Morgunblaðið - 08.04.2007, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 39
Lögg. fasteignasali Hrafnhildur Bridde
Sigurberg Guðjónsson hdl.
Skógarhlíð 22 • 105 Reykjavík • Sími 534 2000 • Fax 534 2001
534 2000
www.storhus.is
NORRÆNAR HÓTELÍBÚÐIR
Í KAUPMANNAHÖFN
Við höfum hafið sölu á norrænum hótelíbúðum
í miðbæ Kaupmannahafnar.
• Um er að ræða 56 hótelíbúðir.
• Hægt er að velja mismunandi stærðir íbúða.
• Íbúðir skilast fullbúnar með húsgögnum.
• Fundaraðstaða til að hitta gesti eða viðskiptavini.
• Íbúðin er í hótelútleigu þegar þú notar hana ekki.
• 500 m til Fisketorvet, ný og glæsileg verslunarmiðstöð.
• Um 5-10 mínútna gangur er í Tivolí og á Ráðhústorg.
• Nokkrar íbúðir óseldar.
• 90 % lán fæst á hverja íbúð ef óskað er.
• Afhending íbúða vor/sumar 2008
• Arðbær fjárfesting sem þú mátt ekki missa af.
Agnar Agnarsson,
lögg. fasteignasali
820 1002
Ísak V. Jóhannsson,
sölustjóri
822 5588
Sérhæfð fasteigna-
og fyrirtækjasala
með áratugareynslu
starfsmanna
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali
SÓLTÚN - LAUS STRAX
Mjög vönduð og rúmgóð 80 fm 2ja her-
bergja íbúð í fallegu nýlegu lyftuhúsi byggðu
af ÍAV, ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er
á 3. hæð í fremsta lyftuhúsinu, með svalir til
suðurs og góðu útsýni. Íbúðin er laus strax.
V. 24,9 m. 6532
ÞÓRÐARSVEIGUR - M. 2 STÆÐUM Í BÍLAG.
170 fm Penthouse íbúð í nýlegu lyftuhúsi
ásamt tveimur stæðum í bílskýli. Einnig
fylgja íbúðinni tvö gluggalaus alls 180 fm
geymslurými í kjallara. Allar innréttar eru
sérsmíðaðar og með vönduðum tækjum.
Glæsilegt útsýni er úr íbúðinni til vesturs yfir
borgina og til austurs. Íbúðinni hefur verið
breytt frá upprunalegri teikningu. Innrétting-
ar og skápar eru úr eik og gólfefni eru eik-
arparparket og flísar. V. 48,9 m. 6545
VESTURGATA - SÉRINNG.
Nýstandsett 2ja herbergja 65 fm íbúð á
tveimur hæðum í eldra húsi sem var endur-
byggt nánast frá grunni fyrir 6 árum síðan.
Skipt var um allar lagnir, rafmagn, innrétt-
ingar, gler og glugga ásamt klæðningu að
utan. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús
og geymslu á efri hæð. Á neðri hæð er
þvottahús, baðherbergi og herbergi. V.
17,9 m. 6522
KAPLASKJÓLSVEGUR - LAUST FLJÓTLEGA
Vel staðsett 156 fm endaraðhús á fjórum
pöllum sem skiptist í anddyri, hol, fjögur
svefnherbergi, baðherbergi, stofu/borð-
stofu, eldhús, gestasnyrtingu, þvottahús og
geymslur. Húsið er upprunalagt að innan
og komið er að einhverju viðhaldi. Húsinu
fylgir sérbílastæði á lóð og góður garður. V.
41,9 m. 6337
HOFSVALLAGATA GÓÐ EIGN
Vel staðsett falleg og björt 119,5 fm efri
sérh., ásamt 26,1 fm bílskúr í fallegu húsi.
Hæðin skiptist í forstofu, hol, þrjú herbergi,
stofu, borðstofu, baðherbergi, gestanyrt-
ingu og eldhús. Í kj. er sameiginl. þvhús og
hitaklefi. Sérgeymsla er í kjallara. 6542
VÆTTABORGIR - GLÆSILEGT PARHÚS
Tvílyft 165,5 fm parhús með innbyggðum
26 fm bílskúr. Húsið er glæsilega innréttað
og með óviðjafnanlegu útsýni til norðurs. Á
1. hæð er forstofa, hol, tvö svefnherbergi,
þvottahús, baðherbergi og innb. bílskúr. Á
efri hæð er stofa, borðst., eldhús, snyrting
og svherb. Óskað er eftir tilb. 6540
HJALTABAKKI - ENDURNÝJUÐ
Mjög góð 4ra herbergja 92 fm íbúð á 2.
hæð. 3 Stór svefnherbergi, nýlegt eldhús,
og stór stofa. V. 19,5 m. 6547
SNORRABRAUT - GÓÐ ÍBÚÐ
Falleg 2ja herbergja 46 fm íbúð á 3. hæð til
vinstri í litlu fjölbýli. Íbúðin skiptist þannig:
Stofa, herbergi, eldhús, baðherbergi og hol.
