Morgunblaðið - 13.06.2007, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 33
Diddinn þinn sem þú varst svo ást-
fangin af og hamingjusöm með, og
yndislegu foreldrar þínir og systkini
syrgja þig sárt því stórt skarð hefur
myndast sem ekki er hægt að fylla,
en minningarnar um yndislegasta
demantinn þeirra lifa.
Elskan mín, ég trúi ekki að þetta
sé raunveruleikinn, að þú sért farin
snúllan mín, að ég eigi ekki eftir að
sjá þig né heyra í þér aftur. En það
er engin spurning um að þú ert hetj-
an mín sanna. Æi elskan, það eru
svo margar spurningar sem ég fæ
engin svör við. En minningarnar um
þig eru svo margar og munu lifa og
ylja mér um hjartarætur um
ókomna tíð.
Við höfum brallað ýmislegt saman
í gegnum árin frá því að við vorum
litlar stelpur. Við vorum ekki ein-
ungis frænkur því við vorum líka of-
boðslega góðar vinkonur. Þú sagðir
svo oft við mig í gegnum árin að þú
mætir það svo mikils að vera í sam-
bandi við mig og við héldum okkar
yndislegu tengslum. Alls staðar sem
þú kynntir mig fyrir fólki sagðirðu
„hey, þetta er Guðný frænka, finnst
þér við ekki líkar? Og svo erum við
líka með nákvæmlega eins tær.“
Þetta lýsir þér elskan mín því þú
varst alltaf svo einlæg, elsku snúllan
mín, og varst alltaf bara þú, ég vissi
alltaf hvar ég hafði þig. Við gátum
talað endalaust saman um allt og
ekkert og hlegið að öllu, ég á svo
margar yndislegar minningar um
þig. Ein stundin sem lýsir þér svo
vel þegar þú lást inni – mamma talar
um að það sé hennar yndislega
minning um mig og þig – var þegar
við vorum í einni heimsókninni hjá
þér og konan við hliðina smjattaði á
matnum sínum og við fengum al-
gjört hláturskast, reyndar eitt af
fjölmörgum, en þannig vorum við
alltaf, við þurftum bara að líta hvor á
aðra og það var nóg. En þetta segir
svo margt um þig, þarna lástu veik
en alltaf var stutt í húmorinn þinn.
En elskan mín, nú er kökkurinn
orðinn óbærilegur og tárin streyma
niður, ég sakna þín svo sárt.
Ég kveð þig með trega elsku
hnoðrinn minn og geymi þig ávallt í
hjarta mér.
Elsku litlu krílunum, fjölskyld-
unni og Didda sendi ég mínar inni-
legustu samúðarkveðjur með von
um að allar góðar vættir gefi ykkur
styrk til að takast á við þessa miklu
sorg.
Þín frænka og vinkona að eilífu.
Guðný Hrönn.
Nú legg ég augun aftur,
ó, Guð, þinn náðarkraftur
mín veri vörn í nótt.
Æ, virst mig að þér taka,
mér yfir láttu vaka
þinn engil, svo ég sofi rótt.
Elsku fjölskylda, okkar innileg-
ustu samúðarkveðjur vegna fráfalls
elsku Ástu Lovísu, og guð gefi ykk-
ur styrk til að takast á við þessa
miklu sorg.
Hugur okkar er hjá ykkur.
Kára og Smári.
Elsku Ásta mín, það er svo erfitt
að átta sig á því að þú sért dáin.
Þetta er allt svo óraunverulegt og
ósanngjarnt. Það er svo skrýtið að
ég geti ekki hringt í þig og spjallað
við þig um alla heima og geima eins
og við vorum vanar að gera.
Við kynntumst þegar við vorum
báðar við nám í Fjölbrautaskólanum
í Breiðholti og við höfum haldið sam-
bandi síðan. Líf þitt var ekki alltaf
dans á rósum. Þú misstir mömmu
þína ung, og síðar systur þína. Þú
varst samt alltaf svo dugleg, jákvæð
og alltaf var stutt í húmorinn hjá
þér. Þú varst opin, áttir auðvelt með
að kynnast fólki og áttir marga góða
vini. Þú varst traustur vinur og það
var gott að leita til þín.
