Morgunblaðið - 22.03.2007, Síða 28
ferðalög
28 FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Ég mæli eindregið með þvíað ferðalangar setji Bosn-íu-Hersegóvínu inn áferðakortið sitt því landið
býður bæði upp á mikla fegurð og af-
þreyingarmöguleika,“ segir Guð-
mundur Fylkisson, sem starfar sem
friðargæsluliði á vegum utanríkis-
ráðuneytisins í Sarajevó og notar frí-
tímann til að ferðast um landið.
Flugvöllurinn í Sarajevó er inni í
borginni, líkt og Reykjavíkur-
flugvöllur. Um völlinn fara um millj-
ón farþegar á ári. Þar eru fimm bíla-
leigur með aðstöðu, en fríhöfnin er
lítt spennandi, að sögn Guðmundar.
Alitalia, Lufthansa og Austria fljúga
til borgarinnar og British Airways
áætlar að hefja þangað flug þrisvar í
viku um næstu mánaðamót frá Gat-
wick.
Sarajevó státar af mörgum hót-
elum auk þess sem hægur leikur er
að finna hús eða íbúðir til leigu. Ekki
er ráðlegt að koma á bílum á erlend-
um númerum inn til Bosníu vegna
hættu á bílstuldi, jafnvel á vöktuðum
hótelstæðum. Eldsneyti þykir ekki
dýrt í landinu því bensínlítrinn kost-
ar sem svarar um 80 íslenskum krón-
um og mjólkurlítrinn svipað. Að
sama skapi er ódýrt að snæða á veit-
ingahúsum því dýrindis piparsteik
kostar um 500 kr. Verslunarglaðir
geta líka unað sér glaðir í Sarajevó
þar sem þar er að finna bæði þekkt
vöruhús og heimaverslanir þar sem
fá má gallabuxur á 700 kr.
Heilsudalur og leðursaumur
Bærinn Fojnice, sem er um 50 km
vestur af Sarajevó, stendur í dal, sem
kallaður er „The valley of golden
health“ sem útleggjast má sem
„Heilsudalurinn“. Þar er nefnilega
jarðhiti, sem heimamenn gera út á
með heilsuhótelum og heilsu-
meðferðum. Í bænum má líka heim-
sækja Fransiskuklaustur með minja-
safni. Sumarhúsabyggð tekur svo við
ef ekið er eftir hlykkjóttum vegi upp
í nærliggjandi fjall.
Í bænum Visoko, sem er í um 30
km fjarlægð frá Sarajevó, má kaupa
leðurvörur í verslunum og þar má
líka fara í heimsókn til leðurklæð-
skera og fá saumaða á sig drauma-
flíkina. Það þarf bara að koma með
mynd eða hugmynd. Málin eru síðan
tekin og flíkin getur verið tilbúin inn-
an viku.
Þjóðlegur fatnaður og húðflúr
Fjall, sem gnæfir yfir bæinn, er
talið geyma þrjá píramíta og þótt
menn telji sig hafa fundið merki um
þá er enn mikil vinna eftir í að grafa
þá upp. Reynist þetta rétt ættu þeir
að vera eldri en píramítarnir í
Egyptalandi.
Upplagt er að leggja leið sína til
Prozor-Rama, sem er nyrsti hluti
Hersegóvínu. Þar búa bæði kaþól-
ikkar og múslimar og þar er hægt að
leita friðar hjá Fransiskumunkaregl-
unni Rama-Seit í Sit-eyju, sem situr
á Ramsko-vatni, en þangað út liggur
nú orðið beinn og breiður vegur.
Munkareglan hefur haft þarna að-
setur síðan í síðari heimsstyrjöldinni,
en svæðið mun vera einkar fallegt til
að skoða, veiða, sigla, ganga og
klifra. Kaþólskt þorp er uppi í hæð-
um þar sem konur klæðast þjóð-
legum klæðnaði og hafa látið húð-
flúra á sig krossa á handleggi og
enni.
Þorpið Duge er ekki langt undan,
en það státar af fallegum 30 metra
háum fossi og risastórum regnboga
yfir sér. „Bærinn mun hafa orðið fyr-
ir hörðum árásum í stríðinu því
haustið 1993 mun það hafa gerst að
her Bosníu-Hersegóvínu hafi ráðist
inn í þorpið og drepið heilu fjölskyld-
urnar. Leiðin til Prozor frá Sarajevó
er afar skemmtileg. Vegurinn liggur
lengi vel meðfram miklu vatni í
löngum dal, stíflu og raforkuveri og
það sést til húsa og þorpa langt uppi í
bröttum hlíðum,“ segir Guðmundur.
Bærinn Visegrad liggur við landa-
mærin að Serbíu og er í um 80 km
fjarlægð frá Sarajevó, en bærinn er
þekktastur fyrir brúna yfir ána
Drina. Hægt er að nálgast Visegrad
úr tveimur áttum. Önnur og sú fljót-
farnari liggur um langan dal með-
fram fljóti og er vegurinn oft í veg-
skálum. Hin liggur um fjöllin sem, að
sögn Guðmundar, er spennandi
ferðalag.
