Morgunblaðið - 03.04.2007, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. APRÍL 2007 17
SUÐURNES
Við auglýsum eftir umsóknum um styrki á sviði
menningarmála, íþrótta- og æskulýðsmála,
umhverfis- og útivistarmála og mannúðarmála.
Alls leggjum við fram 50 milljónir króna og skiptast þær
þannig að 10 milljónum verður ráðstafað til menningarmála
annars vegar og mannúðarmála hins vegar, 15 milljónir
króna renna til íþrótta- og æskulýðsmála og 15 milljónir til
umhverfis- og útivistarmála.
Styrkur
sam-
félagsins Sækið um styrki fyrir 23. apríl næstkomandi. Eingöngu er hægtað sækja um á vef Orkuveitu Reykjavíkur: www.or.is
or.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/O
R
K
3
69
44
0
3/
07
HITAVEITA Suðurnesja, Norðurál og Reykjanesbær
standa saman að verkefni sem ætlað er að glæða áhuga
nemenda og kennara á grunnskólastigi á raunvísindum.
Nemendur munu meðal annars smíða farartæki úr létt-
málmi sem knúið verður vetni.
Jónína Ágústsdóttir, skólastjóri Akurskóla og verkefn-
isstjóri raungreinaverkefnisins, segir að eðlisfræði fari
heldur halloka í grunnskólum landsins og þörf sé á að
reyna að efla kennsluna. Við undirbúning verkefnisins
sem staðið hefur í um eins árs skeið hafi komið fram að
eðlisfræðikennarar á unglingastiginu í grunnskólum í
Reykjanesbæ og nágrenni hafi talið þörf á að auka þekk-
ingu þeirra á faginu og jafnframt hafi komið upp hug-
myndir um að tengja slíka fræðslu orkunýtingu og vetni
sérstaklega. Fenginn var sérfræðingur í vetni til að halda
námskeið fyrir kennarana og hafi það komið kennurun-
um mjög til góða. Nú sé hugmyndin að taka álið inn í
verkefnið, sérstaklega eðlisfræðina á bak við málminn.
Hönnunarkeppni unglinga
Nú er verið að undirbúa hönnunarkeppni meðal nem-
enda unglingastigsins þar sem reynir á hugvit og frum-
kvæði. Þeir nemendur sem vilja fá það verkefni að hanna
farartæki úr léttmálmi sem nýtir vetnið sem orkugjafa.
Jónína segir að slíkar keppnir séu spennandi í huga nem-
enda og líklegar til að vekja athygli þeirra á þessum hlut-
um. Fyrirhugað er að keppnin fari fram í maí. Að henni
lokinni verður efnt til sýningar á gripunum sem til verða
og veitt verðlaun fyrir hugvitssamlegustu lausnirnar.
Verkefnið tekur í upphafi til unglingastigs allra grunn-
skólanna í Reykjanesbæ og skólanna í Garði og Sand-
gerði. Síðar er hugmyndin að útvíkka verkefnið þannig
að allir skólar á veitusvæði Hitaveitu Suðurnesja geti
orðið þátttakendur.
Norðurál og Hitaveita Suðurnesja leggja til eina og
hálfa milljón kr. til verkefnisins, hvort fyrirtæki, og gildir
samþykktin til eins árs. Auk þess skipuleggur Norðurál
heimsóknir kennara í álverið á Grundartanga og Hita-
veitan skipuleggur ferðir kennara í auðlindagarðana í
Svartsengi og á Reykjanesi.
Ellert Eiríksson, fráfarandi stjórnarformaður HS,
sagði frá þátttöku fyrirtækisins í verkefninu á aðalfundi
HS. Hann sagði að það væri skylda fyrirtækisins að
styðja þróun samfélagsins á starfssvæði sínu. Sagði hann
einnig frá öðru slíku verkefni sem félagið tekur þátt í en
það lagði eina milljón kr. í kaup og þjálfun á fíkniefna-
hundi fyrir Tollgæsluna á Keflavíkurflugvelli.
HS og Norðurál styðja
raungreinakennslu
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Þorbjörn Ester Pálmadóttir tollvörður á Keflavík-
urflugvelli vinnur að þjálfun fíkniefnahundsins Þor-
björns. Hún sýndi hann á aðalfundi HS.
Eftir Jón Gunnlaugsson
Akranes | Framkvæmdastjórn
sjúkrahúss og heilsugæslustöðvar
Akraness héldu á dögunum sam-
kvæmi til heiðurs Páli Gíslasyni,
fyrrverandi sjúkrahúslækni, þar
sem honum voru þökkuð frábær
störf hans við sjúkrahúsið á ár-
unum 1955 til 1970.
Jafnframt var á þessum tíma-
mótum minnst frumkvöðlastarfs
Páls varðandi æðaskurðlækningar
á Íslandi, en fyrstu aðgerðirnar
voru gerðar á Akranesi 1961.
Sýnd var kvikmynd sem tekin
var árið 1967 af aðgerð sem Páll
framkvæmdi og hafði kvikmyndin
verið endurgerð og síðan talsett
af Páli sjálfum.
