Morgunblaðið - 13.06.2007, Side 36
36 MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Atvinnuauglýsingar
ⓦ
Upplýsingar í síma
893 4694
eftir kl. 14.00
Blaðberar
óskast sem
fyrst.
Keflavík
Mánagötuhverfi
Vallahverfi 2
og í sumarafleysingar
Heilsugæslulæknir
Staða heilsugæslulæknis við Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands er laus til umsóknar.Um er
að ræða stöðu heilsugæslulæknis við heilsu-
gæsluna á Selfossi og í nágrenni.
Krafist er að umsækjendur hafi sérfræði-
menntun í heimilislækningum og æskilegt er
að umsækjandi hyggi á búsetu á upptöku-
svæði HSu.
Við mat á umsóknum verður lagt mikið upp úr
eiginleikum sem lúta að samstarfi og sveigjan-
leika, skipulögðum og sjálfstæðum vinnu-
brögðum og hæfni í samskiptum.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi
Læknafélags Íslands og fjármálaráðherra.
Staðan veitist frá 1. septembar 2007 eða eftir
nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar um stöðuna veitir Egill
Rafn Sigurgeirsson, yfirlæknir í síma 480 5100
eða á netfangi: egillrs@hsu.is og Óskar Reyk-
dalsson, lækningaforstjóri í síma 480 5100 eða
á netfangi: oskar@hsu.is.
Umsóknum, ásamt staðfestum upplýsingum
um læknismenntun, læknisstörf og vísinda- og
rannsóknarstörf, skal skila á viðeigandi
eyðublöðum, sem fást á skrifstofu landlæknis,
til Magnúsar Skúlasonar, framkvæmdastjóra,
fyrir 10. júlí nk.
------------------------------------------------------------------
Heilbrigðisstofnun Suðurlands varð til við sameiningu heilsu-
gæslustöðva á Suðurlandi og Heilbrigðisstofnunarinnar á Selfossi.
Þjónustusvæði hinnar nýju stofnunar nær til um 20.000 íbúa á
Suðurlandsundirlendinu. Um er að ræða 8 heilsugæslustöðvar, eitt
sjúkrahús á Selfossi með um 70 sjúkrarúm, auk þess sem stofnunin
rekur Réttargeðdeildina á Sogni í Ölfusi. Alls eru um 220 stöðugildi
hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
Biskup Íslands
auglýsir
laust til umsóknar embætti sóknarprests í
Dómkirkjuprestakalli Reykjavíkurprófastsdæmi
vestra. Embættið veitist frá 1. október 2007.
Kirkjumálaráðherra skipar í embætti
sóknarpresta til fimm ára.
Óskað er eftir því að umsækjendur geri skrif-
lega grein fyrir menntun sinni, starfsferli og
öðru því sem þeir óska eftir að taka fram.
Allar nánari upplýsingar um embættið,
starfskjör, helstu lög og reglur sem um starfið
gilda, eru veittar á Biskupsstofu, s. 535 1500.
Umsóknarfrestur rennur út 10. júlí 2007.
Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Vísað er til laga nr. 96/2000 um jafna stöðu og
jafnan rétt kvenna og karla.
Raðauglýsingar 569 1100
Atvinnuhúsnæði
Sérhannað
iðnaðar/þjón-
ustuhúsnæði
til leigu
Nýsir hf. / PFI/PPP & FM
Reykjavíkurvegur 74 / IS 220 Hafnarfjörður
Tel. +354 540 6300/ Fax +354 562 6385
http://www.nysir.is / nysir@nysir.is
Nýsir hf. hefur í hyggju að byggja
iðnaðar/þjónustuhúsnæði á lóð í Hafn-
arfirði. Lóðin er mjög vel staðsett á
mörkum iðnaðar- og íbúðarhverfis
ásamt því að vera nálægt Reykja-
nesbrautinni. Á lóðinni er leyfi fyrir
um 3.500 fm byggingu og yrði hún
hönnuð að þörfum leigjandans.
