Morgunblaðið - 22.03.2007, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Norðurlandaráð veitir í ár náttúru- og umhverfisverðlaun í
þrettánda sinn. Þau nema 350.000 dönskum krónum og eru
veitt fyrirtæki, stofnun, samtökum eða einstaklingi sem sýnt
hefur sérstakt frumkvæði á sviði náttúru- og umhverfisverndar.
Verðlaunin í ár skulu veitt norrænu sveitarfélagi, fyrirtæki,
samtökum eða einstaklingi sem sýnt hefur gott fordæmi með
því að stuðla að sjálfbærri þróun í borgar- eða bæjarsam-
félagi. Sérstakt frumkvæði á sviði sjálfbærrar þróunar getur
til að mynda tengst grænum svæðum, samgöngukerfi,
orkuveitu, bættri sorphirðu eða hvatningu til sjálfbærrar
breytni almennings. Þeir sem tilnefndir eru skulu hafa stuðlað
að sjálfbærri þróun heils borgar- eða bæjarsamfélags, eða
afmarkaðra hluta þess.
Öllum er heimilt að tilnefna verðlaunahafa. Rökstyðja ber
tilnefninguna og lýsa því í hverju starfið eða framlagið felst
og hver hafi staðið eða stendur fyrir því. Starfið verður að
hafa faglegt gildi og þýðingu í víðara samhengi í einu eða
fleiri ríkjum Norðurlanda. Tilnefningin skal rúmast á mest
tveimur blaðsíðum í A4-stærð.
Verðlaunahafi er valinn af dómnefnd sem skipuð er fulltrúum
Norðurlandanna fimm og sjálfsstjórnarsvæðanna Færeyja,
Grænlands og Álandseyja.
Tilnefningin skal send á sérstöku eyðublaði sem þarf að berast
Danmerkurdeild Norðurlandaráðs í síðasta lagi föstudaginn 27.
apríl kl. 12.00. Eyðublaðið má nálgast á heimasíðu ráðsins,
www.norden.org, eða hjá skrifstofu dönsku landsdeildarinnar:
Nordisk Råd
Den Danske Delegation
Christiansborg
DK-1240 København K
Sími +45 3337 5958
Fax +45 3337 5964
Netfang: nrpost@ft.dk
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Náttúru- og
umhverfisverðlaun
Norðurlandaráðs 2007
íbúum og störfum í Hafnarfirði fjölgi
jafnmikið hvort sem kemur til
stækkunar álversins eða ekki. Telja
SA að nettófjölgun starfa í Hafnar-
firði vegna stækkunar álversins
verði nálægt þeim fjölda sem ræðst
til starfa hjá álverinu og birgjum
þess. Hagfræðistofnun reikni ekki
heldur með því að álverið sé með
undirverktaka. SA segir að beinar
greiðslur til verktaka verði 3,1 millj-
arður á ári eftir stækkun, sem svari
til 470 stöðugilda. Ekki sé heldur lit-
ið til útflutningstekna eða margfeld-
isáhrifa í skýrslunni.
SAMTÖK atvinnulífsins (SA) telja
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands
vanmeta mjög tekjur Hafnarfjarðar-
bæjar af áformaðri stækkun álvers
Alcan í Straumsvík. Telja SA að út-
reikningar Hagfræðistofnunar, sem
gerðir voru fyrir Hafnarfjarðarbæ
og birtust nýlega í skýrslu, séu mjög
takmarkaðir. SA nefna m.a. að Hag-
fræðistofnun líti framhjá veigamikl-
um atriðum eins og afleiddum áhrif-
um af starfsemi álversins á störf hjá
fyrirtækjum í Hafnarfirði og útsvar-
stekjum sem þeim fylgja. Þá byggi
stofnunin á þeirri „vafasömu for-
sendu“ að stækkunin sé ekki hrein
viðbót við atvinnulífið í Hafnarfirði
heldur því að stækkað álver komi í
stað annarrar atvinnustarfsemi.
