Morgunblaðið - 26.04.2007, Side 44

Morgunblaðið - 26.04.2007, Side 44
44 FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 MORGUNBLAÐIÐ Milljónaútdráttur Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 4. flokkur, 25. apríl 2007 Kr. 1.000.000,- 1131 F 7576 G 11097 G 16823 B 17750 B 24029 G 25782 E 39304 B 40428 B 53671 G Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand HVAÐ ER AÐ JÓN? ÉG ER MEÐ SAMVISKU- BIT YFIR ÞVÍ AÐ HAFA SKILIÐ GRETTI OG ODDA EINA EFTIR HEIMA ÆI, EN SÆTT ÞEIR ERU ÖRUGGLEGA BÍÐANDI EFTIR MÉR VIÐ DYRNAR NÚNA KALLI, ÞÚ ERT MEIRI KJÁNINN! ÉG SKIL EKKI AF HVERJU ÉG REYNI AÐ TALA VIÐ ÞIG! ÉG ER AÐ FÁ OFNÆMI FYRIR GAGN- RÝNI! ER MARS- BÚINN ÞARNA ENNÞÁ? ÉG SKAL KÍKJA NEI, ÉG HELD AÐ HANN HAFI FALIÐ SIG HELDUR ÞÚ AÐ HANN SÉ HRÆDDUR VIÐ OKKUR? JÁ, AF HVERJU EKKI? VEGNA ÞESS AÐ VIÐ ERUM VENJULEGIR JARÐARBÚAR, EKKI SKRÍTNAR GEIMVERUR EINS OG HANN BÍDDU HRÓLFUR! ÞÚ VARST AÐ BORÐA! ÞÚ ÆTTIR EKKI AÐ FARA AÐ SYNDA FYRR EN EFTIR KLUKKUTÍMA ÉG VEIT... EN ÉG ER TILBÚINN AÐ TAKA ÁHÆTTUNA !! AF HVERJU ERT ÞÚ AÐ PAKKA? ÉG ÆTLA AÐ FARA Á NORÐUR- PÓLINN... ÉG VERÐ AÐ SJÁ TIL ÞESS AÐ JÓLASVEINNINN FÁI BRÉFIÐ MITT! HVERNIG ÆTLAR ÞÚ AÐ KOMAST ÞANGAÐ? ÉG ÆTLAÐI AÐ HÚKKA FAR... EN SÍÐAN ÁTTAÐI ÉG MIG Á ÞVÍ AÐ ÉG ER EKKI MEÐ ÞUMAL ÞAÐ HEFUR VERIÐ ERFITT AÐ SMALA Á ÆFINGAR HJÁ HLÓMSVEITINNI. ÆTLI ÉG FINNI MÉR EKKI BARA NÝJA ERT ÞÚ AÐ STOFNA HLJÓM- SVEIT? NEI, VIÐ ERUM BARA AÐ LEITA AÐ NÝJU FÓLKI HVERNIG TÓNLIST SPILIÐ ÞIÐ? MEST KLASSÍSKT ROKK ÉG ER SJÁLFUR MEIRA FYRIR PÖNK EF ÞAÐ ER ELDRA EN TUTTUGU ÁRA ÞÁ ER ÞAÐ KLASSÍK HVAÐ ERT ÞÚ AÐ GERA HÉR? BARA AÐ HANGA HRINGDU Á LÖGREGLUNA. HRINGDU Í EINHVERN HVAR ER ÞESSI ENDEMIS LJÓSMYNDARI ÞEGAR ÉG ÞARF Á HONUM AÐ HALDA GOTT! NÚNA KANN HANN BETUR AÐ META PETER PARKER dagbók|velvakandi Hrísgrjón eða kartöflur BÆÐI brenglað siðgæðis- og verð- mætamat er að verða hvítu siðmenn- ingunni að falli. Ofurneysla á alls- kyns hamingjupökkum hefur gert fólk að steinrunnum alsælufígúrum en jafnframt þurrausið það allri vel- semd, forsjálni og dómgreind. Ég er ekki kynþáttahatari né hlynntur kynþáttaaðskilnaði en sá kynstofn sem ég tilheyri er að gera út af við sig. Hvíti maðurinn er smám saman að deyja út. Því höfðu indíánar Norður-Ameríku að vísu spáð fyrir þegar þeir sáu borgir hvíta manns- ins og sögðu hann myndu deyja í sinni eigin spýju. Borgir Evrópu og víðar þar sem hvítir búa eru að verða að kaunum á ásjónu jarðar. Þar býr andlaust fólk í æðisgengnu rottu- hlaupi við að borga gíróseðla við hver mánaðamót.Heilsufarið er lak- legt vegna lélegs stórmarkaðafæðis sem skemmt er af rotvarnarefnum, skordýraeitri, hormónum og öðrum hættulegum aukefnum. Fólk þjáist af síþreytu vegna stöðugs vinnu- álags og áreitis og nær aldrei að hvílast almennilega í þögninni. Kyn- stofninn er veiklaður og fjölgar sér ekki nóg. Hvíta kynstofninum fer fækkandi á meðan Asíubúar og Afr- íkubúar streyma til Evrópu og Am- eríku. Í Þýskalandi er innflutt vinnu- afl Tyrkja að ná hvítum íbúafjölda landsins. Ein ástæða fækkunar í hvíta kynstofninum eru getnaðar- varnir þar sem fólk hefur ekki tíma til að ala upp börn og konur fórna sér fyrir fyrirtæki og frama. Draum- urinn er meiri lúxus, nautn og betri afkoma sem skilar sér seint, allavega hjá alþýðu og millistétt. Kerfi hvíta mannsins er meingallað og því verða Asíubúar og annað eðlilega hörunds- litað fólk arftakar Evrópu og Norð- ur-Ameríku. Ég sé mannkynið sem eina litskrúðuga fjölskyldu og hvort ég legg mér hrísgrjón til munns eða kartöflur, kínamat eða íslenska kjöt- súpu skiptir mig ekki máli og hvort nágranni minn er brúnn, svartur eða hvítur skiptir mig heldur engu. Það eru innri gæðin sem skipta máli og þau hef ég fundið hjá bræðrum mín- um og systrum af öllum kynþáttum og ekki síst þeim sem dökkir eru á hörund af annarri ástæðu en sæl- keraferðum til sólarlanda. Einar Ingvi Magnússon. Tvær ábendingar til Kópavogsbæjar MIG langar að koma á framfæri tveimur ábendingum til Kópavogs- bæjar. Í fyrsta lagi, að strætóskýli verði sett upp á biðstöðinni við Hamraborg fyrir næsta vetur, þótt fyrr hefði verið, þar sem við sem tökum strætó niður í bæ höfum þurft að híma í hálfgerðri höm í allan vetur, í myrkri og kulda. Í öðru lagi, að sporna við mávunum sem mættir eru núna tímanlega til að gæða sér á andarungunum á tjörninni í Kópa- voginum. Þeir hafa ekki sést í vetur en tímaskynið virðist vera allgott þótt ekki fari mikið fyrir öðrum eig- inleikum. Harpa Karlsdóttir. Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is ÞAU minna einna helst á kóngulóarvef trén, sem drengurinn hefur klifrast upp í, en yfir honum hvelfist síðan kóralblár himinninn. Morgunblaðið/Golli Skemmtilegt sjónarhorn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.