Morgunblaðið - 22.03.2007, Síða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Gjörðu svo vel Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir afhendir Þorsteini Gunn-
arssyni bréf sem heimilar skólanum að eiga hlut í Þekkingarvörðum ehf.
HÁSKÓLANUM á Akureyri var í
gær heimilað að eiga hlut í Þekking-
arvörðum ehf., en það er í fyrsta
sinn sem skólinn á hlut í einkahluta-
félagi. Þekkingarvörður ehf. undir-
býr um þessar mundir uppbyggingu
vísindagarða á háskólasvæðinu, en
þar verður m.a. til húsa orkuháskóli
sem starfræktur verður í samvinnu
við Háskólann á Akureyri. Þar er
einnig gert ráð fyrir að fyrirtæki á
sviði upplýsingatækni hafi sína
starfsemi í tengslum við viðskipta-
og raunvísindadeild.
Vilja skara fram úr
Stefna Háskólans á Akureyri fyr-
ir tímabilið 2007–2011 var kynnt í
gær að viðstöddum menntamálaráð-
herra, Þorgerði Katrínu Gunnars-
dóttur. Hún notaði einmitt tækifær-
ið og færði Þorsteini Gunnarssyni,
rektor HA, bréf þar sem hún heim-
ilaði skólanum að eiga hlut í Þekk-
ingarvörðum og ráðherra opnaði við
þetta tilefni nýja heimasíðu skólans.
Í stefnu skólans er sett fram eft-
irfarandi framtíðarsýn: „Að Háskól-
inn á Akureyri verði alþjóðlega við-
urkennd menntastofnun sem skari
fram úr á völdum fræðasviðum. Þar
verði eftirsóknarvert þekkingar-
samfélag sem leggi áherslu á öflug-
ar rannsóknir og krefjandi náms-
umhverfi þar sem nemendur eru
settir í öndvegi.“
Starfsemin á einn stað
Í stefnunni segir að ætlunin sé að
auka þjónustu við nemendur og
starfsmenn, sameina starfsemi há-
skólans á einum stað, fjölga nem-
endum í rannsóknatengdu fram-
haldsnámi og byggja upp
vísindagarða á háskólasvæðinu.
Í svari ráðherra við spurningu um
stuðning menntamálaráðuneytisins
við stefnuna kom fram að tekið yrði
tillit til hennar við gerð nýs samn-
ings ráðuneytisins við háskólann og
að í hennar huga væri það forgangs-
atriði að sameina starfsemi háskól-
ans á háskólasvæðinu. Vonast hún
að það takist fyrir árið 2010 með
byggingu fjórða áfanga Sólborgar.
Háskólaráð skipaði stýrihóp fyrir
verkefnið í lok mars 2006 sem lagði
frá upphafi mikla áherslu á þátttöku
hagsmunaaðila. Stefnumótunin var
rædd með þátttöku yfir 100 manns í
rýnihópum, um hana hefur verið
fjallað þrisvar sinnum í öllum starfs-
einingum innan háskólans og hún
hefur verið kynnt fyrir menntamála-
ráðherra, skv. því sem fram kom á
kynningarfundinum í gær.
Alls hafa nokkur hundruð manns
tekið virkan þátt í mótun stefnunnar
og er hún því eign alls háskóla-
samfélagsins á Akureyri að sögn
rektors.
Skilgreind hafa verið fimm yfir-
markmið sem varða leiðina að fram-
tíðarsýninni; Krefjandi og persónu-
legt námsumhverfi – Öflugt
rannsóknastarf – Virk tengsl við
samfélagið – Alþjóðlegt samstarf –
Skilvirk skipulagsheild.
Háskólanum heimilað að
eiga í einkahlutafélagi
Í HNOTSKURN
»Á tímabilinu 1997–2005fjölgaði nemendum Há-
skólans á Akureyri úr rúm-
lega 400 í tæplega 1.500.
