Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 53
menning
Það var varla hægt annað en aðkomast við, þegar EnnioMorricone tók hrærður við
heiðurs-Óskarnum á Óskarsverð-
launahátíðinni á sunnudagskvöld úr
hendi Clints Eastwood. Þarna stóð
hann á sviðinu, roskinn en býsna
reffilegur, og augnablikið hafði
augljóslega mikla þýðingu fyrir
hann. Margur hefði hunsað þessa
„uppbót“ fyrir sært stolt af minna
tilefni.
Það er með hreinustu ólíkindum
að Ennio Morricone, eitt mesta og
jafnframt afkastamesta tónskáld
kvikmyndasögunnar skuli aldrei
hafa fengið Óskarsverðlaun fyrir
tónlist sína við kvikmyndir, þar til
nú að hann hreppir heiðursverðlaun
fyrir ævistarfið.
Allt frá því uppúr 1960 hefur
Morricone verið atkvæðamikill tón-
smiður, og afraksturinn er tónlist
við meir en fimm hundruð kvik-
myndir, auk konserttónlistar og
smærri verka. Ennio Morricone er
höfundur margra ógleymanlegustu
stefja kvikmyndasögunnar og í ljósi
þess að hann hefur þó fimm sinnum
verið tilnefndur til verðlaunanna, þá
spyr maður sig óneitanlega þeirrar
spurningar, hvaða tónlist hafi verið
svona miklu betri en músíkin hans,
að hafa verið valin.
Ennio Morricone fæddist í Rómárið 1928 og lærði á trompet í
Santa Cecilia tónlistarskólanum þar
í borg. Það var hljómfræðikennari
Morricones, Roberto Caggiano sem
uppgötvaði náðargáfu hans við að
semja tónlist og útsetja, hvatti hann
til að gera hljómfræði að aðalfagi;
sem hann gerði, og lauk á aðeins sex
mánuðum. Trompetprófinu lauk
hann líka, þótt síðar yrði. Hann var
umsvifalaust ráðinn til að semja
leikhússtónlist, og ekki leið á löngu
þar til hann var farinn að útsetja
tónlist fyrir útvarp. Hann var enn í
náminu, átti eftir að bæta við sig
gráðum í stórsveitaútsetningum og
tónsmíðum. Þegar upp var staðið
var hann með aðaleinkunnina 9,5
við útskrift.
Starfsferilinn hóf Ennio Morri-
cone sem útsetjari, og var þá iðu-
lega fenginn til að „lagfæra“ eða
endur-raddsetja verk annarra tón-
skálda. Árið 1961 samdi hann fyrst
tónlist við kvikmynd, Il federale eft-
ir Luciano Salce. Sama ár hóf hann
samstarf við vin sinn og skólabróð-
ur, Sergio Leone, - samstarf sem átti
eftir að verða ákaflega skapandi og
farsælt. Spagettivestrinn varð gríð-
arvinsæll; - ekki síst fyrir frábæra
tónlist Morricones, sem var gjörólík
allri annarri kvikmyndatónlist, ein-
faldari í uppbyggingu, en rík að lit-
brigðum, óvenjulegum hljóðfæra-
samsetningum, og stemmningu og
gríðarlega áhrifamikil. A Fistful of
Dollars, frá 1964; The Good, the Bad
and the Ugly frá 1966 og Once Upon
a Time in the West frá 1968 teljast
klassískar myndir í dag og tónlist
Morricones í þeim gjörbreytti því
hvernig önnur tónskáld sömdu fyrir
vestra. Þótt lang mest af tónlist
hans hafi ratað í ítalskar myndir og
evrópskar, eru áhrif hans ekki
minni á ameríska kvikmyndatónlist
en aðra. Af þeim liðlega 500 kvik-
myndaverkum sem Morricone hefur
samið er ekki nema um 10%, eða um
50 fyrir amerískar myndir.
Strax að lokinni fyrstu myndinni
með Sergio Leone, A Fistful of Doll-
ars, fékk Morricone það verkefni að
semja tónlist við biblíumynd Johns
Houstons, The Bible.
