Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 52
|föstudagur|2. 3. 2007| mbl.is
staðurstund
Síðasta bókin sem Þröstur Leó
Gunnarsson las er Herra Sterk-
ur en hana las hann fyrir Maríu
dóttur sína. » 55
Aðall
Sæbjörn Valdimarsson var ekki
par hrifinn af nýjustu mynd Jim
Carrey, Number 23, og gefur
henni aðeins tvær stjörnur. » 55
dómur
Keppir fyrrverandi söngvari
The Darkness við Erík Hauks-
son í Söngvakeppninni í Hels-
inki í vor? » 54
fólk
Jon Heder úr Napoleon Dyna-
mite leikur aðalhlutverkið í
School for Scoundrels sem
frumsýnd er í dag. » 54
bíó
Kári Árnason heldur á morgun
útgáfutónleika í Þjóðleikhúsinu
en allur ágóðinn rennur í um-
önnunarsjóð föður hans. » 61
tónlist
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NÆSTKOMANDI þriðjudag, hinn 6.
mars, mun hljómsveitin Stranglers –
eitt merkasta afsprengi hinnar upp-
runalegu pönkbylgju – halda tónleika
á NASA. Stranglers lék síðast á Ís-
landi haustið 2004 og var þá að fylgja
eftir nýrri breiðskífu, Norfolk Coast.
Frískandi vindar þóttu leika um hin
gamalreyndu stríðshross á þeirri
skífu og sætti Stranglers því lagi og
dúndraði út nýrri plötu síðasta nóv-
ember, Suite XVI, og vísar titillinn til
þess að um er að ræða sextándu
hljóðversskífu sveitarinnar. Sú plata
hefur fengið enn betri dóma en Nor-
folk Coast og Stranglers því á miklu
flugi nú um stundir. Stranglers kom
annars fyrst til Íslands árið 1978 og
er mál manna að sú heimsókn hafi
hrundið hinni íslensku pönkbylgju af
stað. Blaðamaður bjallaði í JJ Burnel,
franska bassafantinn sem nú leiðir
sveitina, og var hann vel slakur á
kantinum, staddur í sjálfri Lund-
únaborg.
Andvarp
Burnel er þekktur fyrir að vera
harður í horn að taka en svo virðist
sem kantarnir hafi rúnast nokkuð af
á síðustu árum. Burnel er kurteis, en
þó er stutt í grallaragrínið og honum
nokkuð ofarlega í huga eru konur og
vín. Hann byrjar þó á að grínast góð-
látlega með harðan enskuframburð
blaðamanns sem verður til þess að
blaðamaður herðir enn frekar á hon-
um. „Hvað segið þið víkingar gott?“
spyr Burnel. „Þessi enskuhreimur
ykkar er algerlega málið. Hann er
fullkominn.“ Burnel lætur hugann
reika til síðustu heimsóknar og notast
við hreim blaðamanns þegar hann
gerir það.
„Já, það var frrrábært að koma aft-
ur til ykkar. Það var veturrrr.“
– En hvernig hefurðu haft það eftir
þá heimsókn JJ?
„Humm … ja … þessi nýja plata
er komin út og svo erum við búnir að
ferðast um allan heim í kjölfarið á
Norfolk Coast. Henni var vel tekið og
þessari nýjustu hefur verið enn betur
tekið. Trúirðu þessu? Ég þurfti að
verða miðaldra maður til að fá loksins
góða dóma. Við erum að fara til
Bandaríkjanna og Japan út af þess-
um vinsældum og það er bara hið
besta mál.“
– En sérð þú einhvern mun á þess-
um tveimur „endurreisnar“ plötum?
„Aaa … (andvarpar) … þessi nýja
er hressari, jákvæðari. Þó að umfjöll-
unarefnin séu fremur myrk flestöll.
Svo eru þær líka ólíkar hvað sönginn
varðar. Ég og Baz (Warne, gítarleik-
ari) skiptum núna söngnum á milli
okkar. Svoleiðis var bandið sett upp í
gamla daga og ég fíla það helv. … vel
að vera farinn að syngja.“
Bjórrr
En af hverju hætti Paul Roberts í
Stranglers (söngvari frá 1990 –
2006)? „Paul var alltaf í öðrum hljóm-
veitum meðfram Stranglers, m.a. í
Santana heiðrunarsveit. Hann var
búinn að syngja inn hálfa plötuna,
texta eftir mig, og ég fékk á tilfinn-
inguna að hann næði ekki því sem ég
var að meina með þeim. Hugurinn
virtist annars staðar. Þannig að ég
spurði hann, kurteislega, hvort hann
væri í þessu 100% eða ekki. Ég bað
hann um að hugsa málið í nokkra
daga og ræða síðan við okkur aftur.
Það gerði hann og við ræddum þessi
mál í bróðerni og komumst að því að
það væri affarasælast að hann hætti.
