Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 30
stjórnmál 30 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ Góðan daginn! Góðan daginn! Góðan daginn! Kaffipoka? Tópas? Blöðru? U ngur frambjóðandi stendur í Kringlunni og reynir að ná at- hygli fólks sem á leið framhjá básnum. En það gengur misvel. Góðan daginn! „Aumingja fólkið,“ segir kona við rúllustigann og horfir á frambjóð- endur við Hagkaup. „Svo kemur skríllinn og þau þurfa að brosa og taka undir vitleysuna.“ Góðan daginn! En frambjóðendurnir bera sig vel. „Það er skárra að vera við verslanir en að fara í vinnustaða- heimsóknir,“ segir einn þeirra. „Á vinnustöðum erum við að stela há- degishléinu, en í verslunarmið- stöðvum stjórnar fólk því sjálft hvort það stoppar.“ Hann viðurkennir þó að það geti verið erfitt að koma sér af stað, einkum í upphafi kosningabarátt- unnar. „Þá þarf maður að kafa djúpt í sjálfum sér og komast að því hvað maður hefur fram að færa sem skiptir máli í lífi fólks. Eftir það er þetta ekkert mál.“ Góðan daginn! Annar stillir upp básnum og líkir því hlæjandi við Tupperware- kynningu þegar hann dregur upp alls konar varning, – allt fengið af lagernum í skottinu á bílnum. „Nú eru bílar frambjóðenda eins og kosningaskrifstofur,“ segir hann. Eins og biluð plata Almennt er lítið um að vera á kosningaskrifstofum nema haldnir séu fundir eða aðrar uppákomur. „Það fer allt fram í sjónvarpi og á vinnustaðafundum,“ segir starfs- maður á mannlausri skrifstofu. „Þá er talað í hádeginu yfir fólki sem hefur engan áhuga á því að láta trufla sig, hvað þá hlusta á stjórn- málamenn klóra augun hver úr öðr- um.“ En mikil vinna fer fram baksviðs, einkum í kringum hápunkta barátt- unnar. Þó að frambjóðendurnir séu að mestu sýnilegir kjósendum sér fjöldi manns um að plana, hringja, baka og undirbúa fundi, svo fátt eitt sé nefnt. Svo þarf að taka á móti fólki, brosa og spjalla. „Vantar myndir? Á ég að vera Óskar?“ spyr starfs- maður á kosningaskrifstofu Fram- sóknar og brosir út í eitt. Þar geng- ur fólk í öll störf. Á skrifstofu Framsóknar segir Óskar Bergsson sjálfur, kosningastjórinn, eða að minnsta kosti rödd í símanum sem rétt er að blaðamanni, segir að spennan sé mikil fyrir kosningar. „Þetta er svo spennandi. Það er fátt sem toppar það.“ – Er þetta meira spennandi en Evróvisjón? „Þetta er meira að segja meira spennandi en hestamennska!“ Svandís Svavarsdóttir borg- arfulltrúi lítur upp frá tölvuskjánum á kosningaskrifstofu Vinstri grænna og er létt yfir henni „Þið hefðuð átt að koma fyrir klukkutíma þegar Netið hrundi og Suðurland beið eft- ir auglýsingu.“ Sú sem situr gegnt henni dregur upp varalit þegar hún sér ljósmyndarann: „Ég veit að ég fengi mömmu í símann ef það kæmi mynd og enginn varalitur.“ Á bakhlið hurðarinnar eru geymdar skondnar úrklippur um önnur framboð og kosningapésar þeirra neðst í skjalabunkum, en fyr- ir miðju herbergi hanga úrklippur um framboð Vinstri grænna, þar á meðal Staksteinar úr Morg- unblaðinu. „Stundum eru Stak- steinar uppáhaldsefnið og stundum alveg óþolandi,“ segir Svandís bros- andi. „Þið megið alveg taka einn til tvo mola,“ segir starfsmaður höstum rómi við tvo drengi á skrifstofu Samfylkingarinnar í miðbænum. Þeir eru með lúkurnar fullar af sæl- gæti. Það kemur á þá hik. Svo hlaupa þeir út. Það er nokkuð um slíkar heimsóknir heyrir blaðamað- ur. Þetta er flokkurinn sem vill allt fyrir börnin gera. Kannski er þetta í línu við loforðin um ókeypis tann- verndina? Yfir gömlum símaklefum í þess- Höfrungahlaup stjórnmálanna Eitt er það sem blasir við kjósendum í kosn- ingabaráttu. Svo býr annar veruleiki að baki. Eða hvað? Pétur Blön- dal fylgdist með fram- bjóðendum „synda í sír- ópi“ og skoðar hina hlið kosningabaráttunnar. Morgunblaðið/Golli Í snörunni Jón Magnússon sýnir hvað hann fann í garðinum. Morgunblaðið/Golli Í hádeginu Ólafur Hannibalsson ávarpar starfsmenn Landspítalans. Morgunblaðið/Golli Forystan Ingibjörg Sólrúnu og Össuri var parkerað við Alþingi. Morgunblaðið/ÞÖK Merkilegt Það er mikilvægt í kosningabaráttunni að vera vel merktur. Original Arctic Root Ein vinsælasta lækningajurt heims Original Arctic Root öðru nafni Burnirót er ein vinsælasta lækningajurtin í heiminum í dag. Klínískar rannsóknir hafa leitt í ljós að hún eflir einbeitingu, úthald og vinnur gegn streitu og álagi. Vinnur gegn streitu og álagi Original Arctic Root er fljótverkandi og þeir sem nota hana finna jákvæða breytingu á einbeitingu og úthaldi á skömmum tíma. Original Arctic Root hefur svo sannarlega slegið í gegn á Íslandi þar sem hún nýtur nú þegar mikilla vinsælda. Fæst í apótekum og heilsubúðum. Heilsuvara ársins í Svíþjóð 2003, 2004 og 2005 K R A F T A V E R K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.