V. 14,7 m. 6548
NAUSTABRYGGJA - EFSTA HÆÐ
Stórglæsil. og björt „penthouse“ íb. á 4. h.
með mikilli lofth. og 2 svölum í nýju við-
haldsfríu fjölb. m. lyftu á góðum stað í hinu
nýja bryggjuhv. Húsið er einangrað að utan
og klætt m. álklæðningu, öll sameign verð-
ur frág., lóðin tyrfð, hellul. verandir. Fallegt
útsýni er yfir smábátahöfnina vestan við
húsið og er lofth. í stofu allt að 6 m., úr sv-
herb. er gengið út á 15 fm svalir. Íb. er fullb.
m. parketi og flísum og vönduðum innr. V.
29,4 m. 6549
KJARTANSGATA - SÉRINNGANGUR
2ja herbergja kjallaraíbúð í góðu steinhúsi.
Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús, hol, bað-
herbergi, stofu og svefnherbergi. V. 15,6 m.
6552
VÍÐIMELUR - GÓÐ STAÐSETNING
Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja 84
fm efri hæð. Eignin skiptist í forstofu, bað-
herbergi, eldhús, stofu, borðstofu og her-
bergi. Í kjallara er sérgeymsla og sameigin-
legt þvottahús. Húsið er mjög fallegt með
suðursvölum og grónum garði. V. 24,1 m.
6551
Á NÝLIÐNU flokksþingi fram-
sóknarmanna sem haldið var á
Hótel Sögu dagana 2.–3. mars, var
þingflokki Fram-
sóknarflokksins
veitt jafnréttisvið-
urkenning flokks-
ins.
Eins og segir í
jafnréttisáætlun
Framsóknarflokks-
ins, þá veitir jafn-
réttisnefnd við-
urkenningu á
flokksþingi þeirri flokksstofnun
eða einstaklingum sem skarað
hafa framúr að framgangi jafn-
réttisáætlunar flokksins.
Hlutfall kvenna í starfi flokks-
ins hefur jafnt og þétt aukist yfir
árin og þori ég að fullyrða að stað-
an hafi aldrei verið jafn góð og
hún er í dag. Staðan er sér-
staklega góð í þingflokki fram-
sóknar, þar sem sex karlmenn
eiga sæti og fimm kvenmenn. Það
ágæta fólk sem þar situr velur sig
reynar ekki sjálft á þing, það velst
í gegnum prófkjör og kjósendur.
Hins vegar er valið innan þing-
flokksins hverjir skipa framvarða-
sveitina og taka sæti í ráðu-
neytum.
Í þeim tólf manna ráðherrahóp
sem nú situr eru aðeins fjórar
konur, eða einn þriðji ráðherra.
En af sex ráðherrum Framsókn-
arflokksins er helmingurinn kven-
fólk. Þessi staða er til fyr-
irmyndar og fleiri mættu leika
hana eftir.
Ástæða þess að ákveðið var að
veita þingflokknum jafnréttisvið-
urkenningu flokksins er jöfn staða
kynjanna í ráðherraliði flokksins.
Er það nú í annað sinn frá upphafi
sem hlutfall kynjanna er jafnt
meðal ráðherra flokksins.
Jafna stöðu kynjanna má finna
víðar í starfi flokksins. Þannig má
nefna að á framboðslistum flokks-
ins til alþingiskosninga nú í vor er
kynjahlutfallið jafnt og eiga þar
sæti 63 einstaklingar af hvoru
kyni. Það er ekki síður ánægjulegt
að hlutfall þeirra sem leiða lista er
einnig jafnt. Þrjár konur og þrír
karlmenn.
Framsóknarflokkurinn hefur
gengið óhræddur til verks þegar
kemur að því að jafna stöðu
kynjanna í starfi flokksins. Á
flokksþingi árið 2005 var stigið
mikilvægt skref í átt að jafnrétti
þegar samþykkt var í lög flokks-
ins að hlutur hvors kyns skyldi
ekki vera lægri en 40% við skipan
í trúnaðar- og ábyrgðarstöður inn-
an flokksins.
