Morgunblaðið - 09.05.2007, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 9. MAÍ 2007 33
RÆTUR Framsóknarflokksins
liggja meðal fólksins í landinu.
Flokkurinn er byggður á lýðræð-
ishugsjónum fjölda-
hreyfingar sem búa
vill í sátt við menn
og náttúru. Flokk-
urinn hefur frá
fyrstu tíð staðið vörð
um atvinnu og upp-
byggingu atvinnulífs-
ins um land allt.
Samvinnufélögin byggðust upp af
samtakamætti fólksins í baráttu
fyrir atvinnu og bættu mannlífi.
Framsóknarflokkurinn er enn trúr
þessari grundvallarstefnu sinni.
Flokkurinn hefur verið í forystu
þeirra breytinga sem skapað hafa
þær miklu efnahagsframfarir sem
einkennt hafa íslenskt samfélag
undanfarna tvo til þrjá áratugi.
Kvótakerfið, sem komið var á
1984, markaði tímamót sem hag-
sæld okkar nú grundvallast meðal
annars á. Með því var viðvarandi
taprekstur útgerðarinnar í fyrsta
sinn stöðvaður og taflinu snúið við.
Þróttmikil útgerð undanfarin ár er
afleiðing þess. Hundraða milljarða
króna virðisauki hefur skilað sér
inn í íslenskt efnahagslíf vegna
góðrar stöðu útgerðar frá dögum
kvótasetningarinnar. Mikilvægustu
fiskistofnum okkar var einnig forð-
að frá algerri eyðingu. Þá hafa
stóriðja og orkuvinnsla dafnað vel
undir pólitískri forystu Framsókn-
arflokksins. Mikilvægasta skrefið
var uppbygging stóriðju á Austur-
landi sem leggja mun grunn að
góðu mannlífi þar um ókomin ár.
Þá hefur sala bankanna og innleið-
ing frjálsræðis í viðskiptum við út-
lönd lagt grunn að hinum fjöl-
mörgu glæsilegu íslensku
útrásarfyrirtækjum okkar sem við
erum svo stolt af og vekja eftirtekt
um heim allan. Tugþúsundir vel
launaðra starfa hafa orðið til í fjár-
málageiranum, hátækniiðnaði,
sjávarútvegi, stóriðju og orku-
vinnslu auk fjölda afleiddra þjón-
ustustarfa. Framsóknarflokkurinn
hefur skapað vaxtarskilyrðin sem
fyrirtækin og unga vel menntaða
fólkið okkar þurfti til að blómstra.
Atvinnulífinu hefur verið haldið frá
þeim flokkum sem setja vilja prik í
hjólin.
Árangur áfram
Við framsóknarmenn viljum ekki
stoppa heldur halda áfram og
vinna nýja sigra. Við viljum efla
þau svæði sem ekki fá notið fram-
fara efnahagslífsins í jafnmiklum
mæli og suðvesturhornið og Mið-
Austurland. Við viljum tryggja
sátt milli fólksins í landinu og
skapa öllum tækifæri til að bæta
hag sinn og sinna. Við viljum að
allir geti séð framtíð sína í björtu
ljósi hvar sem þeir búa. Við viljum
að allir geti alið von í brjósti um
bjarta framtíð afkomenda sinna.
Grunnurinn er traustur efnahagur
og sterkt atvinnulíf. Öll velferð
byggist á þessari einföldu stað-
reynd. Við þurfum að huga að úr-
ræðum fyrir Vestfirði, Suðaust-
urland og vestustu og austustu
byggðir Norðurlands, auk ýmissa
minni svæða þar sem útgerð og
fiskvinnsla eru uppistaða atvinnu-
lífsins. Mér finnst að til greina
komi að beita ívilnun í úthlutun
fiskveiðiheimilda fyrir þessi svæði.
