Morgunblaðið - 22.03.2007, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MARS 2007 47
Félagsstarf
Árskógar 4 | Kl. 9.30 bað. Kl. 8-16.30 handavinna.
Kl. 9-16.30 smíði/útskurður. Kl. 9.30 boccia. Kl.
10.30 helgistund. Kl. 11 leikfimi. Kl. 13.30 myndlist.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, leikfimi,
myndlist, alm. handvinna, morgunkaffi/dagblöð,
fótaaðgerð, matur, bókband, kaffi. S. 535-2760.
Dalbraut 18 - 20 | Fimmtudaga söngur með harm-
onikuundirleik. Heitt á könnunni og meðlæti.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í dag kl. 13.
Félag kennara á eftirlaunum | EKKÓ-kórinn æfir í
KHÍ kl. 17-19.
Félagsheimilið Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl.
9.55. Rammavefnaður kl. 9.15. Málm- og silfursmíði
kl. 9.30. Bókband kl. 13. Myndlist kl. 16.30. Stólajóga
kl. 17.15. Jóga á dýnum kl. 18. Einmánaðarfögnuður
á morgun, kl. 14, m.a. á dagskrá kór Snælandsskóla,
upplestur o.fl., kaffihlaðborð.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Kl. 9 handavinna, kl.
10 ganga, kl. 11.40 matur, kl. 13 handavinna og brids,
kl. 18.15 jóga.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Gler- og leirsmiðja
kl. 13 í Kirkjuhvoli. Karlaleikfimi kl. 13 og boccia kl. 14
í Ásgarði. Vatnsleikfimi kl. 13 í Mýri. Handavinnuhorn
eftir hádegi í Garðabergi og tölvur kl. 17 í Garða-
skóla.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Handa-
vinnustofan í Hlaðhömrum, er opin virka daga eftir
hádegi. Fjölbreytt föndur, t.d. skartgripagerð o.fl.
Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 10.30 helgistund, um-
sj. Ragnhildur Ásgeirsd. djákni. Frá hádegi vinnu-
stofur opnar, m.a. myndlist, umsj. Nanna S. Bald-
ursd. Föstud. 30. mars kl.10.30 hefjast æfingar á
lancier dansi, undirbúningur fyrir landsmót U.M.F.Í. í
Kópavogi í júlí, umsj. Kolfinna Sigurvinsd. skráning
hafin á staðnum og s. 575-7720.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulín III. Kl. 10 boccia. Kl. 11
leikfimi. Kl. 12 matur. Kl. 14 félagsvist. Kl. 15 kaffi.
Hraunsel | Aðalfundur F.E.B.H. kl. 15.
Hæðargarður 31 | Kíkið við í morgunkaffi og kynnið
ykkur dagskrána. Listasafn Íslands föstud. 23. mars
kl. 11.50. Jóhann Briem og Jónas Engilberts. Uppl. í
s. 568-3132/asdis.skuladottir@reykjavik.is
Korpúlfar Grafarvogi | Sundleikfimi í Grafarvogs-
sundlaug á morgun, föstudag, kl. 9.30 og listasmiðja
á Korpúlfsstöðum kl. 13.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund kl. 10.30.
Handavinnustofur kl. 13. Boccía kl. 13.30. Kaffiveit-
ingar kl. 14.30. Bingó kl. 15. Uppl. í s. 552-4161.
Norðurbrún 1 | Kl. 9 smíði, kl. 9-12 leirnámskeið, kl.
10 boccia, kl. 9-16.30 opin vinnustofa, kl. 13 upp-
lestur, kl. 13-16 leirnámskeið.
Samtök lungnasjúklinga | Fræðslufundur í kvöld kl.
20 í Síðumúla 6 (gengið inn á bak við). Bryndís Stef-
anía Halldórsdóttir hjúkrunarfræðingur fræðir okkur
um svefnháðar öndunartruflanir. Mætum öll og takið
með ykkur gesti.
Vesturgata 7 | Kl. 9-16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir.
Kl. 9 boccia. Kl. 9.15-14 aðstoð v/böðun. Kl. 9.15-
15.30 handavinna. Kl. 10.15 spænska. Kl. 11.45 matur.
Kl. 13 leikfimi. Kl. 12.30-14.30 kóræfing. Kl. 13-16
glerbræðsla. Kl. 14.30 kaffi.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 8.30-12, bók-
band kl. 9-13, hárgreiðslu og fótaaðgerðarstofur
opnar frá kl. 9, morgunstund kl. 9.30, boccia kl. 10-
11, handavinnustofan opin allan daginn og allir vel-
komnir, glerskurður kl. 13-17, frjáls spilamenska.