Hraðamælingar og þjófnaðir
„Eitt af því sem fólk þarf að hafa í
huga þegar ferðast er um Bosníu er
það að vegalengdir segja ekki allt því
það getur tekið allt að þrjá tíma að
keyra 60–70 kílómetra langa vega-
lengd. Vegir eru flestir malbikaðir
og fjallaslóðir lagðir bundnu slitlagi,
en hraðbrautir liggja ekki um allt.
Vegirnir liggja um sveitir, bæi og
borgir og er lögreglan mjög dugleg
við hraðamælingar. Við vegina eru
víða gistihús, hótel og matsölustaðir.
Við Sniper Line, aðalgötuna í Sa-
rajevo, eru oft sígaunar á gatnamót-
um sem koma til að þrífa bílrúður og
ljós óumbeðið í von um aura. Þeir eru
líka tíðir gestir með ungbörn á mörk-
uðum. Hafa skal þó allan vara á
snertingum frá fólki þessu því þá
geta veski og verðmæti tapast án
þess að færustu lögreglumenn fái við
neitt ráðið.“
Mostar og Dubrovnvic
Sé ekið til suðurs frá Sarajevo er
borgin Mostar í um 120 km fjarlægð.
Vegir eru hlykkjóttir, en um tvo fjall-
vegi er að fara. „Ég hef skoðað end-
urbyggða brú, sem sprengd var
þarna í loft upp árið 1993. Múslímar
reyndu að verja brúna fyrir sprengj-
um með því að klæða hana með hjól-
börðum, en allt kom fyrir ekki.
Frá Mostar er hægt að fara til
vesturs til Split í Króatíu. Þaðan
ganga ferjur yfir Adríahafið yfir til
Ítalíu. Um tveggja tíma sigling er
þar yfir með venjulegri bílaferju.
Hægt er að fara yfir með hrað-
skreiðari ferju, sem tekur þá aðeins
fólk en ekki bíla.
Til suðurs og austurs er hægt að
aka til Dubrovnic í Króatíu sem er
fallegur strandbær iðandi af lífi.
Þarna er stór kastali með mörgum
byggingum innan kastalaveggjanna
ásamt veitingastöðum, verslunum og
söfnum.
Frá Mostar til Dubrovnic eru um
140 km og þarf að aka um tvær
landamærastöðvar því smáhluti
strandarinnar, um 14 km, tilheyrir
Bosníu, en annars er ströndin hluti
af Króatíu. Mitt á milli Mostar og
Dubrovnic er strandbærinn Neum,
lítill og vinalegur bær, sem tilheyrir
Bosníu, með fullt af hótelum og
litlum íbúðum.
Þessi staður er ekki með sendna
strönd, en búið er að útbúa stíga og
palla niðri við sjó og svo eru íbúðar-
hótelin öll með svölum í átt að sjón-
um. Þessi staður er sérstaklega vin-
sæll meðal Austur-Evrópubúa og
þeirra sem vilja vera á eigin vegum,
en ekki er mikil afþreying fyrir börn
á þessum slóðum,“ segir Guð-
mundur.
Endurbygging Brúin í Mostar var sprengd í loft upp, en hefur nú verið endurgerð. Þorpsbragur Fimmtándu aldar þorp í suðurhluta Bosníu.
Starfsfélagar Guðmundur Fylkisson, ásamt dönskum lögreglumanni, starfar sem friðargæsluliði í Bosníu.
Fisksala Fiskur er hér boðinn til sölu í allfrjálslegum „neytendapakkn-
ingum“. Veiðin var úr vatni, rétt norðan við höfuðborgina Sarajevó.
Bosnía á ferðakortið
Gott aðgengi er nú orðið
að Bosníu. Friðargæslu-
liðinn Guðmundur Fylk-
isson sagði Jóhönnu
Ingvarsdóttur að hann
notaði hvert tækifæri
í frítímanum til ferða-
laga í fallegu landi.
Í HNOTSKURN
»Bosnía-Herzegovina tilheyrirBalkanskaganum og er
51.129 km² að stærð.
»Aðeins 20 km strandlengjaliggur að Adríahafinu við
bæinn Neum. Króatía liggur að
norðan, vestan og sunnan, Serbía
að austan og Montenegro að
sunnan.
» Íbúafjöldinn er um fjórarmilljónir manna og er Saraj-
evo höfuðborgin.
join@mbl.is
Guðmundur Fylkisson er með net-
fangið fylkisson@islandia.is vanti
ferðafólk aðstoð á nýjum slóðum.
Hann bloggar reglulega á blogg-
síðunni:
www.blog.central.is/gfylkis
www.sarajevo-airport.be
www.airport-dubrovnik.hr
www.mostar-airport.ba
www.fojnica.ba
www.reumal.ba
www.fojnicatours.com
www.haverford.edu
www.adriatica.net
http://en.wikipedia.org
Orlando Homes For Sale
If you have ever considered buying a home in Florida,
Now is the time!
Don't miss the opportunity to purchase a home in this great buyer's
market... it won't last forever! If you are visiting Orlando this spring,
call or email Meredith Mahn for an appointment to see some of these
outstanding resort communities.
Now through May 31, 2007, receive 1% cash back
on all new home purchases!
For more information, visit us at:
www.LIVINFL.com
Domus Pro Inc. Vacation Home Sales Division
001-321-438-5566