Morgunblaðið - 22.03.2007, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 22.03.2007, Qupperneq 19
hjá sér rottur. Ég komst að því að KFC-uppákoman væri meiri háttar skandall fyrir heilbrigðiseftirlit New York-borgar þar sem útibúið hefði staðist skoðun eftirlitsins fá- einum dögum áður en rottugerið lét til skarar skríða og náðist á mynd. Sú sem bar ábyrgð á þeirri tilteknu eftirlitsferð var hátt sett innan eftirlitsbatterísins og sagði af sér í kjölfarið.    Kenning eigenda John’s Pizza ersú að heilbrigðiseftirlitið hefði viljað reyna að bæta ímynd sína með því að loka jafnáberandi stað Undanfarna daga hefurákveðin hystería gripið umsig í Greenwich Village á Manhattan þar sem við sögu koma kjúklingaborgarar, pitsur, glúten- lausar samlokur, sjónvarpsmynda- vélar og rottur. Atburðarásin hófst fyrir hálfum mánuði þegar mynd- band af spræku rottugeri, sem dansaði um gólfin á útibúi KFC í hverfinu, fór eins og eldur í sinu um heiminn. Sjálf frétti ég fyrst af myndbandinu á mbl.is og það var ekki fyrr en ég fór út og sá sjón- varpsmyndavéla- og ljósmynd- arahrúgurnar úti á sjöttu breiðgötu að ég áttaði mig á því að viðkom- andi KFC-útibú er í sirka 50 metra loftlínu frá heimili mínu.    Ógeð,“ sagði ég við nágrannaminn seinna um daginn. Sá horfði á mig eins og sjómaður horf- ir á manneskju sem hefur aldrei migið í saltan sjó: „Ógeð, segirðu? Ég fékk mér kjúklingaborgara þarna í gærkvöldi.“ Næsta dag kom sami nágranni minn til mín skellihlæjandi og spurði hvort ég hefði frétt að það væri búið að loka John’s Pizza. Ég fölnaði upp. „Nei!“ „Jú, jú. Heil- brigðiseftirlitið setti slagbrand á dyrnar.“ „Nei! Ég fékk mér pitsu þar í fyrradag!“ Hann hló ennþá meira og sagðist líka hafa séð að það væri búið að innsigla glúten- lausa grænmetisstaðinn við hliðina.    Sá staður er líka í miklu uppá-haldi hjá þér, ekki satt?“ sagði hann glottandi. „Glætan!“ sagði ég og sakaði hann um lygar, hann þyldi greinilega ekki að vera sá eini sem hefði borðað rottumengaðan mat. Við enduðum með því að labba út í næstu götu og jú, jú, þar mátti sjá lokaðar dyr og tilkynningar frá heilbrigðiseftirlitinu í gluggum beggja staða. Ég dreif mig heim og á Netið til að fá staðfesta þá sannfæringu mína að hvorki John né glútenhipp- arnir hefðu nokkurn tímann haft og þeirra (John’s er einn frægasti og vinsælasti pitsustaður borg- arinnar) en staðnum hafi verið lok- að vegna smávægilegra atriða sem hefðu aldrei þótt tiltökumál áður, svo sem bilaðs vasks og brotinnar ruslafötu. Hjá þeim væru hins veg- ar engin nagdýr og hefðu aldrei verið. Og hipparnir. Jah, það segir sig næstum sjálft að þegar stað sem er þekktur fyrir lífrænt holl- ustufæði (og er þar að auki veru- lega snyrtilegur, um það getur þessi pempía vottað) er lokað þá lít- ur heilbrigðiseftirlitið sannarlega út fyrir að vera mjög smámuna- samt. Samsæriskenning John’s um ímyndarvinnu heilbrigðiseftirlits- ins fékk síðan enn styrkari stoðir á miðvikudag þegar eftirlitið lokaði hinum fræga veitingastað Coffee Shop. Því enda þótt John’s Pizza sé frægur hér í borginni þá er hann ekki heimsfrægur. Það er Coffee Shop hins vegar (fyrir tilstilli Carrie og Co úr Beðmálum í borg- inni sem voru alltaf þar) og viti menn, fréttir af lokun staðarins, og þar með hertu heilbrigðiseftirliti borgarinnar, rötuðu í heimsfrétt- irnar, þar á meðal á mbl.is.    Það er svo að frétta af John oghippunum að dyr þeirra hafa verið opnaðar á ný eftir að „viðeig- andi lagfæringar“ voru gerðar. Ég efast hins vegar um að KFC verði opnaður aftur í bráð. Þar er eina lífsmarkið stöku unglingur að taka mynd af glugganum fræga með símanum sínum, og einn og einn ná- granni sem gengur framhjá og tautar: „Ógeð.“ Frægar rottur AF LISTUM Birna Anna Björnsdóttir » „Nei!“ „Jú, jú.Heilbrigðiseftir- litið setti slagbrand á dyrnar.“ „Nei! Ég fékk mér pitsu þar í fyrradag!