Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÞÓTT ENN sé talsverð óvissa um
hver verða áhrif tollalækkunar á inn-
fluttu kjöti frá Evrópusambands-
löndum bendir margt til þess að ein-
stakar kjötvörur sem fluttar verða
inn muni lækka verulega í verði.
Færa má rök fyrir því að þær verði
jafnvel samkeppnisfærar í kílóverði
við innlendar kjötvörur í einhverjum
tilvikum.
Tollar á kjöt sem flutt er inn frá
ESB voru lækkaðir um 40%, bæði
magn- og verðtollar, í nýgerðu sam-
komulagi Íslands og ESB um við-
skipti með landbúnaðarvörur. Einn-
ig felst í samkomulaginu heimild til
innflutnings á tilteknu magni af kjöti
án tolla og ræðst innflutningur á því
af nýafstöðnu uppboði á innflutn-
ingskvótum.
Engin leið er að áætla áhrifin af
þeim innflutningi á matvælaverð til
neytenda enda ræðst verðið í útboð-
inu. Hins vegar má áætla áhrif tolla-
lækkana á verð til neytenda á toll-
uðum kjötvörum.
Hagstofan hefur gert ráð fyrir að
tollalækkunin geti leitt til 1,5% lækk-
unar á matarverði til viðbótar áhrif-
unum af lækkun virðisaukaskattsins
um síðustu mánaðamót og afnámi
vörugjalda, skv. upplýsingum Guð-
rúnar Ragnheiður Jónsdóttur, deild-
arstjóra vísitöludeildar Hagstofu Ís-
lands. Hún reiknar með að áhrifin af
niðurfellingu vörugjalda á matvæla-
verð muni skila sér á nokkrum vik-
um. Hún segir enn nokkuð óljóst
hvað tollalækkanirnar muni þýða í
verði til neytenda en talið sé að þær
muni smám saman koma fram á
næstu sex til átta vikum.
Hakkið á sambærilegu verði?
Guðrún kynnti tilbúin dæmi um
möguleg áhrif tollalækkunarinnar á
nokkrar innfluttar kjöttegundir á
fundi sem Félag viðskiptafræðinga
MBA við HÍ efndu til í gær um lækk-
un matarverðs (sjá töflu). Að gefnum
forsendum um innflutningsverð og
álagningu má sjá möguleg áhrif tolla-
lækkananna á verð á nokkrum inn-
fluttum kjötvörum. Guðrún tekur
m.a. dæmi af kjúklingabringum og
gefur sér að innflutningsverð á kílóið
sé 500 kr. Verðtollur lækkar úr 30% í
18% og magntollur úr 900 kr. í 540
kr. Verð fyrir álagningu lækkar því
úr 1.550 kr./kg í 1.130 kr./kg. Ef
reiknað er með 50% álagningu og 7%
virðisaukaskatti yrði kílóverð til
neytandans 1.814 kr.
Morgunblaðið aflaði sér í gær upp-
lýsinga um verð á kjúklingabringum
í tveimur stórum matvöruverslunum
í Reykjavík. Í annarri voru kjúk-
lingabringurnar boðnar með 20% af-
slætti á 1.926 kr./kg og voru því rúm-
lega 100 kr. dýrari en í dæmi
Guðrúnar. Í hinni versluninni voru
engin afsláttarkjör og kostuðu bring-
urnar 2.515 kr./kg. Innfluttu bring-
urnar yrðu því ódýrastar í þessum
samanburði.
Í dæmi Guðrúnar er gengið út frá
að innflutningsverð á nautahakki sé
400 kr. Tollarnir lækka um 252 kr. og
útsöluverð til neytandans á hakki
miðað við sömu forsendur og í dæm-
inu um kjúklingabringurnar verður
1.249 kr./kg. Til samanburðar kost-
aði hreint nautahakk með 10% af-
slætti í stórmarkaði í Reykjavík í
gær 1.224 kr./kg og í annarri mat-
vöruverslun var verð á nautahakki
1.298 kr./kg. Innflutta hakkið í dæm-
inu er því á mjög sambærilegu verði
og það innlenda.