Fritz Berndsen, yfirlæknir
handlæknisdeildar, bauð gesti vel-
komna og Þórir Bergmundsson
lækningaforstjóri rakti feril Páls
og störf hans á Akranesi og
minntist sérstaklega á þá miklu
uppbyggingu sjúkrahússins sem
átti sér stað þau ár sem Páll starf-
aði þar.
Að lokinni sýningu kvikmyndar-
innar sem áður er getið ávarpaði
Páll viðstadda og sagði frá störf-
um sínum og þeim aðstæðum sem
ríktu á Akranesi, bæði innan
stofnunarinnar og í bæjarfélaginu
í heild. Í upphafi starfsferils Páls
á Akranesi bjó hann ásamt fjöl-
skyldu sinni á sjúkrahúsinu og
eins og nærri má geta hefur álag-
ið í starfi hans verið enn meira en
ella af þeim sökum.
Vinnutíminn var langur en
þrátt fyrir það sinnti hann fé-
lagsmálum af krafti. Hann var fé-
lagsforingi í Skátafélagi Akra-
ness, en mikill kraftur var í
starfsemi þess þau ár sem hann
var á Akranesi. Páll varð síðar
Skátahöfðingi Íslands um árabil. Í
átta ár frá 1962 sat Páll í bæj-
arstjórn Akraness, en á þeim tíma
var mikið tekist á um stækkun
sjúkrahússins og margir áfangar
unnir.
Páll minntist margra samferða-
manna sinna frá þessum árum og
fór hlýjum orðum um þá. Þarna
voru framsýnir menn á ferð, sagði
hann, en glíman við embætt-
ismennina og ríkisvaldið var oft
erfið. Það sem Páli var þó efst í
huga var hinn mikli samhugur og
áhugi sem ríkti um sjúkrahúsið,
uppbyggingu þess og starfsemi og
þegar þannig er, þá er gaman að
vinna og ekkert verður ómögu-
legt, sagði hann.
Að lokinni dagskrá voru veit-
ingar bornar fram og slegið á
létta strengi í vina- og kunn-
ingjahópi. Fjöldi gesta var við-
staddur þessa samkomu, Páll
ásamt Soffíu eiginkonu sinni og
tveimur dætrum, gamlir sam-
starfsmenn hans og stjórn-
málamenn ásamt nokkrum núver-
andi og fyrrverandi starfsmönn-
um SHA.
Morgunblaðið/Jón Gunnlaugsson
Í góðum hópi Páll Gíslason með þremur gömlum samstarfsmönnum, f.v.
Guðjón Guðmundsson, Bragi Níelsson, Páll og Jón Jóhannesson.
Frumkvöðlastarfs
minnst á Akranesi
Borgarfjörður | Björgunarsveitin
Ok í Borgarfirði hélt upp á 40 ára
afmæli sitt síðastliðinn laugardag.
Stofnfundurinn var haldinn í
Logalandi 18. febrúar 1967. Að-
alhvatamaður að stofnun sveit-
arinnar og fyrsti formaður var Jón
Þórisson, kennari í Reykholti, og
voru stofnfélagar 49. Af þeim eru
nú 18 látnir og 20 fluttir burt af fé-
lagssvæðinu. Öllum stofnfélögum
ásamt mökum var boðið í afmæl-
isveisluna og mættu þrettán þeirra.
Veislustjóri var Þorvaldur Jóns-
son í Brekkukoti. Bjartmar Hann-
esson á Norður-Reykjum flutti
gamanmál.
Núverandi stjórn Björg-
unarsveitarinnar Oks er þannig
skipuð: Formaður er Snorri Jó-
hannesson, Augastöðum, gjaldkeri
er Jóhann Pétur Jónsson, Hæli, og
ritari Björn Björnsson, Ásbrún 6.
Meðstjórnendur eru Bjarni Guð-
mundsson, Skálpastöðum, og Davíð
Ólafsson, Hvítárvöllum.
Morgunblaðið/Davíð Pétursson
Heiðrun Þrettán stofnfélagar í björgunarsveitinni Ok voru á afmælishátíð.
Stofnfélagar í björgun-
arsveitinni Ok heiðraðir
GERT er ráð fyrir því að raforka til
áformaðs álvers Norðuráls við
Helguvík fari um jarðstreng.
Eftir að Sandgerðisbær hafnaði
hugmyndum Landsnets um lagn-
ingu háspennulínu varð að sam-
komulagi að ganga út frá því að ork-
an yrði flutt um jarðstreng sem
liggja mun frá Fitjum, ofan við
byggðina í Njarðvík og Keflavík, til
Helguvíkur. Jarðstrengurinn fer
mun styttri leið en loftlínur um-
hverfis Keflavíkurflugvöll. Það er
hins vegar dýrari kostur auk þess
sem lengri tíma tekur að gera við
bilanir.
Ragnar Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaþróunar- og
framkvæmdasviðs Norðuráls, segir
að reynt verið að tryggja afhending-
aröryggi með því að leggja fleiri
strengi svo álverið geti fengið raf-
magn sem dugi til reksturs þótt bil-
un verði í einum streng.
Miðað við að leggja jarð-
streng til Helguvíkur
"&
"+
!(/
-
(
#3
!
5
!
8M
)&
% 6
& $
8
+$ 0./6
N
D
8M
"&
09
$"&
5
"&
3
5&#-/ ! :! :
$
5
"& LANDIÐ