Morgunblaðið - 08.04.2007, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 8. APRÍL 2007 55
Reykjavík
FIMMTUDAGINN 12. APRÍL KL. 19.30
rauð tónleikaröð í háskólabíói
Ísafjörður
FÖSTUDAGINN 13. APRÍL KL. 19.00
tónleikar í íþróttahúsinu torfnesi
Hljómsveitarstjóri ::: Vladimir Ashkenazy
Einleikari ::: Gülsin Onay
Felix Mendelsohn ::: Melúsína hin fagra
Robert Schumann ::: Píanókonsert í a-moll
Hector Berlioz ::: Symphonie fantastique
LAUGARDAGINN 14. APRÍL KL. 17.00
Wolfgang Amadeus Mozart ::: Píanókvartett í Es-dúr K493
Johannes Brahms ::: Píanókvartett í c-moll op. 60
kammertónleikar í listasafni íslands
Sif Tulinius, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Gestur ::: Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanó
Miðaverð: 1.500 kr.
Gioacchino Rossini ::: Þjófótti skjórinn, forleikur
Antonín Dvorák ::: Romanza
Maurice Ravel ::: Tzigane
Sergei Rachmaninoff ::: Sinfónía nr. 1
Einleikur
Guðnýjar
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 19.30
gul tónleikaröð í háskólabíói
Kristall
Hljómsveitarstjóri ::: Owain Arwell Hughes
Einleikari ::: Guðný Guðmundsdóttir
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.ISFyrsti konsert er frír
Skráning og upplýsingar á www.sinfonia.is
‘07 70ÁR Á FLUGI
W W W. I C E L A N DA I R . I S
GENESIS Í PARÍS I 29. JÚNÍ–1. JÚLÍ
VERÐ FRÁ 79.900 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI
ROD STEWART Í GLASGOW I 5.–8. JÚLÍ
VERÐ FRÁ 87.700 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI
ROLLING STONES Í LONDON I 23. –26. ÁGÚST
VERÐ FRÁ 87.700 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI
THE POLICE Í LONDON I 7.–9. SEPTEMBER
VERÐ FRÁ 77.800 KR. Á MANN Í TVÍBÝLI
+ Nánari upplýsingar á www.icelandair.is/tonleikaferdir
Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting með morgunverði, íslensk fararstjórn og miði á tónleikana.
GENESIS
ROD STEWART
ROLLING STONES
POLICE
SPENNANDI TÓNLEIKAFERÐIR MEÐ ICELANDAIR OG BYLGJUNNI
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
3
69
28
0
4
/0
7
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
ÞAÐ nafn sem maður hefur séð
hvað reglubundnast á plötum Bjark-
ar síðustu árin er nafn Marks Bell,
raftónlistarmanns. Bell er einn
þeirra sem eru að leggja í hið um-
fangsmikla tónleikaferðalag vegna
Voltu, nýjustu plötu Bjarkar, en
fyrstu tónleikarnir eru núna á morg-
un, í Laugardalshöll.
Bell hefur virkað á mann sem
nokkurs konar huldumaður. Hann
hefur sjaldan verið króaður af í við-
töl, þrátt fyrir að hafa vera einn
nánasti samstarfsmaður söngkon-
unnar í tólf ár, en samstarf þeirra
hófst þegar þau sömdu saman lagið
„I Go Humble“ (sem út kom á Isobel
smáskífunni, 1995). Blaðamaður
króaði hann engu að síður af á æf-
ingu á dögunum, settist niður með
honum yfir kaffi (í litlu, þunnu,
plastmáli), og spurði nokkurra
spurninga.
Hetjur
„Ég man að ég hitti Björk fyrst
þegar hún var enn í Sykurmol-
unum,“ rifjar Bell upp. „Þá var hún
að hanga með Graham Massey og
strákunum í 808 State. Þeir eru frá
Manchester og þaðan er stutt til
Leeds, þaðan sem ég kem.“
Árið 1991 kom út platan Frequen-
cies með LFO, sem þá var dúett
Bell og Gez Varley, en í dag er Bell
eini meðlimurinn. Platan var ein
fyrsta útgáfa hinnar stefnumark-
andi Warp útgáfu og telst í dag
tímamótaverk í breskri raftónlist.
Bell nýtir LFO enn þann dag í dag
undir eigin tónlistarsköpun en hefur
um leið verið nokkuð upptekinn við
að vinna með öðru fólki, og þá ekki
bara Björk.
„Mér finnst dálítið fyndið, að ég
átti eftir að vinna með öllum þessum
hetjum mínum sem við Gez vorum
að þakka á Frequencies, listamönn-
um eins og Kraftwerk og Depeche
Mode. Nú, svo var ég einkar hrifinn
af tónlist Bjarkar og hef verið svo
lánsamur að fá að starfa með henni.“
Bell segist enn þann dag í dag
ekki átta sig almennilega á hvernig
Björk vinni, og af hverju hún kalli
hann til.
„Hún sendir mér stundum lög, ef
hún er föst, og biður mig um að
krukka eitthvað í þau eða gefa sér
ráð. Hún gefur mér algjört frelsi til
þessarar vinnu.“
En hvað er það sem virkar svona
vel í samstarfinu?
„Það er einfalt, held ég. Við höf-
um mjög áþekkan smekk fyrir tón-
list, og erum iðulega sammála um
hvaða leiðir skuli fara.“
Reisa
Bell segir að tónleikarnir til
styrktar Forma á NASA, þann 1.
apríl, hafi veitt þeim góðar vísbend-
ingar um hvernig skuli stilla upp
tónleikunum sem eru framundan og
segir að stefnan hafi alltaf verið sú,
að Volta yrði vel fallin til tónleika-
halds.
Bell býr bæði á Íslandi og í Eng-
landi. Hann á íslenska konu og með
henni tíu mánaða tvíbura, tvo
stráka. Þeir verða með í vænt-
anlegri reisu, og er Bell hvergi
banginn hvað það varðar.
„En ef eitthvert vandamál kemur
upp, þá spyr ég Björk bara ráða.
Hún ætti að vera öllu vön í þessum
efnum.“
Sameinuð í smekk
Raftónlistarmaðurinn Mark Bell hefur unnið náið með Björk í meira en tíu ár.
Morgunblaðið/Ásdís
Samstarf við Björk „Við höfum mjög áþekkan smekk fyrir tónlist, og erum sammála um hvaða leiðir skuli fara.“