Morgunblaðið - 08.04.2007, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 21
F
yrir fáum vikum var ég
staddur við jarðarför.
Ekki svo að skilja að
það sé fréttnæmt í
sjálfu sér enda athöfnin
sjálf ekki frábrugðin öðrum slíkum.
Það sem vakti athygli mína var
myndbandsvél á þrífæti sem stóð á
kirkjuloftinu og var stillt á upptöku.
Nú er ég eins og aðrir nútímamenn
orðinn löngu ónæmur fyrir sífelldum
leifturljósum við skírnir, giftingar,
brúðkaup, afmælisveislur, fjöl-
skylduboð, tónleika og bókstaflega
allar þær athafnir þar sem fleiri en
einn koma saman. Það treðst hver um
annan þveran við fermingar til að
varðveita hvert einasta augnablik,
fólk mundar farsíma sína og tekur
upp umferðaróhöpp, skrásetur und-
arlegt fólk eða hvað eina sem fyrir
augun ber. Við erum hvergi óhult fyr-
ir augum myndavéla og þar sem
einkaframtakinu sleppir tekur vor
stærsti bróðir við með kerfi eftirlits-
myndavéla sinna.
Ég get vel skilið þörfina sem rekur
menn til þess að festa á filmu eða í
pixla dýrmætar stundir í lífi sínu.
Hver og einn á eflaust í fórum sínum
nokkrar ljósmyndir sem honum
þykja dýrmætari en flest annað. Litla
barnið verður stórt, brúðhjónin
skilja, níræðisafmælið verður ekki
endurtekið og það má vel ímynda sér
fjölskylduna þjappa sér saman við ar-
ineld sjónvarpsskjásins og endurlifa
fágætar hamingjustundir í nostalg-
ískum samruna.
Reyndar held ég að ofgnótt efnis af
þessu tagi sé að verða til vandræða á
mörgum heimilum. Það nennir eng-
inn óbrjálaður maður að horfa á
margar klukkustundir af barna-
afmælum með árs millibili eða hlusta
á fölsku söngkonuna úr brúðkaupi
Dadda frænda í sjöþúsundasta sinn.
Fermingarvídeóin eru áreiðanlega
aldrei skoðuð því það var alveg nógu
leiðinlegt að láta ferma sig þótt fólk
sé ekki pínt með því að horfa á það
aftur og aftur. Hér hefur ekkert verið
drepið á upptökur af nemenda-
tónleikum og danssýningum sem ég
get ekki ímyndað mér hvað fólk gerir
við.
En er: „Jarðarför afa – the movie“
ekki aðeins of langt gengið?
Með fullri virðingu fyrir þeim sem
hlut eiga að máli þá get ég varla
ímyndað mér að myndband frá jarð-
arför afa sé oft leikið í heild að fjöl-
skyldunni viðstaddri. Jarðarför er
endastöð, lokapunktur aftast í bók-
inni og svo lifir afi í minningunni og ef
til vill á fáeinum ljósmyndum.
Getur verið að fólk sé hætt að
treysta því að einfaldlega upplifa
stundina og láta minnið um að velja
úr það sem eftirminnilegt er heldur
reiði sig á milljónir pixla og stafrænt
dót? Gleymum við afa ef við skoðum
ekki myndbandið úr jarðarförinni
hans árlega?
Ég var 10 ára þegar amma mín dó
og var jörðuð. Ég man eftir stein-
runnum andlitum og svartklæddu
fólki og man að það var frekar kalt.
Þótt einhver sýndi mér ítarlega kvik-
mynd af þeirri fábrotnu athöfn myndi
það engu bæta við þær minningar
sem ég á um ömmu og munu fylgja
mér meðan ég sjálfur lifi. Amma var
nefnilega dásamleg manneskja sem
var mér afskaplega góð eins og ömm-
ur eiga að vera. Hún kenndi mér
bænir og borgaði mér súkkulaði fyrir
að lesa fyrir systur mínar. Ég mun
aldrei gleyma ömmu en ég hef ekki
séð nema eina eða tvær myndir af
henni um dagana og ekkert vídeó.
