Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 51
,
Glæsilegt einbýlishús á einni hæð, 165,8 fm,
auk bílskúrs 36,2 fm, samt. 202 fm. Húsið er
mjög vel staðsett í enda botnlanga, ca 1000 fm
glæsilega ræktuð lóð með háum trjágróðri. Hús-
ið er í mjög góðu standi að utan sem innan,
m.a. er þak nýlega endurnýjað, nýr garðskáli.
Glæsileg ræktuð lóð, ca 85 fm timburpallur, allt
fyrsta flokks. Verð 54 millj.
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
SKÓGARLUNDUR - GBÆ. EINBÝLI
Hraunhamar fasteignasala hefur í sölu glæsi-
lega hannað einbýli teiknað af Albínu Thordar-
son arkitekti. Eignin er 229,4 fm á tveimur hæð-
um, þar af er innbyggður tvöfaldur 43,1 fm bíl-
skúr með aukinni lofthæð. Einnig fylgir eigninni
ca. 30 fermetra herbergi með snyrtingu á neðri
hæð. Eignin er mjög vel staðsett á frábærum út-
sýnisstað innst í botnlanga í Ásahverfi í Garða-
bæ. Eignin skiptist í forstofu, hol, gestasnyrt-
ingu, herbergi, þvottahús, og bílskúr. Á efri hæð er stofa, borðstofa, eldhús, gangur, þrjú herbergi,
baðherbergi, hjónaherbergi með baðherbergi og fataherbergi inn af. Innréttingar eru allar glæsilegar,
sérsmíðaðar, úr Hlyni og gólfefni eru flísar. Gólfhiti er í stærstum hluta hússins. Lýsing er hönnuð af
Lúmex. Fallegur garður. Glæsileg og vönduð eign í sérflokki. Eignin getur verið laus fljótlega. Verð 90
millj. Upplýsingar veitir Þorbjörn Helgi, gsm. 896 0058.
HRAUNÁS - GBÆ. EINBÝLI
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu mjög gott 236 fermetra einbýli á einni
hæð, þar af er 52 fermetra bílskúr. Einnig er
milliloft upp á ca 85 fermetra sem ekki er inn í
skráðum fermetrum hjá FMR. Húsið er vel stað-
sett í neðri Lundum þar sem er stutt í skóla,
leikskóla og alla þjónustu. Fallegur gróinn garð-
ur. Frábær staðsetning. Verð 55 millj. Uppl.
veitir Þorbjörn Helgi s. 896 0058.
HÖRGSLUNDUR - GBÆ. EINBÝLI
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu 97,7 fm íbúð á efstu hæð í góðu, vel stað-
settu, fjölbýli í Sjálandshverfi í Garðabæ. Eignin
skiptist í forstofu, hol, stofu, borðstofu, eldhús,
2 herb., baðh., þvottahús og geymslu. Fallegar
innréttingar. V. 31,5 millj. Uppl. veitir
Þorbjörn Helgi s. 896 0058.
STRANDVEGUR - GBÆ.
Hraunhamar fasteignasala hefur fengið í einka-
sölu glæsilegt, mikið endurnýjað, 176 fm einbýli
á einni hæð ásamt bílskúr. Mjög vel staðsett í
Fitjahverfi í Gbæ. Eignin skiptist í forstofu,
skála, eldhús, búr, 4 herb., baðh., stofu, sjón-
varpsh., þvottahús, geymslu og bílskúr. Fallegar
innréttingar og gólfefni. Fallegur garður. Verð
48,3 millj. Uppl. veitir Þorbjörn Helgi,
896-0058.
LANGAFIT - GBÆ. EINBÝLI
Ármúla 1, sími 588 2030 – fax 588 2033
Ægir Breiðfjörð, löggiltur fasteignasali
SKIPTU VIÐ FAGMENN - ÞAÐ BORGAR SIG
Höfum til sölu raðhús á einni hæð 59,7 fm þar sem allt er sér og
með góðri suðurverönd og garði. Mjög fallegt útsýni. Húsið skipt-
ist í forstofu, þvottahús og geymslu, stór stofa með útgengi út á
verönd og garð, eldhús og flísalagt baðherbergi með sturtu. Sér-
bílastæði á lóð. Húsið er mjög vel umgengið.
Verð kr. 21,0 millj.
Til afhendingar við kaupsamning.
BOÐAHLEIN 12
VIÐ HRAFNISTU HAFNARFIRÐI
Hlýleg 3ja herbergja íbúð við
Arnarsmára, með fallegu útsýni
Vel skipulögð 3ja herbergja, 83 fm, íbúð við Arnarsmára í Kópavogi. Fallegt útsýni er til norðurs,
yfir Snæfellsnes og Esjuna. Tvö rúmgóð svefnherbergi, stofa með útgengi út á svalir, eldhús
með borðkrók, baðherbergi og sérþvottaherbergi í íbúð. Íbúðin er miðsvæðis á Höfuðborgar-
svæðinu og stutt í alla þjónustu, skóla og verslanir.
