Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 2
Banaslys Lögreglan telur að ökumaður jeppans hafi látist samstundis í árekstrinum. Við áreksturinn kastaðist
ökumaður flutningabílsins út um framgluggann og var fluttur á slysadeild en er ekki alvarlega slasaður.
KONA á fimmtugsaldri lést í hörðum
árekstri á Suðurlandsvegi á vegar-
kafla vestan við Kotströnd í Ölfusi í
gær. Konan var ökumaður jeppa sem
hún ók til austurs og samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar á Selfossi
benda ummerki á vettvangi til þess að
jeppinn hafi farið yfir á rangan veg-
arhelming þar sem hann lenti framan
á flutningabíl sem kom á móti.
Áreksturinn var mjög harður og telur
lögreglan ljóst að konan hafi látist
samstundis. Við höggið kastaðist
flutningabílstjórinn út um framglugg-
ann en bíll hans valt heilan hring áður
en hann hafnaði utan vegar. Hann var
fluttur á slysadeild Landspítalans
með yfirborðsáverka en að sögn
læknis þar var hann lagður inn til eft-
irlits, þótt ekki væri um alvarleg
meiðsli að ræða. Jeppinn valt einnig á
hliðina.
Slysið var tilkynnt kl. 12:18 og
komu sjúkralið frá Selfossi og
slökkvilið Hveragerðis á vettvang og
sáu um björgunarstörf og var Suður-
landsvegi lokað til klukkan 16:40
vegna vettvangsrannsóknar og
hreinsunar. Stóran kranabíl þurfti til
að fjarlægja ökutækin. Á meðan
björgunarlið starfaði á slysstaðnum
var umferð beint um Hvammsveg.
Slysið er til nánari rannsóknar hjá
lögreglunni og rannsóknanefnd um-
ferðarslysa. Lögreglan óskar eftir
vitnum að aðdraganda slyssins og eru
allir þeir sem geta gefið upplýsingar
beðnir að hringja í síma 480 1010.
Ekki er unnt að birta nafn hinnar
látnu að svo stöddu.
Lést í árekstri við flutningabíl
Kona á jeppa lenti
framan á flutningabíl
á Suðurlandsvegi
við Kotströnd
2 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
straumsvik.is
Verið velkomin í skoðunarferð um álverið í Straumsvík.
Skoðunarferðirnar verða á fimmtudögum kl. 17:00
og á laugardögum kl. 14:00. Hægt er að skrá sig á
straumsvik.is eða í síma 555 4260.
Við bjóðum þér í
skoðunarferð um
álverið
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björnsson,
bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson,
Arnór Ragnarsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
ARNA Sigríður
Albertsdóttir,
sem slasaðist al-
varlega á skíð-
um í Noregi fyr-
ir síðustu
áramót, fékk í
gær bætur frá
tryggingafélag-
inu Íslands-
tryggingu.
Íþróttafélag
Örnu Sigríðar, Skíðafélag Ísfirð-
inga, er eitt fárra íþróttafélaga
sem tryggja félagsmenn sína hér á
landi, að sögn Inga Þórs Ágústs-
onar, formanns Héraðssambands
Vestfirðinga. Þeir og Íþrótta-
bandalag Hafnarfjarðar séu einu
héraðssamböndin sem tryggja öll
sín íþróttafélög.
Aðspurð sagðist Arna Sigríður
vera ánægð með að fá bæturnar
og þá ákvörðun Héraðssambands-
ins að tryggja alla félagsmenn
íþróttafélaganna. „Endurhæfingin
gengur ágætlega, ekkert miklar
framfarir en gengur ágætlega,“
sagði Arna Sigríður sem sagðist
hafa haldið að allir íþróttamenn
væru sjálfkrafa tryggðir.
HSV tryggir
alla iðkendur
Arna Sigríður
Albertsdóttir
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur
um að karlmaður, sem ákærður
hefur verið fyrir stórfellda lík-
amsárás á sambýliskonu sína og
nauðgun, sæti gæsluvarðhaldi þar
til dómur í máli hans fellur en þó
ekki lengur en til 15. maí. Mað-
urinn var á síðasta ári dæmdur í
fimm ára fangelsi fyrir nauðganir
og líkamsárásir. Var hann hand-
tekinn og hnepptur í gæsluvarð-
hald í desember eftir að sam-
býliskona hans kallaði lögreglu
til. Sagði hún að maðurinn hefði
ráðist á sig þegar hún var að tala
í síma, rifið af sér símann og
hent í burtu, og byrjað barsmíðar
sem stóðu meginhluta nætur og
fram á næsta dag auk þess sem
maðurinn hefði nauðgað sér
tvisvar og svipt sig öllum mögu-
leikum á að leita sér aðstoðar.
Í úrskurði héraðsdóms um
gæsluvarðhaldið segir að áverkar
á konunni hafi samrýmst sögu
þeirri sem hún hafi sagði lög-
reglu.
Sætir gæslu
vegna nauðg-
unarmáls
Stjórnmálaflokk-
ur Margrétar
Sverrisdóttur,
Ómars Ragn-
arssonar og fleiri
verður að lík-
indum formlega
til á næstunni.
