Morgunblaðið - 13.05.2007, Síða 54
54 SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
UNDANFARNA áratugi hefur
neysla áfengis og annarra vímuefna
aukist og vandi vegna hennar hefur
einnig aukist. Rannsóknir sýna að
framtíðaráskoranir hjá
starfsfólki innan heil-
brigðis-, félags- og
menntakerfa eru í
tengslum við þennan
vanda. Það er því mik-
ilvægt að fagfólk innan
ofangreindra kerfa hafi
þekkingu og færni til að
greina og meðhöndla
vanda tengdan neyslu
áfengis og annarra
vímuefna. Frá því í lok
áttunda áratugar síð-
ustu aldar hefur verið
gott aðgengi að heild-
stæðri meðferð fyrir
alkóhólista hér á landi. Þess ber að
geta að ekki er lengra síðan en árið
1950 að drykkjuvandamál voru að-
allega meðhöndluð sem lög og regla
og að vera drukkinn á almannafæri
var glæpsamlegt og talið mjög alvar-
legt. Litið var á alkóhólista sem ræfla
og reynt var að frelsa þá af alkóhól-
isma með fangelsisvist eða trúarlegri
hugfestu. Ýmsar kenningar hafa ver-
ið um alkóhólisma en með aukinni
þekkingu hafa fræðimenn komist að
samræmdum skilgreiningum. Frá því
um miðja 20. öldina hafa skilgrein-
ingar varðandi alkóhólisma verið
samræmdar út frá flokkunarkerfi
bandaríska geðlæknafélagsins DSM
(Diagnostic and Statistical Manual of
Mental Disorders) og ICD-skilgrein-
ingu (International Classification of
Diseases). ICD er listi Alþjóðaheil-
brigðisstofnunarinnar með öllum
meiðslum, sjúkdómum og röskunum
sem er í notkun á alheimsvísu. Um-
fjöllun um alkóhólisma hefur verið
samræmd í læknis-
fræðilegum og vísinda-
legum tilgangi með
þeim hætti að talað er
um alkóhólisma sem
sjálfstæðan sjúkdóm.
Bæði ICD- og DSM-
kerfin eru reglulega
endurskoðuð og færð
upp samkvæmt nýjustu
þekkingu. Lífeðlis-
fræðilegar rannsóknir
undanfarinna 20 ára
sýna að heilastarfsemi
alkóhólista breytist við
endurtekna neyslu
áfengis og annarra
vímuefna. Sjúkdómsþróunin er mis-
löng eftir einstaklingum þar sem um-
hverfis- og erfðaþættir verka saman í
sköpun sjúkdómsmyndarinnar.
Á Íslandi hefur tíðkast að ýmsar
fagstéttir hafi komið að meðferð fyrir
vímuefnasjúka, sérstaklega læknar
og hjúkrunarfræðingar ásamt áfeng-
is- og vímuefnaráðgjöfum. Það sem
hefur einkennt þekkingu og fagþróun
á sviðinu er að meðferðaraðilar hafa
sjálfir séð um fræðslu og þjálfun
starfsfólks, bæði á stofnunum sínum
og einnig hafa starfsmenn sótt
fræðslu og þjálfun á stofnunum er-
lendis. Áfengis- og vímuefnaráð-
gjafar sem hafa í nokkra áratugi
gegnt stóru hlutverki í meðferð fengu
löggildingu sem heilbrigðisstétt 13.
nóvember 2006 samkvæmt reglugerð
heilbrigðis- og tryggingarmálaráðu-
neytisins. Samkvæmt reglugerðinni
skulu áfengis- og vímuefnaráðgjafar
starfa á ábyrgð lækna eða annarra
háskólamenntaðra starfsmanna.
Hlutverk félagsráðgjafa í
þjónustu við alkóhólista
Félagsráðgjafar hafa að takmörk-
uðu leyti komið að meðferð fyrir alkó-
hólista en gegna oft lykilhlutverki
varðandi tengsl hinna ólíku kerfa sem
viðkoma málefnum alkóhólista sem
leita sér aðstoðar. Það er því nauð-
synlegt að félagsráðgjafar hafi sér-
hæfða þekkingu á alkóhólisma og
bata frá honum. Þekking og færni fé-
lagsráðgjafa á sviði meðferðar og
ráðgjafar nýtist því vel í meðferð við
alkóhólisma sem og annarri vinnu
með fólki sem þarf á sálfélagslegri
meðferð að halda.
