Morgunblaðið - 26.04.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 31
LIST án landamæra er kröftug há-
tíð sem setur sterkan svip á menning-
arárið á Íslandi og hefur brotið niður
ýmsa múra. Á hátíðinni hafa ólíkir að-
ilar unnið saman að mismunandi list-
tengdum verkefnum með frábærri
útkomu sem hefur leitt
til aukins skilnings
manna á milli með
ávinningi fyrir sam-
félagið allt. Með þetta
að leiðarljósi er lagt
upp með nýja hátíð á
árinu 2007.
Samstarfsaðilar í
stjórn Listar án landa-
mæra eru: Fjölmennt,
Átak, Hitt húsið, og
Landssamtökin
Þroskahjálp. Ör-
yrkjabandalag Íslands
er nýr félagi að stjórn-
inni en fulltrúi frá þeim bættist í hóp-
inn í vor.
Þátttakendur í hátíðinni gefa góða
mynd af því fjölbreytta og kröftuga
listalífi sem hér þrífst. Hæfileikafólk
er á hverju strái en stundum skortir
tækifæri fyrir það til að koma sér á
framfæri. Fólk með fötlun eða
þroskaskerðingu er því miður ekki
nógu áberandi í „almennu“ menning-
arumhverfi. List án landamæra stuðl-
ar að því að breyta því og samstarf og
opnun á milli hópa og ólíkra ein-
staklinga leikur þar stórt hlutverk.
Stefnt er að því að festa hátíðina í
sessi sem árlegan stórviðburð í ís-
lensku menningarlífi.
Hún hefur breyst og þróast ár frá
ári og fleiri eru að verða sér meðvit-
andi um gildi hennar í listalífinu, bæði
þátttakendur og njótendur.
Hátíðin í ár stefnir í að verða bæði
fjölbreytt og skemmtileg. Á dagskrá
eru 25 viðburðir í Reykjavík, á Ak-
ureyri, Selfossi og Egilsstöðum.
Hátíðin verður opnuð fimmtudag-
inn 26. apríl kl. 17 í Ráðhúsi Reykja-
víkur en þá verður einnig opnuð sam-
sýning í Austursal Ráðhússins. Á
dagskrá í Ráðhúsinu eru fjölmörg
skemmtileg atriði og meðal annarra
koma þar fram Linda Rós Pálmadótt-
ir í söngsamstarfi við Heiðu Eiríks-
dóttur söngkonu, Bjöllukórinn flytur
lög og Elísabet Jökulsdóttir les ljóð.
Ef stiklað er á stóru í dagskrá há-
tíðarinnar má nefna stuttmynda-
keppni framhaldsskólanna sem hald-
in verður í Háskólabíói og
gjörninginn „Tökum höndum saman“
sem framinn verður við Reykjavík-
urtjörn laugardaginn 28. apríl kl.13.
Þar á að mynda hring í
kringum Tjörnina en til
þess þarf 800–1.000
manns. Af gjörningnum
má skella sér á Geð-
veikt kaffihús í Hinu
húsinu og kaupa fallegt
handverk.
Mánudaginn 30. apríl
verður leiklistarveisla í
Borgarleikhúsinu. Þar
koma fram og flytja
stutta leikþætti hóp-
arnir Perlan, Þjóð-
arsálin, Blikandi stjörn-
ur, Halaleikhópurinn,
Danshópur Hins hússins og Tjarn-
arleikhópurinn.
Á baráttudegi verkalýðsins 1. maí,
opnar Sigrún Árnadóttir einkasýn-
ingu á Mokka og listasýning verður
opnuð í gamla sláturhúsinu á Egils-
stöðum. Föstudaginn 4. maí verða
stórtónleikar Fjölmenntar í Salnum í
Kópavogi. Þar koma fram Hljóm-
sveitin Plútó sem gert hefur garðinn
frægan víða og einnig mun hljóm-
sveitin Hraðakstur bannaður troða
upp. Munnhörpuhljómsveit íslenska
lýðveldisins lætur sig ekki vanta og
Hrynsveitin ætlar m.a. að leika blús.