Heimildir blaðs-
ins herma að
haldinn verði
blaðamanna-
fundur í dag þess efnis og að þar
verði tilkynnt nafn flokksins og
jafnvel merki. Bjóða á fram í öllum
kjördæmum.
Tilkynna
stofnun flokks
Margrét
Sverrisdóttir
MAÐURINN sem lést í vinnuslysi á
Reyðarfirði á mánudag, er hann
varð á milli dráttarvagns og bif-
reiðar, hét Þórhallur Jónsson, til
heimilis í Víðilundi 6c á Akureyri.
Hann fæddist 8. desember 1933 og
lætur eftir sig eiginkonu og þrjú
uppkomin börn.
Lést í slysi á
Reyðarfirði
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands hef-
ur dæmt karlmann til tólf mánaða
fangelsisvistar fyrir kynferðisbrot
gegn stjúpdóttur sinni en frestað
fullnustu níu mánaða refsingarinnar.
Stúlkan er fædd árið 1991. Mannin-
um var að auki gert að greiða stúlk-
unni sex hundruð þúsund krónur í
miskabætur.
Maðurinn, sem neitaði sök, var
sakfelldur fyrir að hafa í apríl 2002
káfað á kynfærum stúlkunnar inn-
anklæða en dómurinn sýknaði hann
hins vegar af því að hafa káfað á inn-
anverðu læri stúlkunnar, utanklæða,
í ágúst 2005.
Við aðalmeðferð málsins kom
fram að kennari stúlkunnar vísaði
henni til skólasálfræðings í mars
2006.
Í viðtali við sálfræðinginn greindi
hún frá því að hafa orðið fyrir mis-
notkun af hálfu stjúpföðurins.
Framburður stúlkunnar var stað-
fastur að mati dómsins og ekkert
kom fram sem dró úr sönnunargildi
hans, en fullt samræmi var með
framburði annarra vitna, s.s. um
breytta líðan stúlkunnar og ótta í
garð ákærða þegar hann var undir
áhrifum áfengis.
Við ákvörðun refsingar var litið til
þess að maðurinn braut á stjúpdótt-
ur sinni inni á heimili barnsins þar
sem það lá sofandi og varnarlaust.
Einnig kemur fram í niðurstöðu
dómsins að brot mannsins hefur orð-
ið fjölskyldunni til mikillar bölvunar
og hefur hún sundrast, en ákærði á
með móður stúlkunnar þrjú börn,
auk annars stjúpbarns.
Málið dæmdu héraðsdómararnir
Benedikt Bogason dómsformaður,
Ingveldur Einarsdóttir og Símon
Sigvaldason. Sigríður Elsa Kjart-
ansdóttir saksóknari sótti málið af
hálfu ákæruvaldsins en Jón Haukur
Hauksson hdl. varði manninn.
Braut gegn
stjúpdóttur
Eftir Egil Ólafsson og Önnu Pálu Sverrisdóttur
STJÓRN Faxaflóahafna sf. hefur sent forsætis-
ráðherra og samgönguráðherra bréf þar sem lýst
er eindregnum vilja til að koma að framkvæmdum
við Sundabraut. Björn Ingi Hrafnsson, formaður
stjórnar Faxaflóahafna, sem lagði fram tillögu
þessa efnis á stjórnarfundi í gær, segir vilja til
þess að Faxaflóahafnir ljúki framkvæmdum í ein-
um áfanga á 3–5 árum. Það muni auka hagkvæmni
í framkvæmdinni.
„Að sjálfsögðu væri ég til í að skoða þetta,“ seg-
ir Sturla Böðvarsson samgönguráðherra. Hann
segir þetta ánægjuleg viðbrögð eftir að ný vegalög
voru samþykkt í þinglok. „Með þeim er opnað fyr-
ir einkaframkvæmdir án nokkurra vafninga.“ For-
svarsmenn Faxaflóahafna hafi fylgst með og átt
við hann samtöl um þetta. Í núverandi samgöngu-
áætlun sé gert ráð fyrir möguleikanum á einka-
framkvæmdum.
„Faxaflóahafnir eiga mikilla hagsmuna að gæta
við að tengja hafnir á Akranesi, á Grundartanga
og í Reykjavík saman. Þess vegna sjá menn mikla
hagkvæmni í því að hraða þessari mikilvægu teng-
ingu. Sama gildir um Vegagerðina svo ég er mjög
ánægður.“ Ný hafnalög hafi opnað fyrir hluta-
félagarekstur á höfnum og ekkert að því að hafnir
útvíkki sína starfsemi. „En þetta er allt á viðræðu-
og undirbúningsstigi.“ Aðspurður hvort til greina
kæmi að semja án útboðs segir hann það eitt af því
sem þurfi að skoða. Væntanlega verður fundur
milli forsvarsmanna Faxaflóahafna, samgöngu- og
forsætisráðherra á föstudag.
Björn Ingi segist telja langlíklegast að gerð
verði jarðgöng frá Sæbraut yfir í Gufunes. Kann-
anir bendi til þess að sá kostur sé hagkvæmari en
áður var talið.
Faxaflóahafnir | Miðopna
Samgönguráðherra fagnar
hugmyndum Faxaflóahafna
Setja fram hugmyndir um að ljúka gerð Sundabrautar í einum áfanga
Mestar líkur taldar á að gerð verði jarðgöng frá Sæbraut í Gufunes