Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 33

Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 33 viðbótarkostnaður, sem Gylfi Arnbjörnsson færir rök fyrir að hafi leitt af mikilli efnahagsþenslu undanfarinna ára, sé sá kostnaður, sem þjóðfélag- ið hafi þurft að axla til þess að standa undir upp- byggingu Austurlands. Auðvitað var sá kostur fyrir hendi að láta byggðina á Austurlandi deyja smátt og smátt með sama hætti og t.d. Raufarhöfn er að deyja smátt og smátt. Það hefði líka kostað sitt og hefðum við valið þann kost? Þegar horft er til baka er ljóst, að það fóru fram miklar umræður um efnahagsleg áhrif eða afleið- ingar framkvæmdanna á Austurlandi, þótt þær hafi í þeim umræðum kannski ekki verið settar beint í það samhengi, sem Gylfi Arnbjörnsson set- ur þær í. Nú blasir þetta samhengi hins vegar við og það á ekki bara við um framkvæmdirnar á Austur- landi. Nú er rætt um miklar framkvæmdir á suð- vesturhorni landsins. Hafnfirðingar eru að vísu búnir að stöðva hugmyndir um stækkun álversins í Straumsvík, alla vega í bili. En þá hefjast um- ræður af auknum krafti um álver í Helguvík. Væntanlega hafa þær framkvæmdir sömu efna- hagslegu áhrif og framkvæmdir í Straumsvík hefðu haft, þótt þær fari kannski hægar af stað. Jafnframt standa fyrir dyrum miklar vegafram- kvæmdir á suðvesturhorninu, bæði austur fyrir fjall og upp í Borgarfjörð. Er ekki nauðsynlegt að setja þær framkvæmdir í sama samhengi og reikna út hvaða áhrif þessar framkvæmdir allar muni hafa á verðbólguþróun og þar með hver verðtryggingaráhrif þeirra verða á næstu árum á þá tæplega 1.200 milljarða króna, sem Gylfi Arn- björnsson segir að heimilin í landinu skuldi í verð- tryggðum lánaskuldbindingum? Raunar má spyrja, hvort ekki sé nauðsynlegt að setja allar ákvarðanir, sem hér eru teknar í efna- hags- og atvinnumálum, í þetta samhengi og upp- lýsa þjóðina um það að verði þetta gert hafi það þessi áhrif o.s.frv.? Ný viðhorf U mræður af þessu tagi hafa ekki áður farið fram á Íslandi, alla vega ekki frá lýðveldisstofnun. Þjóð, sem var að berjast frá fá- tækt til bjargálna, hafði önnur áhugamál en þau að reikna út hvaða áhrif framkvæmdir og aðrar aðgerðir mundu hafa á aðra þætti efnahagsmála. En nú eru aðrir tímar og sjálfsagt að setja um- ræður og ákvarðanir í þetta samhengi. En það er líka hægt að horfa á þessi mál frá enn einu sjónarhorni. Værum við betur sett ef Kára- hnjúkavirkjun hefði ekki verið byggð og álverið á Reyðarfirði væri ekki að hefja starfrækslu? Væri kostnaðurinn, sem Gylfi Arnbjörnsson hefur reiknað út á heimilin í landinu, kannski að koma fram með öðrum hætti? Gylfi segir að kostn- aðurinn samsvari einu prósentustigi í tekjuskatti. Sá skattur hefur verið lækkaður um nokkur pró- sentustig á undanförnum árum. Hefði sú lækkun kannski ekki orðið að veruleika og kostnaðurinn við erfiðleika í atvinnumálum á Austurlandi í stað uppgangs og grózku verið borgaður með þeim hætti? Þegar hér er komið sögu eiga röksemdirnar, sem Eyjólfur Konráð Jónsson og Jóhannes Nor- dal beittu á sjöunda áratugnum fyrir byggingu ál- versins í Straumsvík, ekki lengur við. Nú stendur íslenzkur þjóðarbúskapur á fleiri stoðum en sjáv- arútvegi og álframleiðslu. Umfangsmikil fjár- málastarfsemi hefur komið til sögunnar, sem fáir hefðu trúað fyrir nokkrum áratugum, svo að dæmi sé nefnt. Við Íslendingar höfum efni á að íhuga hvert skref, sem við tökum héðan í frá, mjög vand- lega. Þess vegna er sjálfsagt að ræða rækilega þá hlið málanna, sem Gylfi Arnbjörnsson hefur dreg- ið fram m.a. nú í kosningabaráttunni. Óhætt er að fullyrða, að þar er að finna eina meginástæðuna fyrir afstöðu þjóðarinnar til frekari stóriðjufram- kvæmda. Það eru ekki bara umhverfissjónarmið, sem þar ráða ferð. » Þetta eru óneitanlega röksemdir, sem ekki er hægt aðhorfa fram hjá og hljóta að verða ræddar í kosningabarátt- unni á næstu vikum. Þarna setur Gylfi Arnbjörnsson fram heildartölur um áhrif þenslunnar á undanförnum árum, sem hver og einn landsmaður og þá ekki sízta yngra fólkið hefur fundið á eigin buddu síðustu árin. rbréf Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.