Morgunblaðið - 02.03.2007, Page 55
Hvað segirðu gott?
Bara allt mjög gott, var að frumsýna
Killer Joe á fimmtudaginn.
Hverra manna ertu?
Faðir minn heitir Gunnar Valdi-
marsson og móðir mín er Vilborg
Kristín Jónsdóttir sem eru búsett
fyrir vestan á Bíldudal þar sem ég er
fæddur og uppalinn.
Nennir þú að taka til í geymslunni
minni? (Spurt af síðasta aðalsmanni,
Sigmari Guðmundssyni.)
Neeeeeeeeeeeeeeeeeeei.
Kanntu þjóðsönginn?
Auðvitað – ekki alveg.
Uppáhaldsmaturinn?
Svið frá pabba.
Bragðbesti skyndibitinn?
KFC að sjálfsögðu.
Hvaða bók lastu síðast?
Herra Sterkur með dóttur minni
Maríu.
Hvaða leikrit sástu síðast?
Dagur vonar, frábær sýning.
En kvikmynd?
Mýrina, mjög góð mynd.
Hvaða plötu ertu að hlusta á?
Jethro Tull.
Uppáhaldsútvarpsstöðin?
Íslenskur aðall | Þröstur Leó Gunnarsson
Nennir ekki að taka til í
geymslunni hans Sigmars
Morgunblaðið/Kristinn
Leikarinn Þröstur Leó vill vita hvort næsti aðalsmaður hafi komið á Bíldudal.
Létt 96,7.
Besti sjónvarpsþátturinn?
Prison Break.
Hvað uppgötvaðir þú síðast?
Flatey, hvað það er frábær eyja.
Helstu kostir þínir?
Ég á dálítið erfitt með að dæma það
sjálfur.
En gallar?
Ertu þá að tala um útigalla?
Þú ert staddur í eyðimörk, það er
heitt og þú ert þyrstur. Allt í einu
heyrirðu nafn þitt kallað og svo
sérðu Hemma Gunn koma hlaup-
andi í áttina að þér með Elsu Lund
öskrandi á bakinu. Hvað gerirðu?
Húkka mér far með Hemma.
Þú ferð á grímuball sem …
Elvis.
Ertu með bloggsíðu?
Nei.
Hvers viltu spyrja næsta viðmæl-
anda?
Hefurðu komið á Bíldudal?
Aðalsmaður vikunnar
hefur verið afkastamik-
ill í starfi sínu und-
anfarin misseri. Hann
fer með hlutverk í leik-
ritinu Killer Joe sem
frumsýnt var í Borg-
arleikhúsinu í gær en
auk þess lék hann ný-
verið í kvikmyndunum
Köld slóð, Börn og For-
eldrar. Hann heitir
Þröstur Leó og er
nýbúinn að uppgötva
Flatey.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2007 55
menning
FÁTT er fegurra en sólbjartur eft-
irmiðdagur að áliðnum vetri þegar
myrkrið er á greinilegu undanhaldi.
Þannig var umhorfs þegar ég fór á
Töluna 23, dimman, drungalegan og
blóðlitaðan spennukrimma með úr-
vals leikurum sem virðast ekki
kunna fótum sínum forráð.
Carrey leikur Walter Sparrow,
hundafangara í ónefndri borg, sem
er hamingjusamlega giftur Agöthu
(Madsen) og faðir Robins (Lerman).
Fjölskyldan er hamingjusöm og fátt
virðist bjáta á uns Walter lendir í
kjaftinum á hundinum Depli. Sama
daginn gefur konan honum handrit
að The Number 23, sem fjallar um
einkaspæjara (Carrey), vafasaman
náunga sem lifir og hrærist í
skuggaveröld innan um myrkar per-
sónur. Spæjarinn, Fingerling, er of-
antekinn af tölunni 23. Walter verð-
ur heltekinn af persónunni, þar með
tölunni og morði sem var framið fyr-
ir röskum áratug.
Í hugum einhverra býr talan 23
yfir leyndardómum, krafti og
kynngi, en hvað sem þeirri bábilju
líður, dugar hún engan veginn þeim
leikstjóranum Schumacher né hand-
ritshöfundinum Fernley Phillips,
sem eitthvað til að byggja á for-
vitnilega bíómynd. Fórnarlömbin,
auk okkar áhorfendanna, eru Car-
rey og Madsen, sem eiga betra skil-
ið. Svo virðist sem álög hvíli á Car-
rey sem birtist af og til í
furðuverkum sem þessu, á milli þess
sem hann sannar sig sem einn at-
hyglisverðasti karlleikari samtím-
ans. Madsen er hörku leikkona sem
var búin að klúðra ferlinum þegar
lánið snerist henni í hag og færði
henni gott hlutverk í Sideways.
Ótrúlegt: Að því loknu tekur hún
strikið beint aftur niður í moðið.
Þau, líkt og flestir aðrir í Tölunni 23,
fara með tvöfalt hlutverk, bæði í
raunveruleika myndarinnar og í
heimi bókarinnar. Hvorugt sögu-
sviðið virkar sem skyldi á hug-
arheim áhorfandans. Þráhyggjan
tengd tölustöfunum og morðmálið
nær aldrei til manns í langsóttum og
fjandsamlegum fáránleik sem verð-
ur einna helst broslegur þegar á líð-
ur.
Talan 23 fer bærilega af stað en
hnignar fljótt og er óþægileg upp-
lifun fyrir augu og eyru. Efnið og
persónurnar eru fráhrindandi, sögu-
fléttan gruggugt sakamál og lítt
áhugaverðar kreddur, a.m.k. eins og
hún er framreidd í þessu nýjasta
verki hins mistæka Schumachers.
Eini, góði kostur myndarinnar er
kvikmyndataka Matthews Libati-
que, en sortinn ber að lokum annað
ofurliði.
Þegar myndinni lauk var sólin
sest og skammdegismyrkrið tekið
aftur við völdum. Þó leið mér eins og
ósýnilegri byrði væri af mér létt.
Þar fór góður biti
í hundskjaft
Óþægileg Talan 23, fer bærilega af stað en hnignar fljótt og er óþægileg
upplifun fyrir augu og eyru, segir m.a. í dómi.
KVIKMYNDIR
Laugarásbíó, Borgarbíó Akureyri.
Leikstjóri: Joel Schumacher. Aðalleik-
endur: Jim Carrey, Virginia Madsen, Log-
an Lerman, Danny Huston, Lynn Collins,
Mark Pellegrino. 95 mín. Bandaríkin
2007.
Talan 23/The Number 23
Sæbjörn Valdimarsson