Kannski erum við búin að gleyma
því að við fæðumst öll með harðan
disk í höfðinu og þar er allt skráð sem
við kærum okkur um. Þótt við fegin
vildum getum við engu hent af þeim
diski. Kerfið sem er notað til að velja
og hafna inn í hinar rammgerðu
hirslur minnisins er undarlegt og ill-
skiljanlegt en það er okkur sjálfum
fyrir bestu.
Þannig hefur mannkynið frá upp-
hafi varðveitt minningar sínar og
þekkingu og í besta falli skrifað niður
það helsta eða notað það sem efnivið í
ódauðlegan skáldskap og ljóð.
Ég held að við ættum að hafa þetta
svona áfram. Slökkvum á myndavél-
inni og segulbandinu og opnum frek-
ar augun og eyrun og tökum eftir því
sem gerist í kringum okkur. Við meg-
um ekki vera svo upptekin af því að
ná mynd af lífinu að við gleymum að
njóta þess.
Mundu mig
HUGSAÐ UPPHÁTT
Páll Ásgeir Ásgeirsson
S. 444 5050www.vox.is
VOX Restaurant
Opi› flri.-lau.
18.30 - 22.30
VOX Bistro
Opi› alla vikuna
11.30 - 22.30
Nordica hotel
Su›urlandsbraut 2
vox@vox.is
VOX Bistro er me› n‡jan matse›il flar sem bo›i› er upp á
miki› úrval af ferskum og spennandi réttum. Lög› er áhersla
á afslappa› andrúmsloft, flægilega fljónustu og gott ver›.
VOX Restaurant er fullkominn veitingasta›ur fyrir flá sem unna
gó›um mat, fínu víni og fágu›u umhverfi. Í bo›i er a la carte
matse›ill flar sem sérhver réttur er einstök upplifun.
Njóttu fless a› gæ›a flér á gómsætum mat á VOX Bistro e›a
VOX Restaurant, Nordica hotel.
fyrir sanna sælkera
NÝR OG SPENNANDI BISTRO-SEÐILL
Sesarsalat 810 kr. / 1.270 kr.
Romaine salat, kjúklingur,
brauðkruður, parmesanostur
Andalæri 1.250 kr.
Sultað með appelsínugljáa, klettasalat
Norrænn tapas 1.650 kr.
Rækjur, birkireyktur lax, síld, kavíar, rúgbrauð
Nautalundir 2.900 kr.
Bernaise, franskar, romaine salat
Hlýri 1.850 kr.
Bygg, rauðvínssósa, rótargrænmeti
Nordica club 1.750 kr.
Kjúklingur, beikon, franskar
LÉTTIR RÉTTIR
AÐALRÉTTIR
DÆMI AF BISTRO-SEÐLI:
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
2
6
7
2
4
‘07 70ÁR Á FLUGI
W W W. I C E L A N DA I R . I S
23.–30. JÚNÍ OG 1.–5. SEPTEMBER
VERÐ FRÁ 92.900 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI
Freistandi lista- og menningarferðir til Barcelona með
íslenskum fararstjóra, Karli Jóhannssyni. Hann leiðir fólk um
alla króka og kima borgarinnar, kannar elstu borgarhverfin og
frægustu byggingarnar, heimsækir helstu söfn í borginni
og fer með hópinn á spennandi veitingastaði.
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is/serferdir
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting m/morgunverði á Hotel H10 Universitat ****,
íslensk fararstjórn, skoðunarferðir og rútuferðir til og frá flugvelli erlendis.
SPENNANDI SÉRFERÐIR MEÐ ICELANDAIR
LIST OG MENNING
Í BARCELONA
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
69
28
0
4
/0
7
ókeypis
smáauglýsingar mbl.is