Morgunblaðið - 22.03.2007, Side 17
! " #$!%
&"#'( )*+"
" #, !" )*
"" !" ""
" -" " ." //0( "
1 )&" !)" 0 %)"
%")* & %2 - !
!!"" " "
%# )3 " " 4
!!!
" # $ #%
&'' !!
((( MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 17
Eftir Ásgeir Sverrisson
asv@mbl.is
GIGI Becali setur markið hátt. Hann
hefur einsett sér að frelsa rúmensku
þjóðina undan vanhæfum og spilltum
ráðamönnum. Því markmiði telur
hann, vitanlega, að verði best náð
með þátttöku sinni í stjórnmálum.
Og hann er kominn af stað; fylgi við
þennan Silvio Berlusconi Rúmeníu
fer vaxandi, ef marka má skoð-
anakannanir. Smalinn fyrrverandi
segist enda beintengdur almættinu.
Og af seðlum á hann nóg.
Gigi hóf stjórnmálaþátttöku árið
2004 þegar hann „yfirtók“ Flokk
nýrrar kynslóðar (rúm. „Partidul
Noua Generatie“, PNG). Heimildum
ber ekki saman um nákvæmlega
hvernig Becali stóð að yfirtökunni. Í
Rúmeníu fullyrða hins vegar margir
að hann hafi einfaldlega keypt flokk-
inn með manni, mús og útihúsum.
Becali mætti ágætlega undirbúinn
til leiks. Árið áður hafði hann ráðið
þekktan stjórnmálafræðing, Dan
Pavel, sem ráðgjafa sinn.
„Þjóðinni allt“
Málflutningur Becali fyrir þing- og
forsetakosningarnar árið 2004 þótti
einkennast af þjóðhyggju ef ekki
beinum fasisma. Slagorð hans var
„Þjóðinni allt“ en aflinn reyndist í
litlu samræmi við væntingarnar.
PNG fékk einungis rétt rúmlega 2%
atkvæða í þingkosningunum 2004 og
fylgi við Gigi í forsetakosningunum
sama ár reyndist enn minna.
Nú sýnist ára betur; gríðarleg ólga
ríkir í stjórnmálum Rúmeníu og
svörðurinn er frjór fyrir róttæka
þjóðhyggjumenn eða „lýðskrumara“
á borð við Gigi Becali. Forseti lands-
ins, Traian Basescu, og forsætisráð-
herrann, Calin Popescu Tariceanu,
takast á við hvert tækifæri og ásak-
anir um lygar, spillingu og önnur
myrkraverk ganga á víxl. Almenn-
ingur sýnist hafa fengið nóg af ráða-
mönnum og flokkum þeirra; fylgi við
Gigi Becali og flokk hans mælist nú
10–15%. Í vinsældakosningu stjórn-
málamanna nýtur aðeins forsetinn
meira fylgis en Gigi.
„Ég ætla að drepa djöfulinn í
Rúmeníu, ganga frá spillingunni og
lygunum dauðum,“ segir Becali. Í
viðtali við breska ríkisútvarpið, BBC,
segir hann að komist hann til valda í
Rúmeníu muni hann leita leiðsagnar
hjá almættinu. Guð muni ákvarða
forgangsröðunina. „Ég get ekki sagt
nú hvaða boðskap Guð mun færa mér
þá.“ Gigi er maður sannkristinn,
hann kveður draum sinn og markmið
vera „andlegan samruna Evr-
ópuþjóða“. Hið kristilega lýðræði
Vesturlanda þurfi á endurnýjun að
halda, sem Austurkirkjan geti veitt.
„Berjumst við ekki gegn syndinni
með trúna að vopni eru endalok ver-
aldarinnar skammt undan.“
Gigi Becali er oftlega líkt við millj-
arðamæringinn Silvio Berlusconi,
fyrrum forsætisráðherra Ítalíu og
núverandi leiðtoga stjórnarandstöð-
unnar. Gigi er að vísu sennilega ekki
jafn gjörsamlega steinríkur en metn-
aðurinn er sambærilegur. Og svo á
Gigi líka fótboltalið.