Nýsir sérhæfir sig í rekstri mannvirkja
og kemur til greina að Nýsir annist
rekstur á húsnæðinu samkvæmt nán-
ara samkomulagi.
Áhugasamir hafi samband fyrir 1. júlí
á netfangið helgan@nysir.is eða í
síma 540 6326 (Helga Elísa).
Nánari upplýsingar um Nýsi er að
finna á www.nysir.is.
Tilkynningar
BORGARTÚN 3 - 105 REYKJAVÍK - SÍMI 411 3000 - MYNDSENDIR 411 3090
Auglýsing um breytingu
á deiliskipulagi í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og bygging-
arlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér
með auglýst tillaga að breytingu á deiliskipulagi í
Reykjavík.
Skarfagarðar 1- 3 og 8 og 10 og
Korngarðar 1-3, 4 og 13.
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi fyrir Klettasvæði
í Sundahöfn, vegna lóðanna að Skarfagörðum 1-3
og Korngörðum 1-3.
Tillagan gerir ráð fyrir að lóðin að Skarfagörðum 1
– 3 verði skipt upp í tvær lóðir og fái númerin 1 og 3
og lóðin að Skarfagörðum 8 verði skipt upp í tvær
lóðir og fái númerin 8 og 10. Lóðin að Korngörðum
1 – 3 verður skipt upp í tvær lóðir með númerin 1 – 3
og númer 4. Skilgreind er 30m² lóð fyrir spennistöð
í austurhorni lóðar að Korngörðum 1 – 3. Ný lóð
er afmörkuð við Korngarða 13 og er gert ráð fyrir
möguleika á að sameina lóðir númer 12 og 13 og
tengja mannvirki á þeim.
Nánar um tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillagan liggur frammi í upplýsingaskála skipu-
lags- og byggingarsviðs Reykjavíkurborgar að
Borgartúni 3, 1. hæð, virka daga kl. 8:20 – 16:15,
frá 13. júní 2007 til og með 25. júlí 2007. Einnig má
sjá tillöguna á heimasíðu sviðsins, www.skipbygg.
is. Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta
hvattir til að kynna sér tillöguna. Ábendingum og
athugasemdum við tillöguna skal skila skriflega
eða á netfangið skipulag@rvk.is, til skipulags-
og byggingarsviðs eigi síðar en 25. júlí 2007.
Vinsamlegast notið uppgefið netfang fyrir inn-
sendar athugasemdir með tölvupósti.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 13. júní 2007
Skipulagsstjóri Reykjavíkur
Reykjavíkurborg
Skipulags- og byggingarsvið
Auglýsing
vegna úthlutunar byggðakvóta á
fiskveiðiárinu 2006/2007 sbr. reglugerð
um úthlutun byggðakvóta til fiskiskipa
nr. 439, 15. maí 2007
Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um úthlutun
byggðakvóta til fiskiskipa fyrir eftirtalin
byggðalög:
Blönduósbær (Blönduós).
Bolungarvík.
Borgarfjarðarhreppur (Borgarfjörður eystri).
Djúpavogshreppur (Djúpivogur).
Sandgerðisbær (Sandgerði).
Snæfellsbær (Ólafsvík).
Umsóknum skal skilað til Fiskistofu á eyðublaði
sem er að finna á heimasíðu stofnunarinnar.
Umsóknarfrestur er til og með 27. júní 2007.
Fiskistofa, 11. júní 2007.
Félagslíf
Hörgshlíð 12.
Boðun fagnaðarerindisins.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Atvinna óskast
Markaðssérfræðingur
með MBA
Markaðssérfræðingur óskar eftir vinnu, með
MBA og hönnunarmenntun frá Bandaríkjunum.
Skapandi og úrræðagóður starfskraftur að leita
að framtíðarvinnu. Áhugasamir sendið fyrir-
spurnir á umsokn.mba@gmail.com.
Atvinnuauglýsingar
sími 569 1100
Raðauglýsingar
sími 569 1100