Ég man hvað þú varst stolt af
bróður þínum og hvað þér fannst
alltaf gott að leita til hans.
Ég man þegar sólargeislarnir þín-
ir komu í heiminn, fyrst hann Krist-
ófer þinn, svo hún Embla þín og síð-
ast hún Írena þín. Börnin þín voru
þér allt og þú varst svo stolt af þeim.
Ég man þegar þú varst að halda
afmælisveislur fyrir krakkana þína,
hvað þú gerðir það alltaf með stæl.
Þú varst algjör listamaður í að búa
til flottar afmæliskökur og fram-
reiddir glæsileg hlaðborð.
Ég man eftir öllum kvöldunum
okkar þar sem við birgðum okkur
upp af nammi, horfðum á vídeó og
spjölluðum fram á nótt. Ég á eftir að
sakna þeirra.
Ég man eftir skemmtilegu sum-
arbústaðarferðunum okkar með
krökkunum þínum þar sem við spil-
uðum og höfðum það gaman.
Ég man líka þegar þú, ég og Hall-
dóra fórum til Portúgals. Í þeirri
ferð sleiktum við sólina, ég man
hvað þú varst fljót að taka lit og
varðst fallega brún á meðan við hin-
ar þurftum aðeins lengri tíma til að
fá einhvern lit. Ekki má heldur
gleyma ferðum okkar í „mollið“ – við
vorum sko duglegar að versla.
Ég man þegar þú kynntist honum
Didda þínum og hvað þú varst
ánægð og hamingjusöm með honum.
Í ágúst í fyrra greindist þú með
krabbamein og háðir erfiða baráttu.
Þú varst góður penni og það hjálpaði
þér að blogga um veikindin þín. Það
hjálpaði þér líka að finna þann
stuðning og hlýhug sem fólk tjáði
þér í gegnum bloggið. Þeir voru ófá-
ir sem lásu bloggið þitt reglulega og
þú hreifst marga með bjartsýni
þinni og baráttuþreki. Ég man hvað
ég var stolt af þér þegar þú varst
kosin Íslendingur ársins hjá Ísafold.
Þú varst algjör hetja og ert ein sú
sterkasta manneskja sem ég hef
kynnst og uppgjöf var nokkuð sem
ekki var til í þínum orðaforða.
Ég man eftir síðustu heimsókn
minni til þín, þegar ég og Anna
Kristín kíktum heim til þín og við
áttum góða og dýrmæta stund með
þér.
Það er svo sárt að þurfa að kveðja
þig svona langt um aldur fram. Ég
trúi því að þú sért komin á betri stað
þar sem mamma þín, systir og fleiri
ættingjar taka vel á móti þér. Ég er
þakklát fyrir að hafa fengið að kynn-
ast þér og ég mun varðveita minn-
ingarnar um þig í hjarta mínu allt
mitt líf.
Elsku Kristófer, Embla og Írena,
ég sendi ykkur mínar innilegustu
samúðarkveðjur. Einnig sendi ég
fjölskyldu og öðrum aðstandendum
Ástu minnar mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Þín vinkona,
Anna Þóra.
Elsku Ásta.
Ég man þegar ég hitti þig fyrst í
Ármúlanum. Þú varst svo opin og
heillandi og við urðum strax svo góð-
ar vinkonur. Ég man hvað við vorum
spenntar og ánægðar þegar við báð-
ar komumst inn í nuddskólann. Árið
sem við vorum í nuddskólanum er
mér svo eftirminnilegt. Það ár var
ekki hægt að slíta okkur í sundur.
