Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ÞINGMENN, varaþingmenn og ráð-
herrar töluðu samtals í rúmar 460
klukkustundir á Alþingi í vetur. Karl-
ar á þingi töluðu í 336 klukkutíma eða
í um 73% af fundartíma þingsins og
konur í um 27% eða í 126 klst. Konur
eru engu að síður 42% af þessum
hópi en mun fleiri konur en karlar
hafa tekið varaþingmannssæti í vet-
ur.
Hlutfall kvenna á þingi er nú tæp
37% og hefur hækkað á kjör-
tímabilinu sem má rekja til þess að
konur hafa tekið sæti karla sem hafa
af einhverjum ástæðum hætt á þingi.
Þá eru konur fjórar af tólf ráðherrum
eða 33%.
Ræðutími jafnastur
í Framsókn
Séu varaþingmenn teknir með í
reikninginn er hlutfall karla og
kvenna sem hafa tekið til máls á Al-
þingi nokkuð jafnt í öllum flokkum,
að undanskildum Frjálslynda flokkn-
um en engin kona sat þingfundi fyrir
hönd flokksins í vetur.
Jafnast er hlutfallið í Sjálfstæð-
isflokki þar sem 13 konur og 13 karl-
ar tóku til máls. Konurnar töluðu
hins vegar aðeins í tuttugu klukku-
stundir en karlarnir í rúmar 60.
Ræðutími milli kynjanna er jafn-
astur í Framsóknarflokknum þar
sem karlar töluðu í rúmar 36
klukkustundir en konur í rúmar 29.
Stjórnarandstaðan talar
mun meira en meirihlutinn
Karlar í stjórnarandstöðunni töl-
uðu mun meira en konur í sömu
flokkum. Þannig töluðu níu samfylk-
ingarkonur í tæpar 45 klst. en tíu
flokksbræður þeirra í rúmlega 102
klukkustundir. Fimm karlar sem
sátu á þingi fyrir Vinstri græna töl-
uðu í 72 tíma en fjórar flokkssystur
þeirra í 31 klukkustund.
Þingmenn sem nú mynda Frjáls-
lynda flokkinn voru málglaðastir í
vetur og töluðu að meðaltali í tæpar
þrettán klukkustundir hver.
Ráðherraræður og -athugasemd-
ir tóku um 15% af tíma þingsins og
ráðherrar töluðu samtals í tæpar 68
klukkustundir. Stjórnarandstaðan
talaði mun meira en meirihlutinn
eða í 314 klukkutíma og 68% af tím-
anum.
Heimild: Vefur Alþingis www.althingi.is.
Tekið var mið af þeim flokki sem þingmenn
voru í við þinglok. Útreikningar taka bæði
mið af þingræðum og athugasemdum.
Þingmenn, varaþingmenn og ráðherrar töluðu samtals í rúmar 460 klukkustundir á Alþingi í vetur
Karlar notuðu
73% af fundar-
tíma Alþingis
Morgunblaðið/Sverrir
Lagt við hlustir Þótt þingmenn séu annálaðir fyrir að tala mikið og vera
stundum langorðir fer líka stór hluti af vinnutíma þeirra í að hlusta.
!"!
#
UMFERÐARÓHAPP varð á Álfta-
nesvegi um klukkan 15 í gær þegar
bifreið fór þvert yfir veginn og end-
aði úti í skurði austan við afleggj-
arann að Bessastöðum. Að sögn lög-
reglunnar á höfuðborgarsvæðinu var
ökumaðurinn, sem var einn í bílnum,
fluttur slasaður á bráðadeild í Foss-
vogi. Hann fór svo meðvitundarlaus
á gjörgæsludeild. Samkvæmt upp-
lýsingum læknis þar var maðurinn
ekki alvarlega slasaður og var kom-
inn til meðvitundar í gærkvöldi.
Ekki var ljóst hvenær hann myndi
losna úr gjörgæslu.
Endaði
slasaður í
skurði
Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur
aps@mbl.is
SAMTÖKIN Samhjálp gera athuga-
semdir við það sem fram kemur í
Fréttablaðinu í gær, að velferðarsvið
Reykjavíkurborgar hafi átt í viðræð-
um við SÁÁ um rekstur meðferðar-
heimilis í Arnarholti á Kjalarnesi.
Þar yrði veitt þjónusta sem Byrgið
bauð áður.
