Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 22.03.2007, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Hreini Loftssyni, stjórnarformanni Baugs Group hf.: „Jón Steinar Gunnlaugsson, hæstaréttardómari, sendi frá sér yfirlýs- ingu til fjölmiðla á dögunum og mót- mælti þeirri staðhæf- ingu Ingibjargar S. Pálmadóttur, er fram kom við vitnaleiðslur í Héraðsdómi Reykja- víkur, að hann hefði verið undir þrýstingi margra manna að lið- sinna Jóni Gerald Sullenberger í að- draganda Baugsmáls- ins. Mér er málið skylt þar sem ég hafði milligöngu um að Ingibjörg S. Pálmadóttir leitaði til Jóns Stein- ars. Í símtali greindi ég Jóni Steinari m.a. frá tengslum hennar við Jón Ásgeir Jóhannesson. Í yfirlýsingu sinni vill Jón Steinar gera sem minnst úr því að aðrir hafi þrýst á, að hann tæki að sér mál Jóns Geralds Sullenberg- er. Hann upphefur sjálfan sig og þykist aðeins hafa verið að lið- sinna lítilmagnanum í baráttunni við viðskiptaveldið Baug. Nú hef- ur Ingibjörg svarað Jóni Steinari og útskýrt með sannfærandi hætti undir hvaða kringumstæðum Jón Steinar sagði þetta við hana, en hann var lögmaður hennar og var að afsaka framkomu sína gagn- vart henni sumarið 2002. Ingi- björg greindi frá samskiptum sín- um eiðsvarin fyrir dómi. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Jón Steinar Gunnlaugsson sendir yfirlýsingu til fjölmiðla er varðar viðskipti hans við Jón Gerald Sull- enberger og aðkomu hans að því að kæra forsvarsmenn Baugs til Ríkislögreglustjóra sumarið 2002. Hinn 15. ágúst 2005 birtist í Morgunblaðinu yfirlýsing frá Jóni Steinari sem einnig miðar að því að gera sem minnst úr afskiptum hans af upphafi málsins. Orðrétt segir Jón Steinar í þeirri yfirlýs- ingu: „Er líklegt, þó að ég muni það ekki, að ég hafi haft samband við lögregluna til að óska eftir að skjólstæðingur minn fengi að koma til skýrslugjafar um þetta.“ Athygli vekur að Jón Steinar bregð- ur hér fyrir sig minn- isleysi. Þessi yfirlýs- ing birtist rúmum mánuði áður en Fréttablaðið birti tölvupósta Jónínu Benediktsdóttur og Styrmis Gunnarsson- ar, en þar var að- komu Jóns Steinars að málinu lýst með þeim „gamansömu“ orðum Styrmis, að Jónína og Jón Gerald Sullenberger þyrftu ekkert að óttast í viðskiptum sínum við Baugsmenn því að tryggð Jóns Steinars við „ónefndan mann“ væri innvígð og ófrávíkjanleg. Í tölvupóstunum kemur fram, að til stóð að koma ásökunum Jóns Geralds Sullenberger til yfir- valda. Með yfirlýsingum Ingibjargar S. Pálmadóttur og Jón Steinars Gunnlaugssonar síðustu daga hef- ur birst enn ein vísbendingin um það, hvað gerðist í aðdraganda málsins og hverjir áttu þar hlut að máli. Þetta var ekki aðeins spurning um að Jón Gerald fengi lögmann heldur hvaða hópur áhrifamanna ætlaði að beita sér fyrir hann gegn „viðskiptaveld- inu“ Baugi. Baktjaldamakkið er smám saman að opinberast. Ekki bætir úr skák að fundarmennirnir á ritstjórnarskrifstofu Morgun- blaðsins, sem lögðu á ráðin, hafa komið með afar ótrúverðugar lýs- ingar á aðild sinni. Kjartan Gunn- arsson segist aðeins hafa verið að lýsa hæfileikum Jóns Steinars Gunnlaugssonar sem lögmanns við þá Styrmi og