Þú varst svo góð og trygg vinkona
og gafst mér svo mikið. Ég á svo
margar góðar og yndislegar minn-
ingar um þig engillinn minn. Það var
líka svo aðdáunarvert að fylgjast
mér þér í móðurhlutverkinu. Þú
skilur eftir þig þrjú yndisleg börn,
og öll eiga þau aðdáun mína, virð-
ingu og væntumþykju.
Mér hefur þótt svo erfitt að vera
langt í burtu í veikindum þínum. En
það hefur hjálpað mér að vita hvað
þú átt marga góða að sem hafa stutt
þig í gegnum þau.
Elsku Kristófer, Embla og Írena.
Guð vaki yfir ykkur og gefi ykkur
styrk til að komast í gegnum sorgina
og söknuðinn.
Elsku Ásta mín, ég mun aldrei
gleyma vináttu okkar.
Þú átt alltaf eftir að eiga stóran
hluta í hjarta mínu og ég á alltaf eft-
ir að sakna þín.
Þín vinkona,
Gréta.
Elsku Ástan mín.
Strax og ég kynntist þér heillaðist
ég af því hversu hrein og bein þú
varst og yndislega einlæg. Ég var
svo heppin að fá að fylgjast með þér
vinna svo marga sigra í lífi þínu og
allan tímann varstu óhrædd og
æðrulaus og svo ákveðin í því að
gera alltaf enn betur. Þú skrifaðir að
þú tryðir því að með viljanum einum
saman og bæninni kæmist maður
langt og mér fannst í raun að ekkert
væri óyfirstíganlegt fyrir þig. Þú
ákvaðst að láta erfiðleika eða ótta
ekki buga þig heldur styrkja þig og
horfðir alltaf á hvað þú gætir lært af
sérhverri reynslu. Ég mun aldrei
gleyma stundunum sem við áttum
saman þar sem við töluðum svo mik-
ið að við gleymdum hvað klukkan
var. Þær geymi ég í hjartanu mínu
að eilífu.
Þegar þú veiktist var eins og þú
styrktist enn frekar, þú vissir að
þetta var stórt fjall að klífa en þú
ætlaðir að standa uppi sem sigur-
vegari. Þú skrifaðir: „Ég veit að ég
verð að halda minni bjartsýni áfram
og trúa því að ég komist yfir þetta.
Trúa því að ég muni læknast þrátt
fyrir allt mótlætið sem ég er búin að
finna fyrir upp á síðkastið. Ég bara
verð og ég má ekki gefast upp.“ Ásta
mín, þú gafst sko aldrei upp, sjúk-
dómurinn þinn sigraði í lokin, en ég
veit að fram á síðasta dag lifðir þú
samkvæmt þessum orðum.
Það kom mér ekkert á óvart að í
gegnum þessa baráttu snertir þú líf
allrar þjóðarinnar með endalausu
baráttuþreki, jákvæði og einlægni.
Á blogginu þínu opnaðir þú um-
ræðuna um þennan illvíga sjúkdóm
og tjáðir þig um tilfinningar þínar á
þinn einlæga hátt. Þín ósk var að
þessi skrif kæmu til góða fyrir aðra
sem voru að glíma við það sama. Ég
veit að með þessu bjargaðir þú
mannslífum og hjálpaðir þeim sem
fylgdust með þér að sjá björtu hlið-
arnar í öllum aðstæðum og minntir
okkur á að taka ekki neinu sem sjálf-
sögðum hlut. Þú skrifaðir að þegar
þér liði illa þá færir þú í Pollýönnu-
leikinn og hugsaðir að það væri allt-
af til fólk sem hefði það verra en
maður sjálfur og að veikindin hefðu
kennt þér að vera þakklát fyrir það
sem þú hefðir og hvern dag sem þú
lifðir. Aðeins hetjur hugsa svona.
Þú skrifaðir: „Minn draumur er
samt að verða hrein aftur. Hrein og
með fullar hendur af reynslu og
visku sem krabbinn gaf mér … sem
ég fæ svo vonandi að miðla áfram.
