Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 58

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 58
Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn 58 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN FASTEIGNA- MARKAÐURINN ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17. Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/. Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali Miðás, Svínadal. Fallegur og vel staðsettur 54 fm sumarb. auk 21 fm svefnl. á frábær- um útsýnisstað í Svínadal ofan við Eyrarvatn í um 40 mín. akstur frá Rvík. Búst. er byggður 2000 m. ver- önd, skjólv. og heitum potti. Gufu- baðshús. Frá bústaðnum er óhindr- að útsýni að vatninu og víðar. Stutt í golfv. Allt innbú og bátur með utanborðsmótor fylgir. Verð 23,0 millj. Eignarland við Reyki í Bláskógabyggð 6.000 fm eignarland í Bláskóga- byggð, nálægt Reykholti, grasivaxið og með góðu útsýni. Á landinu er 20 fm bjálkahús (gestahús) með ein- angrun í lofti og gólfi. Hitaveita og kalt vatn er í húsinu. Gert er ráð fyr- ir að byggja megi heilsárshús allt að 80 fm á landinu. Rafmagn er við lóðarmörk. Til afh. við kaup- samn. Verð 7,9 millj. Vatnsendahlíð, Skorradal. 52 fm sumarbústaður við Vatns- endahlíð í Skorradal með frábæru útsýni yfir vatn og fjöll. Bústaðurinn er byggður1989, vel skipulagður með 3 herb. rúmgóðir stofu með ar- inofni, eldhús tengt stofu og baðher- bergi með sturtu. Frábært útsýni yfir vatn og fjöll. Nýr leigusamningur til 20 ára. Golfvöllur í um 5 mín. akst- ursfjarlægð. Verð 18,9 millj. Við Svínavatn. Til sölu þrjú heilsárshús við Svína- vatn - Öldubyggð. Húsin afh. fullbú- in með verönd, skjólveggjum og heitum potti. Allur frágangur er mjög vandaður. Eignarlóð. Möguleg skipti á íbúð. Nánari uppl. á skrif- stofu. Í landi Ásgarðs, Grímsnesi. Tvö glæsileg heilsárshús í landi Ás- garðs, Grímsnesi. Húsin eru að gólf- fleti um 91 fm hvort hús auk um 36 fm svefn- og geymslulofts. Einnig er á lóðunum um 20 fm gestahús. Hús- in eru fullfrág. að innan sem utan á vandaðan og smekkl. hátt. Um 150 fm timburv. er umhv. húsið . Mikið útsýni. Nánari uppl. á skrifstofu. Úthlíð, Bláskógabyggð. 56 fm sumarbústaður í fallegu um- hverfi við Kóngsveg, Bláskóga- byggð. Bústaðurinn skiptist í and- dyri, 3 herb., opið eldhús, stofu, baðherbergi með sturtuklefa og geymslu. Timburverönd með heit- um potti. Fallegt útsýni. Leigulóð. Verð 15,5 millj. Í landi Dagverðarness við Skorradalsvatn Glæsilegur 60 fm sumarb. við Dag- verðarnes á frábærum útsýnisstað niður við Skorradalsvatn. Bústaður- inn skiptist í forstofu, 3 herb. stofu, eldhús og baðh. Stór verönd umlyk- ur húsið á alla vegu með göngustíg- um og lýsingu. Lóðin skógi vaxin og vísar mót suðri. Góð aðstaða f.sportbát og bryggja fylgir. Verð 24,9 millj. SUMARBÚSTAÐIR Fossvogur Glæsilegt endaraðhús Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Stórglæsilegt 206,3 fm endaraðhús a.m.t. 19,4 fm bílskúr. Húsið stendur neðan götu og skiptist í forstofu, eldhús með borð- krók, búr, hol, gestasyrtingu stofur, þrjú svefnherbergi, fataherbergi, baðherbergi, sjónvarpshol (herbergi), þvottaherbergi og geymslu með bakdyrum. Húsið er hið glæsilegasta og var allt endurnýjað að inn- an fyrir u.þ.b. þremur árum, eru m.a. sérsmíðaðar innréttingar, Miele tæki, fjarstýrðar innbyggðar lýsingar, mustang flísar og olíuborið eikarparket á gólfum. Falleg lóð og u.