Þórðarsveigur 3 | Kl. 10 bæn og samvera. Kl. 13 op-
inn salur. Kl. 13.15 leikf. Kl. 14.30 bingó/félagsvist.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Kyrrðar- og fyrirbænastund kl. 12.
Léttur hádegisverður á eftir. Fundur með foreldrum
fermingarbarna í kirkjunni kl. 20. Emmaus-
námskeið í kapellu kl. 20.
Áskirkja | Kl. 10 foreldramorgunn, bókakynning frá
Borgarbókasafni. Kl. 14 söngstund með Kára, kaffi á
eftir. Kl. 17 klúbbur 8 og 9 ára og kl. 18 TTT-starfið.
Dagskrá beggja fundanna er „Leynigestur“.
Breiðholtskirkja | Biblíulestur sr. Sigurjóns Árna
Eyjólfssonar fellur niður í kvöld.
Bústaðakirkja | Foreldramorgunn kl. 10. Sam-
verustundir fyrir foreldra og börn þeirra.
Digraneskirkja | Leikfimi ÍAK kl 11.15. Foreldramorg-
unn kl. 10 í fræðslusal. Bænastund kl. 12. Barnastarf
6-9 ára kl. 17.15. Unglingastarf fyrir 13 ára kl. 19.30-
21.30. www.digraneskirkja.is
Grafarvogskirkja | Foreldramorgunn kl. 10-12. Ýmis
konar fyrirlestrar. Heitt á könnunni, djús og brauð
fyrir börnin. TTT fyrir 10-12 ára í Víkurskóla kl. 17-18.
Lesið úr Passíusálmum séra Hallgríms Péturssonar.
Í dag kl. 18 les Rannveig Guðmundsdóttir.
Hallgrímskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Orgelleikur,
íhugun. Léttur málsverður í safnaðarsal á eftir.
Hjallakirkja | Kirkjuprakkarar, 6-9 ára starf, kl.
16.30-17.30.
KFUM og KFUK | Fundur í AD KFUM í kvöld verður
haldinn í Reykjanesi hjá sr. Guðmundi Óla Ólafssyni.
Brottför með rútu kl. 19 frá Holtavegi 28. Allir karl-
menn velkomnir.
Kristniboðsfélag kvenna | Háaleitisbraut 58-60.
Aðalfundur kl. 17. Venjuleg aðalfundarstörf. Margrét
Hróbjartsdóttir hefur hugleiðingu. Bænastund á
undan fundinum kl. 16.30.
Laugarneskirkja | Sigurbjörn Þorkelsson hefur
helgistund í þjónustumiðstöð aldraðra kl. 15.15 í bláu
húsunum við Dalbraut. Kyrrðarstund kl. 12. Umsjón
sr. Hildur Eir Bolladóttir og Gunnar Gunnarsson org-
anisti. Létt máltíð í safnaðarheimilinu á eftir á
kostnaðarverði. Allir velkomnir. Kl. 17 Adrenalín
gegn rasisma, unglingastarf. Umsjón: Sr. Hildur Eir
Bolladóttir. AA fundur í safnaðarheimilinu kl. 21.
Vídalínskirkja Garðasókn | Síðasta Biblíu-
fræðslukvöldið í kvöld kl. 20. Sr.Kristján Búason
fv.dósent við HI ræðir um Guðspjall næsta sd. s.e
Lk.1:46-56. Sr. Kristján er síðastur í röð tíu öldunga
þjóðkirkjunnar sem hafa séð um biblíufræðslukvöld í
Vidalínskirkju. Kyrrðar og fyrirbænastund kl. 21.
Molasopi á eftir.
Orð dagsins: En sagði hann við þá: „Gætið að, hvað þér heyrið. Með þeim mæli, sem þér mælið, … yður bætt.“ (Mk. 4, 24.)
Tónlist
DOMO Bar | Þingholtsstræti.
Kvartett Hauks Gröndal í kvöld kl.
21. Tónleikarnir eru liður í dagskrá
djassklúbbsins Múlans. Á efnis-
skránni eru lög sem saxistinn Les-
ter Young gerði ódauðleg. Fram
koma Haukur Gröndal sax, Ásgeir
Ásgeirsson gítar, Þorgrímur Jóns-
son á bassa og Erik Qvick. Að-
gangeyrir er 1.000 kr.
Þjóðarbókhlaðan | Vissir þú að
hægt er að finna hvaða tónlist-
arfólk fæddist ákveðinn dag, upp-
lýsingar um ævi listafólks, stefnur
og strauma í tónlist frá örófi til
okkar daga? Þetta allt og meira til
í Grove Music, sem er í lands-
aðgangi og verður kynnt í dag kl.