Skrítið að segja að krabbinn hafi
gefið manni eitthvað jákvætt en
þannig er það samt.“ Það er ósann-
gjarnt að þú, sem hjálpaðir svona
mörgum, hafir þurft að fara en ég
veit að á stuttum tíma náðir þú að
miðla áfram óendanlegri visku,
kjarki og bjartsýni. Þú hefur svo
sannarlega sett fótspor þitt í líf svo
margra. Í þinni minningu mun ég
reyna að gera eins og þú sagðir:
„… prufið að byrja daginn á því að
brosa, þakka fyrir daginn í dag og
opna fyrir hjartað … Er það díll?“
Það er díll sæta mín.
Elsku Kristófer, Embla, Írena,
Diddi og fjölskylda Ástu, Guð gefi
ykkur styrk í sorginni. Ásta lifir
áfram í hjörtum okkar og hennar
verður alls staðar minnst sem
sannrar hetju. Ég veit að hún er
núna hjá móður sinni og systur og er
örugglega fallegasti engillinn á
himnum.
Pálína Mjöll (Pálí).
Látin er langt um aldur fram góð
vinkona mín hún Ásta Lovísa. Ég
kynntist Ástu fyrst þegar við vorum
við nám í Fjölbrautaskólanum í
Breiðholti og héldum við vinskap
alla tíð eftir það.
Ég man þegar Ásta sýndi mér
fyrstu sónarmyndirnar af frumburði
sínum, Kristófer Daða, þegar við
sátum saman fyrir utan skólabygg-
inguna á góðum vordegi eftir ein-
kunnaafhendingu. Hún var svo ham-
ingjusöm verðandi móðir. Hún
blómstraði öll af tilhlökkun og lífið
brosti við henni.
Það fór henni svo vel að vera móð-
ir og það var eins og hún hefði aldrei
gert neitt annað, síðar fæddist
Embla Eir og svo Írena Rut.
Það var alltaf gaman að koma til
hennar í afmæli barnanna, sannkall-
aðar stórveislur, kökurnar og brauð-
réttirnir algjört lostæti. Ég leitaði
oft til hennar eftir uppskriftum fyrir
mín veisluhöld. Ásta Lovísa var
minn bjargvættur á margan hátt,
það er erfitt að taka fyrstu skrefin í
lífinu þegar maður er að fóta sig í
gegnum íbúðarkaup, eignast börn
og reyna að halda heimili án þess að
þurfa að festa sig í leiðindaskuldum.
Hún sá til þess að frumburður minn
fékk að láni ungbarnastólinn, bað-
borðið og nóg af fatnaði af hennar
börnum. Ég verð henni fyrir það
ævinlega þakklát.
Þær voru sorglegar fréttirnar
þegar hún Ásta hringdi í mig um síð-
ustu verslunarmannahelgi og til-
kynnti mér að krabbamein hefði
fundist í ristlinum hennar. Ég
gleymi seint þessu símtali, þetta
voru erfiðir tímar sem tóku við og
ekki gekk það áfallalaust fyrir sig.
Ásta og allir í kringum hana bundu
vonir við jákvæðan árangur en allt
kom fyrir ekki. Við trúðum því alltaf
að allt færi vel á endanum, það gat
ekki verið að svona ung og falleg
kona fengi ekki að njóta frekari
framtíðar með börnum sínum, en því
miður er lífið ekki sjálfgefið.
Við Anna Þóra og Ásta Lovísa átt-
um yndislegar síðustu stundir heima
hjá Ástu. Henni leið vel þessa kvöld-
stund, hún hringdi í börnin sín og
bauð þeim góða nótt, hún kom þeim í
rúmið á andlegan máta, hún sá um
uppeldið á svo faglegan hátt að ég
dáðist að henni. Hún var svo einlæg,
opinská og óhrædd við að tala um
líðan sína. Ásta var búin að taka
saman í þrjá litla kassa handa börn-
unum sínum minningar um hana til
þeirra, svo falleg hugmynd. Hún tal-
aði um það sjálf að það eina góða við
þetta krabbamein væri sá undirbún-
ingur sem hún hefði, vitandi af
svefninum langa framundan.
