Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 43 árásir Morgunblaðsins á Samfylkinguna! Hættan, sem stafar af flutningabílunum, er stað- reynd enda hefur hún orðið til þess, að pólitísk sam- staða hefur orðið um nauðsyn þess að tvöfalda þjóð- vegakerfið sums staðar en breikka vegina annars staðar. Það eru því fleiri en Morgunblaðið, sem hafa komizt að þeirri niðurstöðu, að umferð flutningabíla væri orðin hættuleg, en hvað hefur það með að gera þá skoðun sumra Samfylkingarmanna að Morgun- blaðinu væri sérstaklega uppsigað við núverandi formann þess flokks?! Auðvitað er sú skoðun Samfylkingarmanna tóm vitleysa. Morgunblaðið hefur fjallað um sjónarmið og skoðanir Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur eins og annarra forystumanna í stjórnmálum. Og hefur fullt leyfi til að hafa sínar skoðanir á störfum henn- ar sem formanns þess flokks en upphlaup Samfylk- ingarmanna af þeim sökum segja sögu um eitthvað allt annað en það sem Stefán Benediktsson kallar „ókurteisi og æpandi karlrembu“, og eignar Morg- unblaðinu. Það þarf að fara hálfa öld aftur í tímann til að finna þeim orðum Stefáns Benediktssonar stað, að Morgunblaðið sé bæði málgagn Sjálfstæðisflokks- ins og áróðursvél eins og hann heldur fram. Þá var það rétt en ekki nú. Ef tekið væri saman hve oft starfsmenn ritstjórn- ar Morgunblaðsins áttu samskipti við skrifstofur eða kosningaskrifstofur flokka, hvort sem um væri að ræða símtöl eða tölvupóstssamskipti eða per- sónuleg samtöl, á síðustu þremur mánuðum mundu niðurstöðurnar áreiðanlega koma mönnum á óvart. Þá kæmi í ljós, að samskiptin við þessa aðila á veg- um Sjálfstæðisflokksins hafa verið í algeru lág- marki og sennilega aldrei minni en í aðdraganda þessara kosninga en samskipti við Samfylkinguna hafa sennilega verið meiri en við nokkurn annan flokk vegna þess að Samfylkingin hefur sótt meira á um margvíslega fyrirgreiðslu og þjónustu en nokk- ur annar flokkur. Stefán Benediktsson telur í tilvitnaðri grein, að Staksteinaskrif samtímans geti orðið rannsóknar- efni seinni tíma. Það er ekki rétt hjá honum. Þar er bara að finna umfjöllun um dægurpólitík. Hins veg- ar geta Staksteinaskrif Morgunblaðsins á árunum 1960–1970 (og að einhverju leyti fram undir 1975) verið „rannsóknarefni“ vegna þess að þar er að finna raunverulegar upplýsingar um málefni, sem snúa að meginlínum í stjórnmálum þeirra tíma. Annars er það stöðugt undrunarefni fyrir þann hóp, sem sér um skrif ritstjórnargreina Morgun- blaðsins, hvað sumir aðrir lesa út úr þeim skrifum. Menn virðast dunda sér við það að lesa eitthvað allt annað út úr þeim en um er að ræða og stunda eins konar Kremlarfræði í þeim efnum. Það getur verið skemmtilegt og stundum jafnvel fyndið en í flestum tilvikum í órafjarlægð frá raunveruleikanum. Í eina tíð … Í eina tíð var Morgunblaðið mjög nákomið Sjálfstæðisflokknum. Í dag er það mál- svari áþekkra grundvallarsjónarmiða og Sjálfstæðisflokkurinn berst fyrir en hef- ur mjög oft allt aðrar skoðanir í málefn- um líðandi stundar. Hins vegar eru mikil persónuleg tengsl til staðar, sem helgast af þeirri athyglisverðu staðreynd að þrír síðustu formenn Sjálfstæðisflokksins, Þorsteinn Pálsson, Davíð Oddsson og Geir H. Haarde, störfuðu allir við blað- ið, þegar þeir voru ungir menn, og Björn Bjarnason að auki. Þeir tóku m.a. þátt í að skrifa þá dálka, sem hér hafa verið til umfjöllunar, og óhikað má segja, að Davíð hafi skrifað skemmtilegustu og fyndnustu Staksteina, sem birtzt hafa í Morgunblaðinu. Svo eru aðrir fyrrverandi forystumenn Sjálfstæðis- flokksins, sem áreiðanlega telja, að Morgunblaðið hafi verið þeim andstætt, og þar má sennilega fremstan telja Friðrik Sophusson, fyrrverandi varaformann Sjálfstæðisflokksins. Líklega litu hann, Gunnar Thoroddsen og Albert Guðmundsson ekki á Morgunblaðið sem „sitt“ blað, þótt samskipt- in við þá alla þrjá hafi á sínum tíma verið góð á köfl- um og vinátta ríki á milli þeirra, sem ábyrgð bera á ritstjórn blaðsins, og Friðriks Sophussonar í