»Á árunum 1997–2005hækkuðu rannsóknastyrk-
ir til verkefna í HA úr sam-
keppnissjóðum úr 1,5 millj-
ónum kr. í 65 milljónir og
sértekjur vegna rannsókna
hækkuðu úr 1,5 milljónum kr.
í 80 milljónir.
TENGLAR
..............................................
www.unak.is
SÝNING um Jónas Hallgrímsson,
skáld og náttúrufræðing, var í gær
opnuð í Amtsbókasafninu á Ak-
ureyri. Í haust verða 200 ár frá fæð-
ingu Jónasar og þess er minnst á
margvíslegan hátt; sýningin sem
opnuð var í gær er hluti fjölbreyttr-
ar dagskrár vegna afmælisins.
Það var Sigrún Björk Jakobs-
dóttir, bæjarstjóri á Akureyri, sem
opnaði sýninguna en hún er í nefnd
sem ráðherra skipaði til þess að
undirbúa afmælishaldið á þessu ári.
Formaður nefndarinnar er
Halldór Blöndal alþingismaður
og auk þeirra Sigrúnar eru í nefnd-
inni Páll Valsson rithöfundur, Mar-
grét Eggertsdóttir prófessor og
Jón G. Friðjónsson prófessor. Um-
sjónarmaður með dagskrá afmæl-
isársins er Sveinn Einarsson en
dagskráin er fjölbreytt með við-
burðum hér heima og á slóðum Jón-
asar í Kaupmannahöfn.
Páll Valsson, höfundur ævisögu
Jónasar Hallgrímssonar, skrifaði
texta um manninn og skáldið fyrir
sýninguna en Sigurður Stein-
þórsson jarðfræðingur texta um
náttúrufræðinginn. Margrét Egg-
ertsdóttir og Sveinn Jakobsson
lögðu einnig til texta.
Handrit, myndir, munir og önnur
sýningargögn eru frá handritadeild
Landsbókasafns, Stofnun Árna
Magnússonar, Náttúrufræðistofnun
Íslands, Þjóðminjasafni Íslands,
Jarðfræðisafni Kaupmannahafn-
arháskóla, Konunglega bókasafn-
inu þar í borg og Köbenhavns
Bymuseum, Vigfúsi Sigurgeirssyni
og Jóhannesi Long.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Ég bið að heilsa! Meðal þess sem hægt er að njóta á sýningunni í Amts-
bókasafninu á Akureyri er að heyra ljóð Jónasar lesin upp í heyrnartólum.
Glæsileg sýning í
minningu Jónasar
AKUREYRI
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Seltjarnarnes | Framkvæmdir Ís-
lenskra aðalverktaka, ÍAV, vegna
nýbygginga á Hrólfsskálamel á
Seltjarnarnesi hefjast um mán-
aðamótin og er gert ráð fyrir að
fyrsta byggingin af þremur verði
tilbúin sumarið 2008. Alls verða
um 80 íbúðir í byggingunum og er
viðbúið að framkvæmdirnar taki
tvö til þrjú ár.
Skipulagssvæðið afmarkast til
suðurs af Suðurströnd, til austurs
af Nesvegi, til norðurs af syðri
mörkum skólalóðar Mýrarhúsa-
skóla og íbúðum aldraðra við
Skólabraut og til vesturs af eystri
mörkum lóðar íþróttamiðstöðv-
arinnar.
Byggingarnar þrjár verða þrjár
til fjórar hæðir fyrir utan kjallara.
Fyrsta byggingin verður á norð-
vesturhluta reitsins, önnur bygg-
ingin sunnan við hana og sú þriðja
við Nesveginn, nokkurn veginn
þar sem verslun Bónuss er. Hauk-
ur Magnússon, framkvæmdastjóri
ÍAV, segir að aðaluppdráttur af
fyrstu byggingunni hafi verið sam-
þykktur og verið sé að vinna að
verkteikningum, en mjög mikið
verði lagt í hönnun og frágang
íbúðanna.