Efla þarf Byggðastofnun, m.a. með
því að láta hana úthluta byggða-
kvótanum. Jafnframt má ekki
slaka á í að bæta enn starfsskilyrði
útrásarfyrirtækjanna. Starfsemi
flestra þeirra er að langstærstum
hluta erlendis. Við viljum tryggja
að þau sækist áfram eftir því að
hafa höfuðstöðvar sínar hér en
ekki erlendis. Þingflokksformenn
VG og Samfylkingarinnar hafa
báðir hótað þessum fyrirtækjum
aðgerðum sem gætu valdið því að
þau flýðu land. Þeir vilja setja prik
í hjól þessara fyrirtækja. Það vilj-
um við framsóknarmenn koma í
veg fyrir. Við viljum ekkert stopp,
við viljum framsókn áfram. Við
viljum enn efla efnahagslífið, efla
sátt fólksins í landinu með sértæk-
um aðgerðum fyrir þau svæði sem
liggja utan þungamiðju atvinnulífs-
ins. Við viljum búa í sátt við um-
hverfi okkar nú sem fyrr. Við vilj-
um byggja velferðina fyrir aldna
sem unga, sjúka sem fríska á
sterku efnahagslífi. Við viljum
byggja mennt og listir á sterku
efnahags- og atvinnulífi sem togar
allt áfram og fyllir mannlífið af
bjartsýni og andagift. Við viljum
Framsókn en ekkert stopp.
Áfram Framsókn
en ekkert stopp
Eftir Sæunni Stefánsdóttur
Höfundur er alþingismaður.
„Grundvöllur velferðarinnar er
verðmætasköpun. Gæfa okkar Ís-
lendinga hefur ætíð verið sú að
skilja vel samhengið þarna á milli“.
Geir Haarde, 2007.
BAKLAND efnahagslífs okkar
hefur verið styrkt svo rækilega á
síðustu 16 árum að við getum nú
látið í té bestu
þjónustu á sviði
heilbrigðismála. Við
ráðum við að veita
mjög dýra og sér-
hæfða heilbrigð-
isþjónustu hvort
heldur er lækn-
isaðgerðir, lyf eða
endurhæfing. Íslendingar fá notið
nýjustu uppgötvana og þess besta
sem heimurinn hefur upp á að
bjóða vegna þess að efnahags-
grunnur okkar er svo góður sem
raun ber vitni. Þarna hafa Sjálf-
stæðismenn verið við stýrið.
Ef sjálfstæðum aðilum verður í
vaxandi mæli falið að sinna verk-
efnum, eins og Sjálfstæðisflokk-
urinn ályktar, nýtast fjármunirnir
betur og biðlistar hverfa hratt.
Sjálfstæðisstefnan leggur mikla
áherslu á ábyrgð einstaklinganna,
ábyrgð á eigin heilsu þar á meðal.
Þess vegna snýst ályktun síðasta
landsfundar Sjálfstæðisflokksins
um velferðarmál að stórum hluta
um forvarnir. Var sérstaklega
ályktað um fíkniefna- og krabba-
meinsvarnir ásamt gildi hollra lífs-
hátta.
En við megum ekki gleyma að
það þarf að borga fyrir þjón-
ustuna. Það skilja Sjálfstæð-
ismenn.
Sjálfstæðis-
flokkurinn –
heilbrigði
Eftir Jón Gunnar Hannesson
Höfundur er læknir og
starfar í fjölskyldunefnd
Sjálfstæðisflokksins.
Franskur seiður
Hljómsveitarstjóri ::: David Björkman
Einleikari ::: Olivier Charlier
Hector Berlioz ::: Rómverskt karnival, forleikur
Camille Saint-Saëns ::: Fiðlukonsert nr. 3
Claude Debussy ::: Síðdegi skógarpúkans
Maurice Ravel ::: La Valse
FÖSTUDAGINN 11. MAÍ KL. 19.30
tónleikar á listahátíð í háskólabíói
fl group er aðalstyrktaraðili
sinfóníuhljómsveitar íslands
F
ít
o
n
/S
ÍA
F
I0
2
1
2
6
5
.
L
jó
s
m
y
n
d
©
J
M
S
a
b
b
a
t
Óvæntar breytingar hafa orðið á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar á föstudagskvöldið. Hélène
Grimaud forfallaðist á síðustu stundu en landi hennar, fiðluleikarinn Olivier Charlier, hefur hlaupið
í skarðið. Með því er efnisskrá tónleikanna orðin alfrönsk. Olivier Charlier er einn af eftirsóttustu
fiðluleikurum samtímans og leikur með mörgum af bestu hljómsveitum undir stjórn þekktustu hljóm-
sveitarstjóra veraldar. Við bíðum komu hans því með mikilli eftirvæntingu.
SÍMI 545 2500 ::: WWW.SINFONIA.IS