Með þessari samþykkt tók
Framsóknarflokkurinn stórt skref
fram úr öðrum flokkum í átt að
jafnrétti í stjórnmálum og varð
um leið fyrstur flokka hérlendis til
að festa í lög sín ákveðinn hlut
hvors kyns.
Framsóknarflokkurinn hefur
lagt mikið traust á sitt kvenfólk,
bæði í ríkisstjórn sem og ann-
arsstaðar, og sýnt það í verki að
hann er jafnréttissinnaður flokk-
ur.
Framsókn-
arflokkurinn
sýnir jafn-
rétti í verki
Eftir Ingu Guðrúnu Kristjánsdóttur:
Höfundur er jafnréttisfulltrúi
Framsóknarflokksins.
smáauglýsingar
mbl.is
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í HEITA pottinum voru allir sam-
mála um það að hafa þessa stjórn
áfram eftir kosningar vegna þess að
sú sem tæki við væri alltaf verri en sú
sem var og þeir vildu nú ekki fá verri
stjórn en þessa.
Ég skal viðurkenna að ég er voða-
legur sælkeri og þess vegna lét ég
það eftir mér að kaupa t.d. hval frá
Kristjáni Loftssyni, algjört sælgæti,
og fleira t.d. sviðasultu og bringu-
kolla auk þess rauðmaga, gotu og lif-
ur. En stjórnin verður að hafa vit fyr-
ir þeim gömlu og þess vegna fékk ég
bréf frá Tryggingastofnun ríkisins.
Það hét: Mistök í tölvukerfi. Hinn 1.
febrúar fékk ég því útborgað 23.022
kr. sem á að taka af mér 1. apríl. Það
munar nú um þetta því það myndi
duga fyrir tveggja mánaða með-
alaskammti. Þess vegna verða engin
önnur ráð hjá mér en lifa á hafra-
graut í það minnsta næsta mánuð.
Ekki bætir úr skák að nú um næstu
mánaðamót á líka að hætta að borga
1. hvers mánaðar en þess í stað að
borga í lok mánaðarins svo það er
ekki víst að við þessi gömlu eigum
fyrir haframeti til að elda graut. Ég
er mikill fiskmaður en nú er venju-
legt tros orðið dýrara en kjöt. Við
þessi gömlu, sem þrælað höfum til
sjós og lands og byggt upp það þjóð-
félag sem nú er, verðum að sætta
okkur við að lepja dauðann úr drull-
ugri skel það sem við eigum eftir að
tóra. Við sem lögðum inn á lífeyr-
issjóð fáum ekki fullar bætur úr
Tryggingastofnun svo það eru þeir
sem græða á okkar sparnaði meðan
við vorum að vinna. Svona er nú bara
kerfið sem við lifum við. Bílatrygg-
ingar kosta á þessu ári um 100 þús-
und kr. og strætó geta fáir notað, t.d.
fer Sogamýrarvagninn ekki lengur í
Háaleiti eða Kringlu en þar eru
læknar og verslanir, þess vegna er
sama hvort hann fer um Sogaveg eða
ekki. Við getum ekkert frekar notað
hann eftir kosningar. Ég veit að það
þýðir ekki að kvarta því svona er
kerfið og verður áfram, því verður
ekki breytt og hver og einn verður að
taka því eins og er, bara bíta á jaxl-
inn og bölva í hljóði.
Þetta eru sannir sómamenn
sem að ber að hrósa.
Ég vil hafa þá áfram enn
og þá mun ég kjósa.
GUÐMUNDUR BERGSSON,
Sogavegi 178, Reykjavík.
Éta minna
Frá Guðmundi Bergssyni:
Svavar Jónatansson | 8. apríl
Orkumál og
orkunýting
Á SÍÐUSTU vikum
hafa stjórnmálamenn
og áhugamenn um nátt-
úruvernd og umhverf-
ismál lagt eindregið til
að Íslendingar hætti
a.m.k. tímabundið öll-
um framkvæmdum vegna nýrrar
orkuöflunar og nýtingu umhverf-
isvænnar orku í orkufrekum iðnaði.
Þetta „stopp“ í virkjanamálum er
hugsað að standi þar til sérstök
„rammaáætlun um náttúruvernd“
hefur verið gerð og leggja á mat á
hvað af náttúru landsins skuli varð-
veita ósnortna til framtíðar.
Meira: svavarjonatans.blog.is
Netgreinar á blog.is
Netgreinar á blog.is er nýr vett-
vangur fyrir aðsendar greinar. Morg-
unblaðið áskilur sér rétt til að vista
greinar á bloggsíðum, hafi ekki tek-
ist að birta þær í blaðinu innan
tveggja vikna.