SA minna á orð Hannesar G. Sig-
urðssonar, aðstoðarframkvæmda-
stjóra SA, á fundi í Hafnarborg 2.
febrúar sl. Þar benti hann m.a. á að
ef álver Alcan starfaði í íslensku
skattumhverfi, eins og samningur
lægi fyrir um, þá væru tekjur bæj-
arins í dag um 490 milljónir króna,
en eftir stækkun um 1.431 milljón
króna. Alls væri þetta aukning um
941 milljón króna á ári.
Þá benda SA á að viðskipti Alcan
við birgja í Hafnarfirði nemi nú um
1.400 milljónum króna á ári. Áætlað
sé að þau aukist í 3.600 milljónir
króna á ári komi til stækkunar. Eins
telja SA að það fái ekki staðist að
SA gagnrýna skýrslu um
áhrif álversstækkunar
TENGLAR
..............................................
www.sa.is
armanna var borgarstjórinn í
Dar-es-Salaam, sem er einn eig-
enda lyfjaverksmiðjunnar. Þá leit-
uðu þeir aðstoðar Actavis Group á
sviði þekkingar, lyfjaframleiðslu
o.fl. Í framhaldinu var leitað til
Iceaid varðandi umsjón og fram-
kvæmd verkefnisins. Glúmur var
þá einmitt á leið til Tansaníu til
starfa við matvælaáætlun Samein-
uðu þjóðanna og notaði hann
tækifærið til að skoða og koma á
tengslum við lyfjaverksmiðjuna,
sem stendur við rætur hæsta fjalls
Afríku, Kilimanjaro.
„Eftir að ég kom heim skrifaði
ég skýrslu og síðan höfum við
verið að skoða málið þangað til í
síðustu viku að ákveðið var að
ráðast í þetta,“ sagði Glúmur.
„Actavis mun leggja til vélbúnað
til framleiðslu á lyfjum og ákveðið
fjármagn. Það þarf bæði að hjálpa
þeim við uppsetningu vélanna og
að þjálfa þá í notkun þeirra. Eins
hafa þeir óskað eftir ráðgjöf varð-
andi þjálfun starfsfólks og ráðgjöf
varðandi ýmsar endurbætur á
verksmiðjunni.“ Actavis mun gefa
þrjár vélar og hleypur verðmæti
þeirra a.m.k. á tugum milljóna, að
mati Glúms. Kvaðst hann afar
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
ICEAID og Actavis Group und-
irbúa nú aðstoð við afrískt lyfja-
fyrirtæki í Tansaníu. Ætlunin er
að gera fyrirtækinu kleift að
framleiða ódýr lyf við útbreiddum
sjúkdómum á borð við berkla, al-
næmi, niðurgang og malaríu.
Tæki til lyfjaframleiðslu verða
send frá verksmiðju Actavis í
Serbíu til Arusha í Tansaníu
fyrripart sumars.
Glúmur Baldvinsson, stofnandi
IceAid, íslenskra þróunar- og
mannúðarsamtaka, sagði að lyfja-
fyrirtæki þetta hafi verið stofnað
af þarlendum stjórnvöldum 1980
en verksmiðjan sé öllu eldri og
mörg tæki frá 6. áratug 20. aldar.
Reksturinn gekk illa og var fyr-
irtækið einkavætt 1997. Héldu
stjórnvöld 40% eignarhlut en
einkaaðilar eignuðust 60%. „Síðan
hafa þeir reynt að nútímavæða
verksmiðjuna og koma henni í
það stand að þeir geti verið sjálf-
bærir um framleiðslu lyfja sem
skortir í landinu og nágrannaríkj-
um.“
Sendinefnd frá Tansaníu
Í fyrra kom sendinefnd frá
Tansaníu hingað til lands að
kynna sér viðskipalífið og óska
eftir þróunaraðstoð. Meðal nefnd-
þakklátur Actavis fyrir að gera
þetta verðuga verkefni mögulegt.
Framleiði ódýr lyf
Aðstoðin verður bundin því skil-
yrði að lyfin verði ódýr og að þau
fari til þeirra sem þurfa á þeim
að halda. Glúmur sagði að verk-
efnið þyrfti meiri stuðning til að
hægt yrði að fylgjast með því að
þessum markmiðum yrði náð.