Fyrstu Óskarstilnefninguna fékk
hann fyrir tónlistina í Days of Hea-
ven eftir Terrence Malick, árið
1978, næst árið 1986 fyrir The Mis-
sion; 1988 fyrir The Untouchables;
1992 fyrir Bugsy og 2000 fyrir Mal-
ena, - en engan Óskar. Það þótti líka
mörgum skandall að Morricone
væri ekki tilnefndur til Ósk-
arsverðlauna fyrir tónlistina í
myndinni Paradísarbíóinu árið
1989.
Morricone getur þó varla kvartað
undan verðlaunaleysi þótt þessa við-
urkenningu hafi að margra mati
sárlega vantað í sjóðinn hans. Við-
urkenningar sem honum hafa hlotn-
ast skipta hundruðum.
Það er langt síðan kvikmyndaver-
in í Hollywood fóru að bjóða Ennio
Morricone gull og græna skóga ef
hann bara vildi koma vestur og setj-
ast að í bíóborginni.
Enn hefur Morricone verið alls-
endis ófáanlegur að flytja í drauma-
verksmiðjuna. Í þakkarræðunni á
sunnudagskvöldið talaði hann
ítölsku, þakkaði eiginkonu sinni
hennar þátt í velgengninni og
snökti.
Loks heyrði Holly-
wood í Morricone
Reuters
Hrærður Loks fékk Ennio Morricone viðurkenningu frá Hollywood.
AF LISTUM
Bergþóra Jónsdóttir
» Það þótti mörgumskandall að Morri-
cone væri ekki til-
nefndur til Óskars-
verðlauna fyrir
Paradísarbíóið.
begga@mbl.is
EINBÝLI OG RAÐHÚS ÓSKAST Í FOSSVOGI
Traustir kaupendur hafa óskað eftir því að við útvegum
einbýlis- og raðhús í Fossvoginum.
Traustar greiðslur eru í boði og rúmur afhendingartími.
Nánari upplýsingar veitir Sverrir Kristinsson
lögg. fasteignasali.
Sverrir
Kristinsson
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST
500-800 fm skrifstofuhúsnæði óskast sem fyrst til kaups.
Staðsetning mætti gjarnan vera Múlahverfi eða Borgartún.
Fleiri staðsetningar koma jafnvel til greina.
Nánari upplýsingar veita Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Hákon Jónsson lögg. fasteignasali.
VEGNA fjölda áskorana hefur verið
ákveðið að halda annað stórt 90’s
partí á NASA á morgun,“ segir
Curver Thoroddsen 90’s gúrú okkar
Íslendinga. „Á gamlárskvöld var
uppselt en það voru líka margir sem
ekki komust vegna veisluhalda í
heimahúsum. Þakið ætlaði að rifna
af kofanum og meira að segja var
dansað á öllum göngum staðarins.“
Og Curver segir að það verði ekki
minna brjálað, partííð næsta laugar-
dag en tvöþúsund glóstautar hafa
verið fluttir inn til landsins og pönt-
uð hefur verið reykvél fyrir kvöldið.
Þá hafa þau Dj Kiki-Ow og Curver
bætt við lagalistann fleiri frábærum
90’s slögurum sem láta engan eftir
óhreyfðan.
Miðasala fer fram á www.nasa.is
en á föstudag verður seldur mjög
takmarkaður fjöldi miða á staðnum
milli 13-17 fyrir þá sem ekki eru með
kreditkort.
Tekið skal fram að miðasala hefur
farið mjög vel af stað og takmark-
aður miðafjöldi til sölu. Áhugafólk
um tónlist tíunda áratugarins er því
hvatt til að tryggja sér miða sem
fyrst á þetta stuðkvöld á NASA.
Curver og Dj Kiki-Ow á NASA
Glóstautar og reykvél
Svo 90’s Curver og Dj Kiki-Ow hafa bætt við lagalistann.