Auk þess koma fram Tónakórinn og
söngsveitin Gæjar og píur ásamt
fleirum.
Á Selfossi 5. maí troða upp Söng-
sveit Langjökuls og Valgeir Guð-
jónsson og flytja lög af nýútkominni
plötu. Í vikunni þar á eftir verður
opnuð sýningin Uppreisn litarins í
Vin á Hverfisgötunni, Átakskvöld
verður á Hressó og myndlistarsýning
opnuð á Amtsbókasafninu á Akureyri
fimmtudaginn 10. maí.
Föstudaginn 12. maí verður opnuð
samsýning í Norræna húsinu. Á þess-
ari parasýningu Listar án landamæra
leiða saman hesta sína fjölmargir
ólíkir listamenn. Verkin eru að hluta
til unnin í samstarfi listafólksins og
kennir þar margra grasa. Hljóðverk
unnið við skúlptúr, ljósmyndir, textíll,
málverk og lágmyndir fyrir blinda og
sjáandi. Sýnendur eru: Guðrún
Bergsdóttir og Gjörningaklúbburinn,
Þórunn Inga Gísladóttir ásamt Rut
Ottósdóttur og Soffíu Þorkelsdóttur,
Tolli og Gígja Thoroddsen, Gauti Ás-
geirsson og Finnbogi Pétursson,
Halldór Dungal og Hulda Hákon,
Pétur Thomsen og Trausti Rúnar
Traustason,
Davíð Örn Halldórsson og Sigrún
Huld Hrafnsdóttir.
Í vor hófst fyrirlestraröð í Nor-
ræna húsinu undir heitinu: Menning,
listir, fötlun, sem haldin er á vegum
Rannsóknarseturs í fötlunarfræðum.
Þriðjudaginn 15. maí flytur dr. Ro-
semarie Garland-Thomson, dósent
við Emory University í Atlanta,
Bandaríkjunum, fyrirlesturinn
Óvenjulegir líkamar: Ímyndir fatl-
aðra í bókmenntum, listum og dæg-
urmenningu.
Óupptalinn er fjöldi atburða sem
má kynna sér á Netinu eða í dag-
skrárbæklingi sem má nálgast hjá
Þroskahjálp, Hinu húsinu og Fjöl-
mennt. Einnig er hægt er að fylgjast
með á heimasíðum Þroskahjálpar,
ÖBÍ, Hins hússins og Fjölmenntar.
List án landamæra er einnig með
bloggsíðu og er netfangið þar:
www.listanlandamaera.blog.is. Þar
má sjá dagskrána fyrir hátíðina í vor
og fjöldann allan af myndum frá há-
tíðinni í fyrra.
Við hjá List án landamæra hvetj-
um ykkur til þess að mæta á atburði
hátíðarinnar enda af nógu að taka.
Sérstaklega hvetjum við ykkur til
þess að kippa vinum og vandamönn-
um með að Reykjavíkurtjörn laug-
ardaginn 28. apríl kl. 13 og mynda
þar hring samstöðu og einingar með
okkur.
Listahátíðin List
án landamæra 2007
Margrét M. Norðdahl skrifar
um listviðburði » Stefnt er að því aðfesta hátíðina í sessi
sem árlegan stórviðburð
í íslensku menningar-
lífi.
Margrét M. Norðdahl
Höfundur er framkvæmdastýra
Listar án landamæra.
ÞAÐ eru mörg merki um að ís-
lenskt athafnalíf hafi í grundvall-
aratriðum breytt um ham á und-
anförnum hálfum öðrum áratug. Það
er eins og leyst hafi úr læðingi kraft-
ur sem menn ekki gerðu sér fyllilega
grein fyrir áður.
