Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 80
80 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Margir þekkja brasilískatónlistarmanninn Caet-ano Veloso, helst fyrirþað er hann söng
dúfnasönginn, Cucurrucucu Paloma,
í Almodóvar-myndinni Hable con
ella. Hann hefur þó afrekað meira en
það, á að baki á sjötta tug af breið-
skífum á fjórum áratugum, en fyrsta
breiðskífa hans, Domingo, kom út
1967. Sú skífa, sem hann gerði með
Gal Costa, hafði að geyma boss-
anovalega músík, en þegar á næstu
plötu, sem hét einfaldlega Caetano
Veloso, breytti hann um stefnu, spil-
aði tilraunakennt popp, og hefur
breytt reglulega alla tíð. Gott dæmi
um það er ný skífa hans, Cê, sem
kom út fyrir skemmstu, en henni er
eiginlega best að lýsa sem brasilískri
nýbylgju, sem verður að teljast
harla gott í ljósi þess að listamað-
urinn sem stendur að henni er kom-
inn á sjötugsaldurinn.
Byrjað á bossanova
Eins og getið er byrjaði Veloso á
bossanovakenndu poppi, en sneri sér
svo að meiri tilraunamennsku og
varð fljótlega framarlega í flokki
ungra listamanna sem sköpuðu nýja
gerð af brasilískri dægurtónlist,
hrærðu saman brasilískum hefðum
og súru rokki svo úr varð tónlist-
arstefna sem kallaðist Tropicália eða
Tropicalismo og byggðist einna helst
á því að gera ekkert það sem áður
hafði verið gert; allt var vert að
prófa að minnsta kosti einu sinni.
Veloso og Gil voru fremstir meðal
jafningja í Tropicália-hreyfingunni,
en af öðrum þátttakendum í henni
má nefna hljómsveitina Tom Zé, Gal
Costa og Os Mutantes.
Caetano Veloso sat ekki lengi
fastur í Tropicália-sýru, heldur var
hann leitandi listamaður og segja má
að hver plata sem hann gaf út á átt-
unda áratugnum hafi verið tilraun til
að gera eitthvað nýtt. Hann og fleiri
ungir brasilískir listamenn hrintu af
stað tónlistarhreyfingu sem kölluð
var MBP, musica popular Brasileira.
Í þeim lauslega félagsskap voru
margir tónlistarmenn sem áttu eftir
að verða þekktustu listamenn þjóð-
arinnar, en undir merkimiðann
MPB féllu ótal ólíkar tónlist-
arstefnur; samba, bossanova, til-
raunakennt popp og hreinræktuð
framúrstefna.
Sendur í útlegð
Á þessum árum var herfor-
ingjastjórn við völd í Brasilíu og
ungu listamennirnir lentu margir
upp á kant við stjórnvöld, ekki síst
eftir að hert var á ritskoðun og skoð-
anakúgun í upphafi áttunda áratug-
arins. Til að mynda varð mikil
hneyksli þegar Veloso mætti í kven-
mannsfötum á virðulega sönglaga-
keppni og söng lagið E proibido pro-
ibir, það er bannað að banna. Í
kjölfarið hrökklaðist hann í útlegð
líkt og ýmsir brasilískir listamenn,
og dvaldi í Lundúnum í nokkur ár.
Ekki er gott að telja allar þær
plötur sem Caetano Veloso hefur
gefið út á ferlinum, en nægir að
nefna að fyrir nokkrum árum kom út
kassinn Todo Caetano, sem hefur að
geyma 50 geisladiska og nær þó ekki
yfir allt sem hann hefur sent frá sér.
Hann er og enn að; 2004 kom út A
Foreign Sound, safn bandarískra
laga sem Veloso túlkar á sinn hátt og
gefið var út til að hylla bandaríska
menningu sem hafði mikil áhrif á
hann sem ungan mann á leið í tón-
listina. Cê kom svo út í september
síðastliðnum og enn tekur Veloso
skarpa beygju frá síðustu skífu á
undan – nú er það nútíma- og fram-
úrstefnuleg nýbylgja.