Ef tekið er dæmi af áhrifum tolla-
lækkunar á innfluttar nautalundir,
reiknað er með að innkaupsverðið
gæti numið 1.000 kr./kg og álagning
sem fyrr áætluð 50%, kemur í ljós að
kílóverð til neytandans lækkar úr
4.433 kr./kg fyrir tollalækkun í 3.302
kr./kg eftir lækkunina eða um rúm-
lega 1.100 kr. Til samanburðar voru
innlendar nautalundir boðnar á 3.759
kr./kg í matvörumarkaði í Reykjavík
í gær.
Guðmundur Helgason ráðuneytis-
stjóri er þeirrar skoðunar að samn-
ingurinn við ESB um viðskipti með
landbúnaðarvörur muni hafa tölu-
vert að segja til lækkunar á matvæla-
verði. „Ég held að þarna sé tvímæla-
laust um aðgerð að ræða sem muni
lækka matvælaverð,“ segir hann.
Guðmundur segir einnig mikilvægt
þegar samkeppnin eykst að landbún-
aðurinn fái sóknarfæri á móti með
gagnkvæmum markaðsaðgangi.
Innflutt kjöt á samkeppnisfæru verði?
Kílóverð á innfluttum kjúklingabringum gæti orðið 1.814 kr. skv. dæmi sérfræðings á Hagstofunni
Innlendar kjúklingabringur kostuðu 1.926 til 2.515 kr./kg í tveimur matvöruverslunum í gær
Í HNOTSKURN
»Innflutningur á kjöti varyfir 900 tonn í fyrra.
»Hagstofan hefur áætlað1,5% lækkun matarverðs
vegna tollalækkunar.
»Matar- og drykkjarvörurlækkuðu um 7,4% skv.
breytingu á vísitölu neyslu-
verðs milli febrúar og mars.
»Umsóknarfrestur land-búnaðarráðuneytisins um
tollkvóta frá ESB-löndum
rann út 12. mars.
!
!
!
"
##"
# $!
"#
$#
$#
""!
""
#
# !
!
"
$
"
!%
"" $
#
"
#!"
"#!
"
#!
!
"
# !"
"
"
##
!" #"#$ %#& '
#$##$#(("
%&'(
)* *
( &+
( ! ,
( , -
Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur
elva@mbl.is
GRUNN- og leikskóli verða reknir í
sömu byggingu sem reisa á í Norð-
lingaholti í Reykjavík og taka í notk-
un haustið 2009. Að sögn Önnu Krist-
ínar Sigurðardóttur, skrifstofustjóra
grunnskólaskrifstofu borgarinnar,
er þetta í fyrsta sinn sem borgin læt-
ur hanna húsnæði fyrir þessi tvö
skólastig með þessum hætti. Megin-
hugmyndin sé að skapa meiri sam-
fellu í námi barnanna. Á dögunum
var tilkynnt að tillaga arkitektastof-
unnar Hornsteina ehf. hefði orðið
hlutskörpust í samkeppni um hönn-
un skólans. Mun borgin undirrita
samninga við stofuna í næstu viku.
Anna Kristín segist vita til þess að
svipað hafi verið reynt annars staðar
á landinu, til að mynda í Hraunvalla-
skóla í Hafnarfirði.
Aðstaðan í húsnæðinu samnýtt
„Meiningin var að tryggja betra
flæði og sveigjanleika milli grunn- og
leikskólastiganna,“ segir Anna Krist-
ín. Hún leggur áherslu á að um að-
skildar stofnanir verði að ræða þótt
aðstaðan í húsnæðinu verði samnýtt
að hluta. Leikskólinn muni einkum
njóta góðs af því, en leikskólabörn-
unum gefist þá kostur á að nýta sér-
hæfðari rými á borð við íþróttasali og
fleira. Anna Kristín segir að hópur
fólks hafi tekið þátt í að undirbúa
skólabygginguna. Í honum hafi verið
kennarar, skólastjórnendur, foreldr-
ar leik- og grunnskólabarna og íbúar
úr hverfinu, eða hátt í þrjátíu manns.