Kannski er það þó
frekar ný hugsun en
nýr kraftur – því kraft-
urinn sem áður var í
sjálfstæðis- og sjálfs-
bjargarbaráttu fer nú í
nýja farvegi. Ekki er
langt síðan mestu frétt-
ir í fjölmiðlum þóttu
aflabrögð fiskiskipa og
helstu hetjur voru afla-
skipstjórar. Íslenskir
sjómenn mældust af-
kastamestu fiskimenn
heims. Nú eru helstu
fréttir af alþjóðlegum
stórviðskiptum ís-
lenskra fyrirtækja í út-
rás og kaupum þeirra á
öðrum fyrirtækjum um
allan heim til að víkka
út markaðshlutdeild
sína. Nokkur íslensk
hátæknifyrirtæki eru
orðin leiðandi á sínu
sviði og helstu fjár-
málafyrirtæki okkar
komin á lista hinna
2.000 stærstu í heimi
og reyndar á hraðir leið upp þann
lista. En það er ekki bara á sviði við-
skipta sem útrásin lætur til sín taka.
Skapandi og túlkandi listamenn eru
einnig að gera garðinn frægan. Ís-
lenskir rithöfundar, hljómlistarmenn
og leiklistarmenn vekja athygli og að-
dáun. Fróðlegt er að velta fyrir sér
hvað að baki liggur.
Í alþjóðlegri samanburðarkönnun
á einstaklingsfrumkvæði þjóða í við-
skiptalífi mælast Íslendingar með
einna mesta frumkvöðlavirkni meðal
hátekjuþjóða OECD. Háskólinn í
Reykjavík annast þátttöku í þessari
könnun fyrir Íslands hönd. Þetta er
mælikvarði á það hlutfall þjóðar sem
hefur reynslu af eða áform um að
stofna fyrirtæki og hefja viðskipti af
einhverju tagi. Við erum jafnvel ívið
fremri Bandaríkjamönnum sem
löngum hafa verið þekktir sem mestu
frumkvöðlar í viðskiptalífi. Aðeins
Asíuþjóðirnar sem lifa í lágtekju-
hagkerfum sem einkennast af bar-
áttu til sjálfsbjargar eru með meiri
virkni en Íslendingar. Freistandi er
að velta fyrir sér hvort skapandi
kraftur hafi leyst úr læðingi með
þjóðinni sem eigi eftir að verða okkur
til framdráttar á komandi árum og
hvernig megi nýta hann sem best.
Í dag er Alþjóðlegi hugverkadag-
urinn. Þá er rétt að minnast þess að
hvort sem um er að ræða framgang í
alþjóðlegum viðskiptum eða listum er
það yfirleitt afrakstur skapandi hug-
mynda sem að baki liggur. Í við-
skiptum liggur verðmætið oft í þekkt-
um vörumerkjum og viðskiptastöðu
sem varin er einkaleyfum. Höfund-
arverk rithöfunda og
tónskálda og túlkun
hljómlistarmanna og
söngvara eru öll varin
höfundar- og hug-
verkarétti ef rétt er að
farið. Íslendingar upp-
teknir af sjávarnytjum
og sauðfjárrækt eyddu
litlum tíma í verndun
einkaleyfa og hug-
verkaréttar – þurftu
ekki á því að halda. Við
vorum lengi ekki einu
sinni aðilar að al-
þjóðasáttmálum um
einkaleyfa- og hug-
verkarétt og sluppum
undan smásjá annarra
þjóða vegna þess hve ís-
lenski markaðurinn var
lítill og hagsmunir
óverulegir. Þjónusta við
þá sem þurftu á einka-
leyfa- og hugverkavernd
að halda var einnig afar
bágborin. Við höfum
smám saman verið að
tileinka okkur þetta og
færa inn í löggjöf hjá
okkur. Í dag megum við teljast full-
gildir meðlimir alþjóðasamfélagsins á
þessu sviði enda byggja útrásarfyr-
irtæki okkar og listamenn á því að
aðrar þjóðir virði reglur í þessu efni.
