Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Róm hefur verið nefnd „borgin eilífa“. Sögulegar minjar Rómar, listræn arfleifð og umhverfi endurspegla rætur og sögu vestrænnar menningar í gegnum 2500 ár. Sæktu Róm heim og láttu heillast. Leiðsögn er í höndum Ólafs Gíslasonar sem er sérfróður um sögustaði Rómar. www.uu.is hin forna Vikuferðir meðÓlafi Gíslasyni 12.–19. júní og 7.–14. ágúst ÚRVAL ÚTSÝN ~ LÁGMÚLA 4 108 REYKJAVÍK ~ SÍMI 585 4000 FAX 585 4065 ~ INFO@UU.IS 123.990 kr. á manní tvíbýli Innifalið: Flug, flugvallaskattar, hótel með morgun- verði, allar skoðunarferðir og íslensk fararstjórn. SÍÐUSTU SÆTIN Ómar segir fyr- irtækið hafa byggt starfsemi sína á samstarfi við heimamenn og voru gerðir samningar við Sumarbyggð í Súðavík og Tálknabyggð í Tálknafirði en einnig var þátttakandi í verkefninu fyrirtækið Próton sem á og rekur bátana sem notaðir eru á vegum Fjord Fishing. Ómar segir þýsku ferðamennina hafa komið gagngert til að stunda sjóstangaveiði og dvalið í Súðavík og á Tálknafirði þar sem þeir leigðu hús og sérútbúna sportveiðibáta. Margir þeirra hafi strax ákveðið að koma aftur þar sem þeir voru mjög ánægðir með upplifunina af dvölinni í vestfirsku sjávarþorpi, nálægðinni við sjóinn, fiskimiðin og þjónustuna. Brestir komu í samstarfið „Sumarið 2006 gekk mjög vel, allt var til staðar sem skapaði ánægju og heildarkonseptið stóð undir öllum væntingum okkar. Fyrirhugað var Eftir Guðfinnu Hreiðarsdóttur MIKIÐ var um að vera við gömlu ferjubryggjuna á Arngerðareyri við Ísafjarðardjúp á dögunum þegar þar voru sjósettir átta bátar sem komu á bílum frá Akureyri og sigldu síðan út Djúp til Suðureyrar í Súg- andafirði. Um var að ræða sérhann- aða stangveiðibáta sem smíðaðir voru hjá Seiglu á Akureyri fyrir fyr- irtækið Hvíldarklett á Suðureyri. Fleiri bátar eru væntanlegir seinna í mánuðinum en alls verða þeir 22 talsins. Smíði bátanna er til komin vegna ört vaxandi eftirspurnar eftir sjóstangaveiði og hafa um 1.500 manns bókað bátana í vikuleigu nú í sumar hjá Hvíldarkletti. Sjóstangaveiði er án efa eftirtekt- arverðasta nýjungin í vestfirskri ferðaþjónustu og hefur á stuttum tíma náð að skapa sér ákveðna sér- stöðu sem höfðar til erlendra ferða- manna. Aðallega er um að ræða Þjóðverja sem kaupa ferðirnar í gegnum þýsk ferðaþjónustufyr- irtæki sem eru í samstarfi við vest- firsku fyrirtækin Hvíldarklett ehf. og Fjord Fishing ehf. Það síðarnefnda var stofnað árið 2005 í þeim tilgangi að efla ferða- þjónustu á Vestfjörðum með áherslu á sjóstangaveiði en stofnendur voru einstaklingar, fyrirtæki og sveit- arfélög á Vestfjörðum. Að sögn Óm- ars Más Jónssonar, sveitarstjóra Súðavíkurhrepps og eins forsvars- manna Fjord Fishing ehf., höfðu Súðavíkurhreppur og Tálknafjarð- arhreppur frumkvæði að því að kanna þennan markað og í fram- haldinu var farið í samstarf við þýsku ferðaskrifstofuna Vögler’s Angelereisen í Hamborg. Mikil vinna „Það kostaði mikla vinnu að hrinda hugmyndinni í framkvæmd og mikið reglugerðafargan sem þurfti að fara í gegnum þar sem ýmsir opinberir aðilar komu við sögu, s.s. sjávarútvegsráðuneytið, Siglingastofnun, Fiskistofa og tryggingarfélögin. Það er hins vegar ekki hægt að segja annað en að vinn- an hafi gengið vel því allir aðilar gerðu sér grein fyrir þeim hags- munum sem í húfi voru og tókst okk- ur að landa málinu vorið 2006. Fyrstu hóparnir á vegum Fjord Fishing komu svo í byrjun maí og þeir síðustu fóru um miðjan sept- ember, hátt í eitt þúsund manns.