dag. Þótt Morgunblaðið hafi tekið mikinn þátt í stjórnmálabaráttu Sjálfstæðisflokksins fyrr á tíð var það þó nánast alltaf á forsendum blaðsins sjálfs. Kosningavertíðin var öðru vísi á Morgunblaðinu fyrir fjórum áratugum en nú. Þá var daglega unnið við það að finna efni og baráttuaðferðir, sem gátu komið Sjálfstæðisflokknum til góða, en þau störf fóru fram innan ritstjórnarinnar en ekki í tengslum við kosningaskrifstofur Sjálfstæðisflokksins. Forystumenn Sjálfstæðisflokksins sáust sjaldan á ritstjórnarskrifstofum blaðsins í kosningabaráttu. Þó er eftirminnileg heimsókn Bjarna Benedikts- sonar á ritstjórnarskrifstofur Morgunblaðsins í Að- alstræti tveimur dögum fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar 1970. Þá var að baki ein dýpsta efnahagskreppa, sem gengið hafði yfir á 20. öldinni, og augljóst, að hún gat haft mikil áhrif á úrslit kosn- inganna Sjálfstæðisflokknum í óhag. Bjarni sat drykklanga stund og talaði við þá, sem á þeim tíma önnuðust stjórnmálaskrif Morgunblaðsins, var afar svartsýnn á úrslit kosninganna og lýsti þeirri skoð- un við viðstadda, að Reykjavík væri orðin svo stór borg að það væri nánast ómögulegt fyrir einn flokk að halda þar meirihluta lengur. Sjálfstæðisflokk- urinn slapp fyrir horn í það skiptið. En átta árum seinna tapaðist meirihlutinn. Þá kosninganótt var ritstjórn Morgunblaðsins í stöð- ugu sambandi við Geir Hallgrímsson, sem þá var formaður Sjálfstæðisflokksins og forsætisráðherra. Geir tók úrslitunum með mikilli stillingu en gerði sér glögga grein fyrir að að honum yrði sótt innan flokksins í kjölfarið sem og reyndist rétt. Samskiptum af þessu tagi lauk frá og með kosn- ingunum 1983. Frá og með þeim tíma hafa þau verið með allt öðrum hætti og hugmyndir manna í öðrum flokkum um þessi samskipti einfaldlega rangar. Hins vegar fer ekki á milli mála, að á ritstjórn Morgunblaðsins eru enn menn, sem bera hlýjan hug til þeirra gömlu samstarfsmanna, sem hér voru nefndir að framan, og vilja veg þeirra sem mestan. En það á líka við um þingmenn í öðrum flokkum. Þórunn Sveinbjarnardóttir, alþingismaður Sam- fylkingar, er fyrrverandi starfsmaður Morgun- blaðsins og óhikað má fullyrða, að gamlir sam- starfsmenn hennar á Morgunblaðinu óska henni alls góðs á stjórnmálaferli hennar og vilja frekar styðja hana til dáða. En eins og gengur og gerist í mannlegum sam- skiptum getur ýmislegt komið upp á, líka í sam- skiptum blaðs og fyrrverandi starfsmanna þess. Þannig var Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, blaðamaður á Morgunblaðinu á sínum yngri árum. Á ýmsu hefur gengið í samskiptum hans og ritstjórnar Morgunblaðsins á seinni árum en oftar en ekki eru slík átök tímabundin. Sú var tíðin, að þingfréttaritarar Morgunblaðsins voru yfirleitt ungir Sjálfstæðismenn. Það er liðin tíð eins og m.a. hefur komið í ljós í vetur, þegar ung og galvösk kona, sem frekar hefur verið talin standa nær Vinstri grænum en Sjálfstæðisflokki, hefur staðið fyrir þeim skrifum með myndarbrag. Kremlarfræðin hafa jafnvel gengið svo langt að einhverjir hafa lesið pólitík í þágu Sjálfstæðis- flokksins út úr myndskeiðum, sem birtzt hafa á mbl.is, netútgáfu Morgunblaðsins. Sú fræði- mennska hefur áreiðanlega valdið mikilli skemmt- an hjá þeim, sem staðið hafa að gerð myndskeiða. Það er einfaldlega ekki hægt að stjórna stórum fjöl- miðlum eins og Morgunblaðinu og mbl.is í dag á þann veg að móta allt, smátt og stórt, með lit ein- hverra tiltekinna stjórnmálaskoðana. En kannski eru þetta síðustu kosningarnar, sem áróðri af þessu tagi er haldið uppi gegn Morgun- blaðinu. Síðustu móhíkanarnir fara að hverfa á braut. » Þátttaka hins almenna borgara í þjóðfélagsumræð-um, hvort sem er á síðum Morgunblaðsins, annarra blaða eða á vettvangi ljósvakamiðla, er mjög þýðingar- mikil fyrir lýðræðið í landinu og sennilega er svo almenn þátttaka frekar undantekning en regla ef tekið er mið af helztu nágrannalöndum okkar. rbréf Morgunblaðið/G. Rúnar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.