Haukur Magnússon segir að í
fyrsta áfanga verði líkamsrækt-
arstöðin Ræktin og hjólbarðaverk-
stæðið Nesdekk rifin og í kjölfarið
hefjist jarðvegsframkvæmdir.
Áformað sé að hefja steypufram-
kvæmdir í maí eða júní og stefnt
sé að því að íbúðirnar í fyrsta hús-
inu verði fullbúnar sumarið eða
haustið 2008.
Samkvæmt deiliskipulaginu er
markmiðið með breytingunum
meðal annars að styrkja stöðu
miðsvæðis bæjarins og stuðla að
fjölbreyttri notkun innan þess. Til
miðsvæðisins teljast Eiðistorg,
svæði fyrir blandaða byggð við
Hrólfsskálamel, svæði við Austur-
strönd og suðurhorn á mótum
Nesvegar og Suðurstrandar.
Nesdekk flytur
Nesdekk flytur að Fiskislóð 30
og stefnt er að því að opna þar 12.
apríl. Vegna flutninganna verður
lokað eftir 28. mars og hafa for-
ráðamenn fyrirtækisins óskað eftir
því að viðskiptavinir, sem eiga hjá
því sumardekk í geymslu, sæki
þau eða láti setja undir bílana ekki
síðar en 28. mars. Vegna óþægind-
anna býður fyrirtækið þeim sem
hafa dekk í geymslu og sækja þau
fyrir 28. mars 30% afslátt af um-
felgun, hvort sem hún fer fram
fyrir þann tíma eða síðar.
Teikning/Hornsteinar arkitektar ehf.
Hrólfsskálamelur Reistar verða þrjár byggingar með um 80 íbúðum. Fyrsta
byggingin verður á norðvesturhluta reitsins, önnur byggingin sunnan við
hana og sú þriðja við Nesveginn, nokkurn veginn þar sem verslun Bónuss er.
Hrólfsskálamelur breytist
Morgunblaðið/RAX
Breyting Ræktin og Nesdekk verða rifin í fyrsta áfanga og í kjölfarið hefjast jarðvegsframkvæmdir.
Garðabær | Áformað er að byggja
verslunarmiðstöð á lóðinni á milli
MAX og IKEA í Kauptúni í Garða-
bæ og að þar verði ein bygging í
staðinn fyrir fleiri.
Auglýst hefur verið tillaga að
breytingu deiliskipulags Kauptúns
þess efnis að lóðirnar Kauptún 3, 5
og 7 verði sameinaðar í eina lóð,
Kauptún 3, og að þar verði reist ein
bygging í stað tveggja til þriggja.
Samhliða verði lóðarmörk og bygg-
ingarreitur færð til austurs þannig
að hægt verði að fella hluta bygging-
arinnar inn í hlíðina. Suðurmörk
byggingarreitsins færist norðar, frá
vatninu, og bílastæði bætist við í suð-
urenda lóðarinnar. Með breyting-
unni stækki lóðin úr 46.933 m² í
58.528 m² og mögulegt byggingar-
magn hennar aukist um 10.200 m²,
fari úr 11.700 m² í 21.900 m².
Samkvæmt tillögunni er gert ráð
fyrir að þak byggingarinnar liggi að
holtinu og verði í sömu hæð og holtið
þar sem það mætir byggingunni.
Þakið verði með náttúrulegu yfir-
bragði þannig að byggingin falli sem
best inn í umhverfið.
Stefán S. Konráðsson, formaður
skipulagsnefndar Garðabæjar, segir
að eigendur lóðanna hafi óskað eftir
sameiningu þeirra. Helstu kostirnir
séu að byggingum fækki, byggingin
færist fjær vatninu og dregið verði
úr sjónrænum áhrifum í byggðinni í
holtinu.
Þrjár lóðir
verði sam-
einaðar
Verslunarmiðstöð á
milli MAX og IKEA