Jón Steinar sjálfan! Hafði þó Jón Steinar ver- ið lögmaður ritstjórnar Morgun- blaðsins um langa hríð. Styrmir vill ekki gefa upp nafn „ónefnda“ mannsins og vildi aðeins sann- færa sig um að Jón Steinar gæti ráðið við málið sem lögmaður! Einnig var hann að treysta „ætt- arböndin“ við Kjartan! Jón Stein- ar segist aðeins hafa verið að taka að sér lögmannsstörf þar sem hann væri nánast eini lögmaður- inn í landinu, sem hafði sjálfstæði til að standa uppi í hárinu á Baugi. Á sama tíma var hann þó lögmaður eins stærsta hluthafans í Baugi, sambýliskonu forstjór- ans! Ótrúverðugar skýringar þre- menninganna eru ekki eina ástæðan fyrir því að ekki er mark takandi á orðum þeirra um að- draganda Baugsmálsins. Að fram- an er vikið að yfirlýsingu Jóns Steinars og andsvari Ingibjargar S. Pálmadóttur. Þar stendur orð gegn orði. Einnig er að framan vikið að orðum í yfirlýsingu Jóns Steinars Gunnlaugssonar frá því í ágúst 2005, áður en upp um af- skipti hans komst þegar tölvu- póstar Jónínu og Styrmis voru birtir opinberlega. En fleira kem- ur til varðandi þau ummæli sem veldur því að ekki er hægt að taka mark á þeim. Í vitnisburði Jóns H.B. Snorrasonar, fyrrver- andi saksóknara í Baugsmálinu, lýsti hann aðdraganda málsins og samskiptum sem hann þá átti við Jón Steinar Gunnlaugsson. Greindi hann þar frá því að Jón Steinar hefði komið gögnum til sín og þeir síðan fundað um málið í nokkur skipti áður en Jón Ger- ald Sullenberger kom fyrst til skýrslugjafar. Sú lýsing er algjör- lega á skjön við þá lýsingu, sem fram kemur í tilvitnuðum orðum Jóns Steinars Gunnlaugssonar frá því í ágúst 2005. Lýsing Jóns H.B. Snorrasonar var gefin af honum sem vitni fyrir dómi og þegar af þeirri ástæðu ber að taka fremur mark á honum í þessu sambandi en Jóni Steinari Gunnlaugssyni.“ Hvað hefur maðurinn að fela? Hreinn Loftsson MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá Guð- brandi Sigurðssyni, forstjóra Mjólkursamsölunnar: „Vegna ummæla framkvæmda- stjóra Mjólku í Morgunblaðinu í gær, miðvikudaginn 20. mars, og leiðara- skrifa Morgunblaðsins sama dag, þykir Mjólkursamsölunni rétt að benda á eft- irfarandi: Mjólkuriðnaðurinn er að ganga í gegnum miklar breytingar um þessar mundir. Meðal annars er verið að leggja niður Mjólkur- stöðina í Reykjavík og flytja þá starfsemi að öllu leyti til Selfoss. Þetta er gert til hags- bóta fyrir neytendur og bændur. Skipulagsbreytingar iðnaðarins eru til þess gerðar að auðvelda okkur að takast á við aukna sam- keppni erlendis frá í framtíðinni. Miklar líkur eru taldar á að aðild Íslands að Alþjóðaviðskiptastofn- uninni verði til þess að tollar á landbúnaðarvörur á heimsvísu lækki verulega innan fárra ára. Niðurfelling tolla á landbúnaðar- afurðir er einnig á stefnuskrá stjórnmálaflokka hér á landi og því er eðlilegt að mjólkurframleið- endur hugi vel að búrekstri sínum. Við gerum ráð fyrir því að sam- keppnin muni að mestu verða er- lendis frá. Mjólkuriðnaðurinn er nú að búa sig undir þessa samkeppni og þarf því að laga sig að auknu frjálsræði á neytendamarkaði. Hluti af því er eðlileg verðlagning þar sem verð afurðanna er gagnsætt og