Morgunblaðið - 26.04.2007, Page 46
Myndin er ástarsaga
píanókennara og eig-
anda bílaverslunar … 52
»
reykjavíkreykjavík
LÍKT og fyrri ár munu fjölmargar
hljómsveitir og listamenn koma
fram á Hróarskelduhátíðinni sem
fram fer í Danmörku dagana 5. til
8. júlí. Alls hafa 168 nöfn verið
staðfest, en í síðustu viku héldu að-
standendur hátíðarinnar frétta-
mannafund í Kaupmannahöfn, Osló
og Stokkhólmi þar sem hulunni var
svipt af þeim hljómsveitum sem
spila á hátíðinni í ár. Þegar að-
standendur höfðu lokið við að
kynna hljómsveitirnar bættu þeir
við að þeim hefði ekki tekist að
klára að semja við nokkrar hljóm-
sveitir áður en fréttamannafund-
urinn var haldinn og því má vænta
þess að nokkrar sveitir til viðbótar
verði kynntar til leiks á næstu vik-
um.
Á meðal þeirra hljómsveita og
listamanna sem staðfest hafa komu
sína eru Beastie Boys, Björk,
Muse, Queens of the Stone Age,
Red Hot Chili Peppers, The Who,
The Killers, Arcade Fire, Arctic
Monkeys, Basement Jaxx, My
Chemical Romance, LCD
Soundsystem, Mika, Peter Bjorn &
John, Booka Shade, The Brian Jon-
estown Massacre, Klaxons og
Wilco. Þungarokkssveitin Slayer
hefur hins vegar afboðað komu sína
á hátíðina. Sveitin tilkynnti nýlega
að Evróputúr þeirra myndi ljúka 1.
júlí í sumar sem þýðir að þeir munu
ekki spila á Hróarskeldu.
Um það bil 1.400 Íslendingar
keyptu miða í forsölu hér á landi í
fyrra, sem þá var sölumet. Í frétta-
tilkynningu frá hátíðinni segir að
miðað við þær tölur hafi tæplega
2% hátíðargesta verið Íslendingar,
en þó hafi trúlega enn fleiri Íslend-
ingar keypt sína miða erlendis.
Árið 2005 keyptu á bilinu 800 til
900 manns miða á hátíðina á Íslandi
og því virðast Íslendingar fara á
hátíðina í síauknum mæli.
Miðasala fer fram á midi.is og er
miðaverð 18.950 kr.
Risar á Hróarskeldu
Hróarskelda Fjölmargar sveitir hafa staðfest komu sína í ár, meðal annars
Beastie Boys, Björk, Muse, Red Hot Chili Peppers og Arcade Fire.
www.roskilde-festival.is
Listakonan
Þórdís Claessen,
sem opnar einka-
sýningu í Urbis-
safninu í Man-
chester í næsta
mánuði, er eins
og margir vita ein af þeim sem rek-
ur fatabúðina Ósóma á Laugavegi.
Búðin er afar vinsæl hjá yngri kyn-
slóðinni sem vill oftar en ekki sýna
afstöðu í klæðnaði. En Þórdís er
einnig frambærilegur slagverks-
leikari og gekk lengi vel undir
nafninu Dísa Bongó, öðrum Bongó-
manni til mikils ama. Þórdís sýnir á
sér trommarahliðina í kvöld þegar
hún treður upp með hljómsveitinni
Stormur í aðsigi á Hressó. Hefjast
tónleikarnir kl. 22.
Stormur í aðsigi á
Hressó í kvöld
Veitingastaðurinn Silfur er á
lista tímaritsins Condé Nast Trave-
ler yfir þá veitingastaði sem mest
spennandi þykja í heiminum.
Fulltrúar tímaritsins voru sendir til
30 landa í leit að nýjum, vönduðum
og spennandi veitingastöðum og
komst Silfur einn íslenskra veit-
ingastaða í þann flokk.
Íslenskur veitingastaður komst
seinast á þennan lista árið 2004, en
það var Sjávarkjallarinn. Hann og
Silfur eru í eigu 101 Heildar ehf.
Silfur spennandi
Skyrátskeppni verður haldin á
skemmtistaðnum Tony’s County á
Ingólfshvoli á laugardaginn. Hver
sá sem getur borðað þrjú kíló af
skyri á innan við 15 mínútum hlýtur
75.000 krónur að launum. Fyrir
skömmu var efnt til smjörátskeppni
á sama stað, en þar borðaði ungur
maður 910 grömm af smjöri á 15
mínútum. www.tonys.is.
