Morgunblaðið - 26.04.2007, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 47
SILVÍA Nótt á mest seldu plötuna á
Íslandi aðra vikuna í röð. Íslend-
ingar virðast því ekki hafa látið
fremur slæma dóma um plötuna
Goldmine á sig fá, en titillag plöt-
unnar er einnig eitt það vinsælasta
á Íslandi um þessar mundir eins og
sjá má á listanum hér til hliðar.
Mika hækkar sig um eitt sæti, fer
úr þriðja í annað sætið með plötuna
Life in Cartoon Motion, en tvö af
þremur vinsælustu lögum landsins
eru einmitt á þeirri plötu.
Þá virðast Íslendingar vera byrj-
aðir að búa sig undir Evróvisjón-
keppnina því í þriðja sætinu er
plata með öllum lögunum sem taka
þátt í keppninni. Þá stekkur platan
Valentine Lost beint í áttunda sæti
listans, en á plötunni er framlag Ís-
lands til keppninnar í ár bæði í ís-
lenskri og enskri útgáfu, auk fleiri
laga eftir Svein Rúnar Sigurðsson.
Trent Reznor og félagar hans í
bandarísku rokksveitinni Nine Inch
Nails koma nýir inn í tíunda sætið
með sína nýjustu plötu, Year Zero.
Þá er kanadíska söngkonan Avril
Lavigne í tólfta sætinu með sína
nýjustu plötu sem heitir því
skemmtilega nafni The Best Damn
Thing.
!
" "# $%&$'
#$ #(
#$
%)
*+ , #
$ -"./)#
!" #$
$% &$'
(" $
#
$ %
)* *+$
,
$ *" %*$
* )*$%
# * - $ +.
/0!
$ 12*$
3 *4
5 %
!" # $ "
%!"&' "(
) !
* +( ,!"' +$
#+$!&--"./!-""
0 "
0( $!(
12 3 $$
45*"645$
7&
*8 " 54"
4
9: " $*& "
*.+$!;"#/: 5 ./"!<" =
&"&/ +$
> "6 ?%
9 @'
0
01
2
3,3
#
45
1
'
./)
2
36,
4%,7
8
4%,7
(,9
"-
36,
"#0/$%
$,:;<$=> 6% 6
7
. 1*$
)2 $
/0!
8
9
3*$
3 *4
1%
9
*% *%
8%
**$
#'% 8
%
/ :
;< /%$
7%'
'
=' %
#3 (
$% *%
>%$ 0 !
$
>8
A BC4&"D
89 D
E$ ": /F:
%!" $
5G
% D
. !
E$ $5
6"5@ 35" 55
&"1 3
9-5A $
<" CH$ "&F$
3 D3&""
5
A5@
0 :"@
2
2
2
#
%
36,
%,7
2
0
01
2
2
%
+ ./)
%,7
2
-"
Silvía Nótt situr
sem fastast!
Innrás Björk á sjötta vinsælasta lag
landsins um þessar mundir.
BRESKA drengjahljómsveitin Take
That er loksins komin í efsta sæti
lagalistans með lagið sitt „Pati-
ence“. Lagið hefur verið á listanum
í 8 vikur en er fyrst nú að komast á
toppinn. Það er því ljóst að þol-
inmæði þeirra félaga í Take That
hefur borgað sig.
Ekkert virðist draga úr vinsæld-
um bresk-líbanska popparans Mika,
en hann á lögin sem sitja bæði í
öðru og þriðja sætinu, lögin „Relax,
Take it Easy“ og „Grace Kelly“.
Fyrrnefnda lagið stekkur úr 19.
sætinu í annað sætið og stefnir því
hraðbyri á toppinn.
Hins vegar er Eiríkur Hauksson
eitthvað að gefa eftir, en hann hef-
ur nú setið á toppnum um nokkurt
skeið. Það verður þó að teljast lík-
legt að hann muni koma sterkur inn
að nýju þegar nær dregur að Evr-
óvisjón.
Björk stekkur beint í sjötta sætið
með lagið „Earth Intruders“ sem er
fyrsta smáskífulagið af nýjustu
plötu hennar, Volta.
