Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 31 um gömlu höfuðstöðvum Landssím- ans eru skilti með áletruninni: Borgarnesræða 1, Borgarnesræða 2, Borgarnesræða 3 og Borg- arnesræða 4. Ljósmyndarinn grípur rautt frisbí með áletruninni „jöfn og frjáls“ og kastar til blaðamanns fyr- ir utan Alþingishúsið. Ekki vill bet- ur til en svo að það skellur utan í bíl Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar. Enn sannast að fólk kann ekki með frels- ið að fara sem því er fært af stjórn- málamönnum. Hún skrúfar niður rúðuna og segir: „Ætlið þið að eyði- leggja nýja rafmagnsbílinn minn?“ Þannig eru frambjóðendur; þeim tekst alltaf að koma skilaboðum áleiðis. Hún kveður með orðunum: „Ég vona að þið verðið í essinu ykk- ar á kjördag.“ Einn vandinn við að tala við frambjóðendur er sá að þeir fara strax að tala í frösum og veröldin verður svarthvít. „Eins og biluð plata,“ segir Margrét Sverrisdóttir skilningsrík þegar blaðamaður kvartar undan þessu. „En mér finnst efnahagsmálin hafa orðið út undan … æ, nú er ég orðin alveg eins,“ bætir hún við og skellihlær. Lögreglubíll er fyrir utan kosn- ingaskrifstofu Frjálslyndra í mið- bænum eftir helgi. Það hefur verið brotin rúða. Gamall þingmaður gengur inn á skrifstofu Samfylking- arinnar og segir með þjósti: „Það er engin almennileg kosningaskrifstofa þar sem ekki hefur verið brotin rúða!“ „Ég fékk þessa sendingu í garð- inn heima,“ segir Jón Magnússon frambjóðandi Frjálslyndra og held- ur á snöru. „Það er svona að hafa verið útmálaður sem helsti rasisti þjóðarinnar. En ég neita að taka það alvarlega. Ég setti á heimasíð- una mína að sá sem missti hana gæti náð í hana heim til mín. Maður veit aldrei hvort þetta eru krakkar. Við búum nú einu sinni á Íslandi.“ Ruslið í bakgarðinum „Þetta er sennilega leiðinlegasta kosningabarátta allra tíma og allra staða,“ segir Ólafur Teitur Guðna- son, blaðamaður á Viðskiptablaðinu, og er ekki að skafa utan af því. „Ég held að hún sé skemmtilegri í ein- ræðisríkjum. Þar poppa fjölmiðlarn- ir þetta þó upp með fagurgala um stjórnvöld. Hér gæta þess allir að rugga ekki bátnum og segja ekki neitt.“ Hann dregur þá ályktun að allir séu þokkalega sáttir við sína stöðu. „En það getur náttúrlega ekki ver- ið,“ gagnályktar hann. „Það má líka halda því fram að þess misskilnings gæti hjá stjórnmálamönnum að far- sælast sé að vera ekki með mjög af- dráttarlausar skoðanir. Svo gæti einhver sagt að ég sé fjölmiðlamað- ur og vilji hafa stuð, en það sé ekki endilega æskilegt. Jafnvel með hlið- sjón af þeim fyrirvara er slegið úr og í og kostirnir ekki nægilega skýrir. Menn forðast að vera það sem þeir eru í raun. Af hverju má ekki Sjálfstæðisflokkurinn tala um einkavæðingu Landsvirkjunar? Af hverju viðurkenna ekki Vinstri grænir að þeim finnst auðmönnum fórnandi fyrir meiri jöfnuð?“ Ef til vill má skýra rólegt yf- irbragð baráttunnar með því að for- maður stærsta stjórnmálaflokksins hefur það yfirbragð að hann láti ekkert koma sér úr jafnvægi. „Það hefur óneitanleg temprað kosninga- baráttuna,“ segir Úlfar Hauksson, lektor í stjórnmálafræði. Og stór átakamál eins og Íraksstríðið urðu aldrei meginmál kosninganna, enda hafði stjórnarandstaðan sagt stuðn- ing Íslands geðþóttaákvörðun tveggja manna, sem farnir eru af sjónarsviðinu. „Þetta hefur verið róleg og stutt barátta,“ segir starfsmaður á kosn- ingaskrifstofu Framsóknar. „Hún fór ekki í gang fyrr en eftir páska og hefur einkennst af því að fólk hefur það ágætt; það eru engin öskrandi málefni til að rífast yfir.