- tökin hennar. Þegar við systkinin uxum úr grasi og fórum að geta að- stoðað kom það einhvern veginn oft í hlut okkar að raka dreifar og galtabotna, það þótti flestum leið- inlegt verk en með Nennu var það skemmtilegt. Hún hafði alltaf frá mörgu að segja en var líka góður hlustandi og hægt að spjalla við hana um flest. Þrátt fyrir hartnær 40 ára aldursmun bar aldrei skugga á samstarf okkar eða vináttu. Síð- ustu árin sem heyjað var á þennan máta held ég að við höfum mest puðað við þetta tvær einar, en það var góður tími. Svo þegar kom að því að ég hélt suður til skólagöngu, grútfeimin sveitastelpan, þá var ég alltaf velkomin heim til þeirra, mér var reglulega boðið í mat og dekrað við mig. Aldrei var skroppið svo vestur um helgar að mér væri ekki boðið með og einhvern veginn hef ég grun um að stundum hafi ferð- irnar verið farnar mín vegna. Svona umhyggja gleymist aldrei. Ekki má gleyma tónlistinni sem skipaði svo stóran sess í lífi hennar. Það voru ógleymanlegar stundir þegar þau systkinin komu saman í stofunni hjá ömmu og sungu fram á nótt við undirleik Nennu eða pabba. Þar var ekkert kynslóðabil, við börnin lærðum kynstur laga og ljóða, öll erindin. Svo kom hún oft vestur og söng með okkur við ýmis tækifæri á meðan heilsan leyfði. Einu sinni man ég að við mættum bara tvær í kirkjusönginn og þá var gott að hafa Nenný sér við hlið. Hún var alltaf svo traust. Nú er hún horfin frá okkur og söknuðurinn er sár en minningin lif- ir um mæta og góða konu. Blessuð sé minning Nennýjar frænku! Sigrún B. Halldórsdóttir. Kær frænka mín, Guðbjörg Helga Þórðardóttir, er fallin frá. Hún var alltaf kölluð Nenný. Við vorum systkinabörn og mér rennur blóðið til skyldunnar að minnast þessarar góðu og skemmtilegu konu. Æskuminningar frá Breiða- bólstaðarheimilinu eru ótalmargar og ljúft og kært að rifja þær upp. Hún fór ung til Reykjavíkur og dvaldi þar nokkra mánuði við org- elnám hjá Páli Ísólfssyni. Að þessu námi loknu fór hún rakleitt heim og var strax fengin sem orgelleikari við messur í Staðarfellskirkju og ýmsum öðrum kirkjum í sveitinni. Það var mikill fengur fyrir föður hennar, sem var kirkjuforsöngvari um áratuga skeið á þeim tímum sem enginn var undirleikarinn. Þegar kom í ljós að Guðbjörg var snjall organisti. Enda leið ekki á löngu þar til hún var farin að spila í ýmsum veizlum og samkvæmum. Þegar unglingar komu að Breiða- bólstað hrifust þeir allir sem einn af þessari ungu og fallegu stúlku sem var óspör að spila og skemmta fyrir okkur. Hún var einstaklega fljót að læra öll lög og við gátum treyst því að hvert lag var nákvæmlega rétt ekki síður en textinn. Með tónlistargáfum sínum var Guðbjörg mikill gleðigjafi og hafði góð áhrif á unga fólkið í sveitinni. Í þann tíð voru engin hljómtæki og tónlistarmenning með mjög öðrum hætti en nú tíðkast. Mér er til efs að yngra fólk vorra daga skilji hvers virði þessi kona var börnum og fullorðnum þegar hún tók að sér að leiða okkur í töfraheima tónlist- arinnar. Nenný flutti síðar suður til Reykjavíkur og mun hafa átt mik- inn þátt í velgengni hins vinsæla kvartetts „Leikbræðra“, sem naut mikillar almannahylli um land allt á sínum tíma og hljómar raunar enn. Þegar Nenný fór úr sveitinni hafði yngsti bróðir hennar hrifist svo mjög af þessu þessu einstaka tónlistaruppeldi að hann tók við af systur sinni og heldur uppi tónlist- arlífi í Dalabyggð jafnt í kirkjum sem við veraldlega skemmtan og hefur verið drifkraftur í því að halda uppi ótrúlega miklu og öflugu sönglífi um alla Dalabyggð. Því er það svo að enn hljóma óm- ar um alla Dalina sem eru ættaðir frá Breiðabólstað og byggjast á frumherjastarfi Nennýjar og þeim trausta grunni sem hún lagði með verkum sínum og einlægum áhuga. Þegar þessi góða frænka kveður okkur vil ég með þessum orðum minnast verka hennar og þakka þau fyrir hönd okkar Sveinsstaðasystk- ina, bæði þeirra sem eru á lífi og hinna, sem eru horfin úr þessum heimi, og flytja sömuleiðis kveðju frá börnum okkar og tengdabörn- um. Eiginmanni, börnum og öllum ættingjum vottum við dýpstu sam- úð og vonum og vitum að minningin um þessa hógværu og góðu konu verði þeirra styrkur á kveðjustund og um ókomna framtíð. Margrét og Kristinn Sveinsson frá Sveinsstöðum. ✝ Árni HaraldurGuðmundsson fæddist í Reykjavík 8. apríl 1928. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 22. febrúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðmundur Haraldur Árnason stýrimaður, f. á Gíslastöðum í Grímsnesi 26. febr- úar 1898, d. 3. febr- úar 1979 og Vigfús- ína Katrín Kristófersdóttir húsmóðir, f. á Vindási í Landsveit 1. júní 1900, d. 23. nóvember 1969. Börn Guð- mmundar og Katrínar auk Árna eru Kári Guðmundsson, f. 11. apr- íl 1929 og Lára Hrönn, f. 30. apríl 1930, d. 1996. Árni kvæntist 1. júní 1950 Ingi- björgu Sigríði Stefánsdóttur, f. á Arnarstöðum í Núpasveit í N- Þingeyjarsýslu 9. ágúst 1929, d. 8. febrúar 1992. Börn þeirra hjóna eru: 1) Brynjólfur, f. 22. janúar 1949, d. 20. júlí 1994. 