Morgunblaðið - 02.03.2007, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 49
milli hans, Stefáns Briem og mín og
ekkert gefið eftir þótt leikurinn
hefði jafnast frá því á menntaskóla-
árunum. Ingvar lagði skýrar línur
að hætti einherja um að öllum vin-
skap lyki um leið og sest var við
taflið. Þá skyldi barist til síðasta
manns. Við stofnuðum skákklúbb á
laugardögum þar sem bæði gamlar
kempur eins og Guðmundur Ágústs-
son og rísandi stjörnur fjórmenn-
ingaklíkunnar öttu kappi og margir
fleiri. Ýmist var teflt heima hjá
Ingvari eða mér. Seinna breyttist
klúbburinn í Iðnskólaklúbbinn eftir
að Ingvar var orðinn skólastjóri.
Þar var hann allt í öllu. Að auki var
hann iðinn við að kenna og styrkja
bakfiskinn í ungum skákmönnum
eins og Helga Ólafssyni og Jóhanni
Hjartarsyni með einkaeinvígjum.
Æði oft hringdi hann í mig til að
„taka dúel“ og þá þreyttum við lang-
ar fræðilegar orrustur í slavnesku
vörninni eða Caro-Kann vörninni og
veittist ýmsum betur.
Í skákferðum var Ingvar traustur
og góður félagi. Frækileg var sig-
urförin til Bandaríkjanna 1978 þeg-
ar hann vann það fáheyrða afrek að
sigra ásamt öðrum á World Open.
Þá spurði margur meistarinn í for-
undran: „Hver er þessi maður eig-
inlega?“ Og ekki stóð á svarinu:
„Merkur skólamaður á Íslandi.“
Förin til Krítar 2003 var að vísu
ekki sama sigurförin en samvistirn-
ar við Ingvar voru þeim mun
ánægjulegri með skemmtilegum
viðræðum og kappsundi í Miðjarð-
arhafinu.
Eftir að Ingvar lét af störfum gat
hann loks leyft sér að helga skák-
gyðjunni meiri tíma. Hann var iðinn
við að tefla á mótum og hársbreidd
munaði að hann hampaði heims-
meistaratitli öldunga og næði þar
með stórmeistaratitli í skák. Við
skákborðið naut hann sín til fulls.
Þá gneistaði einbeitnin og sigurvilj-
inn af honum svo að nánast rauk
upp af kollinum. Við fráfall Ingvars
hefur skákgyðjan misst einn sinn
kærasta ástvin. Hans verður sárt
saknað meðal skákvina. Mestur er
þó harmur eftirlifandi eiginkonu
hans, sona og fjölskyldu allrar. Ég
votta þeim einlæga samúð mína.
Blessuð sé minningin um Ingvar Ás-
mundsson.
Bragi Halldórsson.
Ingvar Ásmundsson var skóla-
meistari Iðnskólans í Reykjavík
1980–2000 og formaður Skólameist-
arafélags Íslands 1981–1989 auk
annarra trúnaðarstarfa fyrir iðn-
skóla og kennarasamtök.
Öll þessi ár hafði Ingvar mikil
samskipti við menntamálaráðuneyt-
ið og raunar allan vettvang íslenska
framhaldsskólastigsins. Hvarvetna
lét hann til sín taka af festu og víð-
tækri reynslu. Hann var baráttu-
maður fyrir umbótum og nýjungum
í skólakerfinu, einkum áfangakerf-
inu. Hann þreyttist aldrei á að
draga fram kosti þess til jöfnunar
tækifæra við hefðbundnar og, að því
er honum þótti, svifaseinar bók-
námshefðir. Hvorki menntamála-
ráðuneytið né gamlir latínugránar
fóru varhluta af hvassri gagnrýni
hans þegar honum þótti við þurfa
eða seint ganga. Það gat verið gam-
an að skylmast við Ingvar og ekki
síður með honum ef því var að
skipta.
Ingvar var rekstrarlega sinnaður
og nákvæmnismaður í meðferð fjár-
muna – metnaðarfullur fyrir hönd
sinnar stofnunar. Þannig sigldi hann
ekki alltaf sléttan sjó út á við eða
inn á við.
Ingvar gekk fram fyrir skjöldu í
því að verja og sækja hagsmuni lít-
ilmagnans. Skólinn hans, Iðnskólinn
í Reykjavík, varð undir hans stjórn
forystuafl í þjónustu við stóran hóp
nemenda sem aðrir vildu ekki sinna,
hlutverk sem skólinn rækir enn með
sóma.