Diplómanám í félagsráðgjöf
með áherslu á áfengis- og
vímuefnamál
Félagsráðgjöf er fimm ára nám til
löggiltra starfsréttinda við félags-
vísindadeild Háskóla Íslands og telj-
ast félagsráðgjafar til heilbrigðis-
stétta. Í námi þeirra felst að undirbúa
þá til starfa við meðferð og ráðgjöf
fyrir einstaklinga, fjölskyldur, hópa,
rannsóknarstörf, fræðslu, stjórnun
o.fl. Diplómanám á meistarastigi í fé-
lagsráðgjöf var í fyrsta sinn í boði á
haustönn 2006 í réttarfélagsráðgjöf
og öldrunarfélagsráðgjöf. Haustið
2007 verður boðið upp á þrjár nýjar
diplómalínur, þ.e. skólafélagsráðgjöf,
fjölmenningarfélagsráðgjöf og fé-
lagsráðgjöf með áherslu á áfengis- og
vímuefnamál.
Námslína með áherslu á áfengis-
og vímuefnamál er í félagsráðgjaf-
arskor í samstarfi við Landspítala –
háskólasjúkrahús og SÁÁ. Markmið
námskeiðsins er: (1) að treysta sér-
fræðiþekkingu félagsráðgjafa á sviði
áfengis- og vímuefnamála og efla
færni til að þróa aðferðir við meðferð,
fræðslu og rannsóknarstörf á sviðinu;
(2) svara sértækum þörfum skjól-
stæðinga sem eiga við áfengis- og/eða
annan vímuefnavanda að stríða og
fjölskyldur þeirra; (3) efla faglega
þjónustu og úrræði; (4) stuðla að efl-
ingu þverfaglegs samstarfs meðal
heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu,
dómkerfis og menntastofnana.
Umsóknarfrestur í námið er til 5.
júní 2007.
Diplómanám á framhaldsstigi
í félagsráðgjöf við HÍ
Erla Björg Sigurðardóttir
vekur hér athygli á nýjum
námslínum í haust
»Nauðsynlegt er aðfélagsráðgjafar hafi
sérhæfða þekkingu á
alkóhólisma og bata af
honum.
Erla Björg
Sigurðardóttir
Höfundur er félagsráðgjafi MA,
stundakennari við HÍ.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, FAX 570 4505. OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/.
Jón Guðmundsson, sölustjóri og lögg. fasteignasali.
Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fasteignasali
Eikarás - Garðabæ, glæsilegt
einbýlishús á útsýnisstað
Glæsilegt um 400 fm einbýlishús
á tveimur hæðum með innb. bíl-
skúr á fallegum útsýnisstað.
Eignin er vel innréttuð á smekk-
legan hátt með innréttingum og
gólfefnum af vönduðustu gerð.
Stórar, samliggjandi, arin- og
setustofur með allt að 7 metra
lofthæð, sjónvarpsstofa, eldhús
með stórri eyju úr granít og
vönduðum tækjum, opin borðstofa við eldhús, 5 herb., vel innréttað
fataherb., 3 vönduð baðherb., auk líkamsræktarsalar með gufubaði.
Auk þess er vönduð 2ja herb. íbúð á neðri hæð með sérinng. Suður-
svalir út af borðstofu og einnig úr hjónasvítu. Stór suðurverönd með
skjólveggjum, ýmist steyptum eða úr gleri. EIGN Í SÉRFLOKKI.
Hverafold - einbýlishús
í suðurhlíðum Grafarvogs
Glæsilegt 290 fm tvílyft einbýli á
þessum eftirsótta stað. Eignin
hefur verið mikið endurnýjuð ný-
lega, m.a. innréttingar, gólfefni,
innihurðir og fataskápar. Rúm-
góðar og bjartar stofur með útg.