“ að Bíldudalur og Suðureyri mundu bætast í hópinn 2007 og Patreks- fjörður og Bolungarvík sumarið 2008. Síðan urðu ákveðnar breyt- ingar þegar menn áttuðu sig á þeim tækifærum sem þarna lágu og brest- ir komu í samstarfið.“ Að sögn Óm- ars er Fjord Fishing nú í gjör- breyttu starfsumhverfi frá því sem var og þurfti fyrirtækið að fara í gagngera naflaskoðun þar sem starfsemin var skoðuð frá grunni. „Að fenginni reynslu og kynnum af þessum markaði var ákveðið að ganga til samstarfs við aðra ferða- skrifstofu, Andrees Angelreisen í Frankfurt, en jafnframt var ljóst að hugmyndin um samstarf heima- manna, sem lagt var upp með í byrj- un, gekk ekki upp. Unnið er að því að kaupa upp samstarfsaðila Fjord Fishing og sameina þá í eitt stórt fyrirtæki undir einu merki. Þannig verður fyrirtækið margfalt öflugra og er ætlunin að tvöfalda og jafnvel þrefalda fjölda þeirra ferðamanna sem til okkar koma í sjóstangaveiði á næstu tveimur til þremur árum. Jafnframt verður áfram leitast við að dreifa starfseminni á sem flesta firði svæðisins. Þannig höfum við ný- lega bætt við gistiaðstöðu á Bíldudal auk þess sem við höfum óskað eftir því við Ísafjarðarbæ að fá lóðir undir frístundahús á Flateyri og Þingeyri, að lágmarki fimm hús á hvorum stað.“ Ómar segir undirtektir hafa verið jákvæðar og bæjarstjórn Ísa- fjarðarbæjar hafi lýst því yfir að hún teldi mikilvægt að skapa aðstöðu fyrir þá aðila sem vilja byggja upp ferðaþjónustu tengda sjóstangaveiði í Ísafjarðarbæ. Hafi bæjaryfirvöld lagt áherslu á að hraða vinnu við skipulag þannig að sem fyrst liggi fyrir hvaða lóðir geti verið til úthlut- unar undir húsnæði vegna sjó- stangaveiðinnar. Ómar áréttar að ljóst sé að mikil uppbygging sé framundan í kringum sjóstangaveiðina. Fjárfest fyrir 400 milljónir Fyrirtækið Hvíldarklettur ehf. á Suðureyri hefur á mjög skömmum tíma lagt verulegt fjármagn til upp- byggingar ferðaþjónustu í kringum sjóstangaveiðina en fyrirtækið hefur selt 12.000 gistinætur til erlendra ferðamanna í sumar. Á undanförnum mánuðum hefur verið unnið hörðum höndum að því að útvega þessu fólki gistingu og í þeim tilgangi gerði fyrirtækið sam- komulag við Bergvík ehf. um inn- flutning á 12 sumarhúsum frá Hal- liday Homes í Kanada. Níu húsanna verða væntanlega sett niður á Flat- eyri og þrjú á Suðureyri. Einnig er verið að leggja lokahönd á endurnýj- un og breytingar á tíu húsum á Suð- ureyri sem notuð verða sem gisti- rými auk leiguhúsnæðis á Flateyri. Þá lét fyrirtækið smíða 22 sérhann- aða stangveiðibáta, sem fyrr greinir frá. Mun heildarfjárfesting fyr- irtækisins vegna kaupa og breytinga á húsnæði, bátakaupa og annars vera rúmar 400 milljónir króna. Elías Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Hvíldarkletts, segir þetta líklega vera stærsta einstaka uppbyggingarverkefnið í ferðaþjón- ustu á Vestfjörðum frá upphafi. Til að takast á við það hafi hlutafé í fyr- irtækinu verið aukið verulega en jafnframt hafi verið unnið að sam- einingu fyrirtækja í ferðaþjónustu á svæðinu til að styrkja félagið enn frekar. „Vissulega eru margir áhættuþættir í svona dæmi en við teljum verkefnið það gott að áhætt- an sé þess virði. Við erum með langtímasamning við þýsku ferðaskrifstofuna Vögler’s Angelereisen og uppbyggingin hjá okkur byggist á þeim samningi. Við höfum þurft að byggja hratt upp til að geta tekið á móti þeim 1.500 ferðamönnum sem við fáum núna í sumar. Frekari framkvæmdir eru hins vegar ekki á döfinni, a.m.k. ekki á næstu árum, þar sem við gerum ráð fyrir föstum fjölda ferðamanna á hverju ári eða 1.500 til 1800 manns.