Morgunblaðið - 08.04.2007, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 08.04.2007, Qupperneq 10
10 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ HJÁLPARSTARF Í LÍBERÍU F jarri Íslandsströndum er lítið land sem heitir Líb- ería. Eftir fjórtán ára borgarastyrjöld, sem lauk árið 2003 og kostaði 250.000 manns lífið, er landið rústir einar. Þar er ekkert rafmagn og ekkert rennandi vatn. Atvinnuleysi er um 80% og 200.000 munaðarlaus börn eru á götunni. Menn hafa því um annað að hugsa þar um slóðir en frægð, auðæfi og bókhald risafyrirtækja. Alþjóðasamfélagið hefur nú lagst á árarnar með þessari hrjáðu þjóð og leggur Ísland sitt af mörkum á vettvangi ABC barnahjálpar. Fyrir verkefninu fer heimamaðurinn Matthew T. Sakeuh sem man svo sannarlega tímana tvenna. Líbería er á vesturströnd Afríku og er elsta lýðveldi álfunnar. Þar búa ríflega þrjár milljónir manna og karlmenn mega ganga að eiga eins margar konur og þeir treysta sér til að sjá fyrir. Sé efnahagur þeirra rúmur geta þeir því hæglega kvænst fimmtíu eða sextíu sinnum. Faðir Matthews var höfðingi í þorp- inu sem hann ólst upp í og náðu völd hans til þrettán annarra þorpa í grenndinni. „Hann var valdamikill og gat leyft sér hvað sem er. Þegar hann dó árið 2002 skildi hann eftir sig sjö eiginkonur, fjórtán frillur og meira en sextíu börn. Mörgum systkina minna hef ég aldrei kynnst,“ segir Matthew, sem stadd- ur var hér á landi á dögunum. Ein kona er nóg fyrir mig Samkvæmt hefðinni í Líberíu tekur elsti sonurinn við af föður sín- um þegar hann fellur frá, erfir ekki aðeins skyldur hans, heldur jafn- framt konurnar, ef hann kærir sig um. Matthew átti tvo eldri bræður en þar sem þeir voru báðir látnir þegar faðir hans andaðist var erfða- rétturinn hans. „Ég afsalaði mér þeim rétti. Ein kona er nóg fyrir mig.“ Faðir Matthews sá alla tíð um eiginkonur sínar en öðru máli gegndi um börnin. Þau löptu dauð- ann úr skel. „Á æskuheimili mínu voru sjö eiginkonur og 35 systkini. Húsið var stórt en hver kona hafði aðeins lítinn hluta þess til umráða fyrir sig og sín börn. Ég átti aðeins einar buxur og eina skyrtu. Annað ekki. Skó fengum við aldrei. Það var hvorki rafmagn né rennandi vatn í húsinu. Föður minn sá ég sjaldan enda varði hann miklum tíma með hjákonum sínum í næstu þorpum.“ Matthew fæddist árið 1965 og fyrstu ár ævi sinnar ólst hann upp við mikið fásinni, systkinin gengu t.a.m. ekki í skóla. Hann var sautján ára þegar hann sá bíl í fyrsta sinn og tólf ára sá hann fyrst hvíta manneskju. „Það var kona, trúboði sem kom til að boða Guðs orð í þorpinu. Við systkinin höfðum aldr- ei farið út fyrir þorpsmörkin og urðum logandi hrædd þegar við sáum þessa konu, héldum að hún væri vofa og tókum til fótanna,“ rifjar hann upp hlæjandi. Gekk Jesú Kristi á hönd Konan lét þetta ekkert á sig fá, brosti bara góðlátlega og tók að lesa upp úr Jóhannesarguðspjallinu. „Við söfnuðumst saman og lögðum við hlustir og þegar hún fór að tala um lögmál Guðs og vilja Jesú Krists til að eiga í persónulegu sambandi við hvert og eitt okkar breyttist líf mitt. Ég sat aftast í hópnum en færði mig strax fremst og hlustaði vandlega á hvert orð. Þegar hún spurði hvort ég vildi gera Jesú Krist að frelsara lífs míns svaraði ég umsvifalaust játandi. Það voru um 75 þorpsbúar saman komnir þennan morgun en aðeins ég og móðir mín tókum kristna trú.“ Trúboðanum þótti mikið til áhuga unga mannsins koma og bauðst til að taka hann með sér í trúboðsstöð- ina, þar sem hann gæti gengið í skóla. Móðir hans samþykkti það. „Þetta var mikil áskorun fyrir mig en ég náði fljótlega tökum á nám- inu.“ Þegar Matthew hafði lokið grunnnámi dreymdi hann um að nema læknisfræði. „Ég hafði búið við kröpp kjör allt mitt líf og fyrsta hugsunin var að læra eitthvað sem kæmi til með að gefa vel í aðra hönd. Mig dreymdi um betra líf. Ég þreytti því inntökupróf í læknaskóla en féll. Þá voru góð ráð dýr. Presta- skóli höfðaði til mín en þar sem prestar þéna ekki vel í Líberíu var ég á báðum áttum. Fór þó í inn- tökuprófið og fékk hæstu einkunn.“ Þar með var björninn þó ekki unninn því Matthew hafði ekki efni á að greiða fyrir námið úr eigin vasa. Ókunnugur maður sem frétti af frammistöðu hans í inntökupróf- inu kom þá til skjalanna og borgaði skólagjöldin. Rétt sísona. Matthew er sannfærður um að þarna hafi al- mættið gripið í taumana. Og það var ekki í síðasta skipti. Morðinginn fór í mat Námið varð þó endasleppt hjá Matthew. Hann hafði ekki verið í háskólanum í höfuðborginni Monró- víu nema sex mánuði þegar borg- arastyrjöld braust út í landinu. Þetta var síðla árs 1989. „Þá átti ég fótum mínum fjör að launa.“ Uppreinarmönnum var uppsigað við ættbálk Matthews og því var ekki um annað að ræða en flýja sem leið lá yfir landamærin til Fílabeins- strandarinnar. Tveir eldri bræður Matthews fóru á undan honum en Morgunblaðið/Kristinn VERÐI ÞINN VILJI Tólf ára sá hann hvítan mann í fyrsta sinn, hann er á lífi þar sem maðurinn sem ætlaði að skjóta hann brá sér í hádegismat og Guð almáttugur greiddi fyrir hann sjúkrahúsreikninginn þegar dóttir hans hálsbrotnaði. Lífs- hlaup Matthews T. Sakeuhs, sem fer fyrir starfi ABC barnahjálpar í hinu hrjáða Afríkuríki Líberíu, hefur verið lyginni líkast. Eftir Orra Pál Ormarsson orri@mbl.is AP Líbería Íbúar landsins eru hjálpar þurfi eftir miklar hremmingar vegna styrjalda undanfarin misseri.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.