Morgunblaðið - 01.05.2007, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Stjórnun upplýsingaöryggis
samkvæmt ISO/IEC 17799
- Lykilatriði og notkun
Námskeið 9. og 10. maí fyrir
Stjórnendur sem bera ábyrgð á vernd upplýsinga og að móta og innleiða
stjórnkerfi upplýsingaöryggis.
Starfsfólk sem gegnir lykilhlutverki við að innleiða stjórnkerfi
upplýsingaöryggis.
Tæknifólk sem kemur að tæknilegri útfærslu stjórnkerfisins.
Ráðgjafa á sviði upplýsingaöryggis.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur geti gert grein fyrir lykilatriðum
staðlanna ÍST ISO/IEC 17799 og ÍST ISO/IEC 27001 og þekki hvernig þeim er
beitt við stjórnun upplýsingaöryggis í fyrirtækjum.
Skráning og nánari upplýsingar á vef Staðlaráðs,
www.stadlar.is eða í síma 520 7150
! "#$% &'%%(
%&
' "$'
2#
5(
- 6&12#
#
5
2#
(
( 57
(&
7
(&
6&12#
8
-/6&12#
+6&12#
6 ( 9
2#
:#; 1
#3
!
"
10 !9
2#
+
9
2#
*
2#
*&
5
2 & 2#
(
<8
..#92#
=2#
) & * #+
;> (
2#
!
6&12#
?5
6&1:& !2#
?5
56&12#
@A2
2#
B*C 8
D
E 2#
DE!! !
(/ 2#
F (/ 2#
,
+
+ .(#3
!
-#
% -! * .
:86
2#
:
1
2#
/+0
1
"+
+
+
+ ,+
,+,
+
+
+,
+
+
:
- 1(
! D 9&,&
!G
"
1
<
<
<
<
<
<
<
<
F 1( , ) D:H (2!
( /
- 1(
<
<
<
<
<
<
<
<
I
!
( - -
B*C B*C
)+
-+
J
J
B*C 58C
,,
)+
-+
J
J
I&KL&
@
M
)+
)+
J
J
I C
)+
-+
J
J
B*C6
B*C-
)+
-+
J
J
ÞETTA HELST ...
BJÖRGÓLFUR Thor Björgólfsson
og Bakkavararbræðurnir Lýður og
Ágúst Guðmundssynir eru meðal
ríkustu íbúa Bretlandseyja, sam-
kvæmt lista sem blaðið Sunday
Times birti í gær. Björgólfur fer
upp um níu sæti á listanum milli
ára, úr 32. í 23. sæti með hreinar
eignir metnar á ríflega tvær millj-
ónir punda, jafnvirði nærri 263
milljarða króna.
Eignir Lýðs og Ágústs eru taldar
saman og stökkva þeir úr 103. sæti
á síðasta ári í 53. sæti nú, metnar á
1,2 milljónir punda, eða um 150
milljarða króna. Í grein Sunday
Times er bent á stóra eign þeirra í
Exista og aukin umsvif Bakkavarar
á Bretlandsmarkaði.
Um Björgólf Thor er sagt að
hann hafi hagnast um 550 milljónir
punda á síðasta ári, um 70 milljarða
króna, með sölu á hlut sínum í
tékkneska símafélaginu CRa. Hlut-
ur hans í Actavis er metinn á rétt
tæplega 500 milljónir punda, jafn-
virði um 63 milljarða króna. Hluta-
bréf Björgólfs Thors í þremur
bönkum eru sögð virði annarrar
eins upphæðar og fjárfestingar
hans í símafyrirtækjum séu jafn-
virði 944 milljóna punda, um 120
milljarða króna.
Indverski stálkóngurinn Lakshmi
Mittal er áfram ríkasti maðurinn á
Bretlandseyjum að mati Sunday
Times. Eignir Mittals jukust um
29% milli ára.
Meðal ríkustu í Bretlandi
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Stórt stökk Ágúst og Lýður Guðmundssynir eru ofarlega á auðslistanum.
● ÚRVALSVÍSITALA aðallista í
kauphöllinni lækkaði um 0,34% í
gær og við lokun var gildi hennar
7.755 stig. Velta í viðskiptum með
hlutabréf nam ríflega 5,5 millj-
örðum króna en heildarvelta nam í
gær 9,6 milljörðum króna.
Mest hækkun varð á bréfum
Straums-Burðaráss fjárfest-
ingarbanka, 0,51%, en mest
lækkkun varð á bréfum Mosaic
Fashions, 2,11%. Gengi bréfa
Glitnis banka lækkaði um 0,93%.
Mest voru viðskipti með bréf þess
félags.
Straumur
hækkaði mest
● BALDVIN Val-
týsson hefur tek-
ið við sem yf-
irmaður útibús
Landsbankans í
London. Tekur
hann þar með við
af Lárusi Weld-
ing, sem hefur
verið ráðinn for-
stjóri Glitnis.