“ Uppbygging á Flateyri „Við teljum það hámark þess sem Suðureyri og Flateyri geta annað og t.d. tel ég að núna séum við að full- nýta Suðureyri og að þar séu ekki frekari vaxtarmöguleikar. Við horf- um meira til Flateyrar og stefnum á að fara í meiri uppbyggingu þar. Þingeyri hefur líka verið inni í myndinni en við ætlum fyrst að sjá hvernig málin þróast hjá okkur á hinum tveimur stöðunum.“ Spurður um þær framkvæmdir sem fyrirhugaðar eru á Flateyri seg- ir Elías að nauðsynlegt sé að skapa betri umgjörð utan um sjóstanga- veiðimenn sem þar dveljast. Í því skyni hafi fyrirtækið keypt rekst- urinn í söluskálanum á staðnum en jafnframt verði að koma upp sal þar sem ferðamennirnir geti hist og borðað. Þegar hann er spurður um eyðslu þýskra ferðamanna segist hann hafa góða reynslu í þær tvær vikur sem verkefnið hafi núna verið keyrt. „Við fengum til okkar á Suðureyri 30 manns í síðustu viku og erum með 45 manns í þessari viku. Í báðum til- fellum hafa hóparnir tæmt hillurnar í söluskálanum hjá okkur því þeir kaupa allt sem þarf til uppihalds þann tíma sem þeir dvelja hjá okkur. Skiptin á hópunum fara fram á þriðjudögum og þeir sem frá okkur fara leggja af stað kl. 14 og fara í skipulagða skoðunarferð áður en þeir fara í flug. Farið er á söfnin í Ósvör í Bolungarvík og Neðsta- kaupstað á Ísafirði, og svo endað í fiskiveislu á veitingastaðnum Fern- ando’s á Ísafirði. Einhverjir fá sér bílaleigubíla og ferðast sjálfir um svæðið þannig að þessir ferðamenn eru virkir neytendur þegar búið er að kenna þeim á samfélagið.“ Elías segir að gera megi ráð fyrir að á næstu árum verði um 700 til 800 sjóstangaveiðimenn á Suðureyri á hverju sumri sem sé mjög mikilvægt fyrir þetta litla samfélag. Hann nefnir sem dæmi aukna sölu í sölu- skálanum sem gæti hreinlega ekki borið sig á svona litlum stað án ferðaþjónustunnar. Þá verði einnig til fjöldi starfa sem ekki voru til áður vegna þjónustu við ferðamennina, s.s. í veitingasölu og verslun, við þrif á húsum og í kringum útgerðina. Síðast en ekki síst sé rekstrar- grundvöllur ferðaþjónustunnar í heild allt annar þegar hann byggi á svona stórum hópi ferðamanna. Flykkjast í sjóstangaveiði  Hvíldarklettur ehf. á Suðureyri hefur selt 12.000 gistinætur til erlendra ferðamanna í sumar  Fjord Fishing vill leitast við að dreifa starfseminni á sem flesta firði á svæðinu Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Á Suðureyri Elías Guðmundsson, framkvæmdastjóri Hvíldarkletts, segir sjóstangaveiðina líklega stærsta ein- staka uppbyggingarverkefnið í ferðaþjónustu á Vestfjörðum frá upphafi. Í HNOTSKURN » Talið er að Vestfirðir geti annað allt að 10.000 sjóstanga-veiðimönnum á ári og með tilliti til flugs, leigu á húsnæði og bát- um, rútuferðum og svo framvegis yrði um um einn milljarður króna í pottinum. Sé gert ráð fyrir að til viðbótar eyði hver einstaklingur að meðaltali 17.000 krónum á viku í mat og þjónustu, þá bætast við 170 milljónir. » Greiða þarf um 12 til 15 milljónir fyrir kvóta miðað við núverandiverð og að 1.500 sjóstangaveiðimenn geti hver og einn tekið með sér 20 kg af flökum heim aftur. Ómar Már Jónsson Sókn Mikil ásókn er í sjóstangaveiði á Vestfjörðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.