endur- speglar framleiðslukostnað þeirra. Núverandi verðlagskerfi leiddi af sér mikla verðtilfærslu sem margir hagfræðingar telja slæman kost á heilbrigðum neytendamark- aði. Það er alls ekki stefna Mjólk- ursamsölunnar að hækka verð á mjólkurafurðum, þvert á móti. Þannig lagði mjólkuriðnaðurinn sitt af mörkum til lækkunar mat- vælaverðlags á landinu með því að tilkynna verðstöðvun til 12 mánaða í október síðastliðnum í verðbólgu sem var þá um 8%. Við veltum því hins vegar fyrir okk- ur hvort rétt sé að láta neytendur borga of hátt verð fyrir rjómann til að hægt sé að niðurgreiða mjólkina, svo dæmi sé tekið. Mjólkursamsalan nýtur ekki stuðnings frá ríkisvaldinu, held- ur er um að ræða beinan samning milli bænda og ríkisvalds- ins. Stuðningur til bænda er í formi beingreiðslu og gripa- greiðslna og er mik- ilvæg forsenda þess að hægt sé að stunda kúabúskap hér á landi. Mjólkursamsalan hefur yfir- gnæfandi markaðshlutdeild hér á landi og leggur áherslu á að um- gangast markaðinn af varfærni og virðingu. Það er ekki markmið MS að drepa niður samkeppni enda höfum við átt mjög gott samstarf við einkarekin mjólkurbú um ára- bil sem án efa er til hagsbóta fyrir framleiðendur og neytendur. Markmið eigenda Mjólkursamsöl- unnar er að auka mjólkurneyslu. Fyrirtækið hefur á undanliðnum misserum kynnt fjölda nýjunga sem neytendur kunna vel að meta. Mjólka hefur í málflutningi sín- um ítrekað látið í veðri vaka að Mjólkursamsalan leggi stein í götu þess ágæta félags. Í öllum sam- skiptum höfum við lagt áherslu á sanngjarna samkeppni. Ekki hefur staðið á okkur að greiða götu þess félags, eins og stjórnendur Mjólku vita. Mjólkursamsalan er í eigu ríf- lega 700 kúabænda um land allt sem telja hag sínum best borgið með því að vinna saman að mark- aðssetningu afurða sinna.“ Á rjóminn að niður- greiða mjólkina? Guðbrandur Sigurðsson SAUTJÁN klukkustunda töf varð á flugi Heimsferða til eins vinsælasta áfangastaðar Íslendinga, Kanarí- eyja, í gærmorgun. Vandræðin byrj- uðu þegar bilun kom upp í flugvél á flugvellinum í Barselóna kvöldið áð- ur sem svo hafði keðjuverkun í för með sér. Einnig er flugvöllurinn á Fuerta Ventura á Kanaríeyjum lok- aður á nóttunni. Keðjuverkunin orsakaði að allar þær flugferðir sem vélin hafði verið bókuð í urðu langt á eftir áætlun og tók nokkurn tíma að koma henni á rétt ról aftur eftir að vélin var komin í lag. Að sögn Andra Ingólfssonar, for- stjóra Heimsferða, geta atvik sem þessi ávallt komið upp en séu sem betur fer fátíð. Andri sagði ennfrem- ur að ávallt væri reynt að koma til móts við farþega í tilvikum sem þess- um en því miður hefði ekki verið mögulegt að útvega aðra vél meðan gert var við þá biluðu. Þyri Gunnarsdóttir, sölustjóri hjá Heimsferðum, sagði að í þessu tilfelli hefði verið hægt að bjóða þeim sem fóru út í gærmorgun til Kanaríeyja og áttu pantaða dvöl í viku, tveggja daga gistingu til viðbótar. Að hennar sögn tóku flestir vel í það og þáðu boðið. Þeim farþegum sem töfðust í Barselóna var einnig boðin gisting á hóteli meðan gert var við vélina. Farþegar biðu í 17 tíma
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.