Við sem fylgdumst úr mennta-
málaráðuneytinu með störfum Ingv-
ars og áttum samleið með honum
um lengri eða skemmri veg, þar eða
annars staðar, vottum ævi hans og
störfum virðingu okkar að leiðarlok-
um.
Aðalsteinn Eiríksson.
✝
Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og
langamma,
EIRÍKA EIRÍKSDÓTTIR,
Kvisthaga 2,
Reykjavík,
sem lést á krabbameinsdeild Landspítalans við
Hringbraut miðvikudaginn 21. febrúar, verður jarð-
sungin frá Neskirkju föstudaginn 2. mars kl. 15.00.
Valgerður Marinósdóttir, Valdimar Valdimarsson,
Sigrún Erla Valdimarsdóttir, Einar Páll Tómasson,
María Valdimarsdóttir, Helgi Sigurðsson,
Kristján Valdimarsson
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar
móður minnar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
HULDU ÁRNADÓTTUR,
Blöndubyggð 4,
Blönduósi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki gjör-
gæsludeildar Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
fyrir einstaka umönnum og hlýju og einnig starfsfólki Héraðssjúkra-
hússins á Blönduósi og lyflæknisdeildar FSA.
Harpa Friðjónsdóttir, Richard Bell,
Bergþóra Huld Birgisdóttir, Harald R. Jóhannesson,
Ragnar Andri, Katrín Birta og Hulda Rún.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir og afi,
SÖLVI HÓLMGEIRSSON,
dvalarheimilinu Nausti,
Þórshöfn,
andaðist á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri
mánudaginn 26. febrúar.
Útförin fer fram frá Þórshafnarkirkju laugardaginn
3. mars kl. 14.00.
Rakel Hólm Sölvadóttir, Einar Júlíus Óskarsson,
Brynhildur Júlía Einarsdóttir,
Aníta Íris Einarsdóttir.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför sambýlis-
manns, föður og afa,
ÁSGEIRS SIGURÐSSONAR,
Ljótarstöðum,
Skaftártungu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Klausturhóla fyrir
kærleiksríka umönnun og til sveitunga og vina fyrir
allar heimsóknirnar sem lífguðu upp á tilveru hans
síðustu vikurnar.
Helga Bjarnadóttir,
Fanney Ásgeirsdóttir,
Heiða Guðný Ásgeirsdóttir,
María Ösp Árnadóttir.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
ÞORVALDUR SIGURJÓNSSON
frá Núpakoti,
sem lést á dvalarheimilinu Lundi, Hellu, aðfaranótt
fimmtudagsins 22. febrúar verður jarðsunginn frá
Eyvindarhólakirkju laugardaginn 3. mars kl. 14.00.
Hafdís Þorvaldsdóttir, Matthías Jón Björnsson,
Guðlaug Þorvaldsdóttir, Árni Gunnarsson,
Kolbrún Magga, Þorvaldur Björn, Ingibjörg, Sæmundur Örn,
Ásta Alda, Jóna Þórey, Elín,
Lára Guðrún, Vigdís Hlíf og Jón Sigmar.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, stjúpmóður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ELÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Eir,
Hlíðarhúsum 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á hjúkrunarheimilinu
Eir, deild 1B, fyrir góða umönnun.
Kristín Þorsteinsdóttir, Þórður Jónsson,
Sigríður Þorsteinsdóttir,
Erla Þorsteinsdóttir, Ágúst Haraldsson,
Steinunn Þorsteinsdóttir, Geir Gíslason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
hlýhug og vináttu við andlát eiginmanns míns,
föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
ÞORSTEINS ARNARS ANDRÉSSONAR,
Bröttuhlíð 8,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins
Eirar fyrir alla umönnun og hlýju.
Friðbjörg Óskarsdóttir,
Lilja Þorsteinsdóttir, Snorri Árnason,
Kristín Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Leví Pálmason,
Alda Þorsteinsdóttir, Vignir Pétursson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku besta amma
mín hefur nú kvatt
þessa jarðvist og verð-
ur hennar sárt saknað.