Þá vekur athygli að Lay Low fer
beint í níunda sætið með lagið
„Mojo Love“. Ástæðan er trúlega sú
að Lay Low er nú á tónleika-
ferðalagi um landið.
Þolinmæðin þraut-
ir vinnur allar!
EI verður deilt um tónlistarlega hæfileika
ungsnótarinnar Amy Winehouse en upp á
síðkastið hefur hún aðallega verið fræg af
endemum; gælir hressilega við stút á op-
inberum vettvangi og velur rokk og ról lífs-
stílinn alla leið. Þessi breska söngkona opnar
þannig sína aðra plötu með stæl, en í hinu
mjög svo grípandi „Rehab“ harðneitar hún að láta þurrka sig
upp og segist einfaldleg ekki hafa tíma til þess. Restin af plöt-
unni fylgir svipuðum formerkjum. „Gamaldags“ blús-, sálar- og
djassskotið „R&B“, frábærlega sungið af Winehouse. Hljómur
laganna er mergjaður, það er líkt og þau séu hingað komin með
tímavél. Eini mínusinn er að það fer að slá nokkuð í gæði sjálfra
lagasmíðanna er á líður.
Blúsað með bokku í hönd
Amy Winehouse –
Back To Black Arnar Eggert Thoroddsen
MAÐUR rís ósjálfrátt upp við dogg þegar
fréttist af nýjum verkefnum frá stórsöngv-
aranum Mark Lanegan. Hvort sem það er
sóló, með Queens of the Stone Age eða með
Isobel Campbell (Fríða og Dýrið!) nær gull-
barki þessa mikilúðlega manns iðulega að
heilla. Soulsavers, sem er raftónlistardúett,
leggur til dramatískar stemmur sem taka með kántrí, sálar-
tónlist og gospel. Lanegan syngur í átta lögum og eins og nærri
má geta er stemningin þar afar mögnuð. Þung og dulúðleg og
sérstaklega á þetta við um gospelskotnu smíðarnar, segja má
að ægileg fegurð kraumi þar undir. Megingallinn er sá að þegar
rödd Lanegan sleppir eru Soulsavers eins og rangstæðir –
hljóma dálítið eins og slöpp útgáfa af Death in Vegas.
Dýrið þenur sig
Soulsavers – It’s Not How Far You Fall It’s the Way You
Land Arnar Eggert Thoroddsen
TÓNLISTARSTEFNAN sem kennd er við
„emo“ hefur verið hrakyrt og smáð nokkuð
að undanförnu, að sjálfsögðu í takt við vax-
andi vinsældir hennar. Fall Out Boy telst
ein stærsta „markaðsvæna“ sveitin í þeim
geiranum og seldist síðasta plata, From Un-
der The Cork Tree, í bílförmum™ í heima-
landinu, Bandaríkjunum. Þessi plata flaug svo beint í fyrsta
sæti Billboard-listans. Fyrsta smáskífa plötunnar, „This Ain’t a
Scene, It’s an Arms Race“ er hrein snilld og gaf til kynna að
Fall Out Boy myndi bera með sér allnokkra vigt á breiðskíf-
unni. Það rætist líka að mestu, því þó að flest lögin séu sér-
sniðin fyrir útvarp og MTV, þá heyrir maður að Fall Out Boy er
hreinlega of „klár“ til að selja sig ódýrt. Á mannamáli: É’r að
fíla’etta …
Nokkuð pælt
Fall Out Boy –
Infinity On High Arnar Eggert Thoroddsen
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
NOUVELLE Vague á nú að baki
tvær breiðskífur þar sem síðpönks-
lagarar eru endurtúlkaðir í Bossa
Nova-takti, og síðan sungnir af seið-
andi sírenum. Ekki beint frumleg
hugmynd en það sem aðskilur sveit-
ina frá öðrum sem reynt hafa svip-
aða hluti, er að þessi formúla svín-
virkar og tónlistin sleppur glæsilega
undan því að vera bara ódýr brand-
ari. Hljómsveitir eins og Joy Divi-
sion, Cure og Killing Joke eru á
meðal þeirra sem eru á matseðlinum
en einnig minna þekktari eðalsveitir
á borð við The Sound og Josef K.