Það er svo sárt að þurfa að kveðja
svona yndislega manneskju.
Ég trúi því að Ástu líði vel þar
sem hún er í dag, í faðmi móður og
systur og fleiri látinna ástavina, hún
horfir til barna sinna og fylgist með
þeim þroskast. Hún sendir þeim
andlegan styrk og heldur áfram að
vaka yfir þeim í draumum og dag-
legu lífi. Hún verður hjá þeim í anda
þegar þau fermast, finna sér maka
og kvænast, hún verður hjá þeim
þegar þeim fæðast börn, barnabörn-
in hennar. Ásta verður alltaf til stað-
ar í andlegum veruleika.
Ég mun alltaf minnast Ástu
Lovísu með bros á vör og er æv-
inlega þakklát fyrir dýrmætar minn-
ingar.
Hvíldu í friði elsku vinkona.
Þín
Anna Kristín.
Elsku Ásta mín, nú ertu komin á
betri stað og líður vonandi betur.
Þetta er búin að vera erfið barátta
hjá þér en ekki léstu neinn sjá það.
Þú varst alltaf með jákvæða hug-
arfarið og hugrekkið og brosið og
húmorinn var aldrei langt undan.
Ég rifja það ennþá upp þegar þú
komst í afmælið hans Alexanders og
ég hafði pantað pizzu handa öllum
sem kom svo klukkutíma of seint og
þú skammaðir pizzusendilinn og last
yfir honum. Við hlógum mikið að
því. Ekki þorði ég að skammast í
honum en þá kemur þú svo mál-
efnaleg og flott á því og tekur við.
Svo áttum við margar góðar stundir
saman á Grund þegar við vorum að
vinna þar á karladeild eins og hún
hét þá. Ég man líka eftir því þegar
við urðum óléttar á sama tíma og
fórum oft í Kringluna með kúluna út
í loftið svo flottar á því. Við fórum
svo annaðhvort heim til mín eða þín
og átum annaðhvort nammi eða sát-
um bara og spjölluðum um allt milli
himins og jarðar. Við gátum líka tal-
að mikið í símann saman um allt og
ekkert. Þetta voru góðir tímar.
En það gleður mig að þú hafir alla
vega fengið eina ósk uppfyllta áður
en þú fórst og það var að trúlofast
honum Didda þínum.
En ég á erfitt með að sætta mig
við það að þú sért farin og að ég fái
aldrei aftur að hitta þig. Ég sé eftir
því að ég hafi ekki látið sjá mig síð-
astliðin 5 ár. En ég fékk að minnsta
kosti að sjá þig smá uppi á spítala þó
svo að ég hefði ekki getað stoppað
lengi þar sem að þú varst að reyna
að fá að sofa. Ég er svo þakklát fyrir
að hafa fengið að kynnast þér og ég
hef alltaf horft upp til þín. Þú varst
mér sem kennari í sjálfstrausti. Ég
get alltaf velt því fyrir mér „en hvað
ef“ en ég er orðin of sein og ég verð
að horfa fram á við og reyna að fara
eftir eigin ráðleggingum og vera
bjartsýn og jákvæð. Þú varst alltaf
svo dugleg og sterk og góð mamma.
Þú dýrkaðir börnin þín, Kristófer
Daða, Emblu Eir og Írenu Rut og
vildir þeim allt það besta. Ég man
það líka ennþá þegar þú varst að
tala um það við mig að þig langaði
svo að verða mamma og þá varstu
bara 18 ára.
Já, við áttum okkur margar góðar
stundir saman, elsku vinkona, ég
vildi að þær hefðu getað verið fleiri.
En eitt er víst og það er að þú hefur
kennt mér margt og ég ætla að
reyna að lifa eftir því hér eftir.
Elsku Diddi, Kristófer, Embla
Eir, Írena, Villi, Gauja, Daði, Hödd
og Villi Þór, megi Guð gefa ykkur
styrk á þessum erfiða tíma, vaka yf-
ir ykkur og vernda.
