Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 70
70 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Kalvin & Hobbes
ÉG TRÚI EKKI AÐ
MAMMA HAFI SENT MIG Í
SUNDKENNSLU
HÉR STEND ÉG KLUKKAN
NÍU AÐ MORGNI OG
FRÝS Í HEL.
ÞAÐ EINA SEM GÆTI VERIÐ
VERRA VÆRI AÐ ILLKVITTNA
BARNFÓSTRAN MÍN...
STJÓRNAÐI
ÞESSUM
SUNDTÍMA
HÆ
KALVIN
Kalvin & Hobbes
SVONA NÚ ÚT
Í LAUGINA!
KALVIN, VEISTU HVAÐ
ROTTUSKOTT ER?
NEI!MÉR ER
KALT NÚ
ÞEGAR. ÉG
FER EKKI!
ÞAÐ ER ÞEGAR MAÐUR
TEKUR BLAUTT HANDKLÆÐI
OG SNÝR UPP Á ÞAÐ. ÞEGAR
MAÐUR ER SVO SLEGINN
MEÐ ÞVÍ ÞÁ STINGUR ÞAÐ
ÉG HÉLT AÐ SUNDLAUGAR-
VERÐIR LÆRÐU BARA
LÍFGUNARTILRAUNIR
OG SVOLEIÐIS
Kalvin & Hobbes
VATNIÐ ER ÍSKALT. ÉG Á
EFTIR AÐ FÁ SJOKK OG
DRUKKNA
SUNDLAUGARVÖRÐURINN
ER ÖRUGGLEGA VIÐRIÐINN
TRYGGINGARSVINDL OG
ÆTLAR AÐ LÁTA OKKUR ÖLL
DRUKKNA EINS OG ROTTUR
Í DAG ÆTLUM VIÐ AÐ ÆFA
OKKUR Í ÞVÍ AÐ
FLJÓTA, LÍKT OG LÍK MAMMA,
HJÁLP,
HJÁLP!
ÞAÐ SEM
MAÐUR GERIR
EKKI TIL AÐ
GETA BORGAÐ
SKÓLAGJÖLDIN
Litli Svalur
© DUPUIS
HANN ÆTLAR AÐ GEFA OKKUR MERKI
ÞEGAR VIÐ GETUM KOMIÐ UPP. EINN
ÞUMALPUTTI ÞÝÐIR AÐ ALLT SÉ Í LAGI,
TVEIR ÞÝÐA AÐ VIÐ EIGUM AÐ FARA
HLJÓÐLEGA OG ÞRÍR ÞÝÐA STOPP
ÞUMALLINN ER
KOMINN UPP!
KOMUM
OKKUR. HURÐIN
ER OPIN
LOKSINS FÁUM VIÐ
OPINBERUN Í EITT SKIPTI
FYRIR ÖLL. SVO ER SAGT AÐ
STÓRAR STELPUR SÉU MEÐ
HÁR ANNARS STAÐAR EN Á
HÖFÐINU
HREINT ÚT SAGT,
ÓGEÐSLEGT!
SUSS! VIÐ VERÐUM
AÐ SJÁ ÞAÐ
FLJÓTIR! SYSTIR MÍN ER
AÐ KOMA ÚR STURTU
HLJÓÐLEGA STRÁKAR! EF HÚN KEMST AÐ
ÞESSU ÞÁ DREPUR HÚN MIG
ÉG ER
FYRSTUR!
VÁ! ÉG SÉ
HANA... ÉG
SÉ Á HENNI
FÓ...
AAAAAH!
HÚN ER AÐ
KOMA!
ÖÖÖ... ÉG VERÐ AÐ FARA...
ÞETTA VAR FRÁBÆRT EN ÉG
GLEYMDI AÐ LÆRA HEIMA...
BÆ!
ÞÚ!!
ÉG DREP ÞIG!!
ER HANN AÐ
SEGJA AÐ
ÞETTA SÉ ALLT Í
LAGI?
ÉG VEIT ÞAÐ EKKI!
HANN TALAR OF
HRATT! ÞAÐ ERU
ALLT OF MARGIR
PUTTAR
BLESS NJÁLL! ÉG BIÐ AÐ
HEILSA!
dagbók|velvakandi
Fæðið er bágborið á LSH
HEILBRIGÐISÞJÓNUSTAN á Ís-
landi er að flestu leyti ágæt að því
leyti sem ég hef þurft á henni að
halda, en ég er víst á níræðisaldri.