„Þetta var niðurstaða hópsins. Menn
voru mjög ánægðir með þetta. Það
var til dæmis rætt um að stíga skref-
ið til fulls og gera þetta að einni
stofnun, en niðurstaðan varð að gera
þetta svona og þetta yrðu tvær að-
skildar stofnanir, en tengdar sam-
an,“ segir Anna Kristín.
Litið til reynslu annars staðar
Leik- og grunnskólinn muni deila
lóð, en það verði afmörkuð lóð fyrir
leikskólabörnin. „En það má alveg
hugsa sér að yngstu börnin í grunn-
skóla geti líka nýtt sér þann hluta
lóðarinnar,“ segir hún.
Anna Kristín segir að þegar skól-
inn var skipulagður hafi meðal ann-
ars verið litið til reynslunnar af skól-
anum í Hafnarfirði. Þá hafi skólar
sem þessir verið byggðir á hinum
Norðurlöndunum, til dæmis í Sví-
þjóð. „Þar eru menn farnir að setja
leik- og grunnskóla undir eina
stjórn,“ segir hún.
Sterk og framsækin tillaga
Samkeppnin um hönnun Norð-
lingaskóla hefur staðið frá því í mars
í fyrra. Óskað var eftir tilögum frá
þremur ráðgjafateymum að undan-
gegnu forvali þar sem fram kæmi
góð heildarlausn þar sem grundvall-
aratriði skólastarfsins væru sett í
öndvegi.
Þótti tillaga Hornsteina arkitekta
ehf. svara best þeim áhersluatriðum
sem lögð voru til grundvallar mati.
Ásamt Hornsteinum voru í ráðgjafa-
teyminu Línuhönnun ehf. og Raf-
teiknistofa Thomas Kaaber.
Í umsögn matsnefndar um tillögu
Hornsteina segir meðal annars að
um sé að ræða áhugaverða grunn-
hugmynd um „skólaþorpið“ þar sem
húsin tengjast saman með
„almenningi“ sem myndar götur
og torg í þorpinu. Tillagan sé sterk
og framsækin og leitist við að brjóta
upp hina hefðbundnu skólabyggingu.
Áætlað er að hefja framkvæmdir
við Norðlingaskóla um mánaðamótin
nóvember/desember á þessu ári.
Verðlaun Borgarstjóri ásamt starfsmönnum Hornsteina en tillaga arkitektastofunnar varð hlutskörpust í sam-
keppni um hönnun Norðlingaskóla. F.v. Brynhildur Guðlaugsdóttir, Ásdís Ingþórsdóttir, Sigríður Brynjólfsdóttir,
Ögmundur Skarphéðinsson, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Ólafur Hersisson, Kristín Þorleifsdóttir, Sigurjón G.
Gunnarsson og Ragnhildur Skarphéðinsdóttir. Á myndina vantar Alistair Macintyre og Andrés Narfa Andrésson.
Samfella í
námi barna
markmiðið
Grunn- og leikskólabörn verða í sama húsnæði í nýhannaðri skólabyggingu sem reisa á í Norðlingaholti
Nýr Norðlingaskóli Tillaga Hornsteina þótti sterk og framsækin og leitast
við að brjóta upp hina hefðbundnu skólabyggingu.
Í HNOTSKURN
»Norðlingaskóli hóf göngusína í ágúst 2005. Hann er
nýjasti grunnskólinn í Reykja-
vík og er í Norðlingaholti, mitt
á milli Elliðavatns og Rauða-
vatns.
»Gert er ráð fyrir því aðNorðlingaskóli verði heild-
stæður grunnskóli fyrir 300–400
nemendur í 1.–10. bekk þegar
hann er fullbúinn.
»Vel þykir hafa tekist til meðþað samráð sem haft var
þegar hugmyndir um skólann
voru mótaðar.
»Anna Kristín Sigurðardóttirsegist vonast til að sá háttur
verði framvegis hafður á þegar
nýjar skólabyggingar í borginni
eru hannaðar.