Morgunblaðið - 13.05.2007, Blaðsíða 68
68 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AUÐLESIÐ EFNI
Eiríkur Hauksson, full-trúi
Íslendinga í Söngva-keppni
evrópskra sjónvarps-stöðva,
Evró-visjón, var ekki á meðal
þeirra 10 kepp-enda sem
komust áfram eftir
for-keppnina sem haldin var á
fimmtu-daginn.
„Við eigum ekki séns í
svona mafíu,“ sagði Eiríkur
þegar úr-slitin lágu fyrir og
ljóst var að einungis lönd frá
Austur-Evrópu komust áfram.
Eiríkur söng lagið Valentine
Lost eftir Svein Rúnar
Sigurðsson og gekk
flutningurinn vel að hans
sögn. „Danir og Norð-menn
sitja eftir með sárt ennið og
Sviss-lendingar líka. Næstum
öll Norður- og Mið-Evrópa
situr eftir með sárt ennið,“
sagði Eiríkur og hló.
„Er þetta pólitísk keppni
eða tónlistar-keppni? Ég
neita að trúa því að allar Mið-
og Norður-Evrópu-þjóðir séu
það lé-legar miðað við hinar
að þetta sé rétt-látt.“
Sterk við-brögð urðu við
þessum úr-slitum víða í
Evrópu, og rætt um að nú
verði að breyta leik-reglunum.
Er þetta pólitísk keppni?
Morgunblaðið/Eggert
Eiríkur þótti standa sig vel í for-keppninni.
Tony Blair, forsætis-ráðherra
Bret-lands, til-kynnti á
fimmtu-daginn að hann mun
láta af em-bætti 27. júní
næst-komandi.
Í ræðu sinni sagðist hann
heppinn að hafa fengið að
vera í for-ystu fyrir þessari
„miklu þjóð“ í 10 ár. En líka
að það væri „nógu langur“
tími fyrir bæði hann og
þjóðina. Um Íraks-stríðið
sagði hann: „Mér kunna að
hafa orðið á mis-tök, það er
ykkar að dæma um það. Ég
bið ykkur samt að trúa því, að
ég gerði aðeins það, sem ég
taldi vera réttast og landi og
þjóð til heilla.“
Í stjórnar-tíð Blairs hafa
orðið miklar breytingar í
mennta-, heil-brigðis-,
eftir-launa- og
lög-gæslu-málum og fyrir það
vill Blair, að sín verði minnst.
Enn um sinn mun þó
Íraks-stríðið skyggja á það
allt, hvað sem síðar verður.
Gordon Brown
fjármála-ráðherra mun án efa
taka við af Blair.
Tony Blair
lætur af
embætti í júní
Tony Blair
Novator, fjár-festinga-félag í
eigu Björgólfs Thors
Björgólfssonar, ætlar að
leggja fram frjálst
yfir-töku-tilboð í allt hluta-fé
Actavis Group hf. í A-flokki.
Novator hyggst taka Actavis af
markaði eftir yfir-tökuna. Ef
Novator tekur yfir Actavis,
verður yfir-takan sú stærsta í
Íslands-sögunni, eða jafn-virði
um 180 millj-arða króna.
Al-mennt finnst
greiningar-aðilum til-boð
Novator í Actavis of lágt og
búast jafn-vel við að þriðji aðili
komi með nýtt til-boð.
Kaup-þing telur það þó
ólík-legt vegna sterkrar stöðu
Novator.
Björgólfur Thor segir að
til-boðið sé með hæsta álagi
sem sést hafi til þessa í
kaup-höllinni. Það sé rúmum
21% hærra en
meðaltals-gengi síðustu 6
mánaða.
Novator býður
í Actavis
Tíma-mót urðu í sögu
Norður-Írlands á
þriðju-daginn. Þá tók
sam-stjórn kaþólikka og
mót-mælenda við völdunum.
Ian Paisley forsætis-ráðherra
heima-stjórnarinnar og
leið-togi stærsta flokks
mót-mælenda, DUP, sagði að
þetta væri „raunveru-legt
tæki-færi til að tryggja
varan-legan frið“.
„Norður-Írland er nú komið
inn í tíma-bil friðar, tíma-bil
þegar hatrið ríkir ekki
lengur,“ sagði hann. Martin
McGuinness, einn af
forystu-mönnum stærsta
flokks kaþólikka, Sinn Féin,
og fyrr-verandi for-ingi úr Írska
lýðveldis-hernum (IRA) verður
aðstoðar-forsætis-ráðherra.
Sögu-leg
sam-stjórn
Seinasta sunnu-dag vann Nicolas Sarkozy
seinni um-ferð forseta-kosninganna í
Frakk-landi. Hann fékk um 53% at-kvæða, en
mót-fram-bjóðandi hans, Ségolène Royal,
47%. Þátt-takan í kosningunum var tæp
84%, hefur ekki verið betri síðan árið 1981.
Sarkozy sagði úr-slitin tákn um skýrt
um-boð til rót-tækra breytinga. „Franska
þjóðin hefur kosið að segja skilið við
hug-myndir, hefðir og hegðan for-tíðarinnar.
Ég mun upp-hefja gildi vinnunnar,
stjórn-valdsins, virðingu og verð-leika
þjóðarinnar,“ sagði for-setinn ný-kjörni.
Nicolas Sarkozy fæddist 28. janúar 1955
í París. Hann er sonur ung-versks
inn-flytjanda. Hann ólst upp í Neuilly, einu
fínasta út-hverfi Parísar. Síðar varð hann
borgar-stjóri þar. Hann byrjaði í stjórn-málum
á 8. ára-tugnum og var þá stuðnings-maður
Jacques Chiracs. Árið 2002 varð Sarkozy
innanríkis-ráðherra og síðar
fjármála-ráðherra.
Sarkozy for-seti
Frakk-lands
REUTERS
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
menntamála-ráðherra setti
Lista-hátíð í Reykjavík á
fimmtu-daginn í Listasafni
Íslands. Fjöldi lista-manna
kom fram við það tæki-færi.
Kongóska hljóm-sveitin
Konono N°1 lék þjóð-lega
dans-tónlist og fyrsta
yfirlits-sýning CoBrA-hópsins
hér á landi var opnuð.
Hrefna Haraldsdóttir
fram-kvæmda-stjóri
há-tíðarinnar, segir að
há-tíðin hafi aldrei verið
stærri og að lík-lega verði
slegið aðsóknar-met á henni.
Sjá: www.listahatid.is
Lista-hátíð í
Reykjavík hafin
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Konono N°1
Á fimmtu-daginn vann HK deildar-meistara-titilinn í
hand-knatt-leik karla. Það munaði mjóu en Kópavogs-liðið
vann Stjörnuna úr Garðabæ 29:28 í spennandi leik í
Digranesi.
HK deildar-meistarar
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Netfang: auefni@mbl.is