Morgunblaðið - 13.06.2007, Qupperneq 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 13. JÚNÍ 2007 49
ÍSLANDSVININUM Eli Roth hef-
ur tekist að koma sér rækilega á
kortið í Hollywood-hrollvekjugeir-
anum með Hostel-myndunum sínum
en framleiðandi þeirra er enginn
annar en Quentin Tarantino. Í
myndunum er seilst jafnvel enn
lengra í sadisma og líkamshryllingi
en gert hefur verið hingað til í
áþekkum myndum, en þær fjalla um
glæpastarfsemi í fyrrum Austur-
Evrópu sem gengur út á það að
bjóða ríkum kúnnum upp á að pynta
og myrða fólk gegn gjaldi. Fórn-
arlömbin í þeim leik eru flest ungir
bakpokaferðalangar í ævintýraleit
sem gista á farfuglaheimili nokkru,
sem reynist vera ein stór gildra fyrir
tilvonandi sláturlömb.
Í söguhugmynd Hostel-myndanna
örlar á áhugaverðum pælingum um
vald og spillingu í hnattrænu sam-
hengi en þær pælingar skila sér ekki
nema að takmörkuðu leyti í útfærslu
myndanna. Það hversu afspyrnulé-
legur leikstjóri Eli Roth er háir Hos-
tel II jafnvel enn meir en fyrri
myndinni. Þrátt fyrir allar dýfliss-
urnar, blóðið og tilraunir til fram-
andgervingar á Slóvakíu sem villtu
svæði nær Hostel II hvorki að vera
hryllileg né óhugnanleg – aðeins
klaufaleg og þunglamaleg, já og auð-
vitað subbuleg.
Hryllileg Gagnrýnandi segir Eli Roth afspyrnulélegan leikst́jóra.
Subbuleg farfuglaslátrun
KVIKMYNDIR
Smárabíó, Háskólabíó,
Laugarásbíó og Borgarbíó.
Leikstjórn: Eli Roth. Aðalhlutverk: Laur-
en German, Roger Bart, Heather Mat-
arazzo og Bijou Phillips.
Bandaríkin, 93 mín.
Farfuglaheimilið: Annar hluti
(Hostel: Part II)
Heiða Jóhannsdóttir
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:15 B.i. 7 ára
PIRATES OF THE CARRIBEAN 3 kl. 8 B.i. 10 ára
/ AKUREYRI / KEFLAVÍK
FANTASTIC 4: RISE OF THE SILVER SURFER kl. 8 - 10 B.i. 12 ára
OCEAN'S 13 kl. 8 - 10:20 B.i. 12 ára
eee
S.V. - MBLA.F.B - Blaðið
FÁÐU BÍÓMIÐANN SENDAN Í SÍMANN ÞINN MEÐ MMS
WWW.SAMBIO.IS
NÁNARI UPPLÝSINGAR
Á SAMbio.is
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Mesta ævintýri fyrr og síðar...
...byrjar
við
hjara
veraldar
„Besta Pirates
myndin í röðinni!“
tv - kvikmyndir.is
„SANNUR SUMAR-
SMELLUR... FINASTA
AFÞREYINGARMYND“
Trausti S. - BLAÐIÐ
MYND OG HLJÓÐ
Í SAMBÍÓUNUM KRINGLUNNI
eee
LIB, Topp5.is
48.000
GESTIR
Eftir Sverri Norland
sverrirn@mbl.is
„HÚN er í uppáhaldi hjá öllum í
hljómsveitinni og okkur langaði bara
að slá til,“ segir María Magn-
úsdóttir, en hún heldur Joni Mitch-
ell-heiðurstónleika í kvöld með þeim
Eðvarði Lárussyni gítarleikara, Ing-
ólfi Magnússyni bassaleikara og
Jóni Óskari Jónssyni trommara.
Heilmikil áskorun
„Við veljum einkum lög frá tíma-
bilinu ’68 - ’79, þ.e. frá sjöunda og
áttunda áratugnum,“ segir María.
„Við útsetjum lögin svolítið eftir
okkar eigin höfði, en reynum þó að
vera trú upprunalegum anda
þeirra.“
María viðurkennir að hljómsveitin
hafi ekki ráðist á garðinn þar sem
hann er lægstur. „Það er nefnilega
alls ekkert auðvelt að spila þessi
lög,“ segir hún. „Og heilmikil áskor-
un fyrir söngvara,“ bætir hún við og
kímir. Svo er þó að heyra að æfingar
hafi gengið vel og tilhlökkun fylgi
því að fá að flytja efnið á hljómleik-
unum.
Joni Mitchell er áreiðanlega með-
al virtustu tónlistarmanna heims, og
hugsanlega einhver mikilvægasti
hljóðritandi tónlistarfulltrúi kvenna
á tuttugustu öldinni.
Fjöllistakonan Joni Mitchell
Hún fæddist árið 1943 í Kanada.
Tónlist hennar spannar vítt svið
hinna ólíkustu stefna og stílbrigða;
færðist frá nokkuð hefðbundinni
þjóðlagatónlist í ýmsar ólíkar áttir,
en rokk, djass, heimstónlist og til-
raunakennd avant garde-tónlist eru
á meðal þeirra stefna sem bendla
mætti við söngkonuna. Á þeim árum
sem einkum verða til viðfangs á
heiðurstónleikunum í kvöld gaf hún
meðal annars út meistaraverk á
borð við Blue, For the Roses, Court
and Spark og The Hissing of Sum-
mer Lawns. En söngkonan hefur
ekki einungis getið sér gott orð fyrir
tónlist sína, hún hefur einnig haldið
fjölmargar málverkasýningar. Er
því vel við hæfi að titill nýútkom-
innar heimildar- og hljóm-
leikamyndar um Joni sameini allar
listgreinar hennar; ljóðlist, tón-
smíðar og málaralist. Myndin heitir
Painting with Words and Music eða
Málað með orðum og tónlist.
Joni Mitchell-tónleikarnir hefjast
klukkan 22. Þeir eru haldnir á
Domo-bar, Þingholtsstræti 5 og að-
gangseyrir er 1.000 krónur.
Hippi Joni Mitchell hefur ævinlega farið sínar eigin leiðir í listsköpun sinni.
Málað með
orðum og tónlist