Morgunblaðið - 22.03.2007, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 25
Myndar vörn
á gler og spegla
Rain Clear er nýtt efni á bílrúður,
hliðar, afturglugga, spegla og ljós
sem eykur útsýni og öryggi við akst-
ur. Efnið fyllir
upp í hinar ör-
smáu ójöfnur,
sem eru á gleri og
myndar eggslétta
ósýnilega vörn,
sem hrindir frá
sér regni, slyddu,
snjó og ver gegn
salti, óhrein-
indum, hrími og
skordýrum.
Brúsinn er með
leiðbeiningum á
íslensku og fæst á bensínstöðvum
Skeljungs og hjá Stillingu, sem er
umboðsaðili nýja efnisins.
Nýr 1944-fiskréttur –
Plokkfiskur
Í byrjun marsmánaðar kynnti
Sláturfélag Suðurlands nýjan und-
irflokk í 1944 réttunum – fiskrétti og
hefur nú plokkfiskur bæst við þenn-
an flokk, en plokkfiskur er einn af
vinsælustu fiskréttum þjóðarinnar.
Plokkfiskurinn inniheldur íslenska
ýsu og er lagaður að hefðbundnum
hætti auk þess að vera bragðbættur
með sætri lauksósu. Tilvalið er að
skera agúrku og tómata í sneiðar og
bera fram með réttinum ásamt nýju
rúgbrauði. 1944 fiskréttirnir fást í
öllum helstu matvöruverslunum
landsins.
Vistvænar vörur
í Grænu kistunni
Græna kistan er ný vefverslun
með vistvænar vörur sem flestar eru
lífrænar. Um er að ræða fatnað á
börn og fullorðna, sem og heim-
ilisvörur, en í framtíðinni er stefnt
að því að verslunin bjóði upp á allt
sem lýtur að heimilinu. Meðal þeirra
framleiðenda sem Græna kistan sel-
ur vörur frá má nefna Green Cotton,
lífrænan fatnað sem framleiddur er
á umhverfisvænan máta, sem og
Clean Clothes sem fellur undir Fair
Trade staðla og loks Cut4cloth, en sá
framleiðandi styrkir skóla á Ind-
landi þar sem fötin eru framleidd.
1% af söluágóða Grænu kistunnar
rennur þá til SOS barnaþorpa.
NÝTT
STÓRI skómarkaðurinn verður hald-
inn í Perlunni frá fimmtudeginum 22.
mars til sunnudagsins 1. apríl. Af-
greiðslutími alla daga er frá 12–18.
Er þetta í annað skipti sem mark-
aðurinn er haldinn og verður sem
fyrr mikið vöruval skófatnaðar og
fylgihluta á boðstólum. Um er að
ræða nýja og nýlega vöru, t.a.m. leð-
urstígvél, spariskó, inniskó, golfskó,
leðurtöskur, bakpoka, húfur og
íþróttagalla.
Skómarkaðurinn er rekinn af
rekstraraðilum og eigendum Skór.is,
Kringlunni og Smáralind og Sappos,
Garðabæ og Akureyri.
Stóri skó-
markaðurinn
í Perlunni
VÍÐSJÁ kl. 17.03 virka daga
www.ruv.is
Víðsjá gerir
hugsunina
hreina án þess
að nudda hana
* Innifalið: Flug og flugvallarskattar. Lágmarksdvöl er aðfaranótt sunnudags. Enginn barnaafsláttur.
Fargjöld á þessu tilboði er aðeins hægt að bóka annað hvort hjá sölu-
deildum Icelandair eða hjá Fjarsölu Icelandair í síma 50 50 100.
Fargjöld skv. þessu tilboði er ekki hægt að bóka beint á www.icelandair.is.
Sölutímabil: 21. mars til og með 23. mars.
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is
Vildarklúbbur
S
IA
.I
S
I
C
E
3
67
34
0
3
/0
7
VORTILBOÐ TIL
VILDARKLÚBBSFÉLAGA
Í PUNKTUM OG PENINGUM
‘07 70ÁR Á FLUGI
KAUPMANNAHÖFN
19.900 kr. + 10.000 punktar*
Ferðatímabil 11. apríl - 15. maí (síðasta heimkoma).
LONDON
19.900 kr. + 10.000 punktar*
Ferðatímabil 11. apríl - 15. maí (síðasta heimkoma).
BALTIMORE/
WASHINGTON
34.900 kr. + 10.000 punktar*
Ferðatímabil 18. apríl - 15. maí (síðasta heimkoma).
MINNEAPOLIS
– ST. PAUL
ORLANDO BOSTON
HALIFAX
GLASGOW
LONDON
STOKKHÓLMUR
HELSINKI
KAUPMANNAHÖFN
OSLÓ
BERLÍN
FRANKFURT
MÜNCHEN
MÍLANÓ
AMSTERDAM
BARCELONA
MADRÍD
MANCHESTER
PARÍS
NEW YORK
BALTIMORE –
WASHINGTON
BERGEN GAUTABORG
REYKJAVÍK
AKUREYRI
Ferðaávísun gildir
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI ÓSKAST TIL KAUPS
Við höfum verið beðnir um að útvega 800-1200 fermetra
skrifstofu- og þjónusturými á svæðinu frá Borgartúni
og að Fossvogi. Fleiri staðir koma til greina.
Nánari upplýsingar veitir
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali.
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
Við höfum verið beðin um að útvega fjársterkum kaupanda
hús í Fossvogi. Staðgreiðsla fyrir réttu eignina.
Nánari upplýsingar veita
Sverrir Kristinsson lögg. fasteignasali
og Kjartan Hallgeirsson lögg. fasteignasali.
EINBÝLISHÚS Í FOSSVOGI ÓSKAST