Faðir vor, þú sem ert á himnum.
Helgist þitt nafn, til komi þitt ríki,
verði þinn vilji svo á jörðu sem á himni
gef oss í dag vort daglegt brauð,
og fyrirgef oss vorar skuldir
svo sem vér og fyrirgefum
vorum skuldunautum.
Eigi leið þú oss í freistni
heldur frelsa oss frá illu,
því að þitt er ríkið, mátturinn og dýrðin
að eilífu.
Amen.
Hulda Sigurðardóttir, Baldur
Birgisson og börn.
Elsku Ásta mín. Ég bjóst ekki við
að þurfa að skrifa minningargrein
um þig nærri strax og er mér orða
vant. Þú varst stórbrotin persóna;
opin, hress, einlæg og umfram allt
traust og góð vinkona. Við áttum
margar og góðar minningar í gegn-
um tíðina þar sem við nutum þess að
bralla margt saman. Ég á eftir að
sakna þess mikið að geta ekki komið
við hjá þér í heimsókn og átt ynd-
islegar samverustundir sem ég mun
aldrei gleyma. Við gátum talað um
allt milli himins og jarðar, jafnframt
þagað og hlustað á tónlist. Gátum
legið uppi í sófa og horft á mynd og
dottað sín í hvoru horninu milli þess
sem við úðuðum í okkur hvítu
súkkulaði, okkar mesta uppáhaldi.
Þetta lýsir vináttu okkar svo vel,
hvernig sem okkur leið – vorum
glaðar eða daprar – gátum við alltaf
dregið fram það besta hvor í annarri
og átt góðar stundir. Eitt af því
marga sem við áttum sameiginlegt
var að við vorum miklir matgæð-
ingar eins og þú sagðir sjálf: ,,þú ert
sú eina sem ég get borðað með“. Við
elskuðum að elda saman og fara út
að borða og það voru ófá skipti sem
við gerðum það og nutum þess til
hins ýtrasta. Mér er ein minning
mjög minnisstæð þegar við fórum og
sóttum okkur mat á uppáhalds stað-
inn okkar sem við höfðum mikla un-
un af. Við settum miðstöðina í gang
og matinn á gólfið til að halda hon-
um heitum. Síðan keyrðum við fram
hjá ísbúðinni og horfðum hvor á
aðra, brostum og sögðum: eigum við
að fá okkur ís? Og það var ekki
spurning, við löbbuðum út með stór-
an bragðaref og hlógum alla leiðina
heim að því enginn myndi gera þetta
nema við. Það voru ófá snyrtikvöldin
okkar þar sem við gátum tvær dúll-
að okkur langt fram eftir kvöldi. Þú
ert eina manneskjan sem ég veit um
sem malaði af þægindum þegar ég
var að plokka á þér augabrúnirnar.
Ég á eftir að sakna þess mikið að
mála fallegu bláu augun þín sem
ljómuðu alltaf eins og tvær bjartar
stjörnur. Elskan mín, þú ert mesta
hetja sem ég hef kynnst, einstök
manneskja sem hafði svo mikið til að
lifa fyrir og kveður þessa jörð allt of
snemma. Þér er ætlað eitthvað stór-
brotið og mikið sem okkur er ekki
ætlað að skilja. Það gaf þér svo mik-
ið að geta miðlað visku þinni og til-
finningum áfram. Þú hefur snert
með því hjörtu allra, með hugrekki
þínu, baráttuvilja og styrk sem bjó
innra með þér. Hver og einn á að
taka þig til fyrirmyndar og lifa
hvern dag til fulls, meta allt það dýr-
mæta og góða sem við höfum að lifa
fyrir. Ég er lánsöm að hafa kynnst
þér og yndislegu börnunum þínum
sem þú elskaðir og dáðir meira en
allt.
Þín minning er ljós sem lifir.
SJÁ SÍÐU 34