Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 15
París. AFP. | Miðjumaðurinn Franco-
is Bayrou, sem varð þriðji í fyrri
umferð forsetakosninganna í
Frakklandi um
neitaði í gær að
lýsa yfir stuðn-
ingi við annað
tveggja, sósíalist-
ann Sègoléne Ro-
yal eða hægri-
manninn Nicolas
Sarkozy. At-
kvæði þeirra 6,8
milljóna manna
sem kusu Bayrou
gætu skipt sköpum í seinni umferð
forsetakosninganna, þar sem kosið
er á milli Royal og Sarkozy, en
Bayrou sagðist ekki ætla að reyna
að segja sínum fylgjendum hvað
þeir ættu að gera á kjördag, 6. maí.
Bayrou gagnrýndi Royal og Sar-
kozy harkalega, sagði þau ófær um
að gera umbætur á pólitískum
stofnunum landsins, draga úr
spennu milli ólíkra hópa í samfélag-
inu eða tryggja hagvöxt. Hann
sagði að Sarkozy – vegna náinna
tengsla sinna við valdaaðila í við-
skiptalífinu – myndi stuðla að því
að völdin söfnuðust á fárra manna
hendur, og að Royal – sem þrátt
fyrir allt virtist ganga eitt gott til,
að því er varðaði þróun lýðræðis í
Frakklandi – væri of höll undir rík-
isafskipti. Slíkt gengi þvert gegn
því sem Frakkland þarfnaðist helst.
Vill hvorugt
styðja
François Bayrou
BRESKIR vísindamenn hafa komist
að því hvers vegna glóbrystingar
syngja á nóttunni, þeir velji einfald-
lega þann tíma dags þegar hávaði
frá mönnum er í lágmarki. Þetta er
rökstutt með því að söngurinn
gegni því hlutverki að verja svæði,
vara við hættu og laða að maka.
Fuglar á um 100 stöðum í borg-
inni Sheffield voru rannsakaðir og
er ljósmengun að nóttu talin skipta
minna máli fyrir sönginn en áður.
Ráðgáta leyst
STJÖRNUFRÆÐINGAR hafa
fundið nýja plánetu, 581c, sem hef-
ur svipaða eiginleika og jörðin.
Vatn er talið vera á yfirborði 581c,
sem er í stjörnumerkinu Libra og í
yfir 20 ljósára fjarlægð. Hefur aldr-
ei fundist pláneta þar sem talið er
jafn líklegt að einhvers konar líf
þrífist. Radíus hennar er 1,5 sinn-
um meiri en jarðarinnar og hefur
hún verið kölluð „ofurjörð“.
Reuters
„Ofurjörð“
fundin
Fjarri Hugmynd listamanns.
NEYÐARSTJÓRNIN í Bangladesh
sneri í gær við blaðinu og aflétti öll-
um hömlum sem settar höfðu verið
á ferðafrelsi tveggja helstu stjórn-
málaleiðtoga landsins, Khaledu Zia
og Sheikh Hasina Wajed.
Fá ferðafrelsi
FLUGÞJÓNAR hjá norræna flug-
félaginu SAS héldu í gær áfram í
verkfalli sem þeir hófu á þriðjudag
til að krefjast betri vinnuaðstæðna.
Verkfallið hefur valdið miklum
truflunum á ferðum SAS og tengi-
flugi annarra félaga.
Áfram verkfall
Moskvu. AFP. | Borís Jeltsín, fyrrver-
andi forseti Rússlands, var borinn
til grafar í Moskvu í gær en hann
lést sl. mánudag, 76 ára að aldri.
Viðstaddir útförina voru þeir Bill
Clinton og George Bush, sem báðir
áttu mikil samskipti við Jeltsín er
þeir gegndu embætti forseta
Bandaríkjanna, en einnig Míkhaíl
Gorbatsjov, síðasti leiðtogi Sov-
étríkjanna, og John Major, fyrrver-
andi forsætisráðherra Bretlands.
Þá var Vladímír Pútín, núverandi
forseti Rússlands, viðstaddur útför-
ina eins og leiðtogar ýmissa fyrr-
verandi Sovétlýðvelda. Pútín sést á
myndinni ásamt konu sinni, Ljúd-
mílu, en hægra megin við hana er
Naina, ekkja Jeltsíns, og dóttir
hans Tatjana.
Jarðarförin fór fram í Krists-
kirkju í Moskvu, en hana lét Jeltsín
sjálfur reisa eftir að hann varð for-
seti Rússlands 1991 í því skyni að
skjóta stoðum undir „trúarlega
endurreisn“ í landinu; en Jósef Stal-
ín hafði áður látið eyðileggja kirkju
sem stóð á sama stað í nafni komm-
únismans.
Fullyrt er að 35.000 manns hafi í
gær komið í kirkjuna til að kveðja
Jeltsín hinsta sinni. Lík hans lá á
viðhafnarbörum í kirkjunni en eftir
athöfnina var hann jarðaður í
kirkjugarði við Novodevichy-
klaustrið í Moskvu sem var reist á
sextándu öld. Mun Jeltsín hvíla þar
í nágrenni þjóðhetja eins og leik-
skáldsins Antons Tsjékovs.
Reuters
Borís Jeltsín borinn til grafar
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
/
LB
I
37
32
2
04
/0
7
Skráning á landsbanki.is
Skráning á fjármálakvöld fer fram á landsbanki.is
Nánari upplýsingar á landsbanki.is eða í Ráðgjafa-
og þjónustuveri í síma 410 4000.
Verið innilega velkomin.
Fimmtudagskvöld eru
fjármálakvöld
Fræðslukvöld fyrir almenning
Landsbankinn kynnir „Fimmtudagskvöld eru fjármálakvöld”, röð fjármálanámskeiða fyrir almenning.
Á námskeiðunum fjalla sérfræðingar bankans um helstu þætti sem lúta að skattamálum, fjármálum heimilisins,
fjárfestingum, ávöxtun eigna og lífeyrissparnaði. Fjármálafræðslan er öllum opin og án endurgjalds.
Í kvöld í Austurbæjarútibúi, Laugavegi 77: Sérfræðingur Landsbankans
fer yfir hagnýt atriði varðandi fjármál heimilisins, gefur ráð um lántökur,
ávöxtun og sparnað. Námskeiðið er ætlað þeim sem vilja skilja betur
helstu atriði sem skipta máli við lántökur og fjárfestingar og vilja fá góð
ráð um fjármál heimilisins almennt.
Boðið verður upp á kaffiveitingar.
Námskeiðin hefjast kl. 20:00 á eftirfarandi stöðum:
26. apríl Laugavegur 77 (Austurbær) Fjármál heimilisins
3. maí Fjarðargata, Hafnarfirði Fjárfestingar og ávöxtun eigna
Í kvöld