Veloso í stuði
Hljóðfæraskipan á skífunni er
naumhyggjuleg miðað við síðustu
plötur Velosos – gítar, bassi og
trommur. Útsetningar eru líka hrá-
ar, berangurslegar á köflum. Þær
skrifast að einhverju leyti á Moreno,
son Velosos, sem stýrir upptökum,
en hann réð líka unga menn í spila-
mennskuna, þar fremstan í flokki
Pedro Sá, sem fer hreinlega á kost-
um á rafgítarinn. Textalega er Ve-
loso líka í miklu stuði, textarnir
beittir og ágengir, jafnvel reiðilegir
á köflum - hér er ekkert gamalmenni
á ferð.
Cê sýnir að Caetano Veloso hefur
enn sitthvað fram að færa, semur
enn fín lög og fína texta og er greini-
lega til í hvað sem er. Það er erfitt að
gera upp á milli verka manns sem
hefur skilað eins góðu dagsverki og
Caetano Veloso, en Cê á vel heima
innan um skífur eins og Cores no-
mes, útlegðarplötuna Caetano Ve-
loso (A Little More Blue), Cinema
Transcendental, Transa, Bicho, Fina
Estampa, Circuladô og Livro, svo
nefndar séu nokkrar af helstu plöt-
um hans.
Brasilíski tónlistarmað-
urinn Caetano Veloso
hefur gefið út á sjötta
tug af plötum á fjörutíu
ára starfsævi. Hann er
enn að og enn ferskur
eins og heyra má á nýj-
ustu plötu hans.
Framsækinn frumherji
Ljósmynd/Björg SveinsdóttirLeitandi Caetano Veloso á tónleikum í Lundúnum.
TÓNLIST Á SUNNUDEGI
Árni Matthíasson
THE REAPING kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i.16.ára
SPIDER MAN 3 kl. 12 - 3 - 6 - 9 - 10:30 B.i.10.ára
SPIDER MAN 3 VIP kl. 12 - 3 - 6 - 9
BLADES OF GLORY kl. 1:30 - 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i.12.ára
SHOOTER kl. 8 B.i.16.ára
BREACH kl. 5.50 - 10:30 B.i.12.ára
MR. BEAN'S HOLIDAY kl. 2 - 4 LEYFÐ
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:30 - 2 - 3:30 - 4 LEYFÐ
WILD HOGS kl. 8 B.i.7.ára
BECAUSE I SAID SO kl. 6 LEYFÐ
/ ÁLFABAKKA
eee
V.J.V. TOPP5.IS
WWW.SAMBIO.IS
BECAUSE I SAID SO Diane KeatonMandy Moore
GOAL 2 kl. 3:30 - 5:50 - 8:10 - 10:30 B.i. 7 ára
THE REAPING kl. 6 - 8:10 - 10:20 B.i. 16 ára
BLADES OF GLORY kl. 2 - 4 - 8:10 B.i. 12 ára
ROBINSON FJÖLSKYLDAN m/ísl. tali kl. 1:50 - 4 LEYFÐ DIGITAL 3D
MEET THE ROBINSONS ótextuð m/ensku tali kl. 6:10 LEYFÐ DIGITAL 3D
300 kl. 10:20 B.i. 16 ára DIGITAL
/ KRINGLUNNI
FRÁ FRAMLEIÐANDA
MATRIX, DIE HARD OG
LETHALWEAPON
SUMT ER EKKI HÆGT AÐ ÚTSKÝRA MEÐ VÍSINDUM
STÓRSTJÖRNUR ÚR
Hraðskreiðir bílar, súpermódel og partý...
Þarf ekki eitthvað meira til að sanna að þú sért frábær leikmaður?
REAL MADRID... HILARY SWANK