„Það sem okkur svíður fyrst og
fremst er að okkur finnst verið að
taka frá okkur vinnu sem við höfum
lagt fram og ég veit ekki hvort Arn-
arholt hefði komið inn í umræðuna
nema okkar vegna,“ segir Heiðar
Guðnason, forstöðumaður Samhjálp-
ar. Hann segir samtökin hafa frá í
ársbyrjun 2005 reynt að leysa hús-
næðisvanda með því að fá Arnarholt
til afnota eftir að Landspítalinn
hætti þar starfsemi. Viðbrögð í heil-
brigðisráðuneytinu hafi verið já-
kvæð en alltaf dregist að gefa svar.
Eftir að Byrgismálið kom upp hafi
félagsmálaráðuneytið leitað til Sam-
hjálpar um samstarf vegna fyrrum
skjólstæðinga Byrgisins. Samhjálp
hafi þá lagt til að í stað Efri-Brúar,
þar sem Byrgið var áður, yrði Arn-
arholt notað. „Með þessu hefðum við
slegið tvær flugur í einu höggi; ann-
ars vegar hefði húsnæðisþörf okkar
verið fullnægt og hagsmunum
félagsmálaráðuneytisins verið borg-
ið. Nú finnst okkur traust okkar hafa
verið misnotað.“
Hann segist hvorki vilja væna vel-
ferðarsvið borgarinnar né ráðuneyt-
in um að fordómar stýri þar ákvarð-
anatöku. Hins vegar hafi umræða
um Samhjálp, og þá sérstaklega á
Alþingi, verið illa upplýst og for-
dómafull. „Ég held að umræðan hafi
getað stýrt því að málið fari í þennan
farveg.“ Boltinn sé nú hjá félags-
málaráðuneytinu sem ráðstafi því fé
sem ætlað var Byrginu. Það megi
ekki fría sig ábyrgð á ákvarðana-
töku. „Þetta eru peningar og þjón-
usta á forræði landsyfirvalda, þótt
borgin sé stór aðili að málinu.“
„Þetta mál er í vinnslu og ekki frá-
gengið að neinu leyti,“ segir Jórunn
Frímannsdóttir, formaður velferðar-
ráðs. Henni finnst þó viðbrögð Sam-
hjálpar við fyrrgreindri frétt eðlileg.
„Þessu er slegið upp eins og lokuðu
máli, sem það er ekki.“
Samhjálp svíður að SÁÁ taki
hugsanlega við Arnarholti
JÓN Bjarnason,
þingmaður
Vinstri grænna,
talaði samanlagt
í rúman sólar-
hring á Alþingi
liðinn vetur,
lengur en nokk-
ur annar þing-
maður. Flokks-
bróðir Jóns,
Steingrímur J. Sigfússon, talaði í
tæpar 22 klukkustundir. Fast á
hæla honum kom Ögmundur Jón-
asson, VG, og svo Mörður Árna-
son, Samfylkingu. Þá talaði Kol-
brún Halldórsdóttir, einnig í VG,
kvenna mest á líðandi þingi eða
samtals í tæpa 21 klukkustund.
Ögmundur Jónasson tók oftast til
máls eða 262 sinnum.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra talaði lengst
ráðherranna, sem kemur kannski
ekki á óvart, enda var frumvarp
hennar um Ríkisútvarpið ohf. mest
rædda mál vetrarins en það var
rætt í rúmar 70 klukkustundir.
Stjórnarþingmenn töluðu um-
talsvert minna en stjórnarand-
stöðuþingmenn í vetur. Sá stjórn-
arþingmanna sem lengst talaði var
Pétur H. Blöndal, Sjálfstæðis-
flokki, en hann tók 187 sinnum til
máls og talaði samtals í átta
klukkustundir.
Jón talaði
í rúman
sólarhring
Jón Bjarnason
Þorgerður Katrín
talaði mest ráðherra
Páskasnjórinn
er í boði
Vina Hlíðarfjalls
Í SUÐVESTANÁTT er oft mikið
sjónarspil við Öndverðarnesið,
vestasta tanga Snæfellsness, þegar
brimið svarrar við klettana eins og
í hvassviðrinu sem gekk yfir landið
í gær. Miðin á þessum slóðum þóttu
fengsæl og við Öndverðarnes voru
fyrrum margar þurrabúðir. Þar er
og býli sem fór í eyði 1945.
Morgunblaðið/Alfons
Ólgandi brim í Öndverðarnesi