15.30. Nánar á http://hvar.is.
Myndlist
Gallery Turpentine | Mál-
verkasýningu Stefáns Boulters
lýkur laugard. 24. mars.
Þjóðarbókhlaðan | Vissir þú að
hægt er að finna hvar einstök mál-
verk hanga, hvaða sýningar eru í
gangi í hvaða borg, upplýsingar
um ævi listafólks, stefnur og
strauma í myndlist frá hellaverk-
um til okkar daga? Þetta allt og
meira til í Grove Art sem verður
kynnt í dag kl. 15.
Leiklist
Leikfélag Hveragerðis | Rokk-
óperan Jesús Crist Superstar er
sýnd um þessar mundir í tilefni af
60 ára afmæli félagsins. Leikstj.:
Laufey Brá Jónsdóttir og Jón Ingi
Hákonarson. Mikið hefur verið lagt
í búninga, ljós og sviðsmynd. Uppl.
s. 483-4727.
Uppákomur
Bókasafn Kópavogs | Í dag verður
5. erindið um Furður. Þorvaldur
Friðriksson skrímslafræðingur
fjallar þá um skrímsli af öllu tagi.
Hefst kl. 17.15. Allir velkomnir, eng-
inn aðgangseyrir, heitt á könnunni.
Múltí Kúltí | Evrópuvika gegn kyn-
þáttamisrétti. Jákvæðar kynn-
ingar á þjóðum. Kór Regnboga-
kvenna eru stúlkur frá ýmsum
löndum sem syngja á ýmsum
tungumálum. Italizzurra er félag
fólks frá Ítalíu og Íslendinga. Kynn-
ing kl. 20 í kvöld á því félagi og
Ítalíu. Ókeypis inngangur. Allir vel-
komnir. Kaffisala.
Fyrirlestrar og fundir
Aðalbygging Háskóla Íslands, há-
tíðarsalur | Elín Ebba Ásmunds-
dóttir, forstöðuiðjuþjálfi á geðsviði
LSH og lektor við HA, heldur er-
indi kl. 12.15 á vegum ráðs um mál-
efni fatlaðra og starfsmannasviðs
Háskóla Íslands um geðrækt. Í er-
indi sínu mun hún fjalla um hvern-
ig daglegt líf hefur áhrif á geð-
heilsuna og hvað hægt er að gera
til að efla hana.
Bústaðakirkja | Siðferði, gildismat
og trúarlegt uppeldi. Dr. Gunnar
Finnbogason og Jónas Margeir
Ingólfsson fjalla um þetta efni í
kvöld en það er hluti af fyr-
irlestraröðinni „hið góða líf – fyr-
irlestrar um fjölskylduna“. Fyr-
irlesturinn hefst kl. 20 og eru allir
velkomnir.
Ljósið, endurhæfingar og stuðn-
ingsmiðstöð fyrir krabbameins-
greinda | Ljósið, endurhæfingar
og stuðningsmiðstöð fyrir krabba-
meinsgreinda, stendur fyrir fyr-
irlestri með Ásmundi Gunnlaugs-
syni jógakennara. Hann mun fjalla
um streitu, kvíða og fælni. Fund-
urinn er fyrir krabbameinsgreinda
og aðstandendur og hefst kl. 20 í
Neskirkju (kjallara). Aðgangur
ókeypis.
Sögufélag, Fischersundi 3 | Kjöt-
kássa og kelerí? líf og störf á
heimavistarskólum á síðari hluta
20. aldar. Fyrirlestur í kvöld kl. 20.
Sigrún Ólafsdóttir, BA í þjóðfræði:
„Kjötkássa og kelerí“. Birna Krist-
ín Lárusdóttir, BA í þjóðfræði:
„Staðarfellsstelpurnar“.
Á Sólheimum er starfandi Íþróttafélagið Gnýr sem tekurþátt í öllum helstu mótum sem eru í boði á vegum
Íþróttasambands fatlaðra. Í hverri viku eru boccia-
æfingar, leikfimi og sundæfingar fastir liðir í íþróttastarf-
inu. Á Sólheimum er íþróttahús, fallegur og vel búinn
tækjasalur og sundlaug auk þess sem að um svæðið og í ná-
grenni þess er fjöldi fallegra gönguleiða.
Á myndinni má sjá boccia-hópinn á lokaæfingu fyrir Ís-
landsmeistaramót ÍF sem haldið verður 23. til 25. mars.
Undanúrslit verða í sal A í Laugardalshöll á morgun,
laugardag, kl. 10-20.