Ekki þar með sagt að Íslendingar
hafi að fullu náð tökum á þessum mik-
ilvæga þætti þekkingarhagkerfisins.
Einkaleyfastofan sem annast fram-
kvæmd laga og alþjóðasamninga á
þessu sviði fyrir Íslands hönd er ung
stofnun og sama má segja um lög-
fræðilegar ráðgjafarstofur ef undan
eru skildar þær stofur sem önnuðust
þjónustu við erlend fyrirtæki sem
vildu verja vörumerki sín og einka-
leyfi hér á landi. Markaður fyrir ráð-
gjöf við innlenda aðila var afar lítill.
Þetta er að breytast í þjóðfélagi sem
er óðum að þróast frá því að vera ein-
göngu auðlindasamfélag í það að
verða þekkingarsamfélag sem bygg-
ist á skapandi hugmyndum og frum-
kvæði á fjölbreyttum sviðum mann-
lífsins – vísinda, tækni og
listsköpunar. Til hamingju með hug-
verkadaginn!
Að nýta afrakstur
skapandi hugsunar,
þekkingarverðmæti
Vilhjálmur Lúðvíksson skrifar í
tilefni af Alþjóðlega hug-
verkadeginum sem er í dag
Vilhjálmur Lúðvíksson
» Skapandihugsun í vís-
indum, tækni og
listum er auð-
lind. Verðmæti
hennar eru var-
in með lögum
um hugverka-
réttindi.
Höfundur er skrifstofustjóri vísinda
og háskólamála í menntamálaráðu-
neytinu.
SANDUR MÖL
FYLLINGAREFNI
WWW.BJORGUN.IS
Sævarhöfða 33,
112 Reykjavík,
sími 563 5600
WWW.EBK.DK
Komið og kynnið ykkur dönsk gæða sumarhús sniðin að óskum kaupandans og íslenskri veðráttu.
Húsin (bústaðarnir) eru 84 m2 með 12,5 m2 yfirbyggðri verönd. 3 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi og
stór björt stofa með lokrekkjum. Þar getið þið rætt ykkar byggingaráform á fundi med 2 dönskum sölu-
og byggingaráðgjöfum.
Nánari upplýsingar fást hjá sölu- og byggingarráðgjöfum EBK:
Anders Ingemann Jensen 0045 40 20 32 38
eða Trine Lundgaard Olsen 0045 61 62 05 25.
EBK Huse A/S hefur yfir 30 ára reynslu við að byggja og reisa sumarbústaði úr tré.
Þekkt dönsk gæða hönnun og er meðal leiðandi fyrirtækja á markaðnum, með 4 deildir í
Danmörku og 4 deildir i Þýskalandi. Einnig margra ára reynslu við byggingu húsa á Íslandi,
í Svíþjóð, Þýskalandi og Færeyjum.
Laugardag Þ. 28. og sunnudag 29. april kl. 13-16:00
Heimilisfang: Vatnshólsvegur 4, Syðri - Reykjum, 801 Selfoss
BELLA CENTER: +45-32 52 46 54, C.F. Møllers Allé, Ørestaden, København
Mán.- mið. og lau. 13-17, Sun. og helgidaga: 11-17
7
1
9
3
OPIÐ HÚS
DANSKIR GÆÐA SUMARBÚSTAÐIR (HEILÁRSBÚSTAÐIR)
Ársalir - fasteignamiðlun Ársalir - fasteignamiðlun
Björgvin Björgvinsson, löggiltur fasteignasali
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
ÁRSALIR EHF - FASTEIGNAMIÐLUN
ef þú þarft að selja,
leigja eða kaupa fasteign,
mundu 533 4200 eða
senda okkur póst: arsalir@arsalir.is