þ.b. 100 fermetra suðurverönd með rásuðum harð- við. 6611 Eign í algjörum sérflokki. Bréf til blaðsins Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í OFVITANUM lýsir Þórbergur því þegar Erlendur í Unuhúsi sótti hann þar sem hann var að dauða kominn vegna hungurs og næringarskorts og lá fyrir í herberginu sínu í húsi Þor- steins Erlingssonar í Bergstaða- stræti. Hann lýsir leiðinni í þaula og síðasta spölnum að Unuhúsi lýsir hann svo: ,,Úr Fischersundi gengum við suðvestur yfir Mjóstræti og það- an í vestur móti hægum halla upp dá- lítið sund, sem fyrst var milli tveggja húsa, síðan milli geymslukofa og rimlagirðingar á hægri hönd og báru- járnsgirðingar til vinstri. Þetta sund lá upp að lóðarbletti, sem líktist að útliti hálfgrónum hlaðvarpa. En inni á lóðinni, nokkra faðma fyrir vestan og suðvestan sundið, stóð rautt timb- urhús tvílyft, líkast kassa að lögun með örlitlu hallandi þaki. Á norður- enda hússins sem náði norður á móts við sundið, voru dyr með litlum palli fyrir framan. Á lóðinni upp á pallinn voru þrjár tröppur...“ Þeir eru komn- ir í Unuhús sem nú er Garðastræti 15. Nú geri ég ráð fyrir því að gömul hús í Grjótaþorpi séu friðuð. En hvernig er með þennan stíg? Er hann friðaður? Stígurinn er í stórum drátt- um óbreyttur frá þeim tíma þegar Erlendur í Unuhúsi reisir ofvitann upp hálfdauðan, ég hygg að það hafi verið 1911. Þegar maður stingur sér upp úr Mjóstrætinu er enn á vinstri hönd húsið sem hann Snæbjörn Að- alsteinsson lögreglumaður ólst upp í og húsið hinum megin, geymslukof- inn er á hægri hönd og gamlar girð- ingar fram með beggja vegna og tröppur upp að Unuhúsi. Jarðvegur er sá sami. Stígurinn hefur haldið sér, í öllu falli er hann nokkurn veg- inn eins og hann var um miðja síð- ustu öld. Mér er málið hugstætt. Þannig er að upp úr 1950 fór ég að fara þennan stíg fyrst með móður minni og síðan einsamall í heimsókn til ömmu minn- ar Ingunnar Einarsdóttur og Krist- ínar Ermenreksdóttur, dóttur henn- ar, sem þá bjuggu á efri hæðinni í Unuhúsi. Ýmis skáld og listamenn bjuggu á neðri hæðinni og man ég lengst eftir Einari Braga sem var ljúfur maður og yndislegur. Öll sú leið sem þeir Þórbergur og Erlendur fóru, nema þetta stígkorn, er nú farin veg allrar veraldar og ég hef áhyggjur af stígnum. Hann er farinn að ganga svolítið til, bárujárn- ið á hægri hönd þegar gengið er upp eftir, er rifið. Einhver hefur fyrir mörgum árum sett sprekhrúgu á stíginn. Ef þessu stígur er ekki friðaður þá á að friða hann ásamt Unuhúsi sem er örugglega friðað og í góðri hirðu. En það er ekki nóg. Það þarf að vernda hann, halda honum við og það sem meira er: það þarf að setja upp skilti um þennan stíg og það þarf að setja upp skilti um Unuhús. Þetta eru hvort tveggja sögulegar minjar. Við Reykvíkingar þurfum að hugsa meira um miðbæinn okkar. Um leið og hann á að vera lifandi miðbær á hann að geta verið sögusafn með merktum gönguleiðum, t.d. Þórbergs og skiltum sem rekja sögu gatna og húsa. Eitthvað er nú af þessu sjálf- sagt en ekki næstum því nóg og ekki næstum því nógu skilmerkilegt. En ég hef áhyggjur af stígnum. Svona stíga á að nota til þess að minna okkur á það hefur verið lifað áður og það verður lifað áfram. BALDUR KRISTJÁNSSON sóknarprestur í Þorlákshöfn. Stígurinn upp að Unuhúsi Frá Baldri Kristjánssyni
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.