Morgunblaðið - 13.05.2007, Page 83
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13. MAÍ 2007 83
!
"
"
# "
! $%%
&% "
!
"
#
$
$
"
'()*+, &$ -+.-,##-
!
/0 1 0""
0 "" "
0 "
! 2
33
"
4 0
0
4 "
1
3 1
0 04 0 0
0 1
"
#
53 0
" !
!
"
0 0
" !
"
3 0 6
3 "" 7
-
0
3 0 8 -
0
!
3 $
5 ""
!
1
"
" 0
+" !
"
0
"4
3
5 &%%9
""
3
0
1
% ! &
) 01 "" !
3 "
!
4 4 # 0
4
1
!
" : ""
5 "" ! 33
7 + 04 0 0
0 0 ;6-#+2,/, & < =6>-?-)), @ < ),#A+-# $ < (8:,7 B@@ C&%% < DDD %
&
! '''"
" (
)*" "
F
A
B
R
IK
A
N
2
0
0
7
UM ER að ræða listamannsnafn
Toms Morellos, sem er þekktastur
sem gítarleikari Rage Against The
Machine og Audioslave.
Hér syngur hann mótmælasöngva
studdur kassagítar og kemur fyrir
sem einhvers konar blanda af
Woody Guthrie og Everlast. Þrátt
fyrir góðar meiningar er eitthvað
bogið við þetta, eitthvað „óraunveru-
legt“. Platan hljómar svona eins og
Nebraska með
Bruce Springs-
teen, spiluð af
Dave Matthews.
Að þessu sögðu
er platan engu að
síður þægileg
áhlustunar; það tekst að búa til
myrkt og áleitið andrúmsloft og
Morello er auðheyranlega með
hjartað í þessu.
Sæmilegt semsagt en ég ráðlegg
Morello samt að halda dagvinnunni
eitthvað áfram.
Hamast við vélinni
TÓNLIST
The Nightwatchman –
One Man Revolution
Arnar Eggert Thoroddsen
BRESKA sveitin Fields, sem hefur
af að státa Þórunni okkar Anton-
íu, gaf út sína fyrstu breiðskífu
fyrir stuttu. Nefnist hún Every-
thing Last Winter og kom út á
hinu fornfræga Atlantic Records
merki.
Platan var tekin upp í Dyflinni
af Bandaríkjamanninum Michael
Beinhorn sem hefur unnið með ka-
nónum eins og Korn, Marilyn Man-
son og Red Hot Chili Peppers. Ef
ykkur finnst nafnið „Beinhorn“
skondið má geta þess að Dave
nokkur Dragon hannaði umslag
plötunnar, sem er einkar áferðar-
fallegt og smekklegt og í litlu
samræmi við ógurlegt eftirnafn
mannsins.
Fields hefur fengið allnokkra
umfjöllun á Bretlandseyjum að
undanförnu en stemning fyrir
bandinu hefur byggst upp hægt og
rólega í það eina og hálfa ár sem
það hefur verið starfandi.
Þannig var platan sérstaklega
kynnt sem „heit“ ný plata á ama-
zon.co.uk og fékk hún svipaða
meðferð á Myspace Music vefnum.
Sveitin er líka í náðinni hjá NME,
sem verður að teljast góður árang-
ur, en tvisvar hefur þetta harð-
svíraða blað valið lag með Fields
lag vikunnar.
Sveitin hefur líka verið að túra
með Wolfmother, Bloc Party og
Zutons t.d. og hefur spilað á mikil-
vægum tónlistarhátíðum eins og
South by Southwest og Coachella.
Sveitin er nýfarin í Ameríkutúr.
Sjá má nánar og heyra á my-
space.com/fieldsband en þar er
plötunni nýju streymt í heild sinni.
Fields á ferð
og flugi
BONO, söngvari
hljómsveitarinn-
ar U2, hefur lýst
yfir stuðningi sín-
um við lagafrum-
varp á Banda-
ríkjaþingi, sem
hópur demókrata
og repúblikana
samdi, þ. á m.
Hillary Clinton.
Verði frumvarpið
að lögum mun það auka fjárframlög
Bandaríkjanna til menntunar barna
í fátækustu ríkjum heims.
Frumvarpið ber heitið Education
for All, eða Menntun handa öllum,
og var kynnt í fyrradag af demókröt-
unum Clinton og Nitu Lowey, og
repúblikönunum Gordon Smith og
Spencer Bachus. Frumvarpið kveð-
ur á um tvöföldun á framlögum
ríkisins til þessara mála, milljarð
dollara á næsta ári og fara þau svo
stighækkandi til ársins 2012.
„Þetta er stórkostlegt mál, þetta
er hin rétta stund,“ sagði Bono á
símafundi með bandarísku þing-
mönnunum. Bono var þá staddur í
Dublin. „Svona framsýni viljum við
sjá hjá Bandaríkjunum,“ sagði Bono.
Bono segir menntun ekki í boði
fyrir 38 milljónir barna í Afríku. Það
eru álíka mörg börn og eru í mið-
skólum Bandaríkjanna.
Bono ánægður
með frumvarp
Bono Berst fyrir
betri heimi.
ASKA 200 manna, sem skotið var út
í geim, týndist á leið aftur til jarðar
og er nú leitað á litlu svæði í fjöllum
Nýju-Mexíkó. Meðal þess sem er
saknað er aska leikarans James Do-
ohan, sem þekktur var fyrir að leika
Scotty í Star Trek kvikmyndum og
sjónvarpsþáttum.
Öskunni var skotið á loft þann 28.
apríl síðastliðinn og á sporbaug um
jörðu á vegum fyrirtækisins UP
Aerospace, sem sérhæfir sig í að
skjóta ýmsum hlutum út í geim, þar
á meðal ösku látinna. Skotið vakti
nokkra athygli í þetta sinn, kannski
helst vegna þess að aska Doohans
var með í för.
Fylgst var náið með lendingu eld-
flaugarinnar og vitað nokkuð vel
hvar hlutar hennar hefðu svifið nið-
ur í fallhlífum. Þrátt fyrir ítrekaða
leit hefur þó hvorki fundist tangur
né tetur af henni.
Eldflaugarhlutarnir eru sagðir
hafa lent á erfiðu svæði sem sé þakið
þétt vöxnum gróðri, og það torveldi
leitina. Þá hefur veður verið slæmt
og hefur það tafið leitina enn frekar.
Aðstandendur UP Aerospace hafa
þó þrengt leitarsvæðið niður í 400
metra og segjast vissir um að þar
séu eldflaugarhlutarnir. Næsti leit-
arleiðangur verður farinn í næstu
viku, og kemst Scotty þá vonandi í
kjölfarið til sinnar hinstu hvílu.
„Scotty“ týndur
eftir geimferð
Reuters
Geislaður upp Fylgst með því þegar „Scotty“ var skotið á loft.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111