Morgunblaðið - 08.04.2007, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 35
‘07 70ÁR Á FLUGI
W W W. I C E L A N DA I R . I S
25.–30. MAÍ OG 31. ÁGÚST–3. SEPTEMBER
VERÐ FRÁ 54.900 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI
Guðrún Frímannsdóttir, fararstjóri, sýnir fólki allt sem borgin
hefur að bjóða, stendur fyrir siglingu um skerjagarðinn og
gefur útivistarmönnum kost á að ganga á eitt af Fjöllunum sjö.
Jafnframt hefur fólk tækifæri, á eigin vegum, til að fara
á viðburði á Listahátíðinni í Bergen í lok maí.
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is/serferdir
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði á Hotel Bergen,
íslensk fararstjórn og rútuferðir til og frá flugvelli erlendis.
SPENNANDI SÉRFERÐIR MEÐ ICELANDAIR
SUMAR Í BERGEN
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
69
28
0
4
/0
7
Menningarráð Vesturlands og
Háskólinn á Bifröst
Menning- tækifæri Vesturlands í nýrri atvinnuháttarbyltingu
Fyrirlestur rektors háskólans á Bifröst, Ágústs Einarssonar
- Miðvikudaginn 11. apríl kl. 15.00 í Klifi Snæfellsbæ -
Á síðasta ári hélt Menningarráð Vesturlands og Háskólinn að Bifröst
ráðstefnu um menningarmál sem bar yfirskriftina
Menning- spenning fyrir hvern.
Háskólinn að Bifröst og Menningarráð Vesturlands
hafa ákveðið að halda þessu skemmtilega samstarfi áfram.
Tónlistarskólinn í Snæfellsbæ mun sjá um tónlistarflutning
Allir velkomnir
miðri gömlu borginni. Þar er talið að
Jesús hafi verið lagður til grafar og
síðan risið upp á þriðja degi. En sam-
kvæmt helgihaldi grísku rétttrún-
aðarkirkjunnar hefur gröf Krists
verið innsigluð.
Um dögun á páskadagsmorgni eru
dyr Grafarkirkjunnar opnaðar og þá
um leið þrengja sér þar inn þúsundir
pílagríma til að verða vitni að hinu
aldargamla undri þegar eldurinn
helgi tendrast.
Þegar innsigli grafarinnar er síðan
rofið þar um morguninn gengur
æðsti biskup grísku rétttrún-
aðarkirkjunnar fram, fer inn í gröf-
ina og segir til um hvort hinn helgi
eldur sem sagður er sendur af Guði
hafi kviknað í ár.
Þegar í ljós kemur að eldurinn hef-
ur kviknað þá er litið svo á að það sé
staðfesting á upprisu Krists og að
hans upprisukraftur sé enn til staðar.
Hinn helgi logi er síðan borinn fram
og látinn berast til mannfjöldans sem
fagnar ákaft.
Ljósið berst út á meðal fólksins ut-
an kirkjunnar og upptendrar í hjört-
um trúaðra trúna á sigur vonar yfir
öllu vonleysi og sigur þess ljóss sem
lýsir langt út yfir mörk grafar og
dauða.
Páskar gyðinga
En það eru fleiri en hinir kristnu
sem halda páskahátíð í Jerúsalem.
Gyðingar halda einnig sína páskahá-
tíð á svipuðum tíma og er þátttaka í
þeirra helgihaldi ekki síður einstök
upplifun. Fjölmargir koma þá saman
við Grátmúrinn sem er þeirra helg-
asti staður við musterishæðina. Eins
er komið saman í sýnagógunum, sem
eru bænahús gyðinga, og svo á öllum
heimilum þar sem fjölskyldur neyta
páskamáltíðarinnar saman.
En páskarnir eru helgasta hátíðin
innan beggja þessara systurtrúar-
hefða, þ.e.a.s. gyðingdóms og kristni.
Páskahátíð gyðinga stendur yfir í
átta daga og páskamáltíðin fyrsta
kvöldið er hápunktur hennar. Sterk
tengsl eru á milli þeirrar máltíðar og
síðustu kvöldmáltíðarinnar sem
Kristur átti með lærisveinum sínum.
Gyðingar minnast þess þegar Ísr-
aelsþjóðin var frelsuð úr ánauðinni í
Egyptalandi og er hún því einnig há-
tíð frelsunar og lífsvonar.
Páskahátíð gyðinga er mun eldri
en páskahátíð kristinna manna. Há-
tíðirnar tvær eru nátengdar og
páskahátíð gyðinga er í raun ein mik-
ilvægasta forsendan fyrir því að
hægt sé að skilja merkingu og inni-
hald páskahalds kristinna manna.
Lausn úr viðjum
Í gyðing-kristnu páskahaldi er
spilað á marga sameiginlega strengi
sem hafa hljómað lengi, bæði meðal
gyðinga og kristinna manna, reyndar
í þúsundir ára.
Mikilvægast er þó að í báðum
trúarhefðunum boðar hátíðin lausn
úr viðjum og frelsi hins undirokaða.
Páskar eru hátíð óvæntrar lífsvonar
þrátt fyrir erfiðleika og mótlæti.
Og í Jerúsalem í dag sem og víðar
er vissulega þörf fyrir slíkan lausn-
arboðskap.
Palestínumenn verða að fá lausn
úr viðjum vonleysis og stríðsógna.
Þeir hinir undirokuðu eiga rétt á
frelsi, landi og réttlæti.
Þrjár systurtrúarhefðirnar þurfa
að losna úr viðjum þröngsýni og for-
dóma. Þær þurfa að horfast í augu
við það að sameiginlegur Guð okkar
allra er æðri öllum mannanna siðum,
hefðum og trúarbrögðum.
Höfundur er prestur og forstöðu-
maður Fríkirkjunnar í Reykjavík.