“ Sprækar en varla ætar Rotturnar umræddu í stuði á KFC. AP MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 19 MENNING TR hélt síðustu tónleika sína á þess- um vetri við mjög góða aðsókn. Við- fangsefnin voru klassísk píanótríó; í G-dúr eftir Haydn Hob. XV:25, „Drauga“-tríó Beethovens í D-dúr Op. 70,1 og furðuþroskað æskuverk Brahms (1833–97) í H-dúr Op. 8 frá 1853. Gunnar Kvaran kynnti verkin að vanda og setti sem oftar notaleg- an svip á tónleikana. Um flutninginn er lítið hægt að segja í nýminnkuðu dálkplássi annað en að undirtektir voru verðskuldað heitar, enda var leikið af gífurlegri innlifun. Þó virtist mér sem Hafn- arborgarsalurinn léði einhverra hluta vegna ekki sömu hljómfyllingu og stundum áður, einkanlega til sell- ósins. Hvort skaphitinn í spila- mennskunni kunni á einhvern hátt hafa gengið út yfir tóngæðin er örð- ugt að segja, en á móti var a.m.k. ekki hægt að væna flytjendur um neinn tjáningardoða. Allra sízt í Brahms, sem sýndi allar sínar beztu hliðar í sérlega innlifaðri og sam- stilltri túlkun hópsins. Funheit heiðlist TÓNLIST Hafnarborg Píanótríó eftir Haydn, Beethoven og Brahms. Tríó Reykjavíkur. Sunnudaginn 18. mars kl. 20. Kammertónleikar  Ríkarður Ö. Pálsson ÞEGAR ég leit inn um gluggann í Jónas Viðar galleríi í Listagilinu á Akureyri, þar sem Guðmundur Ár- mann Sigurjónsson sýnir fimm ol- íumálverk, hvarflaði það að mér að menn þyrftu ekki að stíga inn fyrir til að skoða sýninguna. Að sýn- ingin skilaði sér best úti á götu þar sem málverkin blasa við manni í heild sinni á bak við breiða gluggana svo maður getur gefið þeim góða fjarlægð sem ekki er mögulegt inni við. Þegar ég svo steig inn í sýningarrýmið varð ég að éta þessa hugdettu ofan í mig því þótt fjarlægðin sé á margan hátt hentugt sjónarhorn til að finna hrynjandi í verkunum hafa verk Guðmundar í sér svo mikla nærveru að það skiptir sköpum að eiga með þeim stund inni í rýminu. Formrænt byggjast myndirnar aðallega á láréttum litarflötum, nokkuð í anda Mark Rothkos, nema hvað listamaðurinn teiknar í þá línur sem á einn veginn sýnast sjálfráðar en á annan veginn sýn- ast vera hæðarlínur á landakorti eða árfarvegir. Titlar sem/og litir vísa til náttúrunnar og er þetta óttalega kunnugleg norræn lands- lags-abstraktsjón að sjá. Það er hins vegar þekking Guðmundar á eiginleikum efnisins sem er heillandi og gleymdi ég fljótlega strúktúr myndflatarins og hvarf þess í stað inn í strúktúr efnisins. Þar er Guðmundur í algerum sér- flokki, fagmaður fram í fing- urgóma, þar sem hvert smáatriði togar í mann og fann ég mig best með nefið klesst upp að strig- anum, starandi í gegn um efn- islögin. Fagmaður fram í fingurgóma MYNDLIST Jónas Viðar gallerí Opið föstudaga og laugardaga frá 13–18 eða eftir samkomulagi. Sýningu lýkur 1. apríl. Aðgangur ókeypis. Guðmundur Ármann Sigurjónsson Blámi Eitt verka Guðmundar Ármanns á sýningunni. Jón B.K. Ransu hannessen. Þetta ferska og oft íðil- fagra verk var skínandi vel sungið og leikið af Gradualekór Langholts- kirkju og Caput. TILEFNI tónleika Caputs á sunnudag var e.t.v. nýliðið 75 ára afmæli rússnesku tónskáldkon- unnar Sofiu Gubaidulinu (f. 1931); meðal fyrstu sovézku módernista ásamt Schnittke og Denisov. Caput lék Meditation hennar um Bach- kóralinn „Vor deinem Thron tret ich hiermit“ [14’], Concordanza f. 11 hljóðfæraleikara [13’] og „Hom- màge à T.S. Eliot“ f. sópran og blandaðan oktett [40’] á ótvíræðum alþjóðlegum gæðastaðli, og var sér- lega athygliverð virtúósameðferð hópsins á síðasttalda nærri sinfón- íska kammerverki þar sem Ingi- björg Guðjónsdóttir fagnaði stór- sigri með litríkum og dramatískum söng. Kirkjuheyrðin spillti hvergi fyrir með safaríki fyllingu sinni, sízt við frumflutninginn á „... í laufinu“ [9’] Elínar Gunnlaugsdóttur fyrir ung- lingakór og kammerhóp frá 2007 við 15. atómsálm Matthíasar Jo- Litrík nútímatign á heimsmælikvarða TÓNLIST Langholtskirkja 3 verk eftir Sofiu Gubaidulinu. Elín Gunn- laugsdóttir: „… í laufinu“ (frumfl.) Caput, Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran og Graduale kórinn. Stjórnandi: Guðni Franz- son. Sunnudaginn 18. marz kl. 17. Kammertónleikar  Ríkarður Ö. Pálsson Gubaidulina Meðal fyrstu sovézku módernistanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.