2) Guð- mundur, f. 11. nóvember 1957, maki Júlíana Árnadóttir, f. 22. desember 1957, þau eiga tvö börn, a) Guðbjörgu Heiðu, gift Magnúsi Magnússyni, dóttir þeirra er Hekla og b) og Árna Heiðar. 3) Lára Hrönn, f. 17. janúar 1959 maki Arí Jónsson, f. 8. ágúst 1956. Þau eiga þrjú börn, a) Ágúst Inga, sambýliskona Elva Björk Ágústs- dóttir, sonur þeirra er Brynjar Ingi, b) Daníel Má og c) Ólöfu Brynju. 4) Sigríður, f. 27. jan- úar 1961, maki Ken- neth B. Clarke, f. 11. nóvember 1952. Þau eiga þrjá syni, Jonathan Árna, Kristófer Davíð og Tómas Ryan. 5) Haraldur, f. 9. febr- úar 1964. Hann á tvær dætur, Hörpu Dís og Katrínu Ingu. 6) Árni, f. 2. ágúst l966, maki Aðalheiður Íris Hjaltadóttir, f. 2. september 1966. Þau eiga tvo syni, Hjalta Stefán og Þóri Ró- bert. Árni stundaði sjó frá l942–1962. Stýrimaður á Agli rauða og Guð- mundi Júní. Sjómennska hans endaði sem bátsmaður á m/s Heklu. Hann hóf störf hjá Slökkviliði Reykjavíkurflugvallar 1962, einnig var hann ökukennari öll árin sem hann starfaði þar og hélt svo áfram að kenna á meðan hann hafði heilsu til. Hann var einn af stofnendum Ökuskóla í Reykjavík sem hann rak um ára- bil. Einnig var hann einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Jörfa í Reykjavík 1975 og var meðlimur þar alla tíð. Útför Árna verður gerð frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Elsku afi, þú varst alltaf lífsgladur og naust þess að deila því með öðrum. Við munum mest eftir því hvað það var alltaf gaman að vera með þér. Þú varst alltaf með bros á vörum og tilbúinn til hláturs. Við munum alltaf hafa minningarnar þínar í hjarta okk- ar. Hvort sem þú varst að stríða okkur og sagðist heita Jósafat Tollaseus eða þegar við fórum í bíltúr þá var alltaf jafn gaman að vera með þér. Minn- ingarnar eru ótal margar bæði heima á Íslandi og hérna í Ameríku. Takk fyrir allar minningarnar. Jonathan Árni, Kristofer Davíð og Tómas Ryan. Elsku yfirálfur, afi og langafi. Við kveðjum þig með ljóði. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Við munum sakna þín. Ágúst Ingi Arason, Elva Björk Ágústsdóttir, Brynjar Ingi Ágústsson. Öðlingurinn Árni H. Guðmundsson ökukennari er látinn á sjötugasta og níunda aldursári. Mér brá við frétt- ina. Samt átti hún ekki að koma á óvart. Hann hafði átt við andlega van- heilsu vegna heilabilunar að stríða í nokkur ár en var líkamlega hraustur að öðru leyti. Kynni okkar Árna hófust fyrir tutt- ugu og sex árum þegar ég hóf að kenna við ökuskóla sem hann rak ásamt fleiri stórökukennurum eins og það var kallað í þá daga. Árni var af- kastamikill og vinsæll ökukennari um árabil og sinnti m.a. kennslu heyrn- arskertra nemenda af mikilli alúð. Ég minnist af mikilli ánægju sam- skipta við hann, bæði í starfi og leik. Sérstaklega vil ég minnast mokkurra veiðiferða sem við fórum saman í fyrir nokkrum árum ásamt fleiri félögum í skólanum. Í einni af þessum ferðum fékk Árni maríulaxinn sinn í Lauga- dalsá í Ísafjarðardjúpi. Mikil var gleði gamals sjómanns yfir þessum happa- feng. Árni starfaði sem stýrimaður áður en hann hóf störf í landi við öku- kennslu og sem slökkviliðsmaður. Ökukennarafélagið minnist Árna sem góðs félaga sem vann trúnaðar- störf fyrir félagið á árum áður. Að leiðarlokum minnist ég af þakklæti vináttu og góðrar samvinnu um ára- bil. Fyrir hönd Ökukennarafélagsins og okkar sem vorum félagar hans við ökuskólann sem nú starfar á Hverf- isgötu 105 votta ég börnum hans og öðrum aðstandendum okkar dýpstu samúð. Snorri Bjarnason. Árni H. Guðmundsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein ber- ist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar séu ekki lengri en 3.000 slög (stafir með bil- um - mælt í Tools/Word Count). Ekki er unnt að senda lengri grein. Hægt er að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og votta þeim sem kvaddur er virðingu sína án þess að það sé gert með langri grein. Ekki er unnt að tengja viðhengi við síðuna. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli, sem nánustu aðstandendur senda inn. Þar koma fram upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, fæddist, hvar og hve- nær hann lést, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvað- an útförin fer fram og klukkan hvað athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minning- argreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.