Morgunblaðið - 26.04.2007, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2007 49
Eftir Arnar Eggert Thoroddsen
arnart@mbl.is
TÓNLEIKAFERÐALAG Rásar 2
um landið hefur vonandi ekki farið
fram hjá neinum en það hófst á Eg-
ilsstöðum í síðustu viku og lýkur nú
á morgun í Reykjavík. Þá troða
„plokkararnir“, þau Pétur Ben, Lay
Low og Ólöf Arnalds upp ásamt
Hjaltalín á NASA. Þetta er annað
árið í röð sem Rás 2 stendur fyrir
svona viðburði en í fyrra voru það
Ampop, Dikta og Hermigervill sem
léku víða um land.
Kósí partí
Tríóið hefur nú leikið á Egils-
stöðum, Akureyri, Hrísey, Stokks-
eyri og Bolungarvík og sló blaða-
maður á þráðinn til Lovísu „Lay
Low“, þegar stutt var í Bolung-
arvíkurtónleikana en þeir fóru fram
í fyrradag. Nú er aðeins Akranes
eftir (í kvöld) og svo Reykjavík á
morgun.
„Þetta er búið að vera mjög
skemmtilegt og maður hefur lært
helling á þessu flakki,“ segir Lovísa
og tekur sér fimm mínútna pásu frá
rótinu. „Þetta er a.m.k. í fyrsta sinn
sem ég fer á svona túr, maður hefur
bara verið að taka gigg og gigg.
Maður hugsar allt öðruvísi nú til
þessara hljómsveita sem eru að taka
tveggja eða þriggja mánaða langa
túra úti í heimi.“ Lovísa segir það þá
hafa hjálpað að hópurinn sé vel sam-
stilltur og hafi hrist vel saman á
undanförnum dögum.
„Maður upplifir nýja hluti; t.d.
bara hversu skipulagt allt þarf að
vera svo hægt sé að koma sér frá
viðkomandi stað og yfir á þann
næsta. Þá er það viss áskorun að
halda sér hressum marga daga í
röð.“
Lovísa segir tónleikana jafn ólíka
og þeir hafi verið margir. Aldrei sé
víst um mætingu og á sumum stöð-
um hefur stemningin verið kósí og
róleg á meðan partístuð hefur ein-
kennt aðra. Þá mættu um 90 manns
á tónleikana í Hrísey, en fasta bú-
setu þar hafa 170 manns.
„Þar sagði fólk mér að svona við-
burðir væru fremur sjaldgæfir og
þess vegna mæta venjulega allir
sem vettlingi geta valdið. Fólkið var
afskaplega ánægt og þakklátt. Í
Reykjavík eru svo oft svona við-
burðir, miðað við landsbyggðina, að
manni hættir til að gleyma því
hversu gott maður hefur það í þess-
um efnum.“
Ríkt gildi
Ólafur Páll Gunnarsson, verkefn-
isstjóri tónlistar á Rás 2, segir að
hugmyndin að svona hringferð hafi
fæðst fyrir tíu árum.
„Ég og Maggi Einars fengum þá
hugmynd að sniðugt væri að ferðast
um landið á milli menntaskóla með
tvær, þrjár hljómsveitir og Rás 2 þá
með í för,“ segir Óli Palli. „Það var
svo í fyrra sem það átti að reyna að
ýta þessu úr vör og þá vildi svo til að
Ásgeir Eyþórsson (nú kynning-
arstjóri Rásar 2) var að vinna fyrir
Ampop og var með það á prjónunum
að fara með hana út á land. Þannig
að úr varð að við steyptum þessu
saman.“
Það ferðalag gekk vel og voru
tónleikarnir víðast hvar vel sóttir.
„Það sem gerir þetta mögulegt
eru svo bakhjarlar en þeir eru Coca
Cola, 66° NORÐUR, hljóð-
kerfaleigan Protech og Flugfélag
Íslands,“ útskýrir Óli. „Þetta þýðir
að enginn kostnaður fellur á lista-
mennina en allt sem kemur í kass-
ann rennur til þeirra. Þetta er mikill
kostur því að tónleikaferðalög út á
land fyrir hljómsveitir af þessum
toga eru yfirleitt dauðadæmd fjár-
hagslega séð.“
Það segir sig sjálft að ferðalagið
er gífurlega mikilvægt fyrir tónlist-
arlíf landsbyggðarinnar en á hverj-
um stað sér hljómsveit úr viðkom-
andi bæ um að hita upp. Um leið
hefur það ríkt gildi fyrir umrædda
borgarlistamenn. Þeir fá nú færi á
að kynnast einhverju öðru en stein-
steypunni og geta um leið komið
tónlist sinni milliliðalaust á framfæri
til áheyrenda sem eiga venjulega
ekki kost á slíkri upplifun.
„Þessi starfsemi er hluti af því
sem Rás 2 á að standa fyrir,“ segir
Ólafur. „Að styðja við menningar-
lífið í landinu og þar með að geta
boðið landsbyggðinni upp á mögu-
leika af þessu tagi. Við höfum svo
fylgst vel með framvindunni; bæði
með bloggi og beinum útsendingum,
myndir hafa verið settar inn á vef-
inn okkar o.s.frv. Ég vona innilega
að þessi hringferð okkar sé komin
til að vera.“
Smekkfullt Um 90 manns mættu á tónleikana Rás 2 plokkar hringinn í
Hrísey, en fasta búsetu þar hafa um 170 manns.
Söngvar fagrir
óma … út um
borg og bý
Rás 2 klárar að plokka hringinn með tónleikum á NASA, annað kvöld
Sjá nánar á www.ruv.is/poppland
Á ÞESSARI mögnuðu mynd, sem tekin var í fyrrinótt, sést hvar eldingu
lýstur niður í skýjakljúf í Singapúr. Samkvæmt hinum óskeikula Vís-
indavef Háskóla Íslands er elding í raun og veru „ljós sem sést frá raf-
straumi sem hleypur milli staða í skýjum eða milli skýja og yfirborðs jarð-
ar. Rafstraumurinn sem myndar eldinguna hitar loftið í næsta nágrenni
svo snöggt að úr verður sprenging og hljóðbylgja sem við köllum þrumu
berst í allar áttir“. Á Íslandi eru þrumuveður mun algengari sunnanlands
en norðan og á svæði frá Snæfellsnesi suður og austur að Hornafirði eru að
jafnaði einn til fjórir þrumudagar á ári, en heldur fleiri undir fjalllendinu
syðst á landinu. Á Norðurlandi verður ekki vart við þrumur nema annað
hvert ár að jafnaði.
Reuters
Þrumuguðinn reiðist
!!
!!