Keppt í skyráti
fyrir austan fjall
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA er verkefni sem ég hef verið að vinna
að í smá tíma,“ segir Jón Atli Jónasson um hand-
rit að kvikmynd sem breskt kvikmyndafyrirtæki,
FM&E, ætlar að gera áður en langt um líður.
Handritið fjallar um atburði er áttu sér stað í
Nígeríu undir lok sjöunda áratugar síðustu ald-
ar, þegar skipulagðar ofsóknir norðanmanna
gegn Ibo-ættbálkinum urðu til þess að austur-
hlutinn sagði skilið við Nígeríu og stofnaði lýð-
veldið Biafra. Stríð geisaði í Biafra í 30 mánuði
og kostaði rúma milljón manna lífið áður en
svæðið sameinaðist Nígeríu að nýju. „Kirkjan
setti í gang mikið hjálparflug og það tóku margir
íslenskir flugmenn þátt í því,“ segir Jón Atli. „Ég
hef rannsakað þetta mikið og það hefur verið
mér mikið hjartans mál að gera sögu flugmann-
anna einhver skil. Það er ekkert launungarmál
að þessir íslensku flugmenn unnu stórkostlegt
afrek og mér finnst þetta líka svolítið magnaður
partur af okkar Íslandssögu. Ég hef eytt miklum
tíma með prestinum sem skipulagði flugið og ég
hef líka rætt við nokkra af þessum flugmönnum
sem lifðu þetta af,“ segir Jón Atli, en á meðal
þeirra flugmanna sem flugu til Biafra voru Arn-
grímur Jóhannsson og Þorsteinn Jónsson.
Íslenskir leikarar í aðalhlutverkum
Jón Atli fékk áhuga á málinu eftir að hafa lesið
BA ritgerð eftir Jón Kristin Snæhólm um borg-
arastyrjöldina í Biafra, en faðir Jóns Kristins var
á meðal áðurnefndra flugmanna. „Ég er kominn
með handritssamning við breskt fyrirtæki og það
er stefnt að því að gera þetta að leikinni bíó-
mynd. Það þarf ákveðið bolmagn til að gera
svona mynd því það er nauðsynlegt að gera hana
í Afríku og sá framleiðandi sem ég náði samn-
ingum við hefur reynslu af því að gera myndir
þar.“
Aðspurður segir Jón Atli vissulega um stórt
verkefni að ræða – og hann sér strax fram á
ákveðin vandamál. „Flugvélarnar eru til dæmis
ekki á hverju strái, þær þurfa að vera sagn-
fræðilega réttar. En það sem skiptir mig mestu
máli er að þessu sé gerð rétt og góð skil og að
þetta sé mynd sem endurspeglar vel það sem
gerðist á þessum tíma,“ segir hann og bætir við
að íslenskir leikarar muni fara með stór hlutverk
í myndinni. „Eitt af þeim skilyrðum sem ég setti
fyrir því að ég myndi skrifa þetta var að íslensku
flugmennirnir yrðu leiknir af íslenskum leik-
urum. Ég held að það sé ekkert launungarmál í
Bretlandi að það eru mjög góðir leikarar á Ís-
landi þannig að það var létt og ljúft fyrir þá að
samþykkja það.“
Jón Atli segist ekki vita nákvæmlega hvenær
myndin fer í framleiðslu. „Ég er að leggja drög
að fyrsta uppkasti, en ég á ennþá eftir að ræða
við nokkra flugmenn sem voru þarna. Svo stefni
ég að því að fara til Nígeríu síðla sumars, sem er
meiriháttar mál því þetta er eitt hættulegasta
land í heimi,“ segir Jón Atli, sem bíður nú frum-
sýningar á sínu nýjasta verki, Partílandi, 26. maí
næstkomandi.
Morgunblaðið/Kristinn
Harður „Eitt af þeim skilyrðum sem ég setti fyrir því að ég myndi skrifa þetta var að íslensku flugmennirnir yrðu leiknir af íslenskum leikurum.“
Handrit að stórmynd
Jón Atli Jónasson skrifar handrit um atburðina í Biafra á sjöunda áratugnum