á suðursvalir, eldhús með vand-
aðri innréttingu og tækjum og út-
gangi á verönd, 5 svefnherb. og 2 flísalögð baðherb. Ræktuð lóð
með verönd og heitum potti. Stór hellulögð innkeyrsla og falleg lýs-
ing á lóð og húsinu að utan. Frábær staðsetning á skjólsælum stað í
lokaðri botngötu. Stutt í skóla, leikskóla og aðra þjón. Verðtilboð.
Akrasel - einbýlishús á
útsýnisstað
Vandað einbýlishús á tveimur
hæðum í Seljahverfi á góðum út-
sýnisstað. Eignin skiptist m.a. í
eldhús með þvottaherbergi inn
af, rúmgóða stofu, 3 - 4 herbergi,
baðherbergi og gestasnyrtingu.
Auk þess er sér studíóíbúð á
neðri hæðinni. Stór ræktaður
garður með sólríkri timburverönd með skjólveggjum, heitum potti og
gróðurhúsi. 35 fm innbyggður bílskúr. Verð 63,9 millj.
Granaskjól
Fallegt 199 fm raðhús, tvær hæð-
ir, auk riss með 22 fm innb. bíl-
skúr á þessum eftirsótta stað í
vesturbænum. Eignin skiptist
m.a. í samliggjandi stofur auk
sólskála, opið eldhús, 4 herbergi,
sjónvarpshol, baðherb og
gestasnyrtingu. Innréttingar
hannaðar af Pétri B. Lútherssyni.
Ræktuð lóð, nýleg timburverönd
með skjólveggjum. Hús nýmálað
að utan. Verð 60,0 millj.
Stigahlíð
Glæsilegt 275 fm einbýlishús
með 30 fm innb. bílskúr á þess-
um eftirstótta stað. Eignin skiptist
í forstofu, gestasnyrtingu, rúm-
gott hol, samliggjandi glæsilegar
stofur með arni, rúmgott eldhús,
þvottaherb. inn af eldhúsi með
bakútgangi, 4 svefnherbergi auk
fataherb. inn af hjónaherb., stórt
bókaherb. og 2 baðherbergi. Hellulögð suðurverönd út af stofu og
útgangur á suðursvalir úr hjónaherbergi. Hiti er í innkeyrslu að bíl-
skúr. Falleg ræktuð lóð.
Álfahvarf - Kópavogi
350 fm einbýlishús á tveimur
hæðum ásamt 44 fm bílskúr.
Húsið skilast í núverandi ástandi,
rúmlega fokhelt með grófjafnaðri
lóð. Stofa með góðri lofthæð og
útgangi í sólskála. Útsýni af efri
hæð yfir fjöllin og Elliðavatnið.
Möguleiki á sér 3ja herb. íbúð á
neðri hæð. Verð 58,0 millj. Möguleiki er að fá húsið keypt full-
klárað að utan. Nánari uppl. á skrifstofu.
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá mjög glæsilegt 201,6 fm raðhús á tveimur
hæðum við Eiðismýri á Seltjarnarnesi. Þetta er fallegt raðhús byggt árið
1992, staðsett innst í botnlanga á góðum stað. Stofa, eldhús, svefnherbergi
og baðherbergi á efri hæð, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús á
neðri hæð. Þetta er eign sem vert er að skoða.
Sif, s. 669 1254 tekur á móti gestum í dag á milli kl. 17-18.
Eiðismýri 10 – Seltjarnarnesi
OPIÐ HÚS Í DAG MILLI KL. 17-18
Einar Páll Kjærnested
löggiltur fasteignasali.
Sími 586 8080 • Fax 586 8081
www.fastmos.is
OPIÐ HÚS
BORGARHOLTSBRAUT 36 - KÓP.
Glæsileg og mikið endurnýjuð, 163,1 fm, efri sérhæð auk 39,3 fm bílskúrs.
Eignin er samtals 202,4 fm. Bílskúrinn var byggður á síðasta ári og var þá
íbúðin jafnframt stækkuð um því sem nemur bílskúrnum, eða 39,3 fm. Góðar
suðursvalir og stór garður. Verð 42,9 m.
Elísabet tekur á móti gestum í dag, sunnudag, milli kl. 14 og 16.