Morgunblaðið - 22.03.2007, Side 23
úr bæjarlífinu
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 23
Þórgnýr Dýrfjörð, deildarstjóri Menning-
ardeildar Akureyrar, verður fyrsti fram-
kvæmdastjóri Akureyrarstofu. Alls sóttu 33
um starfið. Akureyrarstofa fer með stjórn
menningar-, ferða-, markaðs- og atvinnumála
Akureyrarbæjar.
Hámark bjartsýninnar, sagði Haraldur Bessa-
son á sínum tíma, fyrsti rektor Háskólans á
Akureyri, þegar einhver braust inn í skólann á
upphafsárunum! Mér datt það sama í huga
þegar fréttir bárust af því í vikunni að brotist
hefði verið inn hjá íþróttafélögunum KA og
Þór. Varla mikið þar að hafa …
Erla Björg Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri
hjá Símey, hlaut 119 atkvæði af 124 í kosningu
til stjórnar KEA á aðalfundi félagsins. Hún
kemur ný inn í stjórn.
Hagnaður KEA var 287 milljónir króna í fyrra,
sem framkvæmdastjórinn Halldór Jóhannsson
segir viðunandi. Hannes Karlsson, Úlfhildur
Rögnvaldsdóttir, Benedikt Sigurðarson og
Björn Friðþjófsson voru kosin í stjórn á síð-
asta ári til tveggja ára. Soffía Ragnarsdóttir
gaf ekki kost á sér til endurkjörs en hún hefur
setið í stjórn sl. 4 ár.
Stálþilsplötur sem nota átti til lengingar Odd-
eyrarbryggju fóru fyrir borð í Kársnesinu á
dögunum og liggja nú líklega á 30 m dýpi und-
an Garðskaga, að sögn Harðar Blöndal hafn-
arstjóra. Hann segir búið að panta nýjar plöt-
ur og afgreiðslufrestur sé um 12 vikur. Þetta
eru plöturnar „frægu“ sem Hörður neitaði að
taka við landleiðina á sínum tíma og vildi að
kæmu sjóleiðina norður.
Aðalfundur AkureyrarAkademíunnar verður í
kvöld kl. 20 í gamla Húsmæðraskólanum við
Þórunnarstræti. Þar verður farið yfir starfið í
vetur og gerð grein fyrir hvernig gengið hefur
að fjármagna félagið og kosin ný stjórn.
Rætt verður um stöðu endurskoðunar rekstr-
arsamninga íþróttafélaganna, um íþróttir á
Akureyri almennt og framtíðarsýnina, á súpu-
fundi Þórs í Hamri í hádeginu í dag. Gestir
verða Ólafur Jónsson formaður Íþróttaráðs,
Jón Hjaltason, Sveinn Arnarson, Erlingur
Kristjánsson og Dýrleif Skjóldal ásamt Kristni
Svanbergssyni, deildarstjóra íþróttadeildar
Akureyrarbæjar. Fundur er frá kl. 12 til 13.
Morgunblaðið/Kristján
Menning Þórgnýr Dýrfjörð t.v. ásamt Hann-
esi Sigurðssyni, forstöðumanni Listasafnsins.
AKUREYRI
Skapti Hallgrímsson
Ljóðið Örlög barst Vísnahorninuen Ása Hlín Benediktsdóttir,
sem fædd er 1984, samdi það
stuttu eftir inngöngu í
Ásatrúarfélagið:
Þursar, nornir, dísir dauða
spinna nóttu
dreyra rauða.
Hver er að spinna?
Hvaðan kemur?
Þrjár í einni, ein í þremur.
Hver í spuna rokkinn lemur?
Sitja saman, berja stokka
ata blóði
spuna rokka.
Hvín í eyrum feigra manna
hvísla milli bitinna tanna:
Manna lífi
engu unni
nornir þrjár hjá Urðarbrunni.
Hver er að spinna?
hvaðan kemur?
Hver í spuna stokkinn lemur?
Þjár í einni, ein í þremur
spinna andans þráð í duld.
Vita örlög öðrum fremur
Urður, Verðandi og Skuld.
Ása Hlín hefur samið fjölda
ljóða og skrifað sögur. Næst á
dagskrá er að fá útgefna barnabók
um þrífætta hundinn hennar
Stubba en ekki hefur fengist
útgefandi ennþá. Hún er stúdent
frá MH, nemur bókmenntafræði
við HÍ og kennir undirstöðuatriði í
hestamennsku á sumrin við
reiðskóla Topp-hesta í
hestamannafélaginu Andvara.
Hugðarefnin eru, eins og hún
lýsir þeim sjálf, „náttúruvernd og
lögleiðing hesta sem
samgöngumáta í Reykjavík auk
þess sem hún er alfarið á móti
fangelsisdómum vegna
fíkniefnabrota, reyndar
fangelsisdómum yfirleitt og styður
allt sem kemur Reykjavík nær því
að vera eins og Amsterdam, með
frjálslyndi á sviði vændis, fíkniefna
og annarra gamalgróinna þátta í
lífi mannkyns. Hún er fædd og
uppalin í Norðurmýri en var
skiptinemi í Venesúela í 8 mánuði
og hefur nýverið fest kaup á
risíbúð á Karlagötu 21.
Tónlist: Rapp og íslensk
dægurlög (síðan fyrir 1975).
Matur: Arebas og empanadas.
Trú: Ásatrú, náttúrudýrkun,
draugar og álfar en trúir ekki á
ástina eða líf eftir dauðann.
Stjórnmálaflokkur: Vinstri
grænir (til að velta
stóriðju-ríkisstjórninni) en leiðast
umræður um jafnrétti, fórnarlömb,
femínisma og aðrar
félagsfræðiumræður sem ekki
snúa beint að peningamálum, er
alfarið á móti skerðingu
verndartolla, innflutningi á
erlendum matvörum og þeim
mæðra- eða tilfinningafasisma sem
nú er í uppvexti á Íslandi.“
Marteinn H. Friðriksson samdi
kórverk við ljóðið Örlög, sem flutt
hefur verið af Hljómeyki Þóru
Marteinsdóttur.
VÍSNAHORNIÐ
Örlög og
Ása Hlín
pebl@mbl.is