Nafn sveitarinnar er tvírætt (eða
öllu heldur þrírætt), Nouvelle Vague
þýðir ný bylgja og vísar þannig í síð-
pönkið en um leið í bossa nova sem
þýðir nýr taktur eða ný bylgja á
portúgölsku. Þá er um leið nikkað til
frönsku nýbylgjunnar í kvikmynd-
um (la Nouvelle Vague).
París
-Segðu mér nú aðeins frá þessu
verkefni Marc.
„Nú þetta snýst einfaldlega um að
snúa síðpönkinu yfir í eitthvað allt
annað. Með því langaði mig til að
sýna fram á að þessar hljómsveitir
sömdu bæði frábær og falleg lög,
vopnuð kannski einum eða tveimur
hljómum.“
-Þú virðist ansi fróður um síð-
pönkið þegar maður lítur yfir laga-
listana. Þetta er ekki eingöngu það
þekktasta...
„Já...ég held að það sé líka ástæð-
an fyrir því hversu vel heppnuð út-
koman hefur verið. Þetta er gert af
einlægni og af ástríðu fyrir þessari
tónlist. Þetta er ekki bara einhver
samhristingur af vel þekktum lögum
frá níunda áratugnum og margir
hafa því verið að uppgötva í fyrsta
skipti snilldarlög eins og „Shack Up“
með A Certain Ratio eða „In a
Manner of Speaking“ með Tuxe-
domoon.“
-Komu vinsældir fyrstu plötunnar
þér á óvart?
„Já. Algerlega. Ég tók hana upp í
heimahljóðverinu mínu í París með
nokkrum vinum mínum. Ég átti
reyndar von á því að þetta myndi ná
árangri innan viss hóps í París en
aldrei hefði mig grunað að þetta ætti
eftir að ná eyrum svona margra. Og
áhuginn virðist ekki fara minnkandi.
Þetta er búið að vera ótrúlegt æv-
intýri.“
-Þriðja platan?
„Ég á von á því já, en það yrði sú
síðasta. Það eru enn nokkur lög sem
mig langar til að klæða í þennan
búning.“
-En hvernig er Nouvelle Vague á
tónleikum?
„Það gilda annars konar lögmál
þar; þá erum við að tala um hljóm-
sveit en plöturnar eru smíðaðar í
hljóðverinu þar sem engin hljóm-
sveit kemur nálægt. Á sviði er þetta
losaralegra, það er mikil orka í gangi
og við brúkum trommur, gítara og
slíkt, auk tveggja
-Ég las að þið hefðuð gætt þess
sérstaklega að söngkonurnar á plöt-
unum myndu ekki þekkja lögin fyr-
irfram…
„Ja … það var ekki lagt upp með
það þannig. Það var bara þannig.
Söngkonurnar sem við notuðum
þekktu tónlistina hreinlega ekki. Ég
var steinhissa, því að þessi tónlist
hefur svo rosalega mikið gildi fyrir
mig. Þær höfðu aldrei heyrt um Joy
Division eða þessar hljómsveitir! En
þetta þýddi auðvitað að þær voru al-
gerlega frjálsar í túlkuninni.“
-Hvernig valdirðu lögin? Voru
þetta þín uppáhaldslög eða valdirðu
lög sem þig grunaði að myndu falla
vel að bossa nova-takti?
„Bæði og. Ég valdi lög sem hafa
mikla þýðingu fyrir mig og prófaði
mig áfram með þau. Ef þau virkuðu
hélt ég þeim. En svo valdi ég líka lítt
þekkt lög og reyndi með því að búa
til sannfærandi mynd af því hvað
síðpönk var fyrir franskan ungling
sem lifði og hrærðist með stefnunni í
upphafi níunda áratugarins. Ég var
fjórtán ára, árið 1982, og þessi tón-
list var fyrsta ástin mín ef svo mætti
segja.“
Síðpönksveifla
Franska sveitin Nouvelle Vague leikur á Frönsku
vori, föstudaginn 27. apríl. Marc Collin, annar
„höfunda“ sveitarinnar, gaf sig á tal við Morg-
unblaðið af því tilefni.
Nouvelle Vague Tónlistin sleppur undan því að vera bara ódýr brandari.
Tónleikarnir fara fram í Listasafni
Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
www.fransktvor.is