“ En hann kvartar undan því að fjöl- miðlar fjalli aðeins um skoð- anakannanir og mögulegar stjórn- armyndanir, en jafnvel ruslið í bakgarðinum sé nær áhugasviði al- mennings. Frambjóðandi Íslandshreyfing- arinnar kvartar einnig undan fjöl- miðlaumfjöllun, en sú gagnrýni lýt- ur að því að allir flokkar séu steyptir í sama mót af fjölmiðlum og ekkert svigrúm gefist til að skera sig úr. „Þetta er eins og að synda í sírópi,“ segir hún. „Það kemur aldrei fram hvern mann frambjóðendur hafa að geyma. Þeim er bara skipað á bás og síðan er þetta eins og Gettu betur – hver er bestur í að svara.“ Kosningabaráttan er vissulega í föstum skorðum. Á kjördag byrjar kosningadagurinn yfirleitt snemma hjá frambjóðendum með morg- unkaffi og síðan kjósa þeir klukkan 10. Eftir það eru vaktaskipti á sím- um og í kosningakaffi, auk þess sem farið er á viðburði listahátíðar. „Þannig gengur þetta í höfr- ungahlaupi og síðasta bókunin er á kosninganótt,“ segir Maríanna Morgunblaðið/Golli Leikur Leikherbergi fyrir börnin á kosningaskrifstofu Framsóknar. Í HNOTSKURN »Tveggja mánaða törn lauk ígærkvöldi. Margar fjöl- skyldur fá þingmenn aftur heim þegar vertíðinni lýkur. »Sonur Bjarna Benedikts-sonar þingmanns dregur silunga úr Vífilsstaðalæknum með priki, girni og gamalli flugu sem hann þræðir rækju upp á. Pabbinn hefur ekkert komist í geymsluna að sækja veiðistöng. Það stendur til bóta. »Guðfríður Lilja Grét-arsdóttir gerir ráð fyrir að sólskini. „Ég ætla í sund og í góðan bíltúr á Þingvöll með minni góðu konu til að slappa af.“ Við finnum kaupendur og seljendur að fyrirtækjum Firma Consulting ehf. (www.firmaconsulting.is) er ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfir sig í ráðgjöf við fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja. Firma Consulting ehf. leggur áherslu á persónulega og faglega þjónustu með áherslu á gæði, trúnað og traust í vinnubrögðum sínum. Firma Consulting ehf. veitir m.a. eftirtalda þjónustu: • Aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja. • Aðstoð við verðmat á fyrirtækjum. • Aðstoð við sameiningu fyrirtækja. • Aðstoð við verðmat á fasteignum. • Aðstoð við gerð kaupsamninga fyrirtækja og fasteigna. • Aðstoð við kaup og sölu fyrirtækja erlendis í samstarfi við sérhæfð fyrirtæki á því sviði. • Almenn rekstrarráðgjöf. Firma Consulting ehf., Þingaseli 10, 109 Reykja- vík, GSM: (354) 820 8800 og (354) 896 6665. Fax: (354) 557 7766. Veffang: firmaconsulting.is Magnús Hreggviðsson viðskipta- fræðingur og löggiltur fyrirtækja-, fasteigna- og skipasali. Magnús er með áratuga reynslu af endurskoðunar- störfum, sem rekstrarráðgjafi, fyrirtækja- og fasteignasali, útgefandi, fasteignarekandi, „land-developer“ í Smárahvammi og starfandi stjórnar- formaður í nokkrum fyrirtækjum. Er aðalráðgjafi hjá Firma Consulting ehf. magnus@firmaconsulting.is Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Montreal 24. og 31. maí. Þetta er einstakt tækifæri til að njóta vorsins og lífsins í þessari stórkostlega spen- nandi borg sem er önnur stærsta borg Kanada. Í borginni mætast gamli og nýi timinn, rík sagan og iðandi nýbreytnin á einstaklega skemmtilegan hátt. Það er frábært að skoða sig um, versla og njóta lífsins í Montreal; fallegar bygg- ingar, endalaust úrval verslana og veitingastaða og mjög hag- stætt verðlag. Gríptu tækifærið og smelltu þér til Montreal og njóttu þess besta sem þessi spennandi heimsborg hefur að bjóða. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Montreal Kanada 24. og 31. maí frá kr. 33.990 Vikuferð - siðustu sætin Verð kr. 33.990 - Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Vikuferð 24.-31. maí Verð kr. 49.990 - Vikuferð Netverð á mann. Flug, skattar og gisting í tvíbýli á Travelodge Montreal m/morgunverði í 7 nætur, 24. eða 31. maí. Aukagjald fyrir einbýli kr. 19.900. Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.900. Munið Mastercard ferðaávísunina Flug og gisting í viku - aðeins kr. 49.990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.