Allar frekari upplýsingar veitir Albert Björn Lúðvígsson
sölumaður Húsakaupa í síma 840 4048.
Guðrún Árnadóttir
lögg. fasteignasali
Albert Björn Lúðvígsson
sölumaður, s. 840 4048
Á MÖRGUM netfréttamiðlum
landsins er nú að finna myndband,
sem sýnir mann beita hest hrotta-
skap með barsmíðum og spörkum,
að því er best verður séð. Og veitið
því athygli að undirrit-
aður notar ekki orðið
tamningamaður, vegna
þess að það sem fyrir
augu ber á ekkert
skylt við þær tamn-
ingaaðferðir á hestum
sem flestir góðir tamn-
ingamenn hafa brúkað
fyrr og nú.
Félag tamninga-
manna var stofnað árið
1970 og markmið fé-
lagsins hefur ætíð ver-
ið að stuðla að bættri
tamningu og meðferð
íslenska hestsins. Eins og allir vita
er öllum frjálst að eiga hest og fólki
er ekki skylt að afla sér neinnar lág-
marks þekkingar í því sambandi.
Vankunnátta og þekkingarleysi er
hins vegar oft orsök sorglegra at-
burða, eins og mér finnst þetta
myndband sýna.
Fréttaþátturinn Kompás hefur
nú gert sjónvarpsþátt út frá þessu
myndbandi. Umsjónarmenn þátt-
arins höfðu þann háttinn á að þeir
sýndu viðmælendum sínum, þar á
meðal undirrituðum, stutt mynd-
brot. Síðan var fólk beðið um að tjá
sig um það sem það sá. Þegar und-
irritaður sá myndbrotið á netmiðl-
unum veitti ég því athygli að það
var ekki sama myndbrotið og mér
var sýnt. Sýnir myndbrotið á Net-
inu mun verri meðferð á hestinum
en það myndbrot sem mér var sýnt
og ég tjáði mig um. Það út af fyrir
sig finnst mér ekki góð vinnubrögð
og óttast ég að það geti gefið
skakka mynd af því sem um er
fjallað ef umsagnir viðmælenda eru
klipptar saman við önnur mynd-
skeið en þeim voru sýnd. En sjáum
hvað setur.
Atvik eins og þetta, sem sýnir
mann sem er ekki í
andlegu jafnvægi eða
hefur ekki þekkingu til
að fást við það sem
hann hefur færst í
fang, er vissulega mjög
slæm auglýsing fyrir
hestamennskuna. Það
særir þá sem hafa unn-
ið af heilum hug við
hestatamningar og
framgang íslenska
hestsins í ár og ára-
tugi. Nú er spurningin:
Hvernig getum við
komið í veg fyrir að
svona atvik endurtaki sig? Svarið er
ósköp einfalt: Við getum ekki komið
í veg fyrir það, því miður! En með
síendurtekinni fræðslu og menntun
er hægt að minnka líkurnar á því til
muna.
Og það er einmitt það sem Félag
tamningamanna stendur fyrir: Að
stuðla að bættri meðferð og tamn-
ingu íslenska hestsins. Vil ég af því
tilefni benda á kennslusýningarnar
sem félagið hélt í vetur, fyrst á Ing-
ólfshvoli og Hólum, þar sem farið
var í for- og frumtamningu hrossa,
bóklega og verklega, og síðan í
Glaðheimum þar sem tekin var fyrir
framhaldsþjálfun hesta, einnig bók-
lega og verklega. Þetta voru vel
auglýstar kennslusýningar sem
fólki var boðið upp á endurgjalds-
laust og kennararnir voru nokkrir
af okkar færasta fagfólki.
Undanfarin ár hefur Hólaskóli
verið með vel útfærða og markvissa
kennslusýningu í hestatamningum á
Stórsýningu Fáks í Víðidal, en því
miður verður hún ekki í þetta skipt-
ið. Þetta er kennslusýning sem eng-
inn hestaáhugamaður ætti að láta
fram hjá sér fara og vonandi mun
Hólaskóli endurtaka hana fyrr en
seinna. Þar er farið vandlega í gegn-
um það tamningaferli sem Félag
tamningamanna og Hólaskóli vilja
leggja nafn sitt við. Tel ég þá sýn-
ingu kjörið tækifæri fyrir þá sem
vilja stilla kompásinn rétt.
Að stilla Kompásinn
Bergur Jónsson skrifar um
tamningar og umfjöllun um
þær
» Á mörgum netfrétta-miðlum landsins er
nú myndband, sem sýn-
ir mann beita hest
hrottaskap með bar-
smíðum og spörkum …
Bergur Jónsson
Höfundur er formaður Félags
tamningamanna.