Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ F yrir brunann síðasta vetrardag beindi al- menningur á höf- uðborgarsvæðinu sjónum sínum að ein- stökum og ólíkum skipulagsmálum. Í Mosfellsbæ er tekist á um tengingu nýrra hverfa; Helga- fellshverfis og Leirvogshverfis. Í Hafnarfirði felldu íbúarnir stækkun álversins í Straumsvík, sem var að hluta skipulagsmál. Á Álftanesi eru menn á öndverðum meiði um skipu- lag miðbæjarins, Garðbæingar leggjast gegn hugmyndum Kópa- vogs um uppbyggingu á Glaðheima- hverfi af umferðartæknilegum ástæðum. Sá neisti gæti orðið að skipulagsbáli á höfuðborgarsvæð- inu. Stjórnendur Kópavogsbæjar berjast á tvennum skipulags- vígstöðvum, utan bæjar og innan, því skoðanir bæjarbúa eru skiptar um skipulagshugmyndir yzt á Kárs- nesi. Og á Seltjarnarnesi takast menn á um hugmyndir að landfyll- ingum norðan ness og sunnan. Það er líka í Smáranum í Kópavogi, sem hæsta hús á Íslandi mun rísa í 78 metra, en þær fyrirætlanir og fleiri turnar á höfuðborgarsvæðinu hafa vakið menn til umhugsunar og um- ræðna um útlit slíkra bygginga og staðsetningu. Um skipulagsmál innan borg- armarkanna hefur margt verið fjallað; um Vatnsmýrina og Miklu- braut. Þar eru líka mörg stök skipu- lagsmál umdeild, en þau skipulags- mál sem áttu hug flestra Reykvíkinga, þegar eldurinn kvikn- aði í Austurstræti, voru Alþing- isreiturinn, Slippa- og Ellings- enreitur og Laugavegurinn. Við Laugaveginn stendur styrrinn í raun um þrjá reiti; Frakkastígsreit- inn (sem fjallað var um í Morg- unblaðinu 22. apríl sl.: Vilja leyfi fyr- ir stærri húsum við Laugaveg) Laugaveg 33-35 og Laugaveg 4 og 6 með Skólavörðustíg 1a (sem fjallað var um í Morgunblaðinu 5. apríl sl.: Húsaröð sem tilheyrir elsta hluta Laugavegar). Tillögur gera ráð fyrir því að húsin Laugavegur 41-45 víki, nema Vínberið (Laugavegur 43), og að húsin Laugavegur 4 og 6 og Skólavörðustígur 1a verði rifin til að rýma fyrir þriggja hæða húsi með risi. Það er einkum tillaga um að rífa Laugaveg 41, 42, 44 og 45 sem hefur sætt mótmælum. Þessir reitir eru nú í skipulagsmeðferð og menn bíða í ofvæni þess sem koma skal. Borg- aryfirvöld hafa tekið í taumana á Slippasvæðinu og Alliance-húsið og Daníelsslippur, sem til stóð að rífa, fá að standa áfram með tengingu við Sjóminjasafnið í huga. Til þessa framtaks borgaryfirvalda og um- mæla borgarstjóra um uppbyggingu á horni Austurstrætis og Lækj- argötu líta húsaverndunarmenn með „von fyrir Laugaveginn“. Tónninn sleginn í bjarma elds Hvorki lóðirnar né húsin á horni Austurstætis og Lækjargötu eru í BORG Í DEIGLU ARFLEIFÐ Í BRUNARÚST Ljósm. Sigfús Eymundsson Sagan Austurstræti um aldamótin 1900. Lengst til vinstri er Austurstræti 22, nú er brunnið en vilji er að endurbyggja sem næst upprunalegri mynd. Morgunblaðið/RAX Eldlínan Mikil mótmæli hafa verið vegna tillagna um að rífa húsin Laugavegur 41-45 og er uppbygging á Frakka- stígsreitnum, sem þau marka með bakhúsum, Frakkastíg 8 og Hverfisgötu 58 og 60 nú í endurvinnslu. »Bruninn … hefur verkað eins og olía á eld í umræðunni um skipulagsmál. Vilji borgaryf- irvalda að end- urbyggja húsin tvö, sem skemmd- ust í eldi síðasta vetrardag, rímar við hugmyndir margra. Óvenju mörg skipulagsmál hafa verið í brenni- depli síðustu miss- erin og hér er skarað í sum þeirra. Í HNOTSKURN » Húsið Austurstræti 22 varelzta húsið við Austur- stræti, byggt 1801 eða 1802. Ís- leifur Einarsson dómari við Landsyfirrtéttinn lét byggja húsið og seldi Trampoe greifa 1805. »Þegar Jör-undur hundadaga- kóngur steypti stjórn landsins 1809 var Trampe greifi handtekinn í húsinu og Jörundur settist þar að það sumar sem hann ríkti á landinu bláa. »Á árunum á eftir bjó stift-amtmaður í húsinu, en 1820 var Landsyfirréttur fluttur í húsið og fangaklefar hafðir á loftinu. Prestaskólinn fékk svo húsið 1871 og var þar til þess að Háskóli Íslands var stofn- aður 1911. »Árið 1915 keypti HaraldurÁrnason kaupmaður húsið og rak þar Haraldarbúð. Síð- ustu árin voru reknir veitinga- staðir í húsinu. Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.