Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 50

Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 50
50 SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Kalvin & Hobbes HVERT ERTU AÐ FARA? NIÐUR AÐ STÖÐUVATNINU HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ GERA VIÐ FÖTUNA? TÆMA STÖÐUVATNIÐ Kalvin & Hobbes VEISTU HVAÐ MÉR FINNST BEST VIÐ SUMARDAGA... JAFNVEL EF SÚ ATHÖFN ER AÐGERÐARLEYSI ÉG ER ALVEG SAMMÁLA ÞÉR ... ÞEIR ERU SVO GÓÐIR TIL ATHAFNA! Kalvin & Hobbes ÞETTA ER GÓÐUR STAÐUR TIL AÐ VEIÐA RAUÐMAGA HVAÐ EIGUM VIÐ AÐ GERA EF VIÐ VEIÐUM EINN SLÍKAN? VIÐ ÞURFUM EKKI AÐ HAFA NEINAR ÁHYGGJUR AF ÞVÍ ÞANNIG AÐ ÞÚ VEIST EKKI HELDUR HVERNIG RAUÐMAGI LÍTUR ÚT Litli Svalur © DUPUIS KRAKKAR MÍNIR, ÞAÐ ER KOMINN NÝR NEMANDI Í BEKKINN. VERIÐ GÓÐ VIÐ HANN ÞAÐ VILL SVO HEPPI...Ó...ÓHEPPILEGA TIL AÐ AUMINGJA STRÁKURINN HEFUR ALDREI HITT FÖÐUR SINN, EN HAFIÐ ENGAR ÁHYGGJUR, HANN ER FYRIR- MYNDAR NEMANDI OG ÞIÐ MUNUÐ DÁST AÐ HONUM. SESTU ÞORLÁKUR HÆ, AUMINGJAR ÉG SKAL PASSA UPP Á HANN HANN ER UNDIR ÞÍNUM VERNDARVÆNG KALLI HEYRIÐ MIG NÚ! ENGAN KJAFTAGANG HÉR! EF ÉG FINN SÖKUDÓLGINN ÞÁ SKAL HANN... EKKI LEITA LENGRA HERRA! ÞAÐ VAR HANN OG HANN OG HANN OG HANN OG HANN OG HANN OG SÉRSTAK- LEGA HANN ÉG SKIL! STÆRÐFRÆÐIPRÓF STRAX! SKRIFIÐ NIÐUR SPURNINGARNAR! 6x7... 3x11... 8x9... 6x4... 9x3... VÁ HVAÐ ÞETTA ER LÉTT ÉG GENG UM OG SÆKI PRÓFIN EFTIR TVÆR MÍNÚTUR TVEIMUR MÍNÚTUM SÍÐAR... ÖLL SVÖRIN ERU EINS! EINHVERJIR HAFA SVINDLAÐ! HVERJIR VORU ÞAÐ? HANN HANN HANN HANN HANN KENNARI! HANN HANN HANN NÝKOMINN OG STRAX FARINN AÐ SVINDLA! ÞÚ SITUR EFTIR Í 4 TÍMA dagbók|velvakandi Topparkitektúr MENN hafa margir hrifist af bygg- ingarlist mannkyns og dáðst svo að musterum, villum og skýjakljúfum að þeir hafa sumir gerst arkitektar sjálfir til að skapa og eiga sér minn- isvarða um ókomin ár og aldir. Einn er sá arkitektúr sem ég hef hrifist af, en það er maðurinn, sem kallaður hefur verið kóróna sköp- unarverks Guðs. Í handbók þess mikla hönnuðar, Biblíunni, er krist- inn maður nefndur: Guðs hús, must- eri Guðs og musteri heilags anda. Páll postuli segir í bréfi sínu til kristinna manna í Efesus: Vér erum smíð Guðs, skapaðir til góðra verka … þér eruð bygging, sem hefur … Krist Jesú … að hyrning- arsteini … í honum verðið þér … bústaður handa Guði. Því „Guð býr ekki í musterum sem eru með hönd- um gjörð“ (Postulasagan 17:24). Í trúuðum manni er vistarvera Guðs, líkami hans er musteri, bygg- ingarlist arkitekts alheimsins, þar sem sál mannsins fær að dvelja og læra í skóla hjá meistara sínum til undirbúnings fyrir eilífðina í víð- áttum himingeimsins. Bygging manns er hvorki lítið verk né heldur sú fræðsla sem þar fer fram innan- dyra. Bygging manns er hverfulli en skýjakljúfur, en andi og sál hennar eilíf. Það fylgir því upphefð og vellíðan að vera arkitektúr meistara al- heimsins, ekki síst fyrir það að hann hefur unun af að dvelja hjá og í sköpun sinni. Það ætti því að auka okkur skilning á því hver við í raun erum, meistarasmíð hönnuðar him- ingeimsins. Það ætti að auka virð- ingu okkar fyrir öðrum mönnum og gera okkur ljóst að við vorum sköp- uð til góðra verka. Mikið yrði þessi heimur góður ef við bara vissum hve dýrmæt við erum og hvert hlut- verk okkar í rauninni er hér í heimi og í hinum komandi. Einar Ingvi Magnússon. Þakkir ÉG VIL þakka Andra Gunnarssyni fyrir hlý orð í minn garð sem birt- ust hér í blaðinu á mánudag. Það er gaman að vita að einhver láti sig þvaðrið í mér varða nokkru. Ég vil benda Andra á að í bígerð er að stofna sérstakt hrósfélag. Hann getur haft samband við okkur á netfangið fjosahros@vis- ir.is ef hann vill vera með. Einnig bendi ég öðrum á þetta sama net- fang. Ef þið eruð áhugamenn um hrós, sendið okkur bréf. Nú mun á næstunni án efa verða skortur á hrósi í þjóðfélaginu þegar páskar, kosningar og Evrósjón ganga í garð. Þessir þrír þættir verða eflaust samverkandi til að letja fólk til hróss. Vonandi gleymir fólk þó ekki því sem vel er gert í þjóðfélaginu, eins og t.d. Hagstof- unni og Spaugstofunni. Þessar tvær stofur vinna verk sitt vel og vand- lega. Að lokum vil ég tilnefna Egg- ert Skúlason, stjórnarformann West Ham, og Björgólf, eiganda sama knattspyrnuliðs, til bjart- sýnisverðlaunanna 2007. Það er skrítin ella að kaupa ömurlegt knattspyrnulið og ætla að gera ein- hverjar rósir með það atarna. Stoke var djók, og hvað er þá West Ham? Það er von að maður spyrji. Heið- urskveðjur, Bjarni Jónsson, fyrrverandi verkamaður. Hermann í Bónusskóm HERMANN, sem hefur með Bón- usskó á Hverfisgötu að gera, er vin- samlegast beðinn að hringja aftur í Laufeyju, í síma 568-8165 eða 690- 8165. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.