Morgunblaðið - 26.04.2007, Blaðsíða 32
32 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Vegna mikils aðstreymis aðsendra greina í aðdraganda alþingiskosninganna verður formi þeirra greina,
sem lúta að kosningunum, breytt. Er þetta gert svo efnið verði aðgengilegra fyrir lesendur og auka mögu-
leika Morgunblaðsins á að koma greinunum á framfæri fyrir kosningar.
Alþingiskosningar
Í STJÓRNMÁLUM er einn erf-
iðasti andstæðingur sannleikans ekki
ósannindi heldur þvæla eða þvætt-
ingur; hálfsannleikur
oftast er óhrekjandi
lygi, var einhvers
staðar sagt. Þvætt-
ingi er ekki hægt að
svara, því hann er
sleipur og óáþreif-
anlegur. Ósannindi er
hins vegar hægt að
kveða niður með því að tefla fram
sannleikanum.
Ég ætla ekki að kveða upp úr um
það að í leiðara Morgunblaðsins hinn
23. apríl sé farið með ósannindi, eða í
Reykjavíkurbréfi hinn 22. sama mán-
aðar, þótt eflaust kysu aðrir að halda
slíku fram. En það er ekki hægt að
skrifa upp á þær fullyrðingar sem þar
standa um að ekkert finnist sem hægt
er að nota gegn ríkisstjórnarflokk-
unum.
Morgunblaðið heldur því fram að
ekkert bíti á Framsókn, því þar var
skipt um formann og þess vegna ekki
hægt að tönnlast á „gömlum málum“.
Gildir það sama um Sjálfstæðisflokk-
inn, kynni einhver að spyrja? Verður
ríkisstjórnin ekki lengur ábyrg gjörða
sinna ef skipt er um formenn flokk-
anna?
Morgunblaðið segir líka að ekki hafi
verið hægt að berja á ríkisstjórn-
arflokkunum í umhverfismálum eða
stóriðjumálum, né heldur í velferð-
armálum, málefnum aldraðra og ör-
yrkja.
Þetta er auðvitað þvættingur.
Nokkrar ávirðingar á hendur rík-
isstjórninni má taka saman í eftirfar-
andi punktum.
1. Allir muna eftir Írak. Viljum við
kjósa Íraks-ríkisstjórnina? (eða er
málið of gamalt?)
2. Viljum við kjósa 7–8% verðbólgu
með viðeigandi vaxtaokri? (eða er mál-
ið of gamalt?)
3. Viljum við að það sé í góðu lagi að
auka álögur á sjúklinga með komu-
gjöldum (eða er málið of gamalt?)
4. Viljum við áfram kyrrstöðu í mál-
efnum kvenfrelsisins og aukinn launa-
mun karla og kvenna? (eða er málið of
gamalt?)
5. Viljum við áfram auka á að-
stöðumun þéttbýlis og dreifbýlis eins
og byggðahrun síðustu ára ber vott
um (eða er málið of gamalt?)
6. Viljum við skapa lýðræðissam-
félag þar sem aukin þátttaka í ákvarð-
anatöku er innleidd í stað meirihluta-
atkvæðagreiðslu um mál eins og
Kárahnjúka (eða er málið of gamalt?)
7. Viljum við græna framtíð í stað
áframhaldandi álæðis um allt Ísland
(eða er málið of gamalt?)
Það mætti líka nefna nokkur stefnu-
mál Sjálfstæðisflokksins á seinasta
landsfundi og önnur mál í farvatninu
sem öll auka enn frekar á misréttið:
1. Sjálfstæðisflokkurinn vill draga
áfram úr vægi samhjálpar og sam-
ábyrgðar með því að leggja áherslu á
frekari einkarekstur í heilbrigðiskerf-
inu og boða þannig tvöfalt heilbrigð-
iskerfi, eitt fyrir þá ríku og annað fyrir
þá fátæku.