Þannig að það var ekki mikið drama í
kringum þetta, öllu heldur var um
praktíska ákvörðun að ræða.“
– Varð sveitin þéttari við þetta?
„Ójá. Sveitin er afar þétt núna og á
tónleikum eru meiri læti. Þetta er
svipað og þetta var á fyrstu árunum.
Nú eru tveir söngvarar og mér finnst
það virka mjög vel.“
– Og gekk vel að að taka upp plöt-
una? „Upptökur gengu hratt en við
vorum hins vegar lengi að semja. En
við vorum mun fljótari nú en þegar
við vorum að gera Norfolk Coast. Það
tók okkur fimm ár að koma henni á
koppinn (hlær hæðnislega).“
– En finnst þér eins og hljóm-
sveitin sé að ganga í gegnum end-
urnýjun lífdaganna? „Algerlega. Það
heyrist nú bara (hlær). Það er margt
jákvætt að gerast hjá Stranglers í
augnablikinu.“
– Þannig að þið eruð farnir að hafa
efni á því að sleppa fleiri slögurum,
þar sem efnið á nýju plötunum er það
sterkt. Eða hvað?
„Ja … við verðum að sleppa ein-
hverjum slögurum en mig langar
ekki að skera of mikið niður þar. Það
er gaman að spila lög eins og „Peac-
hes“ t.d.“
– Hefurðu einhverjar væntingar í
garð þessarar þriðju heimsóknar
sveitarinnar til landsins? „Ég ætlast
til þess að íðilfagurt kvenfólk kasti
sér flötu við fætur mína. Og svo vil ég
að þú kaupir handa mér bjórrrr.“
Alveg eins og í gamla daga
Harður „Ég ætlast til þess að íðilfagurt kvenfólk kasti sér flötu við fætur
mínar. Og svo vil ég að þú kaupir handa mér bjórrrr,“ segir JJ Burnel
bassaleikari Stranglers sem hér má sjá neðst til hægri á myndinni.
Allt fullt Stranglers í höllinni 1978. Ferðin einkenndist af mikilli drykkju.
Bandið var nánast óþekkt hér á landi, samt tókst að fylla Höllina.
Miða á tónleika Stranglers má
nálgast á www.midi.is eða á
www.nasa.is.
Fræbbblarnir hita upp.
» Burnel er þekkturfyrir að vera harður í
horn að taka en svo virð-
ist sem kantarnir hafi
rúnast nokkuð af á síð-
ustu árum.
Tónlist | Rætt við JJ Burnel, leiðtoga Stranglers, vegna komandi tónleika á NASA
ÞAÐ er langt síðan aðdáendur
hljómsveitarinnar Síðan skein sól
gátu séð hljómsveitina á sviði. Sá
draumur rætist hinsvegar þann 18.
apríl næstkomandi þegar hljóm-
sveitin blæs til tónleika á Stóra
sviðinu í Borgarleikhúsinu.
Tilefnið er að 20 ár eru liðin frá
því að hljómsveitin var stofnuð en
tónleikarnir verða órafmagnaðir.
Mörgum verður eflaust ljúft að
rifja upp lög á borð við „Geta
pabbar ekki grátið?“, „Ég verð að
fá að skjóta þig“ og „Halló, ég
elska þig“.
Síðan skein sól skipa gítarleik-
arinn Eyjólfur Jóhannsson,
trommuleikarinn Hafþór Guð-
mundsson, söngvarinn Helgi
Björnsson, hljómborðsleikarinn
Hrafn Thoroddsen, bassaleikarinn
Jakob Smári Magnússon og gít-
arleikarinn Stefán Már Magnússon.
Auk þess leggja landsþekktir gestir
hljómsveitinni lið á tónleikunum, en
nánar verður tilkynnt um það þeg-
ar nær dregur, að því er segir í
fréttatilkynningu frá skipuleggj-
endum.
Sögur af ferlinum
Síðan skein sól var stofnuð árið
1987 og fyrsta plata þeirra leit
dagsins ljós ári síðar.
Hljómsveitin var iðin við tón-
leikahald um allt land sem og laga-
smíðar í fjölmörg ár en síðasta
plata sveitarinnar, Blóð, kom út ár-
ið 1994.
Fimm árum síðar kom reyndar
út tvöföld safnplata sveitarinnar.
Afmælistónleikarnir fara fram
þann 18. apríl, sem fyrr segir, á
síðasta degi vetrar.
Þar koma til með að hljóma öll
helstu lög sveitarinnar auk þess
sem hljómsveitarmeðlimir segja vel
valdar sögur af ferli sveitarinnar.
Einungis verða 500 miðar í boði
en miðasala verður nánar auglýst
síðar.
Síðan skein sól saman á ný
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Síðan skein sól Hljómsveitin heldur 20 ára afmælistónleika 18. apríl.