Þar ræðir um Steaua frá Búkraest.
„Stjarnan“ er sigursælasta lið Rúm-
eníu og hefur m.a. unnið tvo Evr-
óputitla. Félagið var forðum íþrótta-
klúbbur hers Rúmeníu og enn eru
tengslin sterk. Fylgismenn félagsins
eru á hinn bóginn heldur illa þokk-
aðir og annálaðir fyrir kynþátta-
hyggju og ofbeldishneigð, sem eink-
um beinist gegn minnihlutahópum;
Ungverjum, sígaunum og blökku-
mönnum. Þetta eru dyggir stuðn-
ingsmenn og mynda kjarnann í því
pólitíska veldi sem Becali leitast nú
við að mynda.
Eftir því sem næst verður komist
hlaut Gigi Becali litla sem enga form-
lega menntun. Og ýmislegt er á
huldu um nákvæmlega hvernig hann
varð svo auðugur. Fram til þess er
veldi kommúnista hrundi í Mið- og
Austur-Evrópu vann hann fyrir sér
sem smali. Og pabbi hans, Tase Bec-
ali, sinnti einnig því göfuga starfi.
Sjálfur segir Gigi að heppni, trúin á
Guð og fjölskyldan hafi ráðið mestu
um þau ótrúlegu umskipti sem urðu í
lífi hans. Hann kveðst hafa fengið
andvirði um níu milljóna króna frá
foreldrum sínum er stjórn einræð-
isherrans Nicolae Ceausescu var
steypt árið 1989. Þá fjármuni notaði
hann til að fjárfesta í fasteignum með
þessum líka ágæta árangri.
Arðbær verslun með sauðfé
Í Rúmeníu er því haldið fram að
fjárhirðirinn faðir hans hafi auðgast
vel á svartamarkaðsbraski með
sauðfé og hafi hann átt samstarf við
embættismenn kommúnistastjórn-
arinnar, öryggislögregluna („Sec-
uritate“) og arabíska kaupahéðna.
Prýðileg hefð er raunar fyrir því í
Rúmeníu að fjárhirðar nái þar
nokkrum frama. Nicolae Ceausescu
var í eina tíð lofsunginn sem „djúp-
vitur smali úr Karpatafjöllum“ en
það var að vísu áður en ljóst varð að
þar fór vitfirrtur valdníðingur og ill-
menni.
Gigi Becali hyggst tæpast skipa
sér í þann flokk en pólitíski smala-
gollurinn kann að reynast rausn-
arlegri en margir hefðu ætlað.
Smalinn blæs til krossferðar
Gigi Becali er einn ríkasti maður Rúmeníu og er honum iðulega líkt við Silvio Berlusconi Ýmislegt
er á huldu um fortíð Becali, sem vann fyrir sér sem smali áður en hann varð milljarðamæringur
Í HNOTSKURN
»George Becali, kallaður„Gigi“, fæddist 25. júní
1958. Fjölskyldusagan er flók-
in vel en ættmenni hans voru
bendluð við fasíska hreyfingu
sem lét til sín taka í Rúmeníu á
þriðja áratugi liðinnar aldar.
»Gigi vann fyrir sér semsmali en gerðist um-
svifamikill fjárfestir er veldi
kommúnista hrundi.
»Sagt er að Gigi hafi eink-um auðgast á dulfarfullum
skiptum á landi við rúmenska
herinn. Becali á knattspyrnu-
félagið Steaua sem forðum var
lið hers Rúmeníu.
Reuters
Trúmaður Gigi Becali heldur iðulega í einkaþotu sinni til bænastunda í
Grikklandi fyrir mikilvæga leiki Stjörnunnar frá Búkarest.