2. Sjálfstæðisflokkurinn vill innleiða
möguleika á að þeir sem ríkari eru geti
keypt sig fram fyrir í röðinni.
3. Og nú nýjasta málið, að selja op-
inberar fasteignir og leigja þær síðan
aftur, en það veldur því einungis að
rekstrarkostnaður eykst á meðan
eignastaða samfélagsins rýrnar. Enn
frekari sala eigna til fasteignafélaga
og þannig enn vegið að grunni velferð-
arkerfisins.
Eða eru þessi þrjú mál kannski líka
of gömul?
Stjórnin hefur ekki skipt um stefnu,
bara um formenn stjórnarflokkanna.
Stefnan er sú sama. Viljum við hana
áfram í verki? Það væru hræðileg mis-
tök.
Stjórnin hefur ekki skipt um stefnu
Eftir Gest Svavarsson
Höfundur er í 3. sæti á lista Vinstri
grænna í Suðvesturkjördæmi.
NÝLEGA rakst ég á grein-
argerð á heimasíðu Kvikmynda-
skóla Íslands eftir Böðvar Bjarka
Pétursson, stofn-
anda og stjórn-
arformanns skól-
ans. Þar glímir
hann við spurn-
inguna hvernig
hægt sé að færa ís-
lenskan mynd-
miðlaiðnað af
sprotastiginu yfir í að verða
kraftmikil og áhrifarík atvinnu-
grein. Í greinargerðinni færir
hann rök að því að hægt sé að
fjölga störfum í myndmiðlaiðn-
aðinum þannig að 3000 ný störf í
iðnaðinum verði orðin að veru-
leika árið 2012.
Hafa verður í huga að mynd-
miðlaiðnaðurinn er víðfeðm grein
sem nær yfir fjölda sérsviða og
miðla. Þessi iðnaður er í miklum
vexti og flestar þjóðir keppast
um að ná hlutdeild í honum.
Eins og ástandið er í dag þá
eru allar þessar rekstrareiningar
mjög sveiflukenndar og háðar
ytri aðstæðum. Ein stór erlend
bíómynd sem tekin er upp hér á
landi getur skipt sköpum um
fjármagn og atvinnu það ár sem
hún er tekin upp. Stofnun eða
niðurlagning sjónvarpsstöðvar
getur einnig haft mjög mikil
áhrif á atvinnustigið.
Til þess að fjölgun starfa um
200% megi verða að veruleika
telur Börkur upp fimm atriði sem
þarf að einbeita sér að. Í fyrst
lagi þarf samstarf hags-
munaaðila. Mjög margir aðilar
starfa að því markmiði að efla ís-
lenska kvikmyndamenningu og
kvikmyndagerð svo sem Kvik-
myndamiðstöð Íslands, Kvik-
myndasafn Íslands, Kvikmynda-
skóli Íslands, Félag
kvikmyndagerðarmanna, Samtök
íslenskra kvikmyndaframleið-
enda, Sjónvarpið, Alþjóðleg kvik-
myndahátíð í Reykjavík og Kvik-
myndafræðibraut HÍ. Til þess að
markmiðið náist þarf að búa til
sameiginlega sýn þar sem aðilar
skipta með sér verkum eða vinna
saman eftir því sem við á eftir
markvissri áætlun. Í öðru lagi
þarf stöðugt kynningar- og mark-
aðsstarf að vera í gangi, bæði
innan skólakerfisins og meðal al-
mennings. Greinin þarf stöðugt
að vera í tísku og það verður að
tryggja að samkeppni sé um öll
störf. Í þriðja lagi verður að
leggja áherslu á að fyrirtæki og
einstaklingar sem ná árangri,
skili þekkingu sinni og reynslu út
í iðnaðinn svo ekki þurfi sífellt að
vera að byrja frá grunni. Þetta
heppnaðist mjög vel þegar Börn
náttúrunnar fengu Óskarstilnefn-
ingu sem beindi athyglinni að
landinu og það var síðan nýtt til
fjármögnunar fjölda bíómynda í
framhaldinu. Í dag skiptir mestu
máli að árangur t.d. Latabæjar
og CCP skili sér til nýrra verk-
efna og framkvæmda. Í fjórða
lagi er mikilvægt að gera sér
grein fyrir að þróunarstarf er
grundvöllurinn að árangri í
myndmiðlaiðnaðinum. Þetta á við
um hugmyndavinnu og handrita-
gerð en einnig í framleiðslunni
sjálfri. Framleiðendur hafa átt
erfitt með að tryggja gæðin, m.a.