Ekki hvarflaði að mér að síðasta
helgin í janúar yrði í síðasta sinn sem
ég sæi þig á lífi. Sú helgi er mér of-
arlega í huga og er ég mjög ánægð
yfir því að hafa átt þennan tíma með
þér og fjölskyldunni. Þú varst frá-
bær amma og mér fannst alltaf jafn
skemmtilegt að koma í heimsókn til
þín og afa og það var alltaf jafn leið-
inlegt að fara frá ykkur. Þegar við
komum í heimsókn vildum við Magn-
ús alltaf sofa inni hjá ykkur afa, ég á
bedda við hliðina á þér og Magnús á
bedda við hliðina á afa. Þegar ég var
yngri var ég mörg sumur á Grund-
arfirði hjá ykkur afa og voru það frá-
bær sumur. Þið voruð alltaf svo góð
við mig og þegar ég var hjá ykkur
var ég nú hálfgerð dekurrófa. Einu
sinni suðaði ég og suðaði um að fá
dúkku og þið létuð undan og keyptuð
handa mér dúkku.
Það var alltaf svo gaman að koma í
vinnuna til þín í frystihúsið þegar þú
varst að vinna þar í mötuneytinu og
aðstoða þig. Þú varst svo ánægð þeg-
ar ég kom. Þegar þú last fyrir mig
uppáhaldsbókina mína sem var grís-
irnir þrír og hvað þér fannst gaman
að heyra mig lesa hana fyrir þig. Við
vorum alltaf góðar vinkonur og ég
gat leitað til þín með allt milli himins
og jarðar alltaf hafðir þú einhver
svör. Þegar Brynjar Daði, fyrsta
barnabarnabarnið ykkar, fæddist
voruð þið afi svo stolt og ég er mjög
þakklát fyrir að Brynjar skuli hafa
fengið að kynnast þér. Þið vilduð
aldrei missa af neinum stórum
áfanga hjá mér og voruð alltaf mætt.
Þú varst alltaf glöð og kát og vildir
allt fyrir okkur gera. Brynjar Daði
segir að langamma sé að lúlla og sé
að passa okkur öll.
Takk fyrir alla tímana sem þú
gafst mér, þeir verða alla tíð í minn-
ingum mínum. Okkur Brynjari Daða
þykir afar vænt um þig og við mun-
um sakna þín mikið. Ég læt fylgja
með sálminn Í bljúgri bæn því ég
Aðalheiður
Magnúsdóttir
✝ AðalheiðurMagnúsdóttir
fæddist á Kirkjufelli
í Grundarfirði 29.
janúar 1932. Hún
lést 3. febrúar síð-
astliðinn og var út-
för hennar gerð frá
Grundarfjarð-
arkirkju 10. febr-
úar.
man hvað þér fannst
gaman að hlusta á mig
syngja hann þegar ég
var lítil.
Í bljúgri bæn og þökk til
þín,
sem þekkir mig og verkin
mín.
Ég leita þín, Guð leiddu
mig
og lýstu mér um ævistig.
Ég reika oft á rangri leið,
sú rétta virðist aldrei greið.
Ég geri margt, sem miður fer,
og man svo sjaldan eftir þér.
Sú ein er bæn í brjósti mér,
ég betur kunni þjóna þér,
því veit mér feta veginn þinn,
að verðir þú æ Drottinn minn.
(Pétur Þórarinsson)
Hvíl í friði, elsku amma.
Sigrún.
Elsku amma. Við erum svo þakk-
lát fyrir tímann sem við eyddum með
þér á afmælinu þínu, öll fjölskyldan
samankomin. Siggi er búinn að spá
mjög mikið í þetta af hverju og hvert
þú fórst og hann skilur það að þú
fórst til himna og ert núna engill sem
er alltaf hjá honum. Alltaf gafstu
honum svo mikinn tíma til að spjalla
við hann og spila, talaðir alltaf um
hvað hann hjálpaði þér mikið þegar
hann kom í heimsókn til ykkar. Ég
man sérstaklega eftir því þegar ég
var svo oft í pössun hjá þér þegar þú
varst að vinna í Sæfangi og eitt
skiptið varstu búin að leita út um allt
að mér og fannst mig hvergi, en þá
hafði ég bara lagst á tvo stóla og lagt
mig því ég var svo þreytt.
Alltaf var gott að koma til þín, þú
tókst alltaf svo vel á móti manni, og
hrósaðir ef tilefni var til. Við erum
mjög þakklát fyrir það hvað þú varst
mikið í lífinu hans Sigga, alltaf mátti
hann koma til ykkar og hann var eins
og prins þegar hann var hjá ykkur.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
(Þýð. S. Egilsson)
Við vitum að þú vakir yfir okkur.
Guð geymi þig, elsku amma.
Helga Sjöfn og Sigurður Heiðar.