Hef ég nú á stuttum tíma dvalið
nokkra daga á Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi vegna mjaðmaað-
gerða og notið mjög góðrar þjónustu
bæði lækna og hjúkrunarfólks. Hins
vegar get ég ekki orða bundist yfir
fæðinu á spítalanum. Það má vel
vera að þörf sé á því að spara í fæðis-
kostnaðinum, en full ástæða er til
þess fyrir stofnunina að taka út gæði
fæðisins. Maturinn er bragðlaus,
fiskur alltof mikið soðinn og fæðið
allt í senn svo bágborið að ég get
ekki orða bundist.
Það eru tveir áratugir síðan ég
þurfti að dveljast á Borgarspítalan-
um vegna meiðsla úr bílslysi. Þá var
fæðið mjög gott og yfir engu að
kvarta í þeim efnum. Nú kom það
fram hjá hjúkrunarfólki að það hefði
kvartað yfir fæðinu fyrir hönd sjúk-
linga án þess að það hefði nokkuð að
segja um úrbætur.
Er ekki kominn tími til að byrja að
elda aftur á hverjum stað fyrir sig
eins og var hér áður? Ég er viss um
að það væri miklu meiri sparnaður
en er í dag. Hver fer með eftirlit með
gæðum fæðis á sjúkrastofnunum,
hvaða kröfur verður að gera til gæða
fæðis og ef þörf er á að spara í þeim
efnum í hráefni, þá er það grundvall-
aratriði að eldun og meðhöndlun
þess sé góð. Vona ég svo sannarlega
að mál þetta verði tekið til gaum-
gæfilegrar skoðunar af þartilbærum
aðilum.
Þegar öllu er á botninn hvolft er-
um það við skattgreiðendur sem
borgum fyrir þessa þjónstu með
sköttum okkar.
Dóra Bjarnadóttir.
Bónus er fín verslun
MEÐ stuttu millibili hefur verið
kvartað yfir Bónus í Kópavogi og
Bónus í Skeifunni. Ég er ekki sam-
mála. Ég á heima í Hveragerði og
eru þrjú eða fjögur ár síðan Bónus
opnaði þar. Ég hef aldrei fengið ann-
að en góða þjónustu, bæði við kassa-
afgreiðsluna og inni í búð þar sem
starfsfólk er mjög hjálplegt ef mann
vantar eitthvað.
Guðrún Magnúsdóttir, Hveragerði.
Um Sjálfstætt fólk á Stöð 2
MÉR þætti gaman að vita hvort Jón
Ársæll Þórðarson er yfirleitt „á
Reykjavík“. Í það minnsta var kauði
„á Súðavík“ um daginn. Mikið fór
það í taugarnar á mér.
Haukur S. Magnússon, Ísafirði.
Foreldrar 10. bekkja
SVÖRT hettupeysa með hvítum
stöfum að framan (carhart) var tekin
í misgripum úr adidas-tösku sl. mið-
vikudag við Hvítá þar sem nem-
endur voru í flúðasiglingu að fagna
lokum samræmdu prófanna. Í vasa
peysunnar var Storm-úr með svartri
leðuról, í staðinn var sett svört
hettupeysa frá H&M. Finnandi vin-
samlegast hafi samband við Guð-
rúnu í s. 553-94-28 eða s. 692-1428.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
FUGLARNIR við Tjörnina eru frekir þegar brauð er annars vegar. En lög-
málið segir víst að þeir sterkustu lifi af.
Morgunblaðið/Ómar
Barist um brauðið á Tjörninni
JAPANSKA ríkisstjórnin hefur
ákveðið að veita Íslendingum styrki
til framhaldsnáms í Japan. Styrkur-
inn er veittur til tveggja ára fyrir þá
sem hefja nám í apríl 2008 en til 18
mánaða fyrir þá sem kjósa að hefja
nám í október 2008. Flugfargjöld og
skólagjöld verða greidd og fá styrk-
þegar mánaðarlega greiðslu, 170.000
yen sem er nálægt 90.000 krónum auk
fjárupphæðar við komuna til Japans.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið
B.A. eða B.S. gráðu áður en námið
hefst. Upplýsingar um skóla og pró-
fessora má fá hjá sendiráði Japans á
Íslandi svo og allar upplýsingar um
nánari skilyrði. Sendiráð Japans mun
í samvinnu við Menntamálaráðuneyt-
ið á Íslandi velja fyrsta úrtak um-
sækjenda. Lokaákvörðun verður svo
tekin af MEXT í Japan.
Umsóknir berist til sendiráðs Jap-
ans, Laugavegi 182, 105 Reykjavík, í
síðasta lagi 15. júní nk. en umsóknir
má nálgast hjá sendiráðinu eða á
http://www.studyjapan.go.jp/en/
index.html. Þeir umsækjendur sem
koma til greina verða boðaðir í viðtal
til sendiráðsins í lok júní eða byrjun
júlí nk.
Styrkir veittir til
framhaldsnáms í Japan
FRÉTTIR