vegna skorts á reynslu sem þeir
eiga erfitt með að fá. Það verður
að vera sameiginlegur skilningur
á að stöðug þróun sé eina leiðin
til að ná árangri. Í fimmta lagi
þarf að hætta þeirri hugsun að
einungis sé ákveðið magn hæfi-
leikafólks til staðar og ekki sé
hægt að stækka greinina vegna
þess að ekki sé til fólk til að fylla
í skörðin. Yfirleitt er þessu hald-
ið fram af aðilum sem þegar hafa
skipað sér sess innan grein-
arinnar. Þetta er hættulegt hug-
arfar og alrangt. Samkeppnin
verður aldrei of mikil og því
fleiri sem koma að, þeim mun
meiri líkur eru að hæfileikaríkt
fólk og snillingarnir finnist.
Fleira markvert er að finna í
greinargerð Böðvars Bjarka sem
finna má á heimasíðu skólans.
Þessi grein gefur okkur tækifæri
til þess að beina huganum að öðr-
um iðnaði en áliðnaðinum. Ef
hlúð er að mannauði og tækifær-
um ungs fólks í þessum geira
verður vöxturinn að veruleika.
Hrósa má núverandi stjórnvöld-
um fyrir lögin um endurgreiðslu
vegna 14% framleiðslukostnaðar
erlendra mynda hér á landi.
Þessi lög hafa dregið hingað til
lands stór framleiðsluverkefni.
En betur má ef duga skal, ætl-
um við að hlúa að þessum iðnaði.
Að lokum spyr ég; hefur engum
dottið í hug að byggja stórt kvik-
myndaver hér á landi? Ef slíkt
kvikmyndaver væri staðsett úti á
landi myndi það skapa ótal störf.
Það myndi auka áhuga stóru
kvikmyndaframleiðandanna
verulega á að nýta sér aðstöðuna
hér á landi að því er ég hef heyrt
úr röðum kvikmyndagerð-
armanna.
Myndmiðlaiðnaðurinn í vexti
Eftir Sólborgu Öldu Pétursdóttur
Höfundur skipar 3. sæti á lista Ís-
landshreyfingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi
BRUNARÚSTIRNAR á horni
Austurstrætis og Lækjargötu eru
hjarta Reykjavíkur.
Ég er á öndverðum meiði við
Vilhjálm borgarstjóra og þá, um
hvað gera skuli.
Hann vill varðveita götumynd-
ina, endurreisa húsin í gömlum
stíl.
Verndunarsjónarmið eiga að-
eins stundum við. Gervifornminjar
hafa stundum verið misheppnaðar,
t.d. húsið á horni Túngötu og Að-
alstrætis. Annað er gott, eins og
Bernhöftstorfan.
Aðrar hugmyndir hafa komið
fram: byggja myndarlegt steinhús
eða 50–60 hæða glerkassa.
Ég legg til að fenginn verði frá-
bær, heimsþekktur arkitekt er-
lendis frá, til að hanna hús á bruna-
rústunum. Í hugann koma nöfn
eins og Gehry, Foster, Kolhaas,
Piano, Mayer, Larsen og Ando o.fl.
Húsið gæti kallast á við Tónlist-
arhöllina væntanlegu.