Útivist og íþróttir
Gnýr íþróttafélag
Sólheima
95 ára afmæli. Í dag,fimmtudaginn 22.
mars, er níutíu og fimm ára
Erika Guðjónsson, Helgu-
braut 7, Kópavogi, nú á Elli-
heimilinu Grund.
Auglýstu
atburði
á þínum
vegum
hjá okkur
Hafðu samband við
auglýsingadeild
Morgunblaðsins
í síma 569 1100
• Tónleika
• Myndlistar-
sýningar
• Leiksýn-
ingar
• Fundi
• Námskeið
• Fyrirlestra
• Félagsstarf
• Aðra mann-
fagnaði
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ birtir til-
kynningar um afmæli, brúð-
kaup, ættarmót o.fl. lesendum
sínum að kostnaðarlausu. Til-
kynningar þurfa að berast
með tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags- og
mánudagsblað. Samþykki af-
mælisbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur hringt
í síma 569-1100 eða sent á net-
fangið ritstjorn@mbl.is. Einn-
ig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Hádegismóum 2, 110 Rvk.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 22. mars, 81. dagur ársins 2007
Ámorgun, föstudag, efna áttasjálfstæð mannúðarsamtöká Íslandi til málþings umþróunarsamvinnu undir yf-
irskriftinni Frá hugsjónum til fram-
kvæmda.
Fyrirlesarar á málþinginu eru
starfsmenn samtakanna, en sérstakur
gestafyrirlesari er Brian Pratt, fram-
kvæmdastjóri INTRAC – Alþjóð-
legrar þjálfunar- og rannsókn-
armiðstöðvar á sviði félagasamtaka í
Oxford á Englandi.
Erindi Brians fjallar um hvernig
samstarfi stjórnvalda og félagasam-
taka í þróunarsamvinnu er háttað í
öðrum Evrópulöndum: „Í fyrirlestr-
inum geri ég samanburð milli sjö vest-
rænna þjóða á fjármögnun fé-
lagasamataka sem sinna mannúðar-
og þróunarverkefnum,“ segir Brian. „Í
upphafi söfnuðu slík samtök sjálf
framlögum og varningi, eins og tepp-
um og fatnaði, og sendu til þurfandi
svæða. En frá byrjun 7. áratugarins
fóru ríkisstjórnir í auknum mæli að
beina fjármunum til þróunar- og neyð-
arhjálparverkefna gegnum þessi fé-
lagasamtök sem leiddi af sér mikinn
vöxt í starfsemi. Á undanförnum árum
hafa hins vegar orðið æ háværari efa-
semdaraddir um hvort þessi leið sé sú
besta til að tryggja skilvirkni og fram-
gang verkefna.“ Brian segir í auknum
mæli kallað eftir því að vestræn ríki
fjármagni beint grasrótarstarfsemi í
þurfandi löndum suðurs og austurs:
„Missætti er um raunverulega stöðu
félagasamtaka heima fyrir sem eru að
miklu leyti háð opinberum framlögum,
um hvort þau starfi sjálfstætt, eða
sem angi af hinu opinbera. Einnig
gætir ótta við að mörg þessara fé-
lagasamtaka séu orðin svo stofn-
anavædd að þau hugsi mest um eigin
þróun og tilverugrundvöll á kostnað
þess að gera vel í þróunar- og mann-
úðarstarfi.“
Að málþinginu standa Rauði kross
Íslands, Hjálparstarf kirkjunnar,
Barnaheill – Save the Children á Ís-
landi, Samband íslenskra kristniboðs-
félaga, SOS-barnaþorp, UNICEF á
Íslandi, UNIFEM á Íslandi og ABC-
barnahjálp, og má nálgast frekari
upplýsingar á heimasíðum þessara fé-
laga.
Málþingið fer fram í Norræna hús-
inu frá 9 til 16.
Hjálparstarf | Málþing um þróunarsamvinnu í Norræna húsinu 23. mars
Framkvæmd hugsjóna
Brian Pratt
fæddist 1950.
Hann lauk BSc-
gráðu í stjórn-
málafræði frá
Birmingham-
háskóla, dipló-
magráðu í Suður-
Ameríkufræðum
og síðar dokt-
orsrgráðu frá Cambridge-háskóla.
Brian var svæðisstjóri Oxfam á andes-
svæðinu, síðar yfirmaður rannsókna
og stefnumótunar Oxfam í Bretlandi.
Frá 1992 hefur hann starfað hjá INT-
RAC í Oxford, nú framkvæmdastjóri.
Brian er kvæntur dr. Jo Boyden verk-
efnisstjóra og eiga þau fjögur börn.