Í tilkynningu kemur fram að í starfi
sínu á fyrirtækjasviði Landsbankans
hafi Baldvin haft umsjón með við-
skiptum við stærstu viðskiptavini
bankans í Reykjavík, bæði íslenska
og alþjóðlega. Hann hafi einnig haft
umsjón með sjóðsstreymislánum
bankans. Baldvin gekk til liðs við
Landsbankann árið 2003 en starfaði
áður á fyrirtækjasviði Búnaðarbank-
ans þar sem hann bar ábyrgð á lána-
málum stærstu viðskiptavina.
Baldvin til London
HAGNAÐUR Glitnis á fyrsta árs-
fjórðungi dróst saman um 2,1 millj-
arð króna, 23%, en hagnaður eftir
skatta nam alls 7 milljörðum króna.
Þetta er raunin þrátt fyrir að tekjur
hafi aukist um ríflega 5% á milli ára
en á móti kemur að rekstrarkostn-
aður jókst um nær helming og nam
hann nú 47% af heildartekjum en
34% á síðasta ári. Þar ber hæst
mikla aukningu launakostnaðar auk
þess sem annar rekstrarkostnaður
hefur hækkað töluvert en sá liður
er ekki sundurgreindur frekar.
Ennfremur var hlutdeild félags-
ins í afkomu hlutdeildarfélaga og
samrekstri neikvæð um 136 millj-
ónir króna en á sama tímabili í
fyrra skiluðu hlutdeildarfélög bank-
anum tæplega 1,2 milljörðum króna
í tekjur og er þar því um ríflega 1,3
milljarða króna sveiflu að ræða.
Vaxta- og þjónustutekjur vega
langmest í tekjuliðum bankans og
aukast um 1,7 milljarða króna á
milli ára. Undir liðinn hagnaður/tap
af öðrum fjáreignum á gangvirði.
gengishagnaður af verðbréfaeign en
liðurinn skilar nú um þrefalt hærri
tekjum en í fyrra.
Eignir Glitnis nema nú um 2.256
milljörðum króna og hafa vaxið um
10 milljarða á milli ára en eiginfjár-
hlutfall bankans er 14,2% sam-
kvæmt CAD-aðferð en 11,6% sam-
kvæmt Tier1-aðferð og hefur það
aukist á milli ára. Arðsemi eigin fjár
á tímabilinu var 20,5% á ársgrund-
velli.
Hægt hefur á vexti íslensku
bankanna síðan fyrir ári og ber
uppgjörið á vissan hátt einkenni
þess.
Ber merki
hægari vaxtar
Uppgjör
Glitnir banki hf.
sverrirth@mbl.is
VÖRUSKIPTAJÖFNUÐUR var í
marsmánuði neikvæður um 4,5 millj-
arða króna samkvæmt tölum sem
Hagstofa Íslands birti í gær. Í mars-
mánuði 2006 voru vöruskiptin nei-
kvæð um 18,2 milljarða á sama gengi
og er því ljóst að vöruskiptahallinn
hefur jafnast verulega á milli ára.
Innflutningur í marsmánuði nam
alls 34 milljörðum króna og dróst
saman um tæpa 7 milljarða á milli
ára, 16,6%.
Á fyrstu þremur mánuðum ársins
nam heildarverðmæti vöruinnflutn-
ings ríflega 88 milljörðum króna og
dróst hann saman um 6% á milli ára.
Útflutningsverðmæti jókst hins veg-
ar um 37,1% á milli ára og má einna
helst rekja það til aukins álútflutn-
ings skv. tilkynningu Hagstofu.
Það var innflutningur á fólksbíl-
um og flugvélum sem dróst mest
saman en aukning í innflutningi á
fjárfestingarvöru og neysluvöru
annarri en mat og drykk vó þar eitt-
hvað á móti.
Dregur úr
vöruskiptahalla
Morgunblaðið/Árni Sæberg
● SAGA Capital verður aðili að Nor-
dic Exchange á Íslandi frá og með
deginum í gær, og er þar með fyrsti
aðilinn sem hefur viðskipti á hluta-
bréfa- og skuldabréfamarkaði Nordic
Exchange á Íslandi eftir samein-
inguna við OMX hinn 2. apríl síðast-
liðinn.
Saga Capital er alþjóðlegur fjár-
festingarbanki, sem veitir þjónustu á
sviði fyrirtækjaráðgjafar, útlána og
verðbréfamiðlunar.
Saga Capital var stofnað árið
2006 af nokkrum fyrrverandi starfs-
mönnum íslensku viðskiptabank-
anna og nokkrum völdum fagfjár-
festum. Stefnt er að skráningu
hlutabréfa félagsins á verð-
bréfamarkaði innan fimm ára.
Saga Capital aðili að
Nordic Exchange