Arkitektinum yrði falið að
teikna hús, miðpunkt höfuðborg-
arinnar, sem allur umheimurinn
mundi dást að, og afkomendur
okkar vera stoltir af um ókomna
tíma.
Við höfum góða reynslu af topp-
mönnum í húsagerðarlist. Nor-
ræna húsið eftir Alvar Aalto er
gott dæmi.
Nú er tími og tækifæri til að
hugsa stórt!
Atli Heimir Sveinsson
Byggjum stórmann-
lega á brunarústum
Höfundur er tónskáld.
MORGUNBLAÐIÐ hrósar í forystugrein forystu stjórnarflokkanna fyrir
að taka nú í aðdraganda kosninga hvert úrbótafyrirheit stjórnarandstöð-
unnar og gera það að sínu. Þetta telur Morgunblaðið góð vinnubrögð því í
lýðræðisríki byggi stjórnmál á málamiðlunum.
Á þessu máli er önnur hlið. Hún er sú að ríkisstjórn-
arflokkarnir skrumskæla lýðræðið með þessari að-
ferðafræði. Þeir koma nú fram á völlinn – Sjálfstæðisflokk-
urinn farinn að sýna hinn litförótta fálka í rauðum lit – og
lofa annarri stjórnarstefnu en rekin hefur verið. Fyrir vikið
fær almenningur í landinu ekki að kjósa milli ólíkra kosta
og ríkisstjórnin þarf ekki að standa reikningsskil gerða
sinna. Stjórnmálaflokkar eiga að rækja skyldur sínar við al-
menning með samráði og samræðu á kjörtímabilinu, ekki
með því að hlaupast frá verkum sínum rétt fyrir kosningar. Sú ríkisstjórn
sem nú fer frá hefur einstæða afrekaskrá í að forsóma lýðræðisleg vinnu-
brögð – hvort heldur er í fjölmiðlamálinu, meðferð viðræðna við Bandarík-
in um varnarmál, samskiptum við aldraða eða í stuðningi við Íraksstríðið.
Annar ókostur er sá að reikningsdæmið gengur ekki upp. Sjálfstæð-
isflokkurinn lofar framkvæmdum og úrbótum í almannaþjónustu, sem
hann hefur sjálfur vanrækt. Hann lofar líka skattalækkunum. Hins vegar
blasir við halli á ríkissjóði strax á næsta ári, vegna efnahagsmistaka rík-
isstjórnarinnar. Ef Samfylkingin yrði ber að slíku ábyrgðarleysi er ég
hræddur um að ritstjóri Morgunblaðsins myndi kalla eftir skýringum á
slíku ósamræmi.
Kjósendur þurfa að velja. Annars vegar eru stjórnarflokkarnir eins og
samviskulausir síbrotamenn sem lofa enn á ný því sem líka var lofað síðast
og þar áður. Hins vegar er Samfylkingin sem leggur fram skýra sýn um
öflugt alþjóðavætt atvinnulíf, uppbyggingu almannaþjónustu og afnám
biðlistavæðingar íhaldsins. Hvor skyldi nú vera trúverðugri kostur?
Að verðlauna síbrotamenn
Eftir Árna Pál Árnason
Höfundur er lögfræðingur og skipar 4. sætið á
lista Samfylkingarinnar í Kraganum.
KYNNING Á NÝBYGGINGUM
SKRIFSTOFAN VERÐUR OPIN TIL KL: 18:00 Í DAG
Finnbogi Hilmarsson,
Einar Guðmundsson og
Bogi Pétursson
löggiltir fasteignasalar
Opið mán.- fös. frá kl. 9-17
Sími 530 6500
Síðumúli 13
HÓLMVAÐ 2-4 NORÐLINGAHOLTI
PERUKÓR 1-3 KÓPAVOGI
KLETTAKÓR 1 KÓPAVOGI
MARTEINSLAUG 1 -7