Morgunblaðið - 26.04.2007, Síða 12
12 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
TVEIR frambjóðendur og alþingismenn
Frjálslynda flokksins, þeir Magnús Þór Haf-
steinsson, varaformaður flokksins, og Valdi-
mar Leó Friðriksson héldu vinnustaðafund
hjá Samskipum í hádeginu í gær og sögðu frá
stefnumálum flokksins. Var kosningabækl-
ingi dreift þar sem fjallað er um fimm kosn-
ingamál, þ.e. afnám kvótakerfisins og verð-
tryggingar, innflytjendamál, sanngirni hvað
varðar afnám bótaskerðingar og tekjuteng-
ingar maka aldraðra og öryrkja og loks sam-
göngumál.
Framsögumenn ræddu ekki innflytjenda-
málin á fundinum og heldur ekki það kosn-
ingamál flokksins að afnema skuli verðtrygg-
ingu.
Magnús Þór bauð upp á spurningar úr sal
en engar komu. Aðspurður af Morgunblaðinu
að fundi loknum hví ekki hefði verið minnst á
innflytjendamálin, en á það má benda að 45%
starfsmanna í vöruhúsi Samskipa eru erlend
og í fyrirtækinu starfar fólk frá hátt í 20 lönd-
um, sagðist Magnús Þór hafa gleymt um-
ræddu kosningamáli. Sagðist hann enn-
fremur ekki hafa vitað um hlutfall erlendra
starfsmanna hjá Samskipum.
Tilbúin fyrir vaxandi fjölda
útlendinga?
Um innflytjendamálin segir í kosninga-
bæklingnum að hlutfall erlendra ríkisborg-
ara á vinnumarkaði sé margfalt hærra en á
hinum Norðurlöndunum. „Erum við tilbúin
til að taka á móti þessum vaxandi fjölda?“ er
þar spurt. „Frjálslyndi flokkurinn vill stór-
auka íslensku- og samfélagsfræðikennslu
fyrir þá sem hingað koma til starfa til að auð-
velda þeim aðlögun að íslensku þjóðfélagi.“
Segir þar ennfremur að forðast skuli þau
vandamál sem aðrar þjóðir þurfa að glíma við
vegna óhindraðs innflutnings á erlendu
vinnuafli.
Í bæklingnum segir um kvótakerfið að það
leiði til þess að byggðir landsins muni hrynja
og íbúum fækka. „Við höfum ekki breytt
skoðunum okkar á þessu og höfum kynnt
nánari útfærslu á því hvernig við viljum
breyta þessu kerfi til hagsbóta fyrir þjóðina
alla,“ sagði Magnús Þór við fundargesti. Þá
ræddi hann um skattamál og sagði tímabært
að venjulegt launafólk nyti skattalækkana í
landinu, ekki eingöngu þeir tekjuhæstu. „Við
viljum leggja áherslu á að rétta þeim tekju-
lægstu hjálparhönd,“ sagði Magnús Þór.
Þá ræddi hann um samgöngumálin og
minntist á þenslu vegna stóriðjumála, sem
valdið hefði ójafnvægi í hagkerfinu. „Við vilj-
um breyta hér áherslum og draga úr fram-
kvæmdum í stóriðju á meðan við erum að
hugsa okkar gang og gera það upp við okkur
hver eigi að verða næstu skref í þessum efn-
um. Hins vegar höfum við bent á það að þörf
er á stórátaki í samgöngumálum. Við eigum
mikla peninga sem fengust fyrir sölu Símans
og viljum að þessir peningar verði notaðir í
samgöngumál.“
Sagði Magnús Þór að tvöföldun Reykja-
nesbrautarinnar hefði sannað gildi sitt og
rétt væri að endurbæta Vesturlandsveginn
sem væri ein hættulegasta umferðaræð
landsins. Einnig væri Sundabraut mikilvægt
verkefni á þessu sviði. „Þjóðvegakerfið okkar
er á margan hátt að þrotum komið og það
væri rétt aðgerð nú að fara í markvisst stór-
átak í samgöngumálum.“
Minntist Magnús Þór einnig á það stefnu-
mál flokksins að gera ætti markvissa áætlun
um að auka gangagerð þar sem þess væri
þörf. Ætti þetta verkefni að geta klárast á
næstu 20 árum.
Kvótakerfi og samgöngumál á
framboðsfundi frjálslyndra
Ekki komu neinar spurn-
ingar úr sal að loknum fram-
boðsfundi Frjálslynda
flokksins hjá Samskipum í
gær. Farið var yfir helstu
kosningamál nema innflytj-
endamálin.
Morgunblaðið/G.Rúnar
Framboð Vinnustaðafundur Frjálslynda flokksins hjá Samskipum var í hádeginu og röbbuðu
þeir Valdimar Leó Friðriksson og Magnús Þór Hafsteinsson við starfsmenn að honum loknum.