„Við sjáum fyrir okkur að þáttur í
því verði að gefa heilsugæslu-
stöðvum og sjúkrahúsum lyf sem
þau síðan dreifi,“ sagði Glúmur.
Hvað varðar sérfræðiaðstoð
sagði Glúmur koma til greina að
fá langt komna nemendur í lyfja-
fræði og verkfræði til að veita að-
stoð, hefur hann m.a. rætt við
Innovit, nýstofnað nýsköpunar- og
frumkvöðlasetur við Háskóla Ís-
lands, í því sambandi. Eins sagði
hann koma til greina að fá sér-
fræðinga, sem komnir væru á eft-
irlaun, til liðs við verkefnið.
Glúmur kvaðst hafa leitað til
nokkurra íslenskra skipafélaga
um að bjóða flutning á vélbún-
aðinum án endurgjalds eða á góð-
um kjörum til Afríku. „Það yrði
afar mikilvægt framlag því þar
með væri meira fé til þjálfunar
starfsmanna og eftirfylgni,“ sagði
Glúmur. Hann lagði áherslu á að
þörf væri á liðveislu enn fleiri til
að til að tryggja að markmiðið
næðist, þ.e. að útvega þeim sem
þjást af alnæmi, malaríu, berklum
og öðrum meðhöndlanlegum sjúk-
dómum ódýr lyf.
Þetta er annað verkefnið sem
IceAid tekur að sér. Hið fyrra var
í Líberíu þegar IceAid endur-
byggði munaðarleysingjaheimili
frá grunni með aðstoð írsku frið-
argæslusveitanna og veitti fé til
byggingar skóla og tölvuseturs.
IceAid og Actavis
styrkja lyfjafram-
leiðslu í Afríku
Ljósmynd/Glúmur Baldvinsson
Gegn sjúkdómum Lyfjaverksmiðjan í Arusha sem IceAid og Actavis ætla að styrkja til að framleiða ódýr lyf.
Stofnandinn Glúmur Baldvinsson
við hjálparstörf í Tansaníu.
UM 100 íslenskar konur ætla til
Noregs til að hlusta á Anne Graham
Lotz kenna á ráðstefnu í Oslo
Spektrum-samkomuhöllinni hinn 12.
maí næstkomandi. Hópferð íslensku
kvennanna hefur vakið nokkra at-
hygli í Noregi en búist er við tals-
verðri aðsókn erlendra kvenna á
þennan viðburð auk þess sem norsk-
ar konur munu fjölmenna þangað.
Erdna Varðardóttir skipulagði í
samvinnu við Icelandair ferð um 90
kvenna úr Hvítasunnukirkjunni á
ráðstefnuna. Erdna sagðist vita þar
að auki af konum úr Íslensku Krists-
kirkjunni og Hjálpræðishernum sem
ætluðu að sækja ráðstefnuna á eigin
vegum. Erdna sagði Oslo Spektrum
geta hýst um 10 þúsund manna ráð-
stefnur.
„Ég veit að auk norskra kvenna er
von á konum frá Svíþjóð, Danmörku
og Færeyjum,“ sagði Erdna. „Yf-
irskrift ráðstefnunnar er „Just Give
Me Jesus“ (Gefðu mér bara Jesú).
Það er mikil eftirvænting hjá okkur
eftir því að hlusta á Anne Graham
Lotz og einnig að sjá
hvað Guð er að gera í
Skandinavíu. Aðsókn-
in í ferðina reyndist
mjög góð og mynd-
aðist biðlisti um tíma.
Nú verð ég að benda
fólki, sem langar á
ráðstefnuna, á að
reyna að fara á eigin
vegum,“ sagði Erdna.
Anne Graham Lotz
er dóttir hins þekkta
kennimanns Billys
Graham. Trúboðsstarf
hennar heitir Angel Ministries og
efnir það til fjöldasamkoma og ráð-
stefna, annast útgáfu kennsluefnis
o.fl. Anne er höfundur nokkurra
bóka og kennslu hennar má fá m.a. á
mynddiskum.
Konur fjölmenna á
kristilega ráðstefnu
Erdna Varðardóttir Anne Graham Lotz