Í HNOTSKURN
»Hjá Samskipum er nærri annarhver starfsmaður í vöruhúsi er-
lendur og fyrirtækið er með fólk af
mörgu þjóðerni innan sinna raða.
»Frjálslyndi flokkurinn segir að inn-flytjendamál séu kosningamál í
bæklingi sínum og spyr hvort Íslend-
ingar séu tilbúnir til að taka á móti
vaxandi fjölda útlendinga. Gleymdist
að ræða málið á fundinum sem var
stuttur hádegisfundur.
Eftir Hjört Gíslason
hjgi@mbl.is
TÖLUVERT hefur verið um sölu á
bátum og aflaheimildum að undan-
förnu. Söluverð í þessum viðskiptum
öllum skiptir milljörðum króna.
Útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæk-
ið Jakob Valgeir ehf., í Bolungarvík
og tengd félag hafa keypt 54% í út-
gerðarfélaginu Rekavík ehf. í Bol-
ungarvík sem gerir út bátana Guð-
mund Einarsson ÍS, Hrólf Einars-
son ÍS og Einar Hálfdánsson, en
með þeim fylgja 1.500 þorskígildis-
tonn. Dragnótarbáturinn Þröstur
RE hefur verið seldur til Ingimund-
ar hf í Reykjavík með 384 þorsk-
ígildistonnum og línubeitningarbát-
urinn Birgir verið seldur frá
Þorlákshöfn til Hornafjarðar með
um 200 þorskígildistonnum. Hafnar-
berg RE hefur verið selt með 326
þorskígildistonnum og þá hefur Geir
KE verið seldur með aflaheimildum
líka. Loks hefur kvótinn af Freyju
RE verið seldur.
Rækju- og bolfiskvinnslan Bakka-
vík var stærsti hluthafi Rekavíkur.
Jakob Valgeir hyggst gera Guð-
mund og Hrólf áfram út frá Bolung-
arvík en flytja kvótann af Einari yfir
á beitningavélabátinn Þorlák ÍS sem
er í eigu Jakobs Valgeirs ehf., og
selja Einar Hálfdánsson kvótalaus-
an. Jakob Valgeir Flosason, fram-
kvæmdastjóri Jakobs Valgeirs, segir
að auka eigi fiskvinnslu í landi hjá
fyrirtækinu. Nú sé vinna að miklu
leyti einskorðuð við þorskinn og ýsa
og steinbítur fari á markað, verið sé
að byggja við vinnsluna og verði hún
aukin í kjölfarið. Jakob Valgeir og
tengd félög hafa til umráða eftir
kaupin yfir 4.500 þorskígildistonn
sem er stórt hlutfall aflaheimilda í
Bolungarvík.
Jakob vill ekki gefa upp kaupverð-
ið, en upplausnarvirði fyrirtækisins
gæti verið um þrír milljarðar króna.
Hann segir verðið hátt en það sé
skilyrði fyrir því að dæmið geti
gengið upp að vera með fiskvinnslu á
bakvið útgerðina. Þannig náist meiri
verðmæti út úr aflaheimildunum.
Hann segir líka að það skipti miklu
máli að halda aflaheimildum í bæn-
um, en hann hafi reyndar ekki vitað
til þess að til hafi staðið að selja
þennan pakka eitthvert annað.
Mikið selt frá Þorlákshöfn
Það er Nóna efh. á Hornafirði,
sem kaupir Birgi. Aflaheimildir hans
eru að mestu leyti þorskur og ýsa,
eða um 100 tonn af hvoru auk smá-
vegis af öðrum tegundum. Verð á
aflaheimildum í þessari sölu er um
2.550 fyrir þorsk, 900 fyrir ýsu, 280
fyrir karfa og 650 fyrir steinbít. Að
undanförnu hefur mikið af bátum og
aflaheimildum verið selt frá Þorláks-
höfn. Má þar nefna söluna á Ála-
borg, Friðrik Sigurðssyni og Ey-
rúnu.
Það var Skipamiðlunin Bátar og
kvóti sem sá um söluna á Birgi. Jó-
hannes Eggertsson segir að nú selj-
ist allar heimildir sem á markað
komi nánast strax, en annars sé
framboðið lítið. Hann segir að nú sé
eftirspurn eftir leigukvóta lítil, nema
helzt eftir steinbít, sem kemur í
auknum mæli sem meðafli á línuna.
Hættir í útgerð
Dragnótarbáturinn Þröstur RE
var seldur til Ingimundar hf. í
Reykjavík með tæpum 400 þorsk-
ígildistonnum. Þar af er þorskur
tæplega 100 tonn og um 110 tonn af
ýsu. Þröstur hefur verið gerður út
frá Grindavík og verður hann gerður
út fram að sumarfríi og lýkur kvóta
þessa árs. Eigendur Þrastar, Smári
Einarsson og Halldór sonur hans,
eru þar með hættir í útgerð.
Milljarðaviðskipti með báta og kvóta
Ljósmynd/Hafþór Hreiðarsson
Bátar Dragnótarbáturinn Þröstur RE er einn þeirra báta, sem að und-
anförnu hafa verið seldir með öllum aflaheimildum.
Í HNOTSKURN
»Jakob Valgeir og tengd fé-lög hafa til umráða eftir
kaupin yfir 4.500 þorskígildis-
tonn sem er stórt hlutfall afla-
heimilda í Bolungarvík.
»Verð á aflaheimildum íþessari sölu er um 2.550
fyrir þorsk, 900 fyrir ýsu, 280
fyrir karfa og 650 fyrir stein-
bít.
»Dragnótarbáturinn Þröst-ur RE var seldur til Ingi-
mundar hf. í Reykjavík með
tæpum 400 þorskígildis-
tonnum.
ÚR VERINU
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi at-
hugasemd frá embætti ríkislögreglustjóra:
„Í grein Lúðvíks Bergvinssonar alþingismanns
sem birtist í Fréttablaðinu 19. apríl sl., voru alvar-
legar rangfærslur og misskilnings gætti. Það sama
á við um viðtal við þingmanninn sem birtist í DV 23.
apríl sl. Þessar rangfærslur og misskilning ber að
leiðrétta.
Alþingismaðurinn gerir að umtalsefni viðtal við
Harald Johannessen ríkislögreglustjóra, sem birt-
ist í Morgunblaðinu 24. mars síðastliðinn. Í viðtalinu
ræðir ríkislögreglustjóri um olíusamráðsmálið svo-
kallaða. Alþingismaðurinn fullyrðir að málið „hafi
farið forgörðum í meðförum starfsmanna embættis
ríkislögreglustjóra. Þetta er fjarri lagi. Samkeppn-
isyfirvöld vöktu athygli embættisins á rannsókn
sinni á olíufélögunum. Þá þegar benti embætti rík-
islögreglustjóra á þá hættu að mál sem væru í rann-
sókn hjá Samkeppnisstofnun nýttust ekki sem
sakamál meðal annars vegna réttarstöðu starfs-
manna olíufélaganna sem samkeppnisyfirvöld
höfðu rætt við.
Í umræddu Morgunblaðsviðtali segir ríkislög-
reglustjóri „Við töldum að ef samkeppnisyfirvöld
hefðu komist að þeirri niðurstöðu að um sakamál
væri að ræða, þá hefðu þau átt að hætta rannsókn
mjög fljótlega eftir húsleitina í desember 2001 og
beina málinu til ríkislögreglustjóra eða ríkissak-
sóknara til að koma í veg fyrir sakarspjöll. Meiri-
hluti Hæstaréttar staðfesti lögfræðilegt álit emb-
ættisins og skoðun þess á rannsókninni.
Þá les þingmaðurinn það út úr viðtalinu að rann-
sókn málsins hafi hafist vegna þrýstings frá alþing-
ismönnum. Hvergi á það stoð og ekki var minnst á
það í viðtalinu. Stjórnmálamenn höfðu engin áhrif á
lögreglu eða ákæruvald í þessu máli frekar en öðr-
um. Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds,
sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um meðferð opinberra mála
nr. 19/1991. Sem æðsti handhafi ákæruvalds getur
ríkissaksóknari kveðið á um rannsókn máls, mælt
fyrir um framkvæmd hennar, m.a. gagnaöflun og
fylgst með henni, sbr. 5. mgr. 27. gr. laganna. Það
gerði ríkissaksóknari í þessu máli með því að fela
ríkislögreglustjóra að afla gagna hjá Samkeppnis-
stofnun í því skyni að taka ákvörðun um hvort hefja
bæri opinbera rannsókn á ætluðum refsiverðum
brotum olíufélaganna og starfsmanna þeirra.
Einnig tekur þingmaðurinn fram að sjálfstætt og
faglegt ákæru- og lögregluvald sé hornsteinn
„refsivörslukerfisins“ og spyr hvernig á því hafi
staðið að rannsókn á olíumálinu hafi tekið fjögur ár.
Hér á þingmaðurinn væntanlega við réttarvörslu-
kerfið. Rannsókn olíumálsins tók tíma enda málið
mjög viðamikið og lögfræðilega flókið. Hafa skal í
huga að eitt af grundvallaratriðum sjálfstæðs og
faglegs ákæru- og lögregluvalds er að fullrannsaka
mál og ganga með hlutlægum hætti úr skugga um
hvort eðlilegt og rétt sé að gefa út ákæru í málum.
Það var gert í þessu máli og ákæra gefin út af rík-
issaksóknara en lögreglurannsóknin tók rúm tvö ár.
Páll Winkel, yfirmaður stjórnsýslusviðs ríkislög-
